Morgunblaðið - 12.03.2012, Page 34
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. MARS 2012
Tónlistarmaðurinn Árni Grétar
sem betur er þekktur sem Future-
grapher og japanski hljóðlistar-
maðurinn Hidekazu Imashige sem
er þekktur í heimaborg sinni undir
listamannsnafninu Gallery Six,
hafa sameinað krafta sína og tekið
upp sveimverkið Waterproof. Fé-
lagarnir kynntust í fyrrasumar er
þeir gáfu báðir út tónlist hjá breska
forlaginu Twisted Tree Line, en
móðurfyrirtæki þess, Somehow Re-
cordings, sér nú um framleiðslu á
verki þeirra. Waterproof er fjög-
urra laga stuttskífa sem var samin í
grunninn af Árna Grétari, en tekin
upp og útsett undir handleiðslu
Hidekazu Imashige. Vinnslan á
skífunni fór fram sitt í hvorum
heimshlutanum, en strákarnir
skiptust á hljóðskrám í gegnum
tölvupóst.
Jóhann Ómarsson sér um hönnun
á umslagi og íslenski hljómverk-
fræðingurinn Smurfen sér um tón-
jöfnun og hljóðvinnslu.
Tónlist Japanski tónlistarmaðurinn Hidekazu Imashige við vinnu.
Tónlist frá eldfjallaeyj-
unum Íslandi og Japan
» ÞjóðlagahátíðinReykjavík Folk
Festival 2012 var haldin
dagana 7.-10. mars á
Kaffi Rósenberg. Á há-
tíðinni komu fram
hljómsveitir af ýmsum
toga sem eiga það sam-
eiginlegt að flytja þjóð-
lög, blús, heimstónlist
og blöndu af þessu öllu.
Hátíðin var vel sótt eins
og ævinlega og góð
stemning alla dagana.
Reykjavík Folk Festival á Kaffi Rósenberg
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Góðir Sviðið er ekki stórt á Rósenberg en hljómsveitin Gæðablóð lét það ekki aftra sér frá því að taka vel á því.
Stemning Setið var í hverjum stól og fólk naut tónlistarinnar.
Helgi Pétursson Var kynnir kvöldsins og naut sín vel. Höfðingi Leo Gillespie spilaði með KK og var kátur.
Flottur Trommari hljómsveitarinnar Kryss var heldur betur flinkur með kjuðana og barði húðir af miklum móð.
Sólskálar
-sælureitur innan seilingar
Hentar mjög vel
íslenskri veðráttu
Við höfum framleitt viðhaldsfría
glugga og hurðir í 28 ár
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Frábært skjól gegn vindi og regni
Yfir 40 litir í boði!
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • Fax: 564 1187