Morgunblaðið - 17.03.2012, Page 40

Morgunblaðið - 17.03.2012, Page 40
40 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2012 ✝ Lárus ÓliKristinn Magn- ússon fæddist á Saurhóli í Dala- sýslu 6. október 1921. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Vesturlands, Akra- nesi, 9. mars 2012. Foreldrar hans voru Magnús Árna- son, fæddur í Dala- sýslu 18. júní 1893, lést í Stykk- ishólmi 23. júní 1979, bóndi á Saurhóli frá 1917-28, síðar í Tjaldanesi, Dal. 1928-34. Síðar vann hann við húsbyggingar sem múrarameistari en átti heima í Tjaldanesi alla tíð og Lára Lárusdóttir, f. 8. sept- ember 1891, d. 6. ágúst 1922, húsfreyja á Saurhóli. Systkini Lárusar: Guðrún Ester Magnúsdóttir á Fossi, fædd á Saurhóli í Saur- Thorarensen Steingrímsson, f. 18. júní 1922, lést af slysförum 12. júlí 1963, bílstjóri Búðardal. Kona Una Svanborg Jóhanns- dóttir. Kristinn Steingrímsson, f. 4. ágúst 1923, d. 28. nóvember 1992, bóndi í Tjaldanesi 1953- 1979. Kona Hildur Eggerts- dóttir, látin, þau skildu. S.k. Una Svanborg Jóhannsdóttir. Guð- rún Borghildur, f. 5. október 1925, húsfreyja í Reykjavík. Maður Árni V. Gíslason bifreiða- smiður. Látinn. María Guðrún, f. 6. júní 1927, ljósmóðir í Kópa- vogi. Maður Ólafur Sigurðsson lögfr. Kópavogi og sýslumaður í Búðardal. Kristrún Branddís, f. 28. apríl 1929, sjúkraliði í Reykjavík. Maður Halldór Magnússon. Þau skildu. Sigríð- ur Magga, f. 12. desember 1931. Maður Ólafur þór Magnússon. Þau skildu. Guðmundur, f. 12. júní 1934, d. 18. júní 1966, lést af slysförum. Bílstjóri. Fóst- ursonur: Bogi Guðmar Thor- arensen, f. 12. feb. 1933. Kona Lilja Lára Sæmundsdóttir, látin. Útför Lárusar verður gerð frá Staðarhólskirkju í Saurbæ, Dalabyggð, í dag, 17. mars 2012 og hefst athöfnin kl. 14. bæjarhr., Dal. 24. maí 1917, Ásthildur Kristín Magn- úsdóttir frá Tjalda- nesi, fædd á Saur- hóli 3. júní 1918, lést í Reykjavík 23. mars 2006, Ket- ilbjörn Magnússon, fæddur á Saurhóli 26. nóvember 1919, lést í Stykk- ishólmi 2. ágúst 1989. Fósturforeldrar Lárusar frá 5 vikna aldri voru Steingrímur Samúelsson, f. 24. maí 1886, d. 31. ágúst 1974, bóndi í Mikla- garði 1904-1936, flutti þá að Heinabergi og bjó þar til 1957 að hann flutti að Tjaldanesi, síð- ast í Búðardal og Steinunn Jak- obína Guðmundsdóttir hús- freyja, f. 18. janúar 1897, d. 7. desember 1993. Börn þeirra og fóstursystkini Lárusar: Bogi Ég var stráklingur þegar Lár- us Magnússon, sem við kveðjum í dag, réðist til föður míns sem jarðýtustjóri. Stýrði hann gam- alli TD-14-jarðýtu sem þeir mág- ar, Sigurður Pétursson og pabbi höfðu fest kaup á um miðja síð- ustu öld. Jarðýta þessi var notuð við vegagerð og snjómokstur í sýslunni og enn má sjá marga ve- gaspotta sem gerðir voru undir stjórn Lárusar eða Lalla eins og hann var oftast kallaður. Mér er minnisstætt þegar ég hitti Lalla í fyrsta skipti, hann var klæddur fínum gráum jakka- fötum og virtist ekki líta út fyrir að vera jarðýtustjóri. Í mínum huga átti jarðýtustjóri að vera klæddur bláum skítugum sam- festingi með prjónahúfu á höfð- inu. Það var sama hvað Lalli tók sér fyrir hendur, hvort hann var á kafi inni í vélarhúsi á jarðýtu þar sem allt er útatað í smurn- ingu eða við pípulagnir, alltaf var hreinlætið og snyrtimennska hans aðalsmerki og ekki sást á honum að hann hefði verið að vinna óþrifaleg störf. Lalli var sannkallaður hag- leiksmaður, hann var mjög flink- ur jarðýtustjóri og þegar vertíð- inni lauk við vegagerð og snjómokstur á TD-14, fór hann í að vinna við viðhald á gömlu jarð- ýtunni. Mér sem áhugasömum ungum dreng um vélar féllust oft hendur þegar ég sá ýtuna í smá- pörtum á verkstæðisgólfinu fyrir framan mig og spáði í hvernig í ósköpunum hann Lalli kæmi öllu þessu saman fyrir vorið. Þarna lágu heilu vélahlutirnir, beltin, rúllurnar og hvaðeina. En allt þetta lék í höndunum á honum. Eitt vorið var komið nýtt stálhús á TD-14 sem Lalli smíðaði sjálfur og málaði hárautt. Jarðýtan gamla var orðin sem ný. Ég mann enn í dag lyktina af máln- ingunni og hversu ég dáðist að þessu verki hans. Faðir minn og Lárus stofnuðu síðar fyrirtæki ásamt fleirum, um rekstur jarðýtu og keyptu nýjar Caterpillar-jarðýtur sem lengi voru notaðar við vegagerð o.fl. í sýslunum. Rekstur þessi gekk mjög vel og ekki man ég til að nokkurn skugga hafi borið á samvinnu þeirra, þó að stundum hafi gustað af þeim, enda vildu þeir báðir láta hlutina ganga vel og hratt fyrir sig. Lengi vel bjó Lárus á heimili foreldra minna og tengdist þá okkur í fjölskyldunni, hann var ætíð orðheppinn og skemmtileg- ur og mörg skemmtileg tilsvör hans eru enn í minnum höfð. Það var stutt á milli blótsyrða og skellihláturs. Ekki þótti mér leiðinlegt sem ungum ökumanni að fá að vera bílstjóri hjá Lalla, aka um sveitina og heimsækja kunningjana, glettast og segja sögur. Lalli var mjög góður ljós- myndari og er til mikið safn ljós- mynda eftir hann, sem vonandi verður varðveitt svo eftirlifandi kynslóðum gefist kostur á að njóta. Síðustu æviárin dvaldi Lalli á dvalarheimilinu Silfurtúni í Búð- ardal. Ég vil fyrir hönd okkar systk- inanna frá Króksfjarðarnesi þakka Lalla fyrir samferðina í gegnum lífið. Blessuð sé minning Lárusar Magnússonar. Bjarni Ólafsson. Með þakklæti og hlýju kveðj- um við Lárus Magnússon. Lárus var einlægur maður og mikill heimilisvinur okkar í fjölskyld- unni frá Ytri-Fagradal. Lífs- hlaup Lárusar var í raun speg- ilmynd þjóðar sem braust úr fjötrum skorts og fátæktar. Ekki hefur Lalli farið varhluta af því í barnæsku, en 5 vikna vistaðist hann hjá góðu fólki eftir veikindi móður sinnar. Hjá þeim Stein- grími Samúelssyni og Steinunni Guðmundsdóttur í Miklagarði og síðar á Heinabergi á Skarðs- strönd. Lalli hugsaði alltaf hlýtt til þeirra og minnist áranna á Heinabergi með ánægju, enda heimili þeirra þekkt fyrir snyrti- mennsku og góðan búskap. Ófá- ar ferðirnar gekk hann frá Fagradal út að Heinabergi með myndavélina að vopni. Lárus var áhugamaður um ljósmyndun og framköllun, átti einstaklega góða vél og sýndi natni við framköllun svarthvítra mynda og geymir safn hans mörg gullkornin. Starfsferill Lárusar var ein- stakur, svo fjölbreyttur að ekki verða því gerð skil hér. Þó má nefna vinnuna í KOL hf. Surt- arbrandsnámuna á Tindum, jarðýtuvinnu en Lárus átti ýtu og gerði út í félagi við frænda sinn. Segja má að Lárus hafi ver- ið brautryðjandi á Skarðsströnd og víðar en hann lagði braut um hlíðarnar fyrstur manna á jarð- ýtu. Seinni hluta ævinnar helgaði hann sig pípulögnum hverskonar og víða liggja hans góðu verk á þeim vettvangi og ætíð var Lárus bóngóður til reddinga og víking- ur í vinnu að hverju sem hann kom. Segja má að Lárus hafi ver- ið farandverkamaður alla tíð en fékk að lokum gott skjól á Silf- urtúni í Búðardal þar sem honum leið vel. Þó að Lárus hafi daðrað við Bakkus verður ekki sagt að hann hafi verið óreglumaður eða komið óorði á brennivínið. Hann hitti að vísu nokkuð oft óminn- ishegrann á þessum árum, en var hvorki ofstopamaður né leiðin- legur með víni. Á þeim árum átti hann ætíð skjól í Ytri-Fagradal og svaf úr sér og var ferskur sem haförn að morgni. Lárus var ein- staklega heilsuhraustur alla tíð og tók ekki lyf fyrr en á tíræð- isaldri sem verður að teljast ein- stakt. Léttur á fæti og liðugur sem köttur, minnisstætt er þegar hann stökk jafnfætis yfir bæjar- hliðið í Fagradal 68 ára gamall eins og ekkert væri. Það er heið- ur að hafa kynnst svo gegnheil- um manni, traustum og barngóð- um og minning þín lifir. Fyrir hönd systkinanna frá Ytri- Fagradal þakka ég samfylgdina og bið Guð að geyma þig. Vin sínum skal maður vinur vera, þeim og þess vin. En óvinar síns skyli engi maður vinar vinur vera. Veistu ef þú vin átt þann er þú vel trúir og vilt þú af honum gott geta. Geði skaltu við þann blanda og gjöfum skipta, fara að finna oft. (Úr Hávamálum.) Þinn Stefán Skafti Steinólfsson. Kynni okkar af Lárusi Magn- ússyni voru aðallega þegar hann kom til okkar í vinnu við pípu- lagnir. Það var oft sem við þurftum á honum að halda þessi rúm þrjá- tíu ár sem leiðir okkar lágu sam- an. Alltaf var hann bóngóður og laghentur maður. Ljúfur í um- gengni, kátur en feiminn. Eins og sagt er drengur góður. Frábær ljósmyndari, tók mik- ið af fallegum landslagsmyndum. Við þökkum Lalla Magg kær- lega fyrir margar góðar stundir saman. Guð geymi þig. Þráinn Hjálmarsson og Málfríður Vilbergsdóttir, Hríshóli, Reykhólahreppi. Lárus Óli Kristinn Magnússon ✝ Sören KarlBjarnason fæddist á Siglufirði 31. ágúst 1916. Hann lést 6. mars 2012. Foreldrar hans voru Margrét Guð- finna Bjarnadóttir, fædd 28. október 1882, dáin 30. jan- úar 1968 og Bjarni Gíslason, fæddur 17. september 1891, dáinn 12. maí 1922. Karl átti þrjá bræður sem allir eru látnir; Bjarna Daníel Friðbjörn, f. 31. desem- ber 1918, Bjarna, f. 14. desem- ber 1922 og Jón sem lést ungur. Faðir Karls drukknaði þegar mótorbáturinn Samson fórst í hákarlalegu og var Karli skömmu síðar komið í fóstur að Brúnastöðum í Fljótum til hjónanna Guðrúnar Jónsdóttur og Sveins Arngríms- sonar. Hann fluttist með fósturfor- eldrum sínum að Ásgeirsbrekku í Viðvíkursveit árið 1928. Hann átti síð- an heima á all- mörgum bæjum þar í nágrenninu, lengst í Hof- staðaseli en við þann bæ var hann gjarnan kenndur, Kalli í Seli. Síðustu árin var hann vist- maður á dvalarheimili aldraðra á Sauðárkróki og þar lést hann. Hann vann margvísleg sveita- störf alla sína starfsævi. Karl var ókvæntur og barnlaus. Útför hans verður gerð frá Hofstaðakirkju í dag, 17. mars 2012 og hefst athöfnin kl. 14. Heyri ég ljúfan hófadyn hugsa um lífið og vorið. Greini í fjarska genginn vin glaðlega taka sporið. Hugsa ég glaður um horfna tíð heyri ég dýrin hjala. Minningin verður svo björt og blíð í birtu skagfirskra dala. (Ólafur Þór Ragnarsson) Það var sérstök tilfinning að sjá hvað Kalli og frænka hans náðu vel saman. Þessi sérstaki samhugur í sambandi við hestana og dýrin yfirleitt. Alltaf heilsaði hann henni á afar hlýjan hátt; „sæl frænka mín“ og það var frænka með stóru effi. Í öðru lagi var sérstakt að finna hvað inngróinn íslenskur sveitapiltur hann var, frá fyrri öld eða öldum þar áður. Kunni allt upp á gamla mátann. Sló og rakaði og notaði gömlu amboðin en leit vélafarg- anið hálfgerðu hornauga. Við urðum að hafa nóg fyrir hann að dunda. Hann hafði ósköp gaman af gegningum og talaði við dýrin á sérstakan hátt og voru hrossin þar kannski sér á parti. Í tengslum við þetta er gaman að minnast hve norðlenskur Kalli var varðandi veður og áttir. „Óli minn,“ sagði hann, „hér eru allar áttir snarvitlausar og ég oftast rammvilltur, því hérna er allt út og suður og svo er líka votviðra- samt hérna.“ Um leið og hann sagði þetta varð hann býsna kankvís og kíminn á svip. Það var ósköp létt að gefa Kalla að borða; soðning, hafragraut, slátur og svo blessuð mjólkin góða var hans matur. Nýmóðins matur þótti honum skrýtinn en borðaði þó. Það var upplifun að sjá Kalla við matarborðið, hann var svo kurteis að velja yfirleitt verstu bitana svo að aðrir lentu ekki á þeim. Þetta lýsir á táknrænan hátt hvernig hann leit á lífið og tilveruna. Menn ættu ekki að ryðjast að veisluborðum alls- nægtanna og velja bestu bitana, þetta var hans lífsspeki og mættu margir læra þar af. Hann var svo kurteis og lítillátur að hann hefði ekki viljað lofræðu um sig – en því meiri söng. Svo mætti gjarn- an lyfta glasi og snússa í nefið. Jamm! Við kveðjum Kalla með sökn- uði og það gera fleiri. Það eru fal- legar minningar sem Sigrún á um Kalla frænda sinn, minningar sem hún geymir í huga sér og gleymir aldrei. Efst í huga er þó þakklætið fyrir að hafa fengið að njóta gæða hans og fyrir þessa sérstöku tilfinningu hans fyrir dýrunum sem þau áttu og eiga svo sameiginlega. Í morgun sastu hér undir meiði sólarinnar og hlustaðir á fuglana hátt uppi í geislunum minn gamli vinur en veist nú í kvöld hvernig vegirnir enda hvernig orðin nema staðar og stjörnurnar slokkna (Hannes Pétursson) Hafðu þökk fyrir allt og allt. Þín frænka og vinur, Sigrún Daníelsdóttir, Ólafur Þór Ragnarsson. Kalli í Seli, eins og hann var jafnan kallaður, hefur nú lokið lífsgöngunni. Ég var honum sam- tíða á heimili foreldra minna í Hofstaðaseli fyrstu ár ævi minn- ar eða hartnær 20 ár. Ég minnist hans með ánægju og þakklæti, hann var ætíð góður við börn. Í Hofstaðaseli vann hann öll venjuleg sveitastörf sumar og vetur. Fjósverk hafði hann að mestu á sinni könnu nema hvað heimilisfólk hjálpaðist að við mjaltir. Sjálfur átti Kalli dálítinn fjárhóp sem hann hafði í húsi sem stóð í túninu fyrir ofan bæ- inn. Þar að auki átti hann nokkur hross en honum þótti gaman að skreppa á bak og hleypa um grundir og bala sér til lífsfylling- ar og þá var „…stormur og frelsi í faxins hvin…“. Ekki var hann með öllu frábitinn hestakaupum og smávegis braski í þeim efnum. Hann fór vel með allar skepnur, ærnar hans voru fallegar og vel framgengnar og hundurinn á bænum var honum fylgispakur. Kalli naut skamma stund sam- vista við foreldra sína. Hann var aðeins fimm ára þegar hann missti föður sinn og fór til vanda- lausra. Þótt hann hitti móður sína aðeins með höppum og glöppum sýndi hann henni son- arlega ræktarsemi í ríkum mæli. Á hverju hausti fór hann til Siglufjarðar og dvaldi hjá móður sinni hálfan mánuð eða þar um bil. Þá kom hann færandi hendi og birgði hana upp af margvís- legum varningi, m.a. kjöti af lömbum og folaldi sem hann hafði slátrað. Kalli var afskiptalaus um ann- arra manna hagi og stóð ekki í stórræðum. Þó gat stundum gef- ið smávegis á bátinn í samskipt- um hans við aðra því hann brá stundum á sitt ráð þá sitt sýndist hverjum. Allt slíkt jafnaðist þó von bráðar því Kalli var greiðvik- inn, rétti nágrönnum fúslega hjálparhönd og vildi láta gott af sér leiða. Öllum, sem kynntust honum, var hlýtt til hans enda gerði hann ekki á hlut nokkurs manns. Á efri árum var Kalla marg- víslegur sómi sýndur. Orðhagir Skagfirðingar ortu ljóð honum til heiðurs og skagfirskir lagasmiðir sömdu lög við ljóðin. Síðan var sungið af skagfirskri innlifun í af- mælishófi sem vinir Kalla héldu honum. Kalli var ekki ratvís um ref- ilstigu kerfisins svokallaða, enda mörgum orðið dimmt fyrir aug- um í afkimum þess. Í þeim efnum naut hann aðstoðar þeirra sem mest samskipti höfðu við hann. Einkum reyndist fólk í Viðvíkur- sveit og á Dýrfinnustöðum hon- um vel. Síðustu æviárin átti hann samastað á dvalarheimili aldr- aðra á Sauðárkróki og voru þau Heiðrún Friðriksdóttir og Sveinn Sigfússon honum mjög innan handar þann tíma sem hann var á Króknum. Allt á þetta góða fólk heiður skilinn fyrir hugulsemi. Útför Kalla verður gerð frá Hofstaðakirkju í dag, 17. mars 2012. Hann vék góðu að þeirri kirkju og færði henni rausnarleg- ar gjafir. Blessuð sé minning góðs drengs. Sveinn Herjólfsson. Kalli frá Seli hefur fengið hinstu hvíldina. Við sjáum hann fyrir okkur á Grána sínum, Nasi er við taum og Kolur skoppar glaðvær við hlið hans. Hann brosir glettinn í kampinn, nikkar kveðju og ríður úr hlaði. Tóbaks- pontan og vasaklúturinn á sínum stað, og sennilega leynist ferða- pelinn í gömlu hnakktöskunni. Við skynjum að hann er á leið til endurfundanna. Foreldrar okkar keyptu jörð- ina Hofsstaðasel 1966 en þá stóð þar fimm bursta torfbær sem þótti nú tæplega íbúðarhæfur. Gamli bærinn fékk bráða andlits- lyftingu og ekki væsti um stækk- andi fjölskylduna. Kalli hafði ver- ið í vinnumennsku hjá fyrri eigendum, þeim Herjólfi Sveins- syni og Margréti Ólafsdóttur, og bjó hann áfram í Seli næstu árin. Hann svaf í fremri baðstofunni og hundurinn hans Kolur átti at- hvarf í bæjargöngunum. Hann hélt sínar kindur í útihúsum á Kallatúni og hestarnir voru hans yndi. Kalli var trúr gömlu búskap- arháttunum og sló alla tíð með orfi og ljá. Hann hirti kirkjugarð- inn á Hofsstöðum og oft sló hann líka beðaslétturnar norðan við kirkjuna. Krakkarnir aðstoðuðu hann oft og gaman höfum við af því í dag að hafa átt þess kost að kynnast vinnubrögðunum af Kalla sem leiðbeindi af einstakri þolinmæði. Kalli átti því ekki að venjast að hafa svo mörg börn í kring um sig og var því ótrúlegt hvað hann umbar ærslaganginn og tók oft þátt í honum líka, sá um að ekki keyrði um þverbak og þurrkaði tárin ef svo bar undir. Börn hændust að Kalla og voru undir hans vernd er hann var nær- staddur. Eins var það með mál- leysingjana sem hann sinnti af einstakri natni og sjáum við hann fyrir okkur í miðjum kindahópn- um sínum, útbýtandi einhverju góðgæti og sá til þess að allar fengju þær bitann sinn. Kalli fór frá Seli eftir að hafa dvalið og unnið á búinu af trú- mennsku í tíu ár. Árin á eftir vann hann hefðbundin sveita- störf á ýmsum bæjum í sveitinni. Frá árinu 1986 hafði hann fastan samastað hjá góðu fólki í ná- grenninu, þeim Sigríði og Sigur- jóni á Dýrfinnustöðum. Kalli hlaut gullúr að viðurkenningu frá Búnaðarfélagi Íslands fyrir störf sín í þágu landbúnaðar og bar hann það jafnan á tyllidögum. Gullúrið var á festi sem hann krækti í vestisboðunginn. Hann var stoltur af að hafa fengið þessa viðurkenningu og bar úrið með ánægju. Árið 1999 flutti Kalli á Heil- brigðisstofnunina á Sauðárkróki. Þar hitti hann fyrir gamla vini og þar leið honum vel. Hann gat far- ið og komið að vild sem hentaði vel meðan hann var fleygur og fær og gat þá skroppið í sveitina þegar hann vildi. Það tók að halla undan fæti og síðustu tvö árin var hann á hjúkr- unardeild og naut þar einstakrar umönnunar. Góða vini átti hann á Sauðárkróki sem sáu um öll hans mál. Þau Heiðrún Friðriksdóttir og Sveinn Sigfússon heimsóttu hann reglulega og hugsuðu um velferð hans til hinsta dags. Vit- um við að hann var þakklátur öllu því góða fólki sem greiddi götu hans í gegnum tíðina. Guð blessi minningu Kalla frá Seli. Við þökkum samfylgdina. F.h. fjölskyldunnar frá Hofs- staðaseli, Guðný Vésteinsdóttir. Sören Karl Bjarnason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.