Morgunblaðið - 17.03.2012, Page 28
Jörðin Refsstaðir 134510 í Borgarbyggð er til sölu. Jörðin er talin 574 ha.
Byggingar: Íbúðarhús 168 m2, vélageymsla og eldri hlaða, samtals um
150 m2; fjárhús og hlaða ca 300 m2 alls og nýbyggt fjós, 1047 m2. Miklar
endurbætur, bæði á húsum og landi, nýlegar girðingar, ný vatnsveita f.
kalt vatn. Hitaveita og 3ja fasa rafmagn. Ræktað land nálægt 100 ha.
Veiðiréttur í Hvítá. Á Refsstöðum var rekið stórt kúabú. Vel staðsett eign í
alfaraleið. Stutt í helstu ferðamannastaði í Borgarfirði. Jörðin selst án
fullvirðisréttar, véla eða bústofns. Sjá nánari lýsingu og myndir á
www.fasteignamidstodin.is Óskað er tilboða í eignina.
Refsstaðir
Íbúar Belgíu sameinuðust í þögn
klukkan 11 í gærmorgun til að minn-
ast þeirra, sem létu lífið í rútuslysi í
Sviss á þriðjudagskvöld.
Engar útsendingar voru í ljós-
vakamiðlum og allar almennings-
samgöngur stöðvuðust á sama tíma.
Í kjölfarið hringdu kirkjuklukkur
um alla Belgíu.
Um svipað leyti lentu tvær her-
þotur á Melbroesk herflugvellinum
skammt frá Brussel, höfuðborg
Belgíu, með lík barnanna sem fórust
í slysinu. Degi áður höfðu margir
foreldrar farið á vettvang slyssins
og sumir þurftu að bera kennsl á
börn sín látin. Nokkur þeirra barna
sem lifðu af slysið sneru aftur til
Belgíu aðfaranótt föstudagsins.
Alls létu 28 lífið í slysinu, þar af 22
börn. Flestir hinna látnu voru Belg-
ar en sjö voru með hollenskan rík-
isborgararétt. Í rútunni voru 46
börn á aldrinum11-12 ára úr tveimur
kaþólskum skólum í Belgíu ásamt
fjórum kennurum og tveimur bíl-
stjórum. Hópurinn hafði verið í
vikulöngu skíðaferðalagi í sviss-
nesku ölpunum en var á heimleið
þegar slysið varð.
Orsakirnar enn ókunnar
Rannsókn er hafin í Sviss á til-
drögum slyssins sem varð þegar
rútan fór utan í steinsteyptan vegg í
jarðgöngum á hraðbraut í Suður-
Sviss. Fyrir liggur, að rútunni, sem
var ný, var ekið á löglegum hraða.
Þá voru í gær birtar bráðabirgðanið-
urstöður úr krufningu á líki bílstjór-
ans og samkvæmt þeim var hann
var ekki undir áhrifum áfengis og
ekkert benti til þess að hann hefði
fengið hjartaáfall eða aðsvif.
Vangaveltur voru um það á
fimmtudag að bílstjórinn hefði verið
að skipta um mynddisk í geislaspil-
ara og misst við það stjórn á rút-
unni. Þessu hafa vinnuveitendur
hans neitað og lögregla vísaði þessu
einnig á bug í gær.
Svissnesk yfirvöld hafa lýst því yf-
ir, að þau muni fara yfir alla örygg-
isþætti jarðganganna sem eru tveir
og hálfur kílómetri að lengd. Talið
er að rútan hafi rekist á vegg í
beygju inni í göngunum.
Enn á sjúkrahúsi í Sviss
Þrjár stúlkur liggja enn á sjúkra-
húsi í Sviss. Ein þeirra er komin til
meðvitundar en hinum tveimur er
haldið sofandi. Í tilkynningu frá
sjúkrahúsinu segir að of snemmt sé
að segja til um hvort þær séu ennþá
í lífshættu.
Fjölmargar minningarathafnir
hafa verið haldnar í kjölfar slyssins,
bæði í Belgíu og Sviss. Svissnesk
stjórnvöld héldu minningarathöfn
ekki langt frá slysstaðnum og blóm
hafa verið lögð við jarðgöngin. Þá
hafa blóm og bangsar verið lögð
framan við þá skóla í Belgíu, sem
börnin gengu í.
Haldin var tilfinningaþrungin
minningarathöfn í bænum Lommel
sem 2.500 manns sóttu og báðu fyrir
þeim látnu. Athöfnin var haldin að
kaþólskum sið þar sem lesin voru
upp nöfn allra þeirra sem létust.
„Þetta er lítill bær þar sem ekkert
gerist og þar sem allir þekkja alla,“
er haft eftir einum bæjarbúa.
Samúðarkveðjur frá Íslandi
Jóhanna Sigurðardóttir, forsætis-
ráðherra, sendi á fimmtudag for-
sætisráðherra Belgíu, Elio Di Rupo,
samúðarkveðjur til belgísku þjóðar-
innar, fjölskyldna og aðstandenda
þeirra sem fórust í slysinu.
