Morgunblaðið - 17.03.2012, Síða 17
FRÉTTIR 17Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2012
arionbanki.is/namsmenn – 444 7000
Þegar stórum áfanga er náð er mikilvægt að huga að framtíðinni.
Við gefum fermingarbarninu 5.000 kr. eða bol frá Dogma ef
30.000 kr. eða meira eru lagðar inn á Framtíðarreikning þess í
Arion banka. Hið sama á við ef Framtíðarreikningur er stofnaður
í nafni fermingarbarnsins.
Láttu gjöfina taka vaxtarkipp hjá okkur.
Fermingargjöf
Arion banka
„Við höfum lagt upp með að virkja
heimafólk sem mest til þátttöku.
Reyna að auka samkennd í sam-
félaginu og blása lífi í fólk nú þegar
vorið er á næsta leiti,“ segir Krist-
inn J. Reimarsson, sviðsstjóri frí-
stunda- og menningarmála hjá
Grindavíkurbæ. Þar hefst menning-
arvika í dag.
Fjölbreytt dagskrá er í menning-
arvikunni sem haldin er í fjórða
skiptið og þótt áhersla sé lögð á
framlag heimamanna er dagskráin
skreytt völdu aðkomufólki. Reynsl-
an sýnir að þau atriði draga að
flesta gesti. Stærstu viðburðirnir að
þessu sinni eru tónleikar Valgeirs
Guðjónssonar á sunnudag og Gosp-
elkórs Fíladelfíu á mánudag. Tolli
verður með málverkasýningu og
Guðbergskvöld verður á Bryggj-
unni næstkomandi fimmtudag.
Menningavikan verður sett í dag
við athöfn í Kvikunni. Við þá athöfn
verða afhent menningarverðlaun
Grindavíkur.
Heimafólk
virkjað til
þátttöku
Menningarvika
sett í Grindavík
Morgunblaðið/Ómar
Menning Margt er um að vera á
menningarviku í Grindavík.
Minnisvarði um Gunnar Bjarnason, hrossa-
ræktarráðunaut og kennara, verður reistur á
Hvanneyri í vor. Jafnframt er hafin vinna við
undirbúning stofnunar alþjóðlegs rannsókn-
arsjóðs íslenska hestsins.
Hópur fólks úr Borgarfirði og Hollvina-
samtök Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri
eru að safna peningum fyrir minnisvarðanum
sem Bjarni Þór Bjarnason, listamaður á
Akranesi, gerir.
Gunnarsvaka verður haldin í Halldórsfjósi
á Hvanneyri næstkomandi fimmtudag, til
heiðurs Gunnari og til að safna peningum
fyrir minnisvarðann. Þar koma fram þjóð-
þekktir sagnaþulir og spaugarar sem flestir
þekktu Gunnar sem kennara á Hvanneyri.
Nefna má Guðna Ágústsson, Sigurð Sæ-
mundsson og Einar E. Gíslason á Skörðugili.
Gísli Einasson sjónvarpsmaður og Bjarni
Guðmundsson safnstjóri koma við sögu og
karlakórinn Söngbræður.
Gunnar vann að útflutningi og kynningu ís-
lenska hestsins víða um lönd. Verkefnið hef-
ur þróast út í að hefja söfnun fjármuna til
stofnunar alþjóðlegs rannsóknarsjóðs ís-
lenska hestsins. Þorvaldur Kristjánsson,
kennari á Hvanneyri, segir stefnt að söfnun
100-200 milljóna króna. Styrkt verða áhuga-
verð verkefni, innanlands og utan.
helgi@mbl.is
Reisa Gunnari minnisvarða
Hestamaður Gunnar Bjarnason.
Sagnakvöld til heiðurs Gunnari Bjarnasyni á Hvanneyri Unnið að
stofnun alþjóðlegs rannsóknarsjóðs um hestinn Safna 100-200 milljónum
Hundrað konur
eru skráðar til
leiks í þremur
styrkleikaflokk-
um í ístöltmótinu
„Svellkaldar kon-
ur“ sem haldið er
í Skautahöllinni í
Laugardal í
kvöld.
Forkeppni
hefst klukkan 17
en úrslit verða eftir kvöldmat. Búist
er við hörkukeppni enda hestakost-
urinn sterkur og til mikils að vinna
fyrir knapana. Sigurvegarinn fær að
varðveita farandgripinn Ísfjöðrina
og svo fá þeir efstu í öllum flokkum
folatoll undir úrvals stóðhesta í verð-
laun. Þá munu dómarar velja glæsi-
legasta parið en þar verður ma. litið
til snyrtimennsku knapa og hests.
Mótið er haldið af Landssambandi
hestamannafélaga til styrktar ís-
lenska landsliðinu í hestaíþróttum.
Hundrað
„svellkaldar
konur“ keppa
Riðið verður á
skautasvellinu.