Morgunblaðið - 17.03.2012, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 17.03.2012, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2012 ● Laun á íslenskum vinnumarkaði hækkuðu um 6,7% milli áranna 2010 og 2011 samkvæmt ársmeðaltali vísi- tölu launa. Þá hækkuðu laun á almenn- um vinnumarkaði um 7,6% að með- altali en laun opinberra starfsmanna um 4,4%. Á almennum vinnumarkaði hækkuðu laun sérfræðinga mest á milli ára eða um 8,9% en laun iðnaðarmanna hækk- uðu minnst eða um 6,2%. Á sama tíma- bili var hækkun launa eftir atvinnu- greinum á bilinu 4,7% til 10,0%. Mest hækkuðu laun í fjármálaþjónustu, líf- eyrissjóðum og vátryggingum en minnst í byggingarstarfsemi og mann- virkjagerð, segir í frétt Hagstofunnar. Laun hækkuðu um 6,7% frá árinu 2010 til 2011                                            !"# $% " &'( )* '$* +,-.+/ +00.0/ +,-.0+ ,,.1+, ,+.0// +2.33- +1-./ +.4+-3 +0/.4- +34.0, +,-.// ,55./1 +,2.,2 ,,.1-- ,,.550 +2.-,, +1-.-2 +.4,, +04.+4 +33.12 ,,2./32 +,-.-/ ,55.0, +,2.34 ,,.//, ,,.5-/ +2.--- +12.+3 +.4,3/ +04.-1 +33.2/ einstakt eitthvað alveg Skipholt 50A • sími: 581 4020 www.gallerilist.is úrval einstakra málverka og listmuna eftir íslenska listamenn Afmælisár 25 1987-2012 STUTTAR FRÉTTIR Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Bankasýsla ríkisins hyggst ráðast fyrst í sölu eignarhlutar í Íslands- banka hf., en þó ekki fyrr en í fyrsta lagi á síðari hluta þessa árs. Stofn- unin gerir ekki ráð fyrir að sala eign- arhluta í Arion banka hf. og í Lands- bankanum hf. hefjist fyrr en á næsta ári og að sala í Landsbankanum hf. verði jafnvel framkvæmd í nokkrum áföngum. Þetta kemur fram í Fram- tíðarstefnu Bankasýslu ríkisins sem var kynnt í dag. Bankasýslan fer með eignarhlut ríkisins í fjármálafyrirtækjum. Í árs- lok 2010 námu fjárhagskröfur ís- lenska ríkisins á fjármálafyrirtækin samtals 200,7 milljörðum króna en á sama tíma námu heildarkröfur þess 1.045 milljörðum króna, þannig að kröfurnar á fjármálafyrirtækin nema um fimmtungi af heildareign- um ríkisins. Vegna þessara miklu fjárhags- muna á að draga úr áhættunni og selja þessar eignir. Landsbankinn hf. Eignarhlutur ríkisins (81,3%) í Landsbankanum hf. er langstærsta eign, sem Bankasýslan fer með, en í ríkisreikningi fyrir árið 2010 er hann bókfærður á 122 milljarða króna. Bankasýslan telur ekki rétt að gera ráð fyrir að sölumeðferð á eignarhlut í Landsbankanum hf. hefjist fyrr en á árinu 2013. 122 milljarðar eru verulega há upphæð og má búast við að tilboð í hlutinn verði jafnvel enn hærri. Bankasýslan lítur til reynslu Norð- manna eftir norsku bankakrísuna 1991 í umfjöllun sinni í Framtíðar- stefnunni. Þeir benda á að norska ríkið hafi losað jafnt og þétt um eign- arhlut sinn í Christiania bank & Kreditkasse og hélt enn á um þriðj- ungshlut þegar hann var seldur til Danske Bank árið 2000 en seldi aftur á móti Fokus bank í einu lagi 1995. Hinir bankarnir Eignarhlutur ríkisins (13%) í Ar- ion banka hf. er næst stærsti eign- arhlutur, sem Bankasýsla ríkisins fer með, en Kaupskil ehf. fer með 87% eignarhlut í bankanum. Banka- sýsla ríkisins telur ráðlegt að huga að sölu eignarhlutarins árið 2013. Eignarhlutur ríkisins (5,0%) í Ís- landsbanka hf. er minnsti eignar- hlutur, sem Bankasýsla ríkisins fer með í viðskiptabanka, en ISB Hold- ing ehf. fer með 95,0% eignarhlut í bankanum. Bankasýsla ríkisins telur ráðlegt að huga að sölu eignarhlut- arins í fyrsta lagi á síðari hluta þessa árs, að því gefnu að skilyrði til sölu séu hagstæð. Þrátt fyrir að stofnfjárhlutir rík- isins í sparisjóðunum fimm séu tölu- vert lægri að fjárhæð en eignarhlutir í viðskiptabönkunum þremur, er um- fang umsýslu þeirra mikið. Banka- sýsla ríkisins hefur þegar ráðstafað eignarhlut sínum í Sparisjóði Svarf- dæla með óbeinum hætti, en sala á rekstri sparisjóðsins til Landsbank- ans hf. var samþykkt á stofnfjár- hafafundi 24. janúar sl. Stofnunin gegnir lykilhlutverki