Morgunblaðið - 17.03.2012, Side 36

Morgunblaðið - 17.03.2012, Side 36
36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2012 ✝ Tómas Matt-hías Ólafsson fæddist á Hunku- bökkum á Síðu 12. mars 1915 og lést á Hjúkrunar- og dvalarheimilinu Kirkjubæj- arklaustri hinn 8. mars sl. Foreldrar hans voru Ólafur Bjarnason, f. 19.4. 1889, og Sigríður Jónína Tómasdóttir, f. 15.7. 1894. Matthías var næstelstur 14 systkina og er aðeins eitt þeirra eftir á lífi, Snorri, f. 6.6. 1934. Fyrstu árin var Matthías, eða Matti eins og hann var oftast kallaður, hjá foreldrum sínum á bjuggu þar allt þar til Elín lést. Vorið 1981 tóku Sigurjóna dótt- ir hans og Jóhann maður henn- ar við búinu ásamt fjölskyldu sinni. Matti dvaldi hjá þeim til ársins 2006 er hann fluttist á Hjúkrunar- og dvalarheimilið Kirkjubæjarklaustri. Börn Matthíasar og Elínar eru: Erna Þrúður, f. 25.12. 1945, Sigríður Ólöf, f. 5.12. 1947, Bjarni Jón, f. 1.4. 1953, Sigurjóna, f. 13.12. 1955, og Ragna, f. 24.9. 1962. Barna- börnin eru orðin 10 og barna- barnabörnin 11. Auk búskapar vann Matti ýmis störf, t.d. við slátrun mörg haust og síðar starfaði hann um skeið við byggingarvinnu, bæði á Klaustri og í Kópavogi. Útför Matthíasar fer fram frá Prestbakkakirkju á Síðu í dag, 17. mars 2012, og hefst athöfnin kl. 14. Svartanúpi í Skaft- ártungu og víðar. Hann fór ungur í fóstur í Hörgsdal og ólst þar upp hjá föðurbróður sínum og konu hans ásamt stórum barnahópi. Á upp- vaxtarárunum vann hann ýmis störf, fór nokkrar vertíðir suður með sjó en var lengst af í vinnu- mennsku hjá skyldfólki sínu á Síðunni. Hinn 13. maí 1944 kvæntist Matthías Elínu Magneu Ein- arsdóttur, f. 14.12. 1923, d. 18.10. 1980. Það sama ár hófu þau búskap á Breiðabólstað og Lækkar lífdaga sól. Löng er orðin mín ferð. Fauk í faranda skjól, fegin hvíldinni verð. Guð minn, gefðu þinn frið, gleddu og blessaðu þá, sem að lögðu mér lið. Ljósið kveiktu mér hjá. (Herdís Andrésdóttir.) Elsku pabbi, við ferðalok vilj- um við systkinin minnast þín með örfáum orðum. Okkur er efst í huga þakklæti fyrir að hafa átt þig sem föður, góða fyrirmynd sem aldrei brást. Hugurinn reik- ar aftur í tímann, til æskustöðva á Breiðabólstað þar sem þið mamma hófuð búskap árið 1944, fyrst í sambýli við fjölskyldur héraðslækna sem þar höfðu að- setur til ársins 1950 og eftir það fjölskyldu Sólmundar móður- bróður okkar til ársins 1957. Ekki hefur alltaf verið einfalt fyr- ir ykkur að búa við það nábýli sem þarna var, í sambúð þriggja kynslóða, auk okkar, gömlu kon- urnar þrjár, amma Þuríður, Ranka og Ella gamla og svo önn- ur fjölskylda handan veggjar. Þetta var þó bæði gefandi og þroskandi, einkum fyrir okkur krakkana sem oftast fundum málsvara í hverju máli sem upp kom. Frá þessu árum eru margar af ljúfustu minningum okkar sprottnar. Þótt þið mamma hafið verið um margt ólík þá tókst ykk- ur vel að virða sjónarmið hvors annars og vinna þannig úr málum að aldrei bar skugga á, í það minnsta urðum við þess aldrei áskynja. Þú varst heimakær og sívinn- andi að þínu, en um leið athugult náttúrubarn og naust þess að fylgjast með lífinu í kringum þig. Og þú kunnir að njóta lífsins með góðum vinum, við minnumst bliks í augum þegar rifjaðar voru upp veiðiferðir suður í vötnum, þegar ádráttarveiði var stunduð frá bæjum á Síðunni. Á Breiða- bólstað bjugguð þið mamma allt þar til hún féll frá um aldur fram haustið 1980. Vorið eftir tóku Jóna systir og Jóhann heitinn maður hennar við búsforráðum á Breiðabólstað og varð þá að ráði að þú dveldir þar áfram í þeirra skjóli. Jafnframt fórstu um tíma að stunda tilfallandi vinnu utan heimilis. Einnig