Reuters
Þjóðarsorg Börn leggja teikningar og bangsa við Stekske grunnskólann í Lommel í Belgíu í gær.
Íbúar Belgíu sameinuðust
í þagnarstund vegna slyss
Lík barna sem
fórust flutt til Belgíu
í gær Þrjú börn
enn á sjúkrahúsi
Manneken Pis Eitt helsta tákn
Brussel, bar sorgarborða í gær.
28 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2012
Wolfgang Schäuble, fjármála-
ráðherra Þýskalands, sagði í gær
að þýskir tollverðir hefðu í fyrra
lagt hald á 29 tonn af fíkniefnum,
sem reynt var að smygla til lands-
ins.
Árið 2010 lögðu tollverðir hald á
27 tonn af ólöglegum fíkniefnum
sem reynt var að flytja yfir landa-
mærin til Þýskalands.
Fíkniefnin, sem gerð voru upp-
tæk í fyrra, eru metin á um 150
milljónir evra, jafnvirði 25 millj-
arða króna. Um var meðal annars
að ræða 1,6 tonn af kókaíni, 1,3
tonn af maríjúana og um 360 kíló af
heróín
ÞÝSKALAND:
Fíkniefni metin á 25
milljarða króna voru
gerð upptæk
AP
Þýskur tollvörður með poka af kókaíni,
sem fannst í skipi í Hamborg nýlega.
Leit stóð í gærkvöldi enn yfir nyrst
í Svíþjóð að norskri C-130 Hercules
herflugvél, sem hvarf af ratsjá um
miðjan dag á fimmtudag þegar hún
var yfir norðurhluta Svíþjóðar.
Undir kvöld bárust fréttir um að
fundist hefði brak á stóru svæði
beggja vegna við fjallið Kebnekaise,
þar á meðal olíublautur rennilás.
Fimm norskir hermenn voru í
vélinni, fjórir karlar og ein kona.
Síðdegis í gær sá áhöfn Orion-
ratsjárvélar glitta í appelsínugula
hluti, sem hugsanlega væru brak úr
flugvélinni, á leitarsvæðinu nálægt
Kebnekaise, hæsta fjalli Svíþjóðar.
Einnig sáust ummerki um snjóflóð.
Leit hafði þá gengið illa vegna veð-
urs og lélegs skyggnis og ekki var
hægt að nota þyrlur en Orion-vélin
var við leit í allan gærdag.
Þyrlur voru sendar á svæðið eftir
að brakið sást. Þá voru leitarflokk-
ar sendir af stað þrátt fyrir að
myrkur væri að skella á og veðrið
slæmt. Vindhraðinn var allt að 35-
37 metrar á sekúndu á svæðinu síð-
degis í gær.
Hvarf af ratsjá
Þrjár norskar herflugvélar lögðu
af stað frá Evenes í Noregi um
klukkan 13:40 á fimmtudag og var
ferðinni heitið til Kiruna í Svíþjóð.
Ein flugvélin hvarf skyndilega af
ratsjá klukkan 14:53. Þá var hún í
um 2200 metra hæð en fjallið
Kebnekaise er aðeins 60 metrum
lægra.
Klukkan 19:29 barst neyðarkall
frá sjálfvirkum sendi en síðan hefur
hvorki heyrst né sést til vélarinnar.
Norski herinn birti í gær nöfn og
myndir af áhöfn vélarinnar. Um
borð í vélinni voru Ståle Garberg,
höfuðsmaður, 42 ára, Truls Audun
yfirliðsforingi, 46 ára, Bjørn Yngvar
Haug, höfuðsmaður 40 ára, Siw Ro-
bertsen, höfuðsmaður 45 ára og
Steinar Utne, höfuðsmaður, 35 ára.
Enn leitað að norskri-
herflugvél í Svíþjóð
Fimm norskra
hermanna saknað
AP
Leitað að herflugvél Norsk Sea King þyrla á flugi yfir fjallinu Kebnekaise í
norðurhluta Svíþjóðar þar sem talið er að norsk flugvél hafi farist.
Afgangur af
vöruskiptum Íra
nam 44,7 millj-
örðum evra á síð-
asta ári, jókst um
3% milli ára og
hefur aldrei ver-
ið meiri.
Þessi þróun
hefur haldið
áfram á þessu
ári, samkvæmt
tölum sem írska hagstofan birti. Í
janúar var afgangurinn 20% meiri
en í sama mánuði í fyrra.
Írland er á evrusvæðinu. Landið
fékk 85 milljarða evra fjárhags-
aðstoð frá Evrópusambandinu og
Alþjóðagjaldeyrissjóðnum í lok árs-
ins 2010.
ÍRLAND:
Metafgangur
af vöruskiptum
Enda Kenny, for-
sætisráðherra íra.