Morgunblaðið - 17.03.2012, Blaðsíða 39
MINNINGAR 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2012
✝ Ármann Jó-hannsson fædd-
ist á Kirkjubóli í Fá-
skrúðsfirði 1. ágúst
1928. Hann lést á
Landspítalanum 8.
mars 2012. For-
eldrar hans voru
Jónína Kristín
Benediktsdóttir frá
Einholti í Mýra-
hreppi í A-
Skaftafellssýslu, f.
31.1. 1888, d. 18.8. 1981, og Jó-
hann Árnason frá Brekkuborg í
Breiðdal, f. 4.11. 1897, d. 12.9.
1950. Systur Ármanns: Jóhanna
María Jóhannsdóttir, f. 16.9.
1920, d. 22.12. 2006, Sigríður Jó-
hannsdóttir, f. 8.3. 1923, Álfheið-
ur Margrét Jóhannsdóttir, f.
31.1. 1926, d. 24.1. 1996, og Ásdís
Jóhannsdóttir, f. 10.1. 1933, d.
21.10. 1959.
Árið 1956 hóf Ármann búskap
með Jóhönnu Sólmundsdóttur, f.
19.8. 1932, og kvæntist henni ár-
ið 1962. Börn þeirra eru: 1) Ómar
kennari, f. 4.9. 1956, kvæntist
Bronwin Yeatman en þau skildu.
Þeirra dætur eru Freyja Yeat-
man Ómarsdóttir og Sunnefa
Yeatman Ómarsdóttir. 2) And-
vana fæddur drengur, 25.8. 1957.
3) Óttar læknir, f. 25.8. 1957,
kvæntur Júlíu Siglaugsdóttur,
dætur þeirra eru Arna og Eva
Ýr. Fyrir átti Júlía soninn Sturlu
Má Guðmundsson, hann er
kvæntur Thelmu Hrund Sigur-
björnsdóttur, þeirra börn eru
Þórkatla Þyri og Jófríður Jara.
4) Ævar húsasmíðameistari, f.
2.10. 1958, kvæntur Helenu
Hannesdóttur. 5) Örvar raf-
magnsverkfræðingur, f. 1.3.
1962, kvæntur Helgu Þorleifs-
dóttur, synir þeirra eru Jóhann,
Andri og Þorleifur. 6) Guðrún
kennari, f. 19.6. 1963, gift Jónasi
E. Ólafssyni, þeirra börn eru
Alda Hrönn, Agnar Logi, Eyþór
Ármann og Kolbrún
Björk. Alda Hrönn
er í sambúð með Ás-
geiri Alexand-
erssyni, þeirra börn
eru Guðrún og Al-
exander. 7) Ásdís
lögfræðingur, f.
23.5. 1967, gift Odd-
birni Magnússyni,
þeirra börn eru
Daníel Smári og
Álfheiður Agla. 8)
Hlynur fiskifræðingur, f. 26.1.
1975, kvæntur Berglindi Andr-
ésdóttur, þeirra börn eru Jó-
hanna, Andrés Ívar og Eyvör
Lilja.
Ármann ólst upp á Kirkjubóli í
Fáskrúðsfirði og gekk í Alþýðu-
skólann á Eiðum í tvo vetur
nokkru eftir að barnaskóla lauk.
Fjölskyldan fluttist til Hvera-
gerðis árið 1945. Ármann fór á
samning í rafvirkjun hjá Garðari
Guðnasyni á Fáskrúðsfirði, fékk
sveinsbréf 1952 og varð raf-
virkjameistari árið 1955. Hann
hóf störf við rafvæðingu Stöðv-
arfjarðar 1954, var á Fáskrúðs-
firði 1959-63 í samstarfi með
Garðari Guðnasyni og rak raf-
magnsverkstæði á Stöðvarfirði
frá 1963 til 1998. Hann tók að sér
ýmis verk í rafverktöku á Aust-
fjörðum auk þess sem hann þjón-
ustaði Djúpavog og nærsveitir
þau tímabil sem rafverktaki var
ekki þar á staðnum. Ármann var
mjög virkur í félagsstörfum hjá
samtökum rafverktaka á Austur-
landi sem og landssamtökum raf-
verktaka. Á fundum þessara fé-
laga lá hann yfirleitt ekki á
skoðunum sínum. Hann var einn
af stofnendum Lionsklúbbs
Stöðvarfjarðar. Ármann var hag-
mæltur og liggja eftir hann
margar tækifærisvísur.