tókst þú til við ferðalög innanlands. Fyrir dvöl þína á Breiðabólstað á árunum 1981-2006, hjá þeim Jónu, Jó- hanni og börnum þeirra, viljum við systkinin hin nú þakka inni- lega og biðjum Guð að launa fyr- ir. Árið 2006 fluttir þú á Hjúkr- unar- og dvalarheimilið Klausturhóla og naust allan tím- ann frábærrar umönnunar og að- hlynningar sem seint verður full- þakkað fyrir. Á meðan heilsan leyfði fórst þú allra þinna ferða á reiðhjóli, íklæddur gulu „fjanda- fælunni“ sem þú nefndir svo, ör- yggisvestinu sem lögreglan fékk þig til að nota. Fyrir hjólaferð- irnar um Klaustur og nágrenni minnast þín eflaust margir við ferðalok. Þar kom að líkamlega krafta þraut, hjólaferðir lögðust af og þú tókst því af sama æðru- leysi og áður þegar eitthvað bját- aði á en andlegri reisn hélstu allt til enda og fyrir það erum við þakklát. Að síðustu viljum við koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem heimsóttu þig á ævikvöldinu og styttu þér stund- irnar þegar fátt var orðið um til- breytingu. Guð blessi þau öll. Elsku pabbi, með þessum fá- tæklegu orðum kveðjum við þig og þökkum þér allt sem þú varst og gerðir fyrir okkur. Guð blessi þig, hvíl í friði. Erna Þrúður, Sigríður Ólöf, Bjarni Jón, Sigurjóna og Ragna. Rekur bú og ræktar gras, reynist nóg að vinna. Alltaf má hann Matthías, mörgum störfum sinna. (Ú.R.) Svo var kveðið um Matthías tengdaföður minn í Síðumanna- vísum þegar hann var sívinnandi bóndi á Breiðabólstað. Þegar ég kynntist honum sem seinni kona sonar hans, var hann kominn á níræðisaldur, ekkill á heimili dóttur sinnar á Breiðabólstað, löngu hættur búskap. Hann hafði samt nóg fyrir stafni. Það var eins og hann hefði tekið að sér, fyrir almættið, að fylgjast með fiskum vatnsins, fuglum himins- ins og blómum vallarins. Hann hafði aldrei tekið bílpróf en hjól- aði og gekk nokkrar ferðir á dag, allan ársins hring, nánast í hvernig veðri sem var. Frá Breiðabólstað ýmist austur fyrir Keldunúpinn að Hörgsá, þar sem sá norður og austur Síðuna eða vestur að Geirlandsá þar sem sá til bæjanna í Króknum og upp í heiðina. Hann fylgdist með bú- skapnum á bæjunum, leit í hylj- ina í ánum eftir sjóbirtingi, fugl- um og öðru í náttúrunni sem gladdi auga hans. Fyrstu fundum okkar Matta bar saman í herberginu hans á Breiðabólstað. Hann heilsaði mér og Helga Hauki syni mínum, sem fylgdi mér í sambúð okkar Bjarna með þéttu handtaki, hlýju augnaráði og brosi sem kom frá hjartanu. Þar með hafði hann bætt okkur í hópinn sinn. Hann var í mínum augum umhyggju- samur fjölskyldufaðir. Börnin hans fimm, fjörmikil afabörnin og langafabörnin voru lífið hans og var kærleikurinn gagnkvæm- ur. Matthías var mjög hæglátur og hógvær maður. Hann deildi ekki reynslu sinni að fyrra bragði en aðspurður sagði hann mér margt fróðlegt, venjum við sjó- birtingsnetaveiði á Síðunni og öðrum búskaparháttum í sinni tíð. Í ferðum sínum með okkur um Hörgsdalsheiði að Hagagili og í Miklafell þuldi hann tugi ör- nefna eins og hann hefði verið þar í smalamennsku síðast í gær og rifjaði upp sögur af brellum og stríðni milli manna þar sem smal- arnir mættust inn við Hagagil eða þá af draugagangi í kofanum við Miklafell. Eftir að Matti flutti á Klaust- urhóla árið 2006, styttist dagleg yfirferð hans á hjólinu og á end- anum tók „Elli kerling“ af honum ráðin og hjólinu var lagt. Hljóla- stóllinn hans síðasti farskjóti. Síðustu árin undi hann sér best við gluggann í herberginu sínu þar sem sá til mannaferða og upp í Klausturfjallið þar sem sá til kinda og fugla. Andinn var alltaf hress, handtakið þétt og augna- ráðið hlýtt. Hann lagði sig eftir fréttum af búskapnum á Síðunni og spurði okkur frétta af Helga Hauki sem hafði gerst bóndi austur á landi og eignaðist sína fjölskyldu. Hann hafði enn mikla ánægju af því að rifja upp gamlar spaugsögur af Síðunni og áttu feðgarnir bestu stundirnar við þá iðju síðustu mánuðina sem hann lifði. Matti var líka gleðigjafi á Klausturhólum, naut þess glett- ast hlýlega við konurnar sem af umhyggju þjónuðu honum. Allra síðustu mánuðina var ljóst að Matti var farinn að þrá hvíldina, svífa úr ónýtum líkamanum upp yfir Síðuna, hraun og sanda, inn í eilífðina. Hann lést fjórum dög- um fyrir 97 ára afmælið sitt, hinn 8. mars sl., á 16 ára afmælisdegi yngsta afabarnsins, Guðrúnar Heiðu, dóttur okkar Bjarna. Ég kveð hann með virðingu og þökk og sendi stórfjölskyldunni og öðrum aðstandendum innilegar samúðarkveðjur. Elín Erlingsdóttir. Elsku afi. Það voru sönn for- réttindi að fá að alast upp með þér á Breiðabólstað. Þú áttir stóran þátt í lífi okkar og gátum við systkinin alltaf leitað til þín eftir félagsskap hvort sem það var til að spila eða fara í hjóla- og gönguferðir og leita eftir mink eða fiski. Þú hafðir alveg einstak- lega skemmtilegan húmor og kenndir okkur ótal fyndin orða- tiltæki og vísur sem oftar en ekki skildu okkur eftir sem eitt stórt spurningarmerki. Við munum sakna þess að hlæja með þér. Minningin um frábæran afa lifir og munum við geta sagt börnum okkar fjöl- margar skemmtilegar sögur af Matta afa, eða afa langa eins og þú varst jafnan kallaður. Okkur langar til að kveðja þig með eft- irfarandi vísu sem þú fórst oft með: Presturinn í stólinn sté stóð þar upp og pissaðe. Allt fólkið óð í hné og ein kona drukknaðe. (Höf. ókunnur) Takk fyrir samfylgdina elsku afi. Okkur finnst gott að vita til þess að nú sértu loks kominn í faðm Elínar ömmu sem þú varst búinn að sakna í svo mörg ár. Hvíl í friði, Erna Margrét, Sandra Brá, Þormar Ellert og Henný Hrund. Það er margs að minnast elsku afi, stundirnar í sveitinni hjá þér og Ellu ömmu þar sem þið kennduð mér að umgangast dýr- in af mikilli virðingu eins og ykk- ur var svo lagið. Alltaf var gott að leita til þín í vanda, minnug þeirr- ar bjargar þegar ég fékk hið fræga „vaðlaraspjald“ í skólanum og þú kvittaðir nafn pabba undir því ekki máttu foreldrar mínir vita. Fyrir viðvikið mátti ég láta þig hafa vasapening minn þá vik- una, þannig kenndir þú mér að ekki er allt sjálfsagt. Svo traust- ur varstu að enginn fékk að vita um þetta ráðabrugg okkar fyrr en ég sagði sjálf frá. Síðar kom að því að þú gast lært hjá mér, í slát- urtíðinni kom ég oftar en ekki hjólandi upp í rétt að sækja þig, þú hafðir oft á orði hve gaman væri að kunna að hjóla. Í kring- um sjötugt léstu slag standa og hjólaðir síðar um sveitina þína, virtir fyrir þér mannlífið, dýra- lífið og náttúruna sem þú unnir svo mikið. Margir minnast þín sem „litla karlsins á hjólinu“. Elsku afi, nú kveð ég þig með miklum söknuði og fullt af góðum og yndislegum minningum. Hvíldu í friði. Þín Ester Elín. Elskulegur móðurbróðir okk- ar systkina, Matthías Ólafsson fyrrverandi bóndi á Breiðaból- stað á Síðu, Vestur-Skaftafells- sýslu, er látinn í hárri elli. Hann fæddist hinn 12. mars 1915 en lést aðfaranótt 8. mars. Hann var næstelstur af systkinum sínum sem voru 14, þar af létust tvö í barnæsku. Við systkinin vorum öll í sveit hjá Matta frænda á sínum tíma, þau elstu fyrst og síðan þau yngri eftir aldursröð. Matthías var af- skaplega vel gerður maður. Hann var skapgóður með afbrigðum, glaðsinna, þolinmóður og skipti sjaldan skapi. Líkamlega var hann afar sterkur, rammur að afli, þótt hann væri lágvaxinn. Matthías