Morgunblaðið - 17.03.2012, Qupperneq 49

Morgunblaðið - 17.03.2012, Qupperneq 49
Laugardagur 60 ára Björgvin Ómar Ólafsson Helgi Hannesson Ingibjörg Magnúsdóttir Petrína Rakel Bjartmars Stefán S Guðjónsson Þórdís Ingólfsdóttir 50 ára Andrés Pálmason Guðrún Þóra Ingþórsdóttir Hanna Ólafsdóttir Hjalti Guðbjörn Karlsson Karl Ásgeirsson Kristján Tryggvi Högnason Sigrún Una Kristjánsdóttir Sigurður Grétar Ottósson Stefán Sveinsson 40 ára Ágúst Guðmundur Atlason Baldur Sigurgeirsson Bergþóra Höskuldsdóttir Gísli Magnússon Guðbjörg Gunnarsdóttir Guðrún Björk Baldursdóttir Hrafnhildur Guðjónsdóttir Jóhannes Guðmundsson Jón Freyr Sigurðsson Jón Ingi Teitsson Kristín J. Rögnvaldsdóttir Pétur Erlingsson Ragnar Ingibergsson Þiðrik Hansson Þórey Björg Einarsdóttir Þórir Unnar Valgarðsson 30 ára Arnar Þór Viktorsson Bjarki Már Baxter Erla S. Skarphéðinsdóttir Guðmundur K. Sigríðarson Heiðar Mar Björnsson Jóhanna I. Sigurjónsdóttir Pálmi Benediktsson Sigrún Dögg Eddudóttir Sunnudagur 60 ára Ásgeir Bjarnason Einar Thorlacius Guðný Sigmundsdóttir Guðrún Guðnadóttir Guðrún S.r Björnsdóttir Kolbrún Björgólfsdóttir Kristinn R. Hartmannsson Stefán R. Þorvarðarson 50 ára Barði Ingvaldsson Brynja Karlsdóttir Guðrún Pétursdóttir Ingibjörg Sigurbjörnsdóttir Lilja Sigrún Jónsdóttir Sigurlína H. Halldórsdóttir Sólveig Hjaltadóttir Svanhildur Jónsdóttir Örn Orrason 40 ára Auðunn Friðrik Kristinsson Einar Þór Bárðarson Ester Rafnsdóttir Hafdís Vilhjálmsdóttir Hallgrímur Axel Tulinius Hanna Þóra Lúðvíksdóttir Hjalti Kristjánsson Hulda Þ. Stefánsdóttir Jóhanna Sól Haraldsdóttir Karl Freyr Karlsson Sigmar Örn Alexandersson Ýmir Vésteinsson Þorsteinn Berghreinsson Þorsteinn Þorsteinsson Þórdís Jóna Jakobsdóttir 30 ára Anton Sigurðsson Arndís Pálsdóttir Dagný Stefánsdóttir Egill Baldursson Finnbogi Karl Andrésson Friðrik Ragnar Friðriksson Helgi Freyr Margeirsson Jón Elimar Gunnarsson Sigurður B. Sigurðsson Þorsteinn Kristinsson Til hamingju með daginn ÍSLENDINGAR 49 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2012 um listamönnum, Gallerí Sólon Ís- landus 1976-78 og Gallerí Lang- brók 1978-84, stundaði rannsóknir til vinnslu á íslenskum leir í Búð- ardal fyrir Iðntæknistofnun og Dalaleir 1980-84, hefur rekið eigin vinnustofu frá 1976 og gallerí frá 1985, Kogga keramik-studio- gallerí, á Vesturgötu 5 í Reykjavík. Sýningar og verk Kogga hefur um langt árabil tekið þátt í u.