Útför Ármanns verður frá
Stöðvarfjarðarkirkju í dag, 17.
mars 2012, kl. 14.
Fallinn er frá Ármann Jó-
hannsson rafverktaki á Stöðvar-
firði. Ármann lauk sveinsprófi í
rafvirkjun árið 1952 og fékk
meistarabréf í greininni árið
1955. Ármanni var annt um stétt
sína og vann alla tíð ötullega að
málefnum rafverktaka. Hann
var einn af stofnendum Félags
rafverktaka á Austurlandi, var
lengi formaður félagsins og síðar
heiðursfélagi. Meðan hann sat
þar við stjórnvölinn komst eng-
inn upp með það að mæta ekki á
fundi. Hann sat í stjórn Lands-
sambands íslenskra rafverktaka
um árabil og var sæmdur gull-
merki samtakanna. Ármann lá
ekki á skoðunum sínum, flutti
mál sitt tæpitungulaust og oft í
bundnu máli. Það var jafnan eftir
því tekið ef Ármann var ekki
mættur, því þá vantaði gaman-
málið og vísurnar. Það lýsir vel
hug Ármanns til samtakanna að
hann færði þeim á sínum tíma
fánastöng sem reist var við sum-
arhús rafverktaka í Ásgarðs-
landi þar sem hún stendur nú
sem verðugur minnisvarði um
góðan dreng.
Rafverktakar senda eiginkonu
Ármanns og fjölskyldu innilegar
samúðarkveðjur.
Jens Pétur Jóhannsson, for-
maður Samtaka rafverktaka,
Jóhann Pétur Jóhannsson,
formaður Félags rafverk-
taka á Austurlandi.
Ármann Jóhannsson, góður
vinur minn og lærimeistari, er
látinn á 84. aldursári. Mér er
harmur í hjarta en jafnframt
gleði yfir góðum kynnum og
samstarfi sem við áttum um ára-
bil. Árið 1964 kom ég til starfa
hjá Ármanni sem lærlingur í raf-
virkjun og fljótt áttaði ég mig á
því að ég væri ákaflega heppinn
því þar var að finna afar færan
rafvirkja og auk þess einstakan
mann á mörgum sviðum. Við
urðum strax góðir vinir og fé-
lagar og sú vinátta hélst alla tíð
síðan. Starfsvettvangur okkar
var einkum raflagnir og rafvæð-
ing á svæðinu frá Reyðarfirði í
austri að Lónsheiði í suðri;
skemmtilegur tími mikillar upp-
byggingar og lífsgleði. Glatt á
hjalla hvar sem við vorum í þorp-
um og sveitum.
Ármann bar alla tíð mikla
virðingu fyrir verkefnum þeim
er hann tók að sér og fólkinu sem
unnið var hjá hverju sinni, var
bóngóður og vildi leysa öll við-
fangsefni. Var skemmtilegur,
fróður og góður hagyrðingur.
Áttum við saman margar
ánægjustundir hvor í annars
húsi, eða bara hvar sem var,
meðan við vorum samferða á
Stöðvarfirði og símtöl síðar eftir
að ég flutti til Reykjavíkur. Ef ég
færi að rifja það allt upp yrði það
efni í heilan bókaflokk.
Ármann var sannur vinstri-
sinni og fór ekki leynt með skoð-
anir sínar í umræðum um póli-
tísk málefni. Ekki var alltaf
skorið utan af hlutunum í okkar
samræðum og sitt sýndist hvor-
um á köflum. Oft áttum við
skemmtilegt spjall saman og
margt bar á góma; heimspeki-
legar vangaveltur, ljóðalestur,
vísnagerð, umræður á faglegum
nótum, trúnaðarsamtöl og svo
mætti lengi telja. Margs er að
minnast, margt að þakka. Ár-
mann Jóhannsson er einn þeirra
manna sem ég minnist ætíð er ég
heyri góðs manns getið.
Jóhanna mín, Ómar, Óttar,
Ævar, Örvar, Guðrún, Ásdís og
Hlynur, ég sendi ykkur og allri
fjölskyldunni, reyndar öllum íbú-
um á Stöðvarfirði, mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur. Guð blessi
minningu góðs drengs.
Grétar Jónsson.
Ármann
Jóhannsson
Sími 892 4650
Gísli Gunnar
Guðmundsson
Guðmundur
Þór Gíslason
Elfar Freyr
Sigurjónsson
Netfang: foldehf@simnet.is - Vefsíða: foldehf.is
Vistvænar íslenskar kistur
Þjónusta allan sólarhringinn.
Komum heim til aðstandenda ef óskað er.
✝
Hjartans þakkir fyrir hlýhug og góðar kveðjur
við andlát og útför okkar ástkæra
ÞÓRÐAR ÓLAFSSONAR.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk líknardeildar
Landspítalans í Kópavogi, Helgi Sigurðsson
krabbameinslæknir, séra Sigfinnur
Þorleifsson og karlakórinn Fóstbræður.
Lára Alexandersdóttir,
Gígja Þórðardóttir, Páll Liljar Guðmundsson,
Orri Þórðarson,
Silja Þórðardóttir, Jóhann Gunnar Jónsson,
Sölvi, Lára og Laufey afabörn
og litla nýfædda afastelpan.
✝
Elsku móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
GRÉTA HALLDÓRS,
er lést á heimili sínu laugardaginn 3. mars,
var jarðsungin mánudaginn 12. mars
í kyrrþey.
Þökkum samúð og vinarhug.
Helga Sigríður Kristjánsdóttir, Jón Þór Guðjónsson,
Árni V. Kristjánsson, Ragnheiður Skúladóttir,
Sverrir Þór Kristjánsson, Guðrún Hörn Stefánsdóttir,
Margrét Jónína Kristjánsdóttir, Páll Pálsson,
Kristján Ísak Kristjánsson, Sigríður G. Pálmadóttir,
Gunnar Freyr Kristjánsson, Margrét Dögg Bjarnadóttir,
Elín Íslaug Kristjánsdóttir, Kristinn Ágúst Ingólfsson,
ömmu- og langömmubörn.
✝
Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð
okkur samúð og hlýhug við andlát elsku-
legrar eiginkonu minnar, móður okkar,
tengdamóður, ömmu og langömmu,
SIGRÚNAR BJÖRGVINSDÓTTUR,
Jörundarholti 16,
Akranesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks dvalarheimilisins Höfða fyrir
einstaka umönnun og hlýhug.
Gunnar Lárusson,
Lára Dröfn Gunnarsdóttir, Jarle Reiersen,
Eyrún Signý Gunnarsdóttir,
Hafdís Gunnarsdóttir, Ágúst Páll Sumarliðason,
Anna Björg Gunnarsdóttir, Teitur Gunnarsson,
barnabörn og barnabarnabarn.
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, stuðning og vinarhug við
andlát og útför okkar elskulegu eiginkonu,
móður, tengdamóður, ömmu og systur,
MAGNEU SIGRÍÐAR
GUÐMUNDSDÓTTUR,
Hraunteigi 21,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við Hlíf Steingrímsdóttur, Margréti
Bárðardóttur, heimahjúkrun Karítas og öllu því frábæra starfs-
fólki Landspítalans við Hringbraut, deild 11 G fyrir einstaka
umönnun og hlýhug.
Jóhann Gilbertsson,
Anna María Moestrup, Sveinbjörn Hrafnsson,
Harpa Heiðrún Hannesdóttir,
Mikael Freyr Hannesson,
Svala Guðmundsdóttir, Már Hólm Einarsson.
✝
Þökkum stuðning og hlýhug við andlát og
útför ástkærrar unnustu minnar, dóttur okkar,
systur, mágkonu og frænku,
PETRÍNU MARGRÉTAR ÁRNADÓTTUR,
Sólheimum 27,
Reykjavík.
Guðmundur Mjöllnir Þorsteinsson,
Árni Sigurðsson, Sigurbjörg Sigurðardóttir,
Kristófer Eiríkur Árnason, Sandra Ólafsdóttir,
Þorkell Árnason, Oddný Bergþóra Helgadóttir,
Viðar Már Ólafsson,
Kristófer Örn Kristófersson,
Kristinn Arnar Kristófersson.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug vegna fráfalls okkar
ástkæra föður, tengdaföður, afa og langafa,
SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR,
Dælengi 17,
Selfossi.
Vinátta ykkar er okkur mikill styrkur.
Guðmundur Sigurðsson,
Ingvi Rafn Sigurðsson, Laufey Jóna Kjartansdóttir,
Sesselja Sigurðardóttir, Örn Grétarsson,
Sigurður Þór Sigurðsson, Kristín Gunnarsdóttir,
Óðinn Sigurðsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð, kærleik og vináttu við andlát
og útför elsku mömmu minnar og tengda-
mömmu,
VALDÍSAR GUÐRÚNAR
ÞORKELSDÓTTUR,
Vallýjar,
Bollagörðum 57,
Seltjarnarnesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarheimilisins Sóltúns fyrir
yndislega umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Guðrún V. Haraldsdóttir, Guðlaugur H. Jörundsson.
✝
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug vegna
andláts og útfarar föður míns, tengdaföður,
afa og langafa,
JÓNASAR H. HARALZ
hagfræðings,
Efstaleiti 12,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á hjúkrunarheimilinu
Mörk fyrir góða umönnun.
Halldór Haralz, Gyða Rafnsdóttir,
Belinda Ýr Albertsdóttir, Atli Már Ólafsson,
Jónas Halldór Haralz,
Guðrún Gyða Haralz,
Ásdís Gyða Atladóttir.
✝
Þökkum af alhug vináttu og hlýhug við andlát
og útför elskulegs eiginmanns míns, föður,
tengdaföður, afa og langafa,
GUNNARS AUÐUNSSONAR
skipstjóra,
Vallarbraut 8,
Seltjarnarnesi.
Sérstakar þakkir til starfsfólks á dvalar- og hjúkrunarheimilinu
Grund fyrir góða umönnun.
Gróa Eyjólfsdóttir
og fjölskylda.
✝
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát systur okkar,
mágkonu og frænku,
KRISTÍNAR HELGADÓTTUR,
Brekkubæ 3,
Reykjavík.
Logi Helgason,
O. Stefanía Helgadóttir, Bergþór Engilbertsson,
Bryndís Helgadóttir,
Jón Tryggvi Helgason, Hrönn Ísleifsdóttir,
Helgi Þór Helgason, Soffía Jónsdóttir
og fjölskyldur.
✝
Alúðarþakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð, hlýju og vinarþel við andlát og útför
elskulegrar móður, tengdamóður og ömmu,
INGIBJARGAR MAGNÚSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk Dvalarheimilis
aldraðra Borgarnesi sem annaðist hana af
einstakri alúð og kærleika síðustu misserin.
Rebekka Björk Þiðriksdóttir, Viðar Pétursson,
Hjalti Viðarsson, Flora Josephine Liste,
Kári Viðarsson,
Ingibjörg Viðarsdóttir, Óli Ívarsson,
Þiðrik Örn Viðarsson, Valgerður Hlín Kristmannsdóttir
og langömmubörn.