talaði ætíð vel um aðra og við systkinin heyrðum hann aldrei blóta. Ef í harðbakkann sló sagði hann í mesta lagi „paur- ans“. Matthías frændi var lán- samur í einkalífi sínu, hinn 13. maí 1944 kvæntist hann Elínu Magneu Einarsdóttur frá Hruna. Elín var góð kona, dugleg og skemmtileg og voru þau hjón af- ar samhent. Þau eignuðust fimm mannvænleg börn en þau eru Erna Þrúður, Sigríður Ólöf, Bjarni Jón, Sigurjóna og Ragna. Sorgin var því mikil þegar Elín andaðist alltof snemma hinn 18. október 1980 eftir stutta baráttu við hættulegan sjúkdóm. Við systkinin erum þakklát fyrir eftirminnileg sumur í sveit- inni og flytjum börnum Matthías- ar, barnabörnum og öllum að- standendum innilegar samúðarkveðjur. Systkinin Sigríður Hjördís, Bogi, Ólafur og Magnús, Jóhönnu- og Indriðabörn. Matthías Ólafsson ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, KRISTJÁN BALDVINSSON læknir, lést á heimili sínu miðvikudaginn 14. mars. Útförin fer fram frá Guðríðarkirkju í Reykjavík föstudaginn 23. mars kl. 13.00. Blóm og kransar eru afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Íslands. Inger Hallsdóttir, Halldóra Kristjánsdóttir, Jóhannes Vilhjálmsson, Baldvin Þ. Kristjánsson, Gunnur Helgadóttir, Kristján Ingi Kristjánsson, Guðleif Þórunn Stefánsdóttir, Elías Kristjánsson, Ásdís Harpa Smáradóttir, Birgitta Bonde, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, BRYNHILDUR ÞORLEIFSDÓTTIR, lést á dvalarheimilinu Kjarnalundi föstu- daginn 9. mars. Útför hennar hefur farið fram. Starfsfólki Kjarnalundar eru færðar innilegar þakkir fyrir umönnun hennar. Þorleifur Leo Ananíasson, Ingveldur Brimdís Jónsdóttir, Sigurður G. F. Ananíasson,Emilía Gústafsdóttir, Bergrós Ananíasdóttir, Heiðar Jóhannsson, Ásta Ananíasdóttir, Páll Sigurjónsson, Ólöf Ananíasdóttir, Hallur Vilhjálmsson, Björn Þór Ananíasson, Sigrún Finnsdóttir, ömmu- og langömmubörn. ✝ Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir og afi, STEINGRÍMUR EINAR ARASON bókbindari, Framnesvegi 13, Reykjavík, andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund þriðjudaginn 13. mars. Hjörtný Árnadóttir, Jónína Árndís Steingrímsdóttir, Þorsteinn Helgason, Sigmar Arnar Steingrímsson, Ásta Benediktsdóttir, Bryndís, Unnur Arna og Steinunn Helga Þorsteinsdætur, Arndís Auður, Gunnbjört Þóra og Hjörtur Steinn Sigmarsbörn. ✝ KRISTRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR frá Hólum í Biskupstungum lést á heimili sínu, dvalarheimilinu Grund í Reykjavík, fimmtudaginn 15. mars. Útförin verður auglýst síðar. Aðstandendur. ✝ Elskuleg eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, RÓSA KEMP ÞÓRLINDSDÓTTIR, Barrholti 7, Mosfellsbæ, sem lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi fimmtudaginn 8. mars, verður jarðsungin frá Grensáskirkju mánudaginn 19. mars kl. 13.00. Jón Þorberg Eggertsson, Ólafur Ólafsson, Alda Konráðsdóttir, Svala Haukdal Jónsdóttir, Kjartan O. Þorbergsson, Þórdís Elva Jónsdóttir, Hafsteinn Ágústsson, Guðríður Erna Jónsdóttir, Ólafur Ágúst Gíslason, Jórunn Linda Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, STEFANÍA BJÖRG BJÖRNSDÓTTIR frá Grófarseli í Jökulsárhlíð, Víðivangi 5, Hafnarfirði, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði miðvikudaginn 14. mars. Hún verður jarðsungin frá Garðakirkju þriðjudaginn 20. mars kl. 13.00. Agnes Svavarsdóttir, Björn Svavarsson, Sigríður Kristjánsdóttir, Magnús B. Svavarsson, Bryndís Aradóttir, Rakel Björg, Kristín og Magnhildur Birna, Kristján Ómar og Svava, Stefanía, Arna og Stefán Ómar og langömmubörn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.