Morgunblaðið - 17.03.2012, Side 32

Morgunblaðið - 17.03.2012, Side 32
32 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Nafn hversfallinsbresks her- manns er lesið upp í þinginu. Allur fund- artími þingsins hefði ekki enst, ef þessi háttur hefði verið hafður á í heimsstyrjöldinni fyrri. En þetta er góð regla. En hún gerir vesturveld- unum, sem svo voru kölluð, en eru nú Bandaríkin og smáveldin sem fylgja þeim, erfitt fyrir um að gegna hlutverki heims- lögreglu. Hver hefur svo sem falið þeim það, kann að vera spurt? Eftir stofnun SÞ hefur Öryggisráð þess iðulega gert það, svo sem eins og í Kór- eustríðinu forðum tíð og Afgan- istan í seinni tíð. Örlítið vantaði upp á að Öryggisráðið yrði með í Írak, þrátt fyrir fjölda sam- þykkta sem gengu langt í áttina. Hersetan, eftir innrásina, fékk þó blessun ráðsins og varð því „lögleg,“ þótt haldið hafi verið fram að innrás Bandaríkjanna og bandamanna þeirra, svo sem Breta, Ítala og Dana, hafi ekki verið það. Árásirnar á Líbíu voru „lög- legar“ a.m.k. í upphafi, en vafa- lítið er að Nato fór langan veg út fyrir umboð Öryggisráðsins, þótt um það sé ekki mikið rætt. Nú bendir flest til að friðun Afganistans muni enda illa. Pakistan er suðupottur sem slettist upp úr og gæti sprungið. Og Íran nálgast tak- mark sitt að verða kjarnorkuveldi. Því nær sem það kemst því marki því örar minnka líkur þess að Ísrael nái að halda aftur af sér. Það er von að stjórnvöldum í Ísrael sé ekki rótt. Nágranna- ríkið Egyptaland, áður lykill að lágmarksstöðugleika, er í upp- námi. Bandaríkjamenn farnir frá Írak og Íran, sem er stjórn- að af öfgamönnum, hefur dregið andstæðinga sína á asnaeyr- unum og haldið sínu striki að mestu, þrátt fyrir stjórnmála- legar og efnahagslega þvinga- nir. Fyrir Ísrael er málið ekki aðeins spurning um pólitík held- ur grundvallarspurning um til- veru þjóðarinnar. Í Washington er spurningin á hinn bóginn fyrst og síðast póli- tísk. Á kosningaári á forseti Bandaríkjanna, ekki síst sá sem stendur veikt, engan kost ef Ísr- ael lætur til skarar skríða. Bandarískir gyðingar eru hefð- bundnir og oftast nær traustir stuðningsmenn Demókrata- flokksins. En þeir tækju svik við Ísrael mjög alvarlega. Það veit Obama forseti. Hernaður vestur- veldanna skilar ekki varanlegum árangri} Heimslögregla verst í vök Á Alþingi í vik-unni sagðist Jóhanna Sigurð- ardóttir forsætis- ráðherra telja að „við getum alveg verið sæmilega bjartsýn á ... þær áætlanir“ sem ríkisstjórnin er með á prjónunum á sviði atvinnu- mála. Hún sagði „ýmislegt í gangi“ og það væri „mikið fylgst með þessu í sérstakri atvinnumálanefnd, ráðherra- nefnd á vegum ríkisstjórn- arinnar.“ Þetta kom fram í svari við fyrirspurn Birgis Ármanns- sonar alþingismanns sem lýsti áhyggjum yfir því að engin störf hefðu orðið til hér á landi síðastliðið ár og að þeim hefði fækkað á árinu 2010. Áhyggjur Birgis eru skilj- anlegar og svör Jóhönnu eru síst til þess fallin að slá á þær áhyggjur þegar horft er til þess hvernig hún hefur hingað til talað. Fyrir þremur árum sagði hún að ríkisstjórnin hefði gripið til margvíslegra að- gerða til atvinnuuppbygg- ingar og sagði að fyrirliggj- andi tillögur ættu að skapa 6.000 ársverk. Fyrir rúmum tveimur árum sagðist hún ætla að leggja sérstaka áherslu á ramma- áætlun „á næstu vikum“ og að kominn væri tími til að hætta deilum um virkjanakosti og taka ákvörð- un um hvar yrði virkjað. Vik- urnar eru orðnar á annað hundrað og deilurnar um rammaáætlun standa enn yfir innan ríkisstjórnarinnar. Fyrir rúmu ári talaði Jó- hanna enn um atvinnumál og gaf þá vonir um vel á þriðja þúsund ársverk „fljótt“ með þeim árangri að ekkert starf varð til síðastliðið ár. Tölur liggja nú fyrir um að þær þúsundir starfa sem for- ysta ríkisstjórnarinnar hefur lofað hafa aldrei orðið að veruleika. Þegar þannig hátt- ar til þýðir lítil að segja að nú sé „ýmislegt í gangi“ og að ekki megi „tala ástandið niður,“ eins og forsætisráð- herra gerði í vikunni. Það er enginn að tala ástandið niður, nema ef til vill verk rík- isstjórnarinnar, sem hafa tal- að ástandið niður í rúm þrjú ár. Hversu oft og hversu lengi er hægt að lofa bót og betr- un á morgun?} Verkin tala Í Þjóðmenningarhúsinu hefur farið fram síðustu tvær vikur einn stærsti viðburðum Íslandssögu nútímans. Ég fer nú ekki að setja hann í sama flokk og bardaga mikilla kappa, kristni- töku, þorskastíð eða náttúruhamfarir en merkilegur er hann samt og óvenjulegur. Landsdómur kallaður saman í fyrsta skipti á Íslandi síðan hann var stofnaður árið 1905 til að yfirheyra stórlaxa í íslensku viðskiptalífi og stjórnmálum. Síðan er það þessa ábúðarmikla fimmtán manna dóms að ákveða, út frá orðum stórlaxanna og öðrum gögnum, hvort fyrrver- andi forsætisráðherra er sekur um vanrækslu í starfi, sekur um að hér fór allt í „helvítis fokking fokk“. Þessi viðburður er einsdæmi, sögulegur, en samt hafa aðeins fáar hræður fengið að fylgj- ast með honum fara fram. Eða réttara sagt þær 70 manneskjur sem voru svo heppnar að ná sæti á trékolli í Þjóðmenningarhúsinu hvern dag réttarhaldanna. Fjöl- miðlar reyndu að miðla því sem þarna átti sér stað eins vel og hægt var en þeim voru takmörk sett, engin að- staða önnur en kollarnir og ekkert mátti taka upp, rétt svo ljósmynda í takmarkaðan tíma. Yfirheyrslurnar voru jú teknar upp á band en það verða líklega unglingarnir í Sögu 101 árið 2062 sem fá að heyra þær upptökur á undan okkur. Okkur sem upp- lifðum þetta hrun og þessi einstöku réttarhöld, okkur sem málið viðkemur. Að það hafi ekki mátt senda beint frá Landsdómi finnst mér stórundarlegt, með alla tækni nútímans er það reyndar bara hlægilegt. Þeir sem byggðu þetta land á und- an okkur, án rafmagns og rennandi vatns, hafa eflaust hrist höfuðið í gröf sinni yfir þessari vitleysu í okkur. Með alla þessa tækni og samt fá landsmenn ekki að fylgjast með einum sögulegasta viðburði okkar tíma í beinni útsendingu. Fjölmiðlamönnum voru svo settar allar mögulegar skorður til að geta miðlað honum almennilega til þeirra sem náðu ekki sæti í salnum, þeir gerðu sitt besta en gátu aðeins miðlað broti af því sem þarna fór fram. Það eiga einhverjir eftir að sjá eftir því að hafa ekki stuðlað að því að þessum við- burði yrði betur miðlað til fólksins í landinu og fólkið í framtíðinni á eftir að hlæja að okk- ur. Að fylgjast með því sem fram fór í Landsdómi var fyrir borgarann úti í bæ svolítið eins og að sitja út í sal á leiksýningu sem tjöldin eru aldrei dregin frá á. Sýningin fer fram að baki luktum tjöldum en fyrir framan þau á sviðinu stendur einn maður, sem kíkir á bak við tjöldin og snýr sér svo fram í salinn og miðlar því til áhorfenda sem fer fram þar að baki. Hann gerir sitt besta og áhorf- endur í salnum fá það sem er að gerast á bak við tjöldin í grófum dráttum en þeir fá aldrei að sjá leiksýninguna með eigin augum og geta því ekki dæmt hana á eigin for- sendum. ingveldur@mbl.is Ingveldur Geirsdóttir Pistill Leikrit að baki luktum tjöldum STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Helgi Bjarnason helgi@mbl.is V ið erum að berjast fyrir tilvist okkar hér. Við þurfum að bjarga okkur sjálf, ef eitthvað á að gerast, því við fáum ekkert rétt upp í hendurnar. Það vantar ekki viljann en fólkið sem er að berjast í þessu er í fullri vinnu og hefur ekki endalausan tíma,“ segir Guðmundur Magnússon á Kópa- skeri, formaður Framfarafélags Öx- arfjarðar, um stöðu byggðarlagsins. Byggðarlögin