Morgunblaðið - 17.03.2012, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 17.03.2012, Qupperneq 34
34 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2012 Í fyrri tveimur greinum mínum í Morgunblaðinu um verðtryggð húsnæð- islán færði ég rök fyr- ir því að þau væru líklega afleiður og þ.a.l. ólögmæt sölu- vara fjármálastofnana síðan 1. nóv. 2007 þegar við tókum upp MiFID-reglur (e. Markets in Financial Instruments Directive) ESB. Lánin gætu aftur á móti hafa verið ólögmæt síðan 1. júlí 2001 en það ár tóku gildi Vaxtalög nr. 38/2000, en þar segir í VI. kafla um verðtryggingu spari- fjár og lánsfjár, 13. gr.: „Ákvæði þessa kafla gilda um skuldbind- ingar sem varða sparifé og lánsfé í íslenskum krónum þar sem skuld- ari lofar að greiða peninga og þar sem umsamið eða áskilið er að greiðslurnar skuli verðtryggðar. Með verðtryggingu er í þessum kafla átt við breytingu í hlutfalli við innlenda verðvísitölu. Um heimildir til verðtryggingar fer skv. 14. gr. nema lög kveði á um annað. Afleiðusamningar falla ekki undir ákvæði þessa kafla.“ Þarna kemur skýrt fram að af- leiðusamningar eru undanþegnir þessum lögum, en hvergi í lög- unum er hægt að finna útskýr- ingar á því hvað felst í afleiðu- samningi eða greining á honum. Í 14. gr. segir síðan: „Heimilt er að verðtryggja sparifé og lánsfé skv. 13. gr. sé grundvöllur verðtrygg- ingarinnar vísitala neysluverðs sem Hagstofa Íslands reiknar sam- kvæmt lögum sem um vísitöluna gilda og birtir mánaðarlega í Lögbirtingablaði. Í lánssamningi er þó heimilt að miða við hlutabréfavísitölu, inn- lenda eða erlenda, eða safn slíkra vísitalna sem ekki mæla breyt- ingar á almennu verð- lagi.“ Verðtryggð hús- næðislán eru gríð- arlega flókin afleiða og vita fjármálastofnanir lítið um þróun lánsins, nema það, að lánið hækkar. Má halda því fram að sameinast hafi verið um að blekkja almenning svipað og í gengisl- ánunum sem Hæstiréttur hefur nú þegar dæmt ólögleg. Í þeim dómi reyndi ekki á Mi- FID-reglur um neytendavernd al- mennings, en gengisbundin krónul- án eru skýrt dæmi um afleiður, sem almenningur nýtur verndar gegn. Hið sama ætti þá að gilda um verðtryggð húsnæðislán. Verð- tryggð húsnæðislán eru ekkert annað en afleiðusamningar vegna þess að hækkun lánanna leiðir af hækkunum fjölda annarra af- leiddra þátta, t.d. skatta, eldneyt- isverðs, launa, hrávöru, gengis krónunnar o.s.frv. Almennt þarf að sýna fram á það með skýrum hætti að MiFiD- reglur samkvæmt lögum nr. 108/ 2007, um verðbréfaviðskipti og tóku gildi 1. nóvember 2007, og var innleidd í íslenskan rétt, séu ekki einhverjar skrautreglur sem hafa ekkert efnislegt gildi. Hvað þetta snertir má vísa til orða fram- kvæmdastjóra innri markaðarins hjá Evrópusambandinu, Charlies McCreevys, frá 10. október 2006, þar sem hann segir: „The rules we have developed are principles- based – not a box-ticking exerc- ise.“ (Reglurnar sem við höfum bú- ið til eru grundvallarreglur – ekki æfing þar sem menn krossa í reit- inn sem þeir telja besta kostinn.) Mat á verðtryggðum húsnæðis- lánum verður að fara fram í ljósi MiFID og er í fullu gildi á Evr- ópska efnahagssvæðinu og þar með á Íslandi. Segir á Evr- ópuvefnum: „Evrópsk lög um neyt- endalán tilgreina nauðsyn þess að neytendum séu veittar allar upp- lýsingar sem máli skipta og að þeir skilji heildarumfang þeirra fjár- hagslegu skuldbindinga sem láns- samningar fela í sér.“ Segir þar einnig: „Tilskipun ESB um neyt- endasamninga (93/13/EEB) leggur þannig almennt bann við ósann- gjörnum skilmálum í neytenda- samningum, það er að segja skil- málum sem ekki hefur verið samið um sérstaklega, sem stríða gegn góðum viðskiptaháttum og raska til muna jafnvægi milli réttinda og skyldna samningsaðila, neytendum í óhag. Tilskipun ESB um ósann- gjarna viðskiptahætti kveður á um tilteknar skyldur viðskiptamanna til að upplýsa neytendur, sem eru í góðri trú, um allar fjárhagslegar skyldur sínar …“ Á Íslandi endurspegla greiðslu- áætlanir ekki raunveruleikann, sér í lagi verðbólguskotið fyrir og eftir