Morgunblaðið - 17.03.2012, Qupperneq 10

Morgunblaðið - 17.03.2012, Qupperneq 10
Á totalbeauty.com er hægt að finna ýmsar sniðugar ráðleggingar um förðun, hárgreiðslu og umhirðu húð- arinnar. T.d. má þar finna greinar um hvern- ig eigi að mála sig um augun, góðar hárvörur og hvernig litir á augn- skuggum og varalitum verði vinsælir í vor og sumar. Þá er hægt að lesa sér til um bestu og verstu ilmvötnin sem þekktir leikarar og söngvarar hafa sent frá sér, hvernig eigi að búa til góða andlitsmaska og hvernig best sé að bera sig að því að veita sjálfum sér fótsnyrtingu þannig að það gefi snyrtistofunum ekkert eftir. Margar konur þekkja að vera orðn- ar þreyttar á hárinu sínu og finnast þær alltaf greiða það eins. Á síðunni er hægt að lesa sér til um 17 mismun- andi og hárgreiðslur sem tekur innan við 10 mínútur að gera og er farið yfir handtökin skref fyrir skref. Vefsíðan www.totalbeauty.com Falleg förðun og greiðsla Farði Á síðunni er að finna mörg sniðug förðunarráð fyrir konur á öllum aldri. 10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2012 Tlvalið að líta inn í Hitt húsið í dag milli klukkan 16 og 18 en þá opnar Rebekka Líf ljósmyndasýningu í Gall- erí Tukt. Þetta er fyrsta ljós- myndasýning Rebekku og yfirskrift sýningarinnar er „Dulúð“. Sýningin samanstendur af sex ljósmyndum og myndefnið er spennandi og í senn forboðið; kyntöfrandi, sveipað töfr- um, eins og segir í tilkynningu. Re- bekka lýkur námi í ljósmyndun við Tækniskólann í vor en hún hefur einnig lokið sveinsprófi í grafískri miðlun. Allar myndirnar á sýningunni eru prentaðar á álplötur og eru til sölu. Sýningin stendur til 26. mars. Endilega … … skoðið dulúð og töfra Dulúð Rebekka Líf sýnir ljósmyndir. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Morgunblaðið/Ómar Konur Séra Kristín Þórunn (t.v) og séra Sigrún Óskarsdóttir ásamt dóttur Kristínar, Heiðbjörtu Önnu Árnadóttur. Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Við viljum brjóta niðurmúra með því að verameð sérstaka kvenna-messu og sérstaka karla- messu. Kannski finnst fólki það undarlegt en þannig viljum við fá fólk til að hugsa hlutina upp á nýtt. Bæði kynin eru að sjálfsögðu velkomin á báðar þessar messur og ég hvet karla og konur til að mæta í báðar athafnirnar og upplifa þetta sem eina heild. Við eigum kannski að horfa á nýjan hátt á þetta allt saman, kannski er þetta ekkert endilega afgerandi kvenna- eða karlamessa, heldur fyrst og fremst fallegar messur,“ segir séra Sigrún Óskarsdóttir, sókn- arprestur í Langholtskirkju, en á morgun, sunnudag, verður sérstök kvennamessa í Langholtskirkju og eftir viku verður þar sérstök karla- messa. Guðmundur Andri gestapredikari Í kvennamessunni munu ein- vörðungu konur sjá um alla þjón- ustu og í karlamessunni einungis karlar. „Langholtssöfnuður fagnar 60 ára afmæli um þessar mundir og í tilefni af því ætlum við að brjóta upp hefðina og vera með uppákomur öðru hverju út allt ár- ið. Kvenna- og karlamessan er hluti af því. Einnig fáum við í hverjum mánuði gestapredikara sem á einhverjar rætur hér í söfn- uðinum, til dæmis ætlar Guð- mundur Andri Thorsson að vera gestapredikari hjá okkur í karla- messunni, en hann ólst upp hér í hverfinu. Karlakórinn Fóst- bræður ætlar að syngja í karla- messunni.“ Karlamessa á mjúkum degi Sigrún segir að hugmyndin um sérstaka karlamessu og sér- staka kvennamessu sé einhvers konar kynuslahugmynd. „Fastan er þung og dimmrödduð, það er eitthvað karlmannlegt við þennan tíma samkvæmt gamalli hefð. Þess vegna fannst okkur heillandi að hafa kvennamessu á sunnu- degi í miðföstu. Ef við getum tal- að um mjúkan og kvenlegan dag í kirkjuárinu þá er hann líka á föstunni en það er boðunar- dagur Maríu hinn 25. mars, en þá ætlum við að vera með karla- messu. Við gerum þetta til að brjóta upp staðalmyndir og hrista upp í því sem svo oft er fast og niðurneglt.“ Sálmar eftir konur Sigrún segir að það sé búið að vera gaman að undirbúa kvenna- messuna. „Við köllum saman fullt af frábærum konum til að hafa þetta fallega heild. Við reynum að finna sálma eftir konur og kvenna- kór Háskólakórsins syngur undir stjórn Margrétar Bóasdóttur. Judy Þorbergsson sér um undir- leikinn á orgelinu og systurnar séra Kristín Þórunn og Dagný Halla Tómasdætur sjá um bæna- gjörðina. Kvenpresturinn ég þjón- ar svo fyrir altari. Gesta- predikarinn verður guðfræðineminn Díana Ósk Óskarsdóttir. Þetta verður mikil stemning og við munum koma syngjandi inn undir forspilinu. Svo köllum við að sjálfsögðu á karl- prest til að þjóna fyrir alt- ari í karlamessunni.“ Messurnar rittúlkaðar Sigrún segir að þau vilji að sem flestir nái að njóta mess- unnar og þess vegna verða allar hátíðar- messur í tilefni kirkju- afmælisins rittúlkaðar í kirkjunni. „Þá situr rit- túlkur í kirkjunni og slær jafnóðum inn allt sem sagt er í messunni og það birtist á stóru tjaldi fyrir þá sem eru heyrnarlausir eða heyrnarskertir. Þetta er liður í því að rjúfa ein- angrun heyrnarskertra en Heyrnarhjálp á 75 ára afmæli um þessar mundir og þetta er gert í sam- starfi við þau samtök.“ Þetta er einhvers kon- ar kynuslahugmynd Nauðsynlegt er að brjóta upp hefðina öðru hvoru og hrista upp í staðalmyndum. Einmitt þess vegna verður kvennamessa á morgun í Langholtskirkju og karla- messa eftir viku. Langholtssöfnuður fagnar 60 ára afmæli um þessar mundir og eru kven- og karlamessurnar hluti af ýmis konar uppákomum því tengdu. ARMANI D&G STENSTRÖMS BALDESSARINI SCHUMACHER T BY ALEXANDER WANG CAMBIO ROCCO P PEDRO GARCIA PAOLO DA PONTE

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.