þ.b. sjötíu samsýn- ingum, hér á landi og víða um heim, og haldið fimmtán einkasýn- ingar. Verk eftir Koggu má m.a. finna í eigu eftirfarandi safna: Listasafns Íslands í Reykjavík; Listasafns Reykjavíkur; Hönnunarsafns Ís- lands; Listasafns Hafnarfjarðar; Listasafns Kaupmannahafnar; Mu- seum of Modern Art í Tokyo; Grassi Museum Für Angewandte Kunst í Leipzig; Listasafns Moskvuborgar; Listasafns Häs- selby Slott í Stokkhólmi og Lista- safns Þórshafnar í Færeyjum. Meðal opinberra aðila sem eiga verk eftir Koggu má nefna For- setaembættið á Íslandi; Alþingi; Háskóla Íslands; sendiherrabústað- inn í Berlín; mennta- og menning- armálaráðuneytið; umhverfisráðu- neytið; Reykjavíkurborg; Evrópusambandið í Brussel í Belg- íu; norska þingið í Osló; sænska þingið í Stokkhólmi; danska þingið í Kaupmannahöfn; grænlenska þingið; sænska menntamálaráðu- neytið í Stokkhólmi; sænsku Nób- elsakademíuna í Stokkhólmi; borg- arstjórn Stokkhólmsborgar; einkasafn Sonju Noregsdrottningar í Osló; einkasafn forsætisráðherra Portúgals í Lissabon; Íþrótta- og tómstundaráð í Reykjavík, Grasa- garðinn í Laugardal í Reykjavík og Stöðvarkirkju á Stöðvarfirði. Þá má finna verk hennar í eigu fjöl- margra íslenskra og erlendra fé- lagasamtaka, íslenskra stórfyrir- tækja og í eigu fjölmargra einkasafna víða um heim. Kogga var einn af stofnendum Leirlistafélagsins, 1981, var for- maður þess um skeið, sat í stjórn SÍM, Sambands íslenskra mynd- listarmanna, og er félagsmaður í hvorum tveggja þeim félagasam- tökum, ásamt BÍL, Bandalagi ís- lenskra listamanna. Viðurkenningar Meðal viðurkenninga sem Koggu hafa hlotnast má nefna styrk til náms í Bandaríkjunum 1984; starfslaun listamanna 1985; Pamela Sanders Brement 1985; starfslaun listamanna 1990; menningar- verðlaun DV 1993; starfslaun lista- manna, 1993; hönnunarverðlaun fyrir umbúðir, „Snjófuglsegg“, Hér & nú auglýsingastofa, 1995; starfs- laun listamanna, 1996; hönnunar- verðlaun fyrir umbúðir/hugmynd, „Askja“, Edda&Kogga, 1997; „Pay- age en silence“ „Keramos“, Er Festival International du film Cér- amique, París, Frakkland 3. verð- laun, 1998; gestaíbúð listamanna, Kjarvalsstofu í París í Frakklandi, 2001; gestaíbúð norrænna lista- manna í Róm, 2004, og starfslaun listamanna, 2012. Fjölskylda Eiginmaður Koggu: Magnús Kjartansson, f. 4.8. 1949, d. 12.9. 2006, myndlistarmaður. Hann var sonur Kjartans Guðbrandssonar, f. 9.6. 1919, d. 6.2. 1952, flugmanns, og Eydísar Hansdóttur, f. 27.11. 1917, d. 8.1. 2008, húsmóður. Börn Kolbrúnar og Magnúsar eru Elsa Björg, f. 21.12. 1978, MA í umhverfissiðfræði og heimspeki, búsett í Reykjavík; Guðbrandur, f. 23.3. 1989, hönnuður, búsettur í Reykjavík. Systur Koggu eru Svanhvít Björgólfsdóttir, f. 18.3. 1946, hús- móðir á Stöðvarfirði; Berglind Björgólfsdóttir, f. 8.1. 1961, búsett í Mosfellsbæ. Foreldrar Kolbrúnar voru Björgólfur Sveinsson, f. 25.12. 1913, d. 30.9. 