Morgunblaðið - 17.03.2012, Page 2

Morgunblaðið - 17.03.2012, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2012 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Erlendir bankar áhugalausir  Laga nú eiginfjárhlutfall og ólíklegt að þeir kaupi íslenskar fjármálastofnanir BAKSVIÐ Kristján Jónsson kjon@mbl.is Ríkið á geysimiklar eignir í fjármálafyrirtækjum, alls liðlega 200 milljarða króna. Ein af forsendum fjárlaga ársins er að ríkið selji ýmsar eignir og fái í sinn hlut alls sjö milljarða króna, hluturinn í bönk- unum er langmikilvægastur í þessum efnum. Heimildarmenn segja fátt benda til þess núna að þessar áætlanir um eignasölu á árinu gangi eftir. Nær útilokað sé að erlendir aðilar vilji kaupa ís- lenska banka sem stendur og spurning hvaða inn- lendir aðilar hafi getu til slíkra fjárfestinga. Fram kom í riti fjármálaráðuneytisins í október í fyrra, Ríkisbúskapurinn 2012-2015: Skýrsla um áætlun í ríkisfjármálum, að ríkið stefndi að því að selja allan hlut sinn í Arion banka og Íslandsbanka en ekki selja meirihlutann í Landsbankanum „í nánustu framtíð“. Í fjárlögum þessa árs er gert ráð fyrir sjö milljarða hagnaði af sölu ríkiseigna á þessu ári en síðan átta milljörðum árlega 2013- 2015. Alls er gert ráð fyrir söluhagnaði upp á 31 milljarð króna fram til 2015. Bankasýsla ríkisins sér um eignir ríkisins í fjár- málafyrirtækjum, henni er ætlað að starfa til árs- loka 2014. Í Framtíðarstefnu Bankasýslunnar, sem birt var í gær, er sagt mikilvægt að sannreyna áhuga erlendra banka á að fjárfesta í innlendum fjármálafyrirtækjum. „Hamast við að endurskipuleggja“ Kostirnir séu að þá myndi verða auðveldara fyr- ir innlend fyrirtæki að fá alþjóðleg lán, samkeppni myndi aukast og flýta mætti afléttingu gjaldeyr- ishafta. En bent er á að aðstæður séu mjög erfiðar núna og auk þess vilji erlendir bankar að jafnaði eignast ráðandi hlut í fjármálafyrirtæki, ekki minnihluta. Heimildarmenn eru svartsýnir á að útlendingar vilji kaupa íslenska banka. „Orðsporið hræðir en fyrst og fremst er það þessi erfiða staða í bankaheiminum,“ segir einn. „Menn eru að ham- ast við að endurskipuleggja og endurfjármagna og laga til hjá sér.“ Annar bendir á nýjar og hertar reglur um fjár- málafyrirtæki, Basel III í Evrópu og Dodd- Frank-lögin í Bandaríkjunum. „Allt flækir þetta málin og dregur úr áhuga þeirra á að fjárfesta í ís- lenskum bönkum þótt þeir séu miklu betur fjár- magnaðir en nær allir aðrir vestrænir bankar.“ Hátt eiginfjárhlutfall » Eiginfjárhlutfallið er yfir 20% hjá íslensku bönkunum. Sumir segja að það sé í reynd nálægt núlli hjá sumum evrópskum stór- bönkum. » Lágmarkshlutfall eiginfjár hér á landi er nú 16% en aðeins 9% í nýju Basel-reglunum. Ef hlutfallið væri lækkað niður í 9% myndi ríkið geta hirt tugmilljarðahagnað. Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, lýsti sig saklausan af ákæru á hendur sér í Al- Thani-málinu fyrir héraðsdómi í gær. Sigurður, sem er búsettur erlendis, hafði sjálfur óskað eftir því að fá að koma fyrir dómstólinn í gær til þess að svara spurningum um ákæruatriðin en upphaflega var stefnt að því að rétta næst í málinu 29. mars næstkomandi. Sigurður er, ásamt Hreiðari Má Sig- urðssyni, fv. forstjóra Kaupþings, einnig ákærður fyrir umboðssvik en þeir eru sakaðir um að hafa misnotað stöðu sína þegar þeir fóru út fyrir lán- veitingaheimildir sínar í september 2008 með því að láta bankann veita hinu eignalausa félagi Gerland Assets tæplega 12,9 milljarða króna óundir- ritað peningamarkaðslán. Félagið var í eigu Ólafs Ólafssonar, það var skráð á Tortola og átti, í gegnum félög sín, 9,88% hlut í Kaupþingi. Hreiðar Már og Sigurður voru einnig ákærðir fyrir markaðsmisnotkun með því að láta ranglega líta svo út að Al-Thani sjeik, þekktur fjárfestir frá Katar, fjár- magnaði kaup á 5,01% hlut í Kaup- þingi þegar Q Iceland Holding keypti umræddan hlut. Lýsti sig saklausan  Óskaði sjálfur eftir því að fá að koma fyrir dóminn í gær  Er ákærður fyrir markaðsmisnotkun og umboðssvik Morgunblaðið/Sigurgeir S. Sakabekkur Sigurður Einarsson ásamt verjendum sínum í héraðsdómi í gær. Hann lýsti sig saklausan af ákærum á hendur sér í Al-Thani málinu. Hæstiréttur staðfesti í gær gæslu- varðhaldsúrskurð héraðsdóms yfir tveimur karlmönnum og einni konu, sem grunuð eru um grófa líkams- árás á konu í Hafnarfirði. Fólkið verður í gæsluvarðhaldi til 11. apríl. Einn karlmaður til viðbótar er í gæsluvarðhaldi vegna málsins. Í úrskurði héraðsdóms kemur fram að fólkið réðst inn í íbúð kon- unnar aðfaranótt 22. desember. Þegar lögregla mætti á staðinn var konan meðvitundarlaus. Í greinargerð ríkissaksóknara segir að þetta afbrot sé liður í starf- semi skipulagðra brotasamtaka en fólkið sé allt félagar í eða hafi tengsl við samtök, sem lögregla hér á landi og erlendis hafi skilgreint sem al- þjóðleg glæpasamtök. Um er að ræða Vítisengla og stuðningssamtök þeirra. Staðfesti gæsluvarðhald Tröllin úr þjóðsögunum eru löngu orðin að steini, þau þoldu ekki frekar en draugarnir skjannabirtuna sem fylgdi rafmagninu, segja sumir. En dul- úðug klettaströndin og hvítfyssandi brimið í húminu á Reykjanesi eru enn full af sögum og ævintýrum, okkur kæmi ekki á óvart þótt eitt bjargið færi að rumska. Tolkien hefði vafalaust bætt magnaðri frásögn af furðuverum í safnið ef hann hefði verið á staðnum með ljósmyndaranum. Sofandi steintröll og einmana fugl Morgunblaðið/RAX Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is Þvottavél WM 14A163DN Einstaklega góð kaup. Tekur mest 5,5 kg, vindur upp í 1400 sn./mín. Orkuflokkur A+. Íslenskt stjórnborð. Tækifærisverð: 89.900 kr. stgr. (Fullt verð: 109.900 kr.) Tækifæri Einar Már Guðmundsson fær Nor- rænu bókmenntaverðlaun Sænsku akademíunnar í ár fyrir framlag sitt til bókmennta. Hann tekur við verð- laununum í Stokkhólmi 11. apríl nk. Norræn bók- menntaverðlaun Sænsku akademí- unnar hafa verið veitt árlega frá 1986 og þykja einhver mesti heiður sem nor- rænum rithöf- undi getur hlotn- ast og eru gjarnan nefnd norrænu nób- elsverðlaunin eða „litli Nóbelinn“, samkvæmt fréttatilkynningu frá Forlaginu, útgáfu Einars. Í fréttatilkynningu sænsku aka- demíunnar kemur fram að verðlaun- in nema 350.000 sænskum krónum sem samsvarar hálfri sjöundu millj- ón íslenskra króna. Einar Már hefur hlotið ýmiskonar verðlaun og viðurkenningar fyrir verk sín, þar á meðal Bókmennta- verðlaun Norðurlandaráðs 1995, norsku Bjørnsonverðlaunin og Kar- en Blixen heiðursverðlaunin. Bækur hans hafa komið út á fjölmörgum tungumálum og þar á meðal hafa tíu bóka hans komið út á sænsku. Fær norræn bókmennta- verðlaun  Verðlaunin hálf sjöunda milljón Einar Már Guðmundsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.