Morgunblaðið - 17.03.2012, Síða 25
25
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2012
Bankastræti 12 | 101 Reykjavík | 551 4007 | skartgripirogur.is
Opið virka daga kl. 9-18,
laugardaga kl. 10-17.
Fermingargjafir
í úrvali
12.700 kr.
15.800 kr.
8.900 kr.
9.700 kr.
8.900 kr.
9.700 kr.
Viltu eldast hægar?
Brokkolí
áhrifin
Cognicore er bætiefni úr brokkolí sem innheldur
virka efnið sulforaphane, en það er talið
vera ein áhrifaríkasta vörnin gegn
hrörnun fruma og ótímabærri öldrun.
Þorbjörg Hafsteins
„Áhrifaríkt bætiefni
fyrir meiri orku og
bætta heilsu.“
www.lifandimarkadur.is
Borgartúni 24 | Reykjavík
Hæðasmára 6 | Kópavogi
Sími: 585 8700
Nýttherra óskar að bera þar upp mál.
Fundunum stjórnar sá ráðherra, er
forseti lýðveldisins hefur kvatt til
forsætis, og nefnist hann forsætis-
ráðherra.“
Tiltekið er í ákærunni að skortur
á slíku fundahaldi getið brotið í
bága við lög um ráðherraábyrgð.
Andri vék að þessari túlkun með
þeim orðum að „ákæruvaldið virt-
ist ekki hafa skoðað á neinn hátt
forsögu þessa stjórnarskrár-
ákvæðis“.
Leifar frá fyrri tíð
Hann setti 17. greinina í sögu-
legt samhengi og hvernig tekið
hefði verið fram í stjórnarskránni
árið 1920 að stjórnarmálefni sem
þyrfti að bera undir konung yrðu
borin undir aðra ráðherra áður en
einn ráðherranna færi utan og
kynnti þau Danakonungi. Hin laga-
legu andmæli Andra við þessum
skilningi verða ekki rakin nánar
hér en látið nægja að geta þess að
verjandi benti á að ríkis-
stjórnarfundir væru ekki fjölskipað
stjórnvald og hefðu „að öllu jöfnu
ekkert lögskipað hlutverk“. „Ég tel
að það sé eftir atvikum langsótt,“
sagði Andri í lok ræðu sinnar um
líkur á sakfellingu í málinu.
Sagði Andri að fullsannað hefði verið
með framburði tuga vitna fyrir
dómnum að ekki hefði verið hægt að
fara út í ráðstafanir til að minnka
bankakerfið á þessum tíma.
Auk þess hefði Geir ekki haft
neina heimild í lögum til að grípa til
virkra aðgerða gegn bönkunum á
þessum tíma. Flestir hefðu talið
stöðu þeirra sterka og það hefði ver-
ið staðfest af eftirlitsaðilum og í upp-
gjörum bankanna sjálfra.
„Það blasir við að aðgerðir af hálfu
ákærða hefðu verið bæði óheimilar
og ólöglegar og hefðu getað valdið
hruni bankanna þá þegar. Ekki er
hægt að ætlast til að ákærði hefði
stuðlað að því,“ sagði hann.
Hvað varðar flutning bankanna
sagði verjandi að miðað við efna-
hagsástandið hefði verið glórulaust
að ætla að flytja Kaupþing skyndi-
lega til Bretlands og engum hefði
dottið það í hug.
Ef Geir hefði átt að fara fram gegn
bönkunum með þeim hætti sem hon-
um er gefið að sök að hafa vanrækt,
þá hefði hann þurft að fá tillögur frá
Seðlabankanum og FME, studdar
gögnum. Hvorug stofnun hefði metið
þetta raunhæft árið 2008 og því
hefðu engar tillögur borist um það.
„Það er algerlega ósannað að
ákærði hefði getað gefið einhvers
konar bindandi fyrirmæli um flutn-
ing bankanna til annarra landa, ein-
hverra hreppaflutninga banka. Sak-
sóknari segir að hann hefði átt að
setja lög. En út á hvað hefði þessi
lagasetning átt að ganga?“
kert gert
Morgunblaðið/Kristinn
Lokadagur Geir H. Haarde yfirgefur Landsdóm. á
eftir koma Sigríður J. Friðjónsdóttir, saksóknari Al-
þingis, og Helgi Magnús Gunnarsson varasaksóknari.
Réttarhöldunum yfir Geir H.
Haarde lauk með því að sækj-
andi og verjandi fluttu síðari
málflutningsræður sínar.
Bar þar ef til vill hæst að
einn dómara í Landsdómi,
Linda Rós Michaelsdóttir,
spurði Sigríði hvort hún þekkti
dæmi um að ríki hefði þrýst á
um flutning höfuðstöðva
banka milli landa.
Kvaðst Sigríður þá ekki geta
reifað dæmi fyrir dómnum.
Að lokinni síðari ræðu
Andra spurði Markús Sigur-
björnsson, forseti Landsdóms,
hvort hinn ákærði vildi koma
einhverju á framfæri undir
lokin.
„Nei, takk. Ég hyggst ekki
nýta mér þann rétt, virðulegi
forseti,“ sagði Geir og réttar-
höldunum lauk.
Tvær ræður
í blálokin
SAKSÓKNARI SPURÐUR