hrun. Með sanni má segja að fjár- málastofnanir hafi raskað hegðun neytenda með því að gera lítið úr langtímaáhættu vegna verðbólgu. Verðtryggð húsnæðislán eru í rauninni svo flóknar afleiðutengdar fjármálaafurðir að ómögulegt er fyrir almenning að meta þau á full- nægjandi hátt. Verðtrygging hús- næðislána er hugsanlega ólögleg og stangast á við grundvall- arreglur evrópskra neytendalaga sem banna misbeitingarákvæði sem raska jafnvægi samningsaðila neytanda í óhag. Hvort verðtryggð lán séu hugsanlega ólögleg frá 2001 eða 2007 verða dómstólar að skera úr um, en eitt er víst; þetta verður að leiðrétta. Skautað fram hjá MiFID Eftir Guðmund F. Jónsson » Verðtryggð húsnæð- islán eru gríðarlega flókin afleiða og vita fjármálastofnanir lítið um þróun lánsins, nema það, að lánið hækkar. Guðmundur F. Jónsson Höfundur er viðskiptafræðingur og formaður Hægri grænna, flokks fólksins. Bréf til blaðsins Það er ekki að finna orð um ávaxta- sykur á vefsíðu Landlæknis/ Lýðheilsustöðvar. Ávaxtasykur er einn aðalskýringarþáttur offitu og sykursýki II, einkum í Bandaríkj- unum. Þar er „high fructose corn syrup“ unnið úr maís og er ódýrara en rófusykur sem er ódýrastur í Evrópu. Aukinn innflutningur á matvöru frá Bandaríkjunum hingað veldur auknum ávaxtasykri í fæðu okkar. Einnig hafa gosdrykkja- framleiðendur hér byrjað að nota ávaxtasykur og hann er að finna í nýjustu skyrdrykkjunum. For- eldrar þurfa hér að vera á verði. Agave-síróp er einnig nokkuð hreinn ávaxtasykur og því óæski- legt, en fólk sem gefur sig út fyrir að vera heilsusérfræðingar (Heilsu- réttir Hagkaups o.fl.) mælir með því. Það virðist gert af hreinni van- þekkingu. Frumvarp um bann við trans- fitusýrum í matvælum (smjörlíki, steikingarfeiti) hefur ekki enn verið samþykkt og var ekki lagt fram á síðasta þingi. Þetta mál er vænt- anlega núna í höndum Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra. Rannsóknir Mozaffarians (2007) og félaga við Harvard Medical School benda til að ónáttúrulegar trans- fitur skaði greindarþroska barna. Ónáttúrulegar transfitur valda einnig Alzheimer-einkennum, óæskilegri ístrusöfnun og auka lík- ur á hjartasjúkdómum. Í nýrri grein í International Journal of Obesity eftir Abargouei o.fl. (2012) er samantekt á ýmsum rann- sóknum á áhrifum mjólkur á hold- arfar fullorðinna. Heildarnið- urstöður eru þær að þeir sem neyttu mjólkurvara léttust í sam- anburði við þá sem voru á öðru fæði. Þessi áhrif voru talin líklega stafa af náttúrulegu CLA sem er í mjólkurfitunni og hefur einnig hamlandi áhrif á krabbameinsvöxt og bólgumyndun. Börn brenna hlutfallslega meiri fitu en fullorðnir. CLA ásamt D-vítamíni er fjarlægt þegar rjóminn er fleyttur ofan af léttmjólkinni. Léttmjólkin er seld á sama verði og nýmjólkin. Lýð- heilsustöð mælir með að léttmjólk eða undanrenna sé notuð í skólum. Ég hef áður kallað eftir opinberum rökstuðningi fyrir þessu en engan fengið. Ef þetta á að koma í veg fyrir offitu einhverra barna stenst það ekki. Stjórnvöldum ber skylda til að rökstyðja stjórnvaldsboð og í stjórnsýslu skal fylgja meðalhófs- reglu. Ég fer því hér með formlega fram á að börnum mínum standi til boða nýmjólk að minnsta kosti til jafns við léttmjólk eða undanrennu í skólanum. ÞORVALDUR GUNNLAUGSSON, náttúrufræðingur. Ekki orð um ávaxtasykur Frá Þorvaldi Gunnlaugssyni Thermowave plötuvarmaskiptar Þýsk hágæða vara á hagkvæmu verði  Eimsvalar fyrir sjó og vatn  Olíukælar fyrir sjó og vatn  Í mjólkuriðnað gerilsneiðingu  Fyrir orku iðnaðinn  Glycol lausnir fyrir byggingar og sjávarútveg í breiðu stærðar úrvali Títan–laser soðnir fyrir erfiðar aðstæður svo sem sjó/Ammoníak Kælismiðjan Frost – leiðandi afl í kæliiðnaði www.frost.is Síðumúli 4, 108 Reykjavík | samskipti.is Persónuleg kerti meðmyndinni þinni Útiskilti Myndarammar Skönnun Fermingar Nafnspjöld Merkingar Innbindingar Músamottur Strigaprentun Boðskort Stórhöfða 21, við Gullinbrú, s. 545 5500 www.flis.is • netfang: flis@flis.is lím og fúguefni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.