Morgunblaðið - 17.03.2012, Síða 14
ÚR BÆJARLÍFINU
Líney Sigurðardóttir
Þórshöfn
Opið hús var hjá Heilbrigðis-
stofnun Þingeyinga á Þórshöfn á
fimmtudaginn en tilefnið var vígsla á
nýju stafrænu framköllunar- og
röntgentæki. Íbúar og velunnarar
Heilbrigðisstofnunarinnar komu til
að skoða nýja búnaðinn, þar á meðal
fulltrúar frá félagasamtökum og fyr-
irtækjum sem styrktu Heilbrigðis-
stofnunina við þessi kaup. Tólf aðilar
lögðu þar hönd á plóginn en stærstir
þeirra voru Ísfélag Vestmannaeyja
og Vistor en fyrirtækin gáfu eina
milljón hvort til kaupanna. Styrk-
irnir voru alls rúmar fjórar milljónir
króna eða um helmingur af kaup-
verðinu, sem var níu milljónir. Gef-
endur eru úr ólíkum geirum sam-
félagsins; allt frá kvenfélögum til
stórfyrirtækja og stéttarfélaga en
slíkur hlýhugur heimafyrir er Heil-
brigðisstofnuninni ómetanlegur,
ekki síst á tímum niðurskurðar. Ís-
félag Vestmannaeyja hefur verið
traustur bakhjarl hér á Þórshöfn og
fram kom í máli Rafns Jónssonar að
stefna félagsins er að styðja við mál-
efni í sínu nærsamfélagi svo byggð-
arlagið á þar öflugan stuðning.
Gömlu röntgentækin eru barn síns
tíma og tímabært að tæknin leysi
þau af hólmi en þau komu upp-
haflega frá bækistöðvum Banda-
ríkjahers á Heiðarfjalli á Langanesi
þegar starfsemi þar lagðist af, svo
tækin eru um hálfrar aldar gömul.
Nýju tækin gefa skýrar og nákvæm-
ar stafrænar myndir og ýmsa mögu-
leika sem gamli búnaðurinn hafði
ekki og þörfin minnkar á því að fólk
þurfi í burtu til myndatöku.
Grásleppuvertíð er hafin og
lögðu fjórir grásleppubátar strax
fyrsta daginn. Sjö bátar gera út á
grásleppu þessa vertíðina, færri en í
fyrravor. Sæmundur Einarsson er
að hefja sína 30. grásleppuvertíð og
leggst hún ekki svo illa í hann. Hann
er hóflega bjartsýnn á hrognaverðið,
sem ekki hefur verið gefið út enn,
hrognabirgðir frá fyrra ári eru þó
allar seldar. Að sögn hans vilja
hrognakaupendur núna ekki ein-
göngu fá hrognin heldur líka bolinn
eða fiskinn sjálfan svo allur aflinn
kemur í land. Það er því í fyrsta sinn
á Þórshöfn að grásleppubátar koma
með aflann óslægðan í land en gert
er að honum hjá Fiskmarkaði Ís-
félagsins. Grásleppan fer helst á
markað í Kína en Ameríkanar hafa
einnig sýnt fiskinum áhuga og voru
hér á Þórshöfn í vikunni. Sæmundur
vonar að tíðin verði hagstæð á ver-
tíðinni en sunnan- og suðvestanáttir
hafa verið ríkjandi og eru fram-
undan, eftir stutt norðanskot. Svolít-
ið hefur orðið vart við rauðmaga í
þorskanetum en minna um grá-
sleppu, sagði þessi reyndi útgerðar-
maður að lokum.
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
Velunnarar Heilbrigðisstofnunarinnar á Þórshöfn fjölmenntu þegar stofnunin tók formlega í notkun nýjan búnað
til röntgenmyndatöku. Fremstir sitja læknarnir Sigurður Halldórsson og Haraldur Tómasson, ánægðir með bætta
aðstöðu og rausnarlegar gjafir samfélagsins. Fyrir aftan þá eru velunnarar stofnunarinnar og fulltrúar þeirra.
Góðar gjafir á
Heilbrigðisstofnunina
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2012
Arion banki stendur fyrir skatta-
degi sunnudaginn 18. mars í sam-
starfi við Mannréttindaráð Reykja-
víkurborgar, lögfræðiþjónustu
Lögréttu og KPMG.
Fá einstaklingar þar endur-
gjaldslausa ráðgjöf við gerð skatt-
framtals en frestur til að skila
skattframtali einstaklinga er til 22.
mars.
Ráðgjöfin verður veitt frá 11-17 í
Háskólanum í Reykjavík. Arion
banki býður einnig upp á táknmáls-
túlkun meðan á ráðgjöfinni stend-
ur.