í Öxarfirði og á Melrakkasléttu hafa mjög látið á sjá á undanförnum árum. Á Kópaskeri var það gjaldþrot rækjuverksmiðju sem markaði þáttaskil og á Rauf- arhöfn varð mikill samdráttur eftir að kvótinn færðist annað og dregið var úr starfsemi stórra fyrirtækja. Nóg af hugmyndum „Maður heyrir það hljóð stund- um en um leið og eitthvað nýtt kem- ur fram lifnar aftur yfir fólki,“ segir Guðmundur þegar hann er spurður hvort uppgjafarhljóð sé í fólki. Hann segir að íbúarnir séu frekar bjart- sýnir á framtíðina. Þeir þekki tæki- færin og fullt sé að hugmyndum en vanti fleira fólk og fjármagn til að hrinda þeim í framkvæmd. Framfarafélag Öxarfjarðar heldur uppi umræðu um atvinnu- og byggðamál. Fundað er vikulega og síðan ræða aðrir hópar um afmarkað efni. Ein hugmyndin sem er til um- ræðu nú er að byggja raðhús með litlum og ódýrum íbúðum sem hægt væri að leigja fólki sem vildi prófa að flytja á staðinn. Erfitt er að fá leigt þótt fólki hafi fækkað því margir ein- staklingar eða hjón búa ein í stórum húsum. „Það er mjög dauft en vonandi fer það að lagast með hækkandi sól. Úr þessu getur ástandið varla orðið verra og leiðin hlýtur að liggja upp á við,“ segir Sigríður Valdimarsdóttir, íbúi á Raufarhöfn, um atvinnu- ástandið. Hún er í hópi fólks sem hef- ur áhuga á að mynda félagsskap, hliðstæðan Framfarafélagi Öx- arfjarðar. „Ef ég sæi eitthvað til bjargar þá myndi ég vera búin að koma því í framkvæmd,“ segir hún. GPG fiskverkun er með starf- semi í frystihúsinu, meðal annars vinnslu hrogna og grásleppu og eru bundnar vonir við aukningu þar. Fjallalamb er helsti vinnustað- urinn á Kópaskeri og ekki er langt að sækja vinnu í fiskeldisfyrirtæki í Öx- arfirði og Kelduhverfi og þjóðgarð- inn. „Það eru uppi hugmyndir að auka ferðaþjónustuna og að nýta betur það hráefni sem hér kemur á land,“ segir Guðmundur. Hann getur þess að nýir eigendur að húsnæði rækjuverksmiðjunnar hafi verið með hugmyndir um að koma þar upp vinnslu. Vilja frjálsar handfæraveiðar Starfshópur á vegum Framfara- félags Öxarfjarðar hefur sent frá sér áskorun til sjávarútvegsráðherra um að gefa handfæraveiðar frjálsar. Lagt er til að einu takmarkanirnar verði tvær sjálfvirkar handfæra- rúllur á hvern mann í áhöfn. „Ég tel að frjálsar handfæraveiðar myndu gera heilmikið fyrir staðinn. Meira bærist hér á land. Aðalatriðið er þó að við nýtum okkur hráefnið betur og vinnum það meira á staðnum, í stað þess að flytja það allt í burtu,“ segir Guðmundur. Hann tekur fram að ekki yrði mikið tekið frá öðrum þótt frelsi yrði aukið í handfæraveiðum. Reynslan af strandveiðunum sýni að miklar frátafir eru vegna veðurs og ekki alltaf mik- ill afli. Náttúran sjái um að takmarka aflann. „Við þurfum að bjarga okkur sjálf“ Morgunblaðið/Kristján Löndun Rækjuverksmiðjan var helsti vinnuveitandinn á Kópaskeri í mörg ár. Myndin er frá löndun á góðum afladegi á þeim árum. „Þetta vakti umtal og kom hreyfingu á málin. Margir hringdu til að hrósa henni fyrir þetta framtak,“ segir Guð- mundur um grein sem Rannveig Halldórsdóttir, kona hans, skrif- aði í Morgunblaðið á dögunum. Þar var vakin athygli á mögu- leikum staðarins. Það bar þann árangur að tekist hefur að manna ákveðin störf. Greinin var stíluð til „þreyttra, blankra og ráðvilltra foreldra í borginni“ og bent á að nærtækara væri að líta út á land en til Noregs. Kostir staðarins voru tilgreindir. Einnig það sem vantaði, svo sem að nýsköpun væri vel þeg- in og sárlega vantaði börn í leikskóla og grunnskóla ásamt foreldrum og dug- legu fólki á öllum aldri sem vildi taka þátt í sam- félaginu. Vantar börn og duglegt fólk GREININ SKÓP UMRÆÐU Rannveig og Guðmundur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.