í stofnfjárhafa- hóp hvers sparisjóðs. Íslandsbanki seldur fyrst Hugmyndir um sölu á eignarhlutum ríkisins í fjármálafyrirtækjum Heimild: Bankasýsla ríkisins Fjármálafyrirtæki Eignarhlutur Árið 2012 Árið 2013 Árið 2014 Sparisjóðirnir 49,5-90,9% Íslandsbanki hf. 5,0% Arion banki hf. 13,0% Landsbankinn hf. 81,3% Fyrri hluti Síðari hluti Fyrri hluti Síðari hluti Fyrri hluti Síðari hluti  Íslandsbanki verður hugsanlega seldur í ár en Arion og Landsbankinn á næsta ári  Landsbankinn er langstærsta eign Bankasýslunnar eða um 122 milljarðar Hagnaður Landsbankans eftir skatta á síðasta ári nam 16,9 millj- örðum króna en hafði verið 27,2 milljarðar árið áður. Arðsemi eigin fjár var 8,8%, sem er jafnframt tölu- vert minna en árið áður þegar arð- semin var 15,9%. Helsta skýringin á minni hagnaði og arðsemi Lands- bankans er varúðarfærsla bankans upp á 38 milljarða króna í tengslum við gengislánadóm Hæstaréttar sem féll um miðjan febrúarmánuð. Í tilkynningu frá bankanum er haft eftir Steinþóri Pálssyni, banka- stjóra: „nýfallnir dómar hafa ekki verið nægjanlega skýrir og hafa því valdið óvissu um hvernig fara á með ólögmæt lán og haga endur- útreikningi þeirra. Við höfum kosið að sýna ýtr- ustu varúð í mati okkar á áhrifum dóms Hæstaréttar um vexti frá í febrúar. Ljóst er að fleiri dómar þurfa að falla áður en myndin skýr- ist.“ Eiginfjárhlutfall bankans var 21,4% við árslok 2011 samanborið við 19,5% í lok ársins 2010. Virðisrýrnun útlánasafns er 23,6 milljarðar eftir að tekið hefur verið tillit til gjald- færslna vegna gengislánadóms, virð- isaukningar í útlánasafninu og þess hlutar sem rennur til LBI. Hagnað- ur af hlutabréfastöðu bankans nam 18 milljörðum króna á árinu 2011. Rekstrarkostnaður bankans nam 21,4 milljörðum króna en þar af nam launakostnaður 12 milljörðum og önnur rekstrargjöld 8,4 milljörðum. hordur@mbl.is Landsbankinn hagnast um 16,9 milljarða króna Steinþór Pálsson. Áhrif gengislánadóms Hæstaréttar eru áætluð 38 milljarðar Rekstrartekjur Landsvirkjunar námu 436,2 milljónum Bandaríkja- dala, jafnvirði 55,4 milljarða króna, á síðasta ári, sem er 15,5% aukning frá fyrra ári, að því er fram kemur í af- komutilkynningu frá fyrirtækinu. Hagnaður félagsins dróst hins vegar töluvert saman á árinu og nam samtals 26,5 milljónum dala eftir skatta, sem er aðeins þriðjungur af hagnaði Landsvirkjunar árið 2010. Stjórn félagsins mun á aðalfundi gera tillögu um arðgreiðslu til eig- enda að fjárhæð 1,8 milljarðar fyrir árið 2011. Í tilkynningu frá Lands- virkjun er haft eftir Herði Arnarsyni forstjóra að „fjárhagsstaða fyr- irtækisins á árinu 2011 batnaði nokkuð frá fyrra ári einkum vegna tekjuaukningar, sem rekja má til breytinga á samningum um raf- orkuverð og hækkandi álverðs“. Framkvæmdir Landsvirkjunar við Búðarháls eru ennfremur í full- um gangi um þessar mundir og gerir félagið ráð fyrir því að virkjunin taki til starfa í árslok 2013. Næstu verk- efni fyrirtækisins verða síðan á Norðausturlandi þar sem unnið að undirbúningi við hönnun virkjana í Bjarnarflagi og á Þeistareykjum. Morgunblaðið/Golli Landsvirkjun Minni hagnaður 2011. Tekjur jukust um 15,5%  Greiðir ríkinu 1,8 milljarða í arð ● Fljótfærnislegar, tíðar og ófagmann- legar breytingar á löggjöf og viðleitni til þess að takast á við vandamál með séríslenskum leið- um, sem hvergi hafa verið reyndar, valda því að ís- lenskt viðskiptaumhverfi er óstöðugt, ófyrirsjáanlegt og uppfyllir ekki mik- ilvæg skilyrði alþjóðaviðskipta. Þetta kom fram í máli Niels Jacobsen, stjórnarformanns Össurar hf., á aðal- fundi félagsins í gær. „Á síðasta ársfundi minntist ég á áhyggjur mínar af íslensku við- skiptaumhverfi. Þessar áhyggjur fylgja mér enn; hvað fyrirtækjarekstur og við- skipti varðar hafa aðstæður á Íslandi þróast til hins verra á undanförnum ár- um,“ sagði Jacobsen. Viðskiptaumhverfið á Íslandi fer versnandi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.