Aðstoð við framtal
Breski fræðimaðurinn Thomas
William Shakespeare var í gær
sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við
Háskóla Íslands frá félags- og mann-
vísindadeild félagsvísindasviðs.
Shakespeare er þekktur sem
fræðimaður á sviði fötlunarfræða og
baráttumaður fyrir réttindum fatl-
aðs fólks. Hann nam félagsvísindi
við Cambridgeháskóla, lauk þaðan
doktorsprófi árið 1994 og hefur
meðal annars starfað við háskólana í
Leeds og Newcastle.
Shakespeare hefur frá árinu 2008
starfað sem sérfræðingur hjá Al-
þjóðaheilbrigðisstofnuninni. Hann
var einn af höfundum og ritstjórum
alþjóðaskýrslu um fötlun og kynnti
skýrsluna á málþingi sem haldið var
á vegum velferðarráðuneytisins á
fimmtudaginn.
Í skýrslunni er fjallað um helstu
málefni sem snerta fatlað fólk svo
sem heilbrigði, menntun og atvinnu.
Ljósmynd/Gunnar Sverrisson
Stór stund Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, Guðbjörg Linda Rafnsdóttir, for-
seti Félags- og mannvísindadeildar, dr. Thomas William Shakespeare, heiðursdoktor, og
Rannveig Traustadóttir, prófessor í fötlunarfræðum við Félags- og mannvísindadeild.
Thomas William Shakespeare hlýtur heið-
ursdoktorsnafnbót Háskóla Íslands
Verkfræði- og náttúruvísindasvið
(VoN) Háskóla Íslands hlaut um-
hverfisverðlaun Grænna daga,
Plöntuna, sem afhent voru í fyrsta
sinn í gær.
Plantan er veitt einstaklingi, hóp,
sviði eða stofnun innan HÍ, sem hef-
ur starfað að umhverfismálum og
komið þeim framfæri innan hans.
Horft er til frumleika, frumkvæðis
og árangurs starfsins við val á
verðlaunahafa.
Verkfræði- og náttúruvísinda-
sviðið hefur verið leiðandi innan
skólans í sorpflokkun og verið drif-
krafturinn að baki því að flokk-
unarbarir eru nú í öllum bygg-
ingum skólans. Innan sviðsins
starfar umhverfisnefnd sem mótað
hefur sjálfbærnistefnu sviðsins.
Nemendafélög innan sviðsins
standa fyrir keppninni ,,Hjólað í
skólann“ sem hefst eftir rúma viku
á milli nemendafélaga innan skól-
ans. Þá vinnur VoN að því að hljóta
Grænfánann, fyrst háskólasviða.
Það er GAIA, félag meistara-
nema í umhverfis- og auðlindafræð-
um. sem stendur fyrir Grænum
dögum í HÍ og veitir verðlaunin.
Plantan Verkfræði- og umhverfissvið HÍ
fékk umhverfisverðlaun Grænna daga.
VoN hlaut verðlaun
Grænna daga
Árlegt kóramót barnakóra í
Hafnarfirði og á Álftanesi,
Barnakóramót Hafnarfjarðar,
verður haldið í dag í Víðistaða-
kirkju.
Alls munu nær 350 börn
koma fram á tvennum tón-
leikum. Fyrri tónleikarnir hefj-
ast klukkan 12:30 en þá syngja
Kór Setbergsskóla, Barnakór
Hafnarfjarðarkirkju, Kór
Lækjarskóla, Kór Áslandsskóla og Kór Öldutúnsskóla. Síðari tónleikarnir
hefjast klukkan 15:30 en þá koma fram Unglingakór Hafnarfjarðarkirkju,
Kór Öldutúnsskóla, Sönghópur úr Víðistaðakirkju og Kór Lækjarskóla.
Kóramótið er árlegt og hefur farið fram síðan 1997. Aðgangur að kóra-
mótinu er ókeypis og eru allir velkomnir meðan húsrúm leyfir.
Barnakóramót í Hafnarfirði
Barnakórar í Víðistaðakirkju.
Innanríkisráðuneytið gengst fyrir
hádegisfundi í næstu viku um spila-
fíkn og happdrættismál þar sem
einnig verður rætt til hvaða að-
gerða unnt er að grípa til að sporna
við spilafíkn.
Fundurinn verður haldinn í Iðnó
í Reykjavík miðvikudaginn 21.
mars klukkan 12 til 13.
Tilgangur fundarins er annars
vegar að greina frá nýrri rannsókn
um spilahegðun og spilavanda Ís-
lendinga og hins vegar að fjalla um
hvaða aðgerðir geta dregið úr
spilafíkn.
Ögmundur Jónasson innanríkis-
ráðherra flytur m.a. ávarp á fund-
inum.
Fjalla um spilafíkn
og happdrættismál
STUTT