1967, verkstjóri og sveitarstjórnarmaður á Stöðvar- firði, og Kristín Helgadóttir, f. 4.11. 1920, d. 28.12. 2002, hús- móðir. Úr frændgarði Kolbrúnar Björgólfsdóttur (Koggu) K. Óli Jónatansson sjóm. í Hrossaborg María J. Indriðadóttir húsfr. í Hrossaborg Magnús Bjarnason b. á Einarsstöðum í Stöðvarfirði María Jensdóttir Kristín Jónsdóttir húsfr. í Snæhvammi Pétur L. Jónsson b. í LIndarbrekku Sigurrós Sigurðardóttir frá Skála á Berufjarðarströnd Kogga Björgólfur Sveinsson útv.b. á Stöðvarfirði Kristín Helgadóttir húsfr. á Stöðvarf. Oddný Þóra Magnúsdóttir húsfr. Helgi Ólason sjóm. á Eskif. Svanhvít L.S. Pétursdóttir húsfr. á Stöðvarfirði Sveinn Björgólfsson b. á Bæjarstöðum á Stöðvarf. Björgólfur Stefánsson b. í Snæhvammi af ætt Einars, skálds í Eydölum Petra Sveinsdóttir steinasafnari á Stöðvarf. Baldvin Jónatansson „skáldi“ 30 ára Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir fædd- ist í Reykjavík og hefur búið þar alla tíð. Hún lauk MSc-prófi í lyfjafræði frá Háskóla Íslands 2008 og er nú lyfjafræðingur hjá Lyfjaborg. Eiginmaður Geir Oddur Ólafsson, f. 1979, við- skiptafræðingur en dóttir þeirra er Kristín Lilja, f. 2009. Foreldrar Sigrún Sigurð- ardóttir, f. 1950, og Skarphéðinn Þórisson, f. 1948, lögfræðingur. Erla Sigríður Skarphéðinsdóttir 40 ára Einar Bárðarson fæddist á Selfossi en býr í Innri-Njarðvík. Hann lýkur MBA-námi í viðskiptum og stjórnun frá HR í vor, er forsvarsmaður útvarps- sviðs Skjámiðla og fram- kvæmdastjóri Concerts. Kona Áslaug Einarsdóttir sviðstjóri. Börn þeirra: Klara Þorbjörg, f. 2006, og Einar Birgir, f. 2008. Foreldrar Bárður Einars- son, f. 1950, smiður, og Klara Sæland, f. 1951. Fósturfaðir Einars: Har- aldur Arngrímsson, f. 1951. Einar Bárðarson 30 ára Egill fæddist í Reykjavík en ólst upp á Selfossi og í Klængsseli í Gaulverjabæjarhreppi. Hann lauk prófum í raf- eindavirkjun frá Iðnskól- anum í Reykjavík og er nú tæknimaður hjá Securitas. Eiginkona Anna Ingibjörg Opp, f. 1984, MA-nemi í fé- lagsráðgjöf við HÍ. Dóttir þeirra er Embla Karen, f. 2009. Foreldrar Baldur Geir- mundsson, f. 1945, járn- smiður og bóndi, og Anne- bihl Hansen, f. 1958. Egill Baldursson Einar Magnússon, rektorMenntaskólans í Reykjavík,fæddist þann 17. mars árið 1900. Hann var frá Miðfelli í Hruna- mannahreppi, sonur Magnúsar Ein- arssonar og Sigríðar Halldórsdóttur er þar bjuggu. Einar tók stúdentspróf við Menntaskólann í Reykjavík árið 1919 og kandidatspróf í guðfræði við Háskóa Íslands 1925. Einar stundaði kennslu í lengri eða skemmri tíma við Verslunarskól- ann, Kvennaskólann, Gagnfræða- skóla Reykvíkinga, Gagnfræðaskóla Reykjavíkur, Gagnfræðaskólann í Vonarstræti og sinnti jafnframt mik- illi einkakennