Morgunblaðið - 17.03.2012, Page 44

Morgunblaðið - 17.03.2012, Page 44
44 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2012 Elsku besta mamma mín. Ég veit ekki alveg hvernig ég á að fara að án þín. Enginn kaffihittingur á morgnana, mig langar ekki að horfa á Bold and the Beautiful á morgnana án þín. Hvað á ég að gera núna, ég hef aldrei verið án þín? Það hefur alltaf bara verið ég og þú. Þú varst besta vinkona mín. Ég talaði um allt við þig og einhvern veginn varð allt betra bara við að sitja hjá þér. Það var ekki sá hlutur sem þú reyndir ekki eftir besta megni að gera fyrir mig eða börnin mín, þau voru jafnmikið þín og mín. Yndislegu stundirnar sem þið Tómas áttuð, hann var duglegur að koma til þín. Þú varst sú sem hann talaði við um allt milli himins og jarðar og tifinningamálin. Hann hafði alltaf svo miklar áhyggjur af þér, að þér liði ekki nógu vel. Og hvað þú varst stolt af Erlingi að fara alla leið til Grikklands að læra en þú skildir þó alveg mömmuhjartað sem fékk nú smásjokk yfir að litli stóri strákurinn færi svona langt í burtu. Það sem þú hafðir gaman af honum Þorsteini, já félagsvera er hann og ekki gleyma hárinu og svo brostir þú nú bara. Svo er það litla prinsessan, gleðin í lífi þínu, hún Ísabella Christín. Guð Borgrún Alda Sigurðardóttir ✝ Borgrún AldaSigurðardóttir fæddist á Eskifrði 25. apríl 1935. Hún lést á heimili sínu í Keflavík 4. mars 2012. Útför Borgrúnar Öldu var gerð frá Keflavíkurkirkju 13. mars 2012. hvað þú elskaðir hana og fékkst aldrei nóg af henni. Hvað þú elskaðir að horfa á hana dansa fyrir þig og þú lást í krampa af hlátri yfir því náttúr- lega hvað hún væri yndisleg. Þú varðst að fá að sjá hana á hverjum degi, annars varstu ómögu- leg. Alltaf sagðir þú: „Guð hvað ég elska þessa stelpu og sjá þennan kropp, ég gæti ét- ið hana – hahaha.“ Ég held stundum að það sé satt hjá systkinum mínum að það hafi ekki verið búið að slíta nafla- strenginn. Jiminn eini hvað ég á eftir að sakna þín, ég veit ekki alveg hvernig lífið er án þín og var að vona að ég myndi ekki komast að því nærri því strax. Ég elska þig meira en þú getur ímyndað þér. Lífið verður mjög ein- manalegt án þín. Takk fyrir að elska mig, elsku besta mamma mín. Litla stelpan þín, alltaf, Íris. Ljúfar eru þær birturíku bernskuminningar sem leita á hug við andlát minnar kæru frænku, ljúfsárar nú þegar aðeins er eftir að kveðja og þakka. Fregninni fylgir sakn- aðarkennd yljuð þökk fyrir ótal liðnar yndisstundir frá liðnum tíma. Það var alltaf jafnkærkomið fyrir okkur Ásu þegar mamma hennar, Inga frænka okkar kær, kom með börn sín í heimsókn til systur sinnar inn í Seljateig, dagarnir fengu á sig ákveðinn ljóma og lit, þá var gleði í garði og þar átti hún Alda sinn ríka þátt. Hún Alda var skemmtileg frænka, orðheppin og gaman- söm, svolítið stríðin við frænda sinn, enda hafði hún það á orði að það væri sagt að við værum svo lík sem henni fyndist nú ekki alveg nógu gott fyrir sig! og það hreif. Svo liðu árin, Alda fluttist suður og samfundir urðu eðli- lega strjálli en við vissum alltaf hvort af öðru og alltaf jafngott að hitta hana Öldu, hún var ætíð hress í máli og stutt í hlýtt brosið og eðl- islæga spaugsemina, þótt lífið hafi ekki ætíð farið um hana mildum höndum. Sviplegt var Hólmaborgar- slysið 1956 þegar Sigurður faðir hennar drukknaði, sá vaski og velmetni drengskap- armaður, og svo kom áfallið mikla fyrir nokkrum árum, þegar feðgarnir vel gjörðu, sonur hennar og sonarsonur, fórust í hinu hörmulega snjó- flóði á Flateyri. Ég hitti Öldu stuttu síðar og það sá eðlilega á hve henni var skelfilega brugðið, en hún bar sig eins og sönn hetja, faðmlagið og alúðarorðin hin sömu og alltaf áður. Alda var harðdugleg og fylgin sér, myndvirk var hún og átti ágæta greind, sönn efniskona á ýmsa lund, hrein- skilin og hreinskiptin var hún og stóð alltaf fyrir sínu. Hún var lengi búin að vera við slaka heilsu og ýmislegt sem hana hrjáði, en hún hélt þó sitt strik allt til endadægurs. Hún Alda mín hefði ekki vilj- að langan lofsyrðaflaum um sig, svo yfirlætislaus og hóg- vær sem hún var, en hug- umkær er þökk mín nú við leiðarlok. Einlæg samúðarkveðja er send börnum hennar og öllu öðru hennar fólki frá okkur Hönnu. Ég geymi í huga in- dæla minningamynd löngu liðinnar tíðar um kæra frænku. Far í friði frænka góð. Helgi Seljan. Hinn 1. mars kvaddi þennan heim mín elskulega fóstursyst- ir og vinkona. Hún Anna systir eins og við kölluðum hana í minni fjölskyldu. Hún giftist Steina móðurbróður mínum og þau fóru að búa í Skálanesi á Mýrum 1939. Anna var mjög dugleg og glaðlynd og einstak- lega gestrisin. Þegar mamma flutti til Reykjavíkur 1948 fékk ég að fara öll sumur til Önnu systur og Steina frænda í Skálanes. Þetta voru yndisleg- ustu stundirnar sem ég átti með þeim og frændsystkinum mínum Sæunni, Sigga, Maríu og Ellu. Það var alltaf mikið að gera hjá Önnu, bæði að hugsa um heimilið, heyskapinn og bú- ið. Því öll sumur vann Steini á gröfu og ýtu í sveitinni svo það var mikið að gera í heyskap sem Anna vann með pabba sín- um og börnum. Hún tók samt allri þessari vinnu með jafnað- argeði ásamt öllum gestagang- inum. Árið 1956 fluttu þau Steini að Hrafnkelsstöðum í sömu sveit og bjuggu þar í tvö ár. Þá fluttu þau til Reykjavík- ur og keyptu íbúð á Langholts- veginum þar sem hún undi sér vel með Steina og börnunum. Hún vann alltaf úti, í frystihúsi, í saumaskap í Seglagerðinni og síðast vann hún í Langholts- skóla. Anna kom oft til okkar Jóhanns í matartímum og það voru góðar stundir fyrir okkur og strákana. Hún var við þá eins og amma. Allar sögurnar sem hún sagði Leó voru ein- staklega fallegar og vel sagðar. Anna varð níræð 21. septem- ber 2011 og börnin hennar héldu stóra veislu fyrir hana sem hún hafði ákaflega gaman af og talaði þar við flesta. Fyrir fimm árum flutti hún til Sæ- unnar dóttur sinnar og Óla á Selfoss þar sem hún var mjög ánægð og bjó í góðu yfirlæti. Hún fór stundum til Ellu dóttur Anna Guðrún Sigurðardóttir ✝ Anna GuðrúnSigurðardóttir fæddist 21. sept- ember 1921 á Hamraendum í Hraunhreppi í Mýrasýslu. Hún lést á Selfossi 1. mars síðastliðinn. Útför Önnu fór fram frá Lang- holtskirkju 13. mars 2012. sinnar í Grindavík, þá sagði Anna að hún væri að fara í sumarfrí. Svo kom stundin þegar hún kvaddi okkur öll og það fannst mér, Jó- hanni og börnun- um okkar ákaflega mikill missir. Við minnumst Önnu systur með miklum söknuði og biðjum Guð að geyma hana og þökkum fyrir tímann sem við áttum með henni. Elsku Sæunn, Siggi, Ella, Björk og fjölskyldur, Guð veri með ykkur. Svala, Jóhann og fjölskyldur. Elsku langamma. Mikið verður skrýtið að koma til Ís- lands héreftir og hitta þig ekki. Góða langamma sem alltaf dreifðir gleði í kringum þig. Okkur langar að þakka þér fyr- ir allt sem þú hefur verið fyrir okkur og allar minningarnar. Þú bjóst til bestu pönnsur í heimi og varst stöðugt að búa til eitthvað fallegt, enda varstu mikill fagurkeri og alltaf um- lukt fallegum litum. Við gætum haldið heila listsýningu með öllum dúkkufötunum sem þú bjóst til handa okkur. Það var alltaf svo gaman að hitta þig, bæði á Íslandi og þegar þú komst til okkar í Noregi. Við munum sakna þín og aldrei gleyma þér. Megir þú hvíla í friði. Alda, Pål og Eydís Tveiten. Minning um heimsins bestu ömmu. Elsku amma mín. Ég veit ekki hvar ég á að byrja, það er af svo mörgu að taka. Ég man hvað mér fannst allt- af gaman þegar þú komst með okkur í ferðalög þegar ég var lítil, það gerði ferðalögin alltaf extra sérstök af því að þú kunn- ir sögur úr öllum sveitum og það var alltaf svo gaman að hlusta á þig segja frá, með svo hlýja og góða rödd. Svo kunnir þú svo mörg ævintýri sem þú sagðir aftur og aftur. Ég man eftir einu sinni þeg- ar þú varst að segja okkur Arnari söguna um Unga litla. Í miðri sögunni byrjaðir þú að dotta en þú hélst bara áfram með söguna hálfsofandi: „Ungi litli kom hlaupandi og sagði að himinninn væri að hrynja, ég sá það með eyrunum og heyrði það með augunum og brot úr honum datt á stélið á mér,“ og við veltumst um af hlátri. Alltaf svo mikil gleði í kringum þig. Það var alltaf svo gott að koma í heimsókn til þín á Lang- holtsveginn, Þú varst alltaf svo blíð og góð og maður var alltaf svo velkominn hjá þér. Stórt hjartað þitt snerti alla sem hittu þig. Það er ekki hægt að hugsa sér betri fyrirmynd en þig. Þú varst alltaf svo jákvæð og hafðir alveg einstakt lag á að sjá alltaf það góða í öllum. Við áttum líka eftirminnileg- an dag með þér fyrir tveimur árum þegar Tobba og Óðinn höfðu boðið okkur öllum í bröns á Holtinu og það var ákveðið að fara í keilu og þú ætlaðir sko aldeilis ekki að láta þig vanta þar. Við bjuggumst öll við að þú ætlaðir bara að horfa á okkur skemmta okkur en við hefðum átt að vita betur, þú sagðir að þú værir nú orðin 88 ára gömul og það væri ekki seinna vænna að prufa að fara í keilu, þú hefð- ir aldrei prufað það áður! Og ekki nóg með að vera með í keil- unni, þú gerðir þér lítið fyrir og náðir fellu og það er meira en hægt er að segja um alla yngri einstaklingana sem voru með. Svo til að toppa daginn komstu með okkur á Players um kvöld- ið að horfa á landsleik í hand- bolta. Ég hef alltaf sagt, ef einhver er að tala um ömmur, að mín sé alveg einstök. Tilhugsunin um að þú ættir einhvern tímann eftir að hverfa frá okkur hefur mér alltaf fundist óbærileg. En nú er komið að kveðjustund. Ég er óendanlega stolt af að hafa átt þig að. Minningar um ótrú- lega jákvæða og einstaklega góða konu geymi ég í hjartanu mínu. Ég mun alltaf elska þig amma mín. Þín Anna Dóra. Eitt sinn skulu allir deyja segir máltækið og víst er það nokkurn veginn það eina sem allir eru vissir um í lífinu, öll deyjum við einhvern tímann. Það er skrítið hvað dauðinn kemur okkur einhvern veginn alltaf á óvart jafnvel þó að vit- að sé að hverju stefnir. Dauð- inn er sár fyrir þá sem eftir lifa, foreldra sem horfa á eftir barni sínu og börn sem missa foreldri sitt. Dauðinn kvaddi dyra hjá fjölskyldu okkar hinn 3. mars síðastliðinn þegar Gunnar, fað- ir Sveinbjörns barnabarns okkar hjóna, kvaddi þennan heim eftir erfiða baráttu við krabbamein. Þrír ungir synir horfa nú á eftir föður sínum, föður sem hugsaði vel um þá og vildi veg þeirra sem bestan, var stoltur af þeim og gerði svo margt fyrir þá. Kynni okkar Gunnars voru góð, okkur þótti vænt um hann og þó að við værum ekki alltaf Gunnar Björn Björnsson ✝ Gunnar BjörnBjörnsson fæddist í Reykjavík 5. desember 1970. Hann lést á Heil- brigðisstofnun Suð- urnesja 3. mars 2012. Útför Gunnars Björns fór fram frá Fossvogskirkju 12. mars 2012. sammála um hlut- ina mælti hann okkur sjaldan í mót. Hress, kátur, dálitið stríðinn og með húmorinn í lagi, ákafur bíla- áhugamaður og laxveiðimaður mikill. Sumrin voru oftast vel skipulögð af veiði- ferðum og nutum við hjón góðs af því þegar Sveinbjörn kom heim úr veiðiferð með pabba sínum hlaðinn laxi og silung- um. Gunnar var duglegur við allt sem hann gerði og hann ætlaði líka að sigra þennan krabba þó að hann yrði að lúta í lægra haldi í þeirri viðureign. Það verður tómlegt að heyra ekki lengur kallað upp í stig- ann hér á Hraunbrún: „Halló á ég ekki einhvern hér! Er strák- urinn minn þarna einhvers staðar?“ Gunnar skilur eftir sig stórt skarð en við erum þakklát fyrir góðar minningar og þrjá efni- lega syni hans sem eiga eftir að verða honum góður vitnisburð- ur. Við kveðjum kæran vin, þökkum honum samfylgdina og biðjum honum velfarnaðar á æðri sviðum. Sonunum Sveinbirni, Elís og Hermanni, foreldrum og öðr- um ástvinum sendum við okkar innilegustu samúðarkveðjur. Sigríður og Sveinn. Kær vinur okkar og æsku- félagi hefur kvatt. Þrátt fyrir óbilandi baráttuhug varð hann að láta í minni pokann fyrir krabba- meininu. Kynni okkar hófust á unglingsárunum í Vesturbænum, nánar tiltekið á Melunum og Hringbrautinni. Vinskapurinn hefur varað í yfir fimmtíu ár og aldrei borið skugga á. Við bröll- uðum margt og ferðuðumst sam- an innanlands og utan. Skemmt- analífið var fjörugt í þá daga og oft glatt á hjalla. Margar góðar minningar koma nú í hugann. Siggi var skapgóður, hlýr og hafði góða nærveru og oft var stutt í hláturinn. Þessir eiginleik- ar komu honum vel en hann fékkst við verslun og viðskipti alla sína starfsævi. Hann var glaðlyndur og vinsæll og kunni að þjóna viðskiptavinum sínum. Siggi var afar minnugur, fróð- leiksfús og vel lesinn og hafði mikinn áhuga á ættfræði. Hann var mannblendinn og gaf öðrum Sigurður Sigurðsson ✝ Sigurður Sig-urðsson fædd- ist hinn 9. desem- ber 1951 á Miklubraut 68 í Reykjavík. Hann lést að morgni ný- ársdags 2012 á Landspítalanum við Hringbraut. Útför Sigurðar var gerð frá Foss- vogskirkju 11. jan- úar 2012. af sjálfum sér og er það ekki svo að gæfa lífsins felst ekki síst í því að eiga samleið um stund og muna allt eins og það hefði gerst í gær? Við vinirnir kveðjum Sigga að leiðarlokum og þökkum samfylgd- ina. Við sendum Ninnu og aðstand- endum öllum innilegar samúðar- kveðjur. Guð blessi minningu góðs drengs. Bogi, Cecil, Einar, Gísli og Þorgils (Bassi). Kæri frændi, takk fyrir þína góðu nærveru alla tíð. Takk fyrir stuðninginn við dætur mínar. Takk fyrir allar góðar gjafir sem þú barst á borð þegar ég var lítil; eplakassana og kakómaltið svo dæmi séu tekin. Mig langar að kveðja þig með ljóði úr bók Einars. H. Kvarans sem gefin var út árið 1948, en þá bók fékk ég í arf eftir föðurömmu mína, móður þína. Nú er ei annað eftir en inna þakkar-mál og hinztu kveðju kveðja þig, kæra, hreina sál. Þín ástarorðin góðu og ástarverkin þín í hlýjum hjörtum geymast, þótt hverfir vorri sýn. Hvíl í friði kæri frændi. Kristjana Björnsdóttir ✝ Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ÓLAFS Á. J. PÉTURSSONAR, Giljum í Mýrdal, sem lést miðvikudaginn 22. febrúar. Sigrún B. Ólafsdóttir, Ólafur Þorsteinn Gunnarsson, Birna Kristín Pétursdóttir, Þórir Auðunn Gunnarsson, Auðbjörg Helgadóttir, Sigríður Margrét Gunnarsdóttir, Helgi Júníus Jóhannsson, Sólrún Erla Gunnarsdóttir, Gylfi Viðar Guðmundsson og barnabarnabörn. ✝ Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinar- hug við andlát og útför INGÓLFS ÓLAFSSONAR vélstjóra frá Grænumýri, Seltjarnarnesi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Hrafnistu, deild H-1. Árný Valgerður Ingólfsdóttir, Kolbeinn Guðmundsson, Sigríður Ingólfsdóttir, Ólafía Ingibjörg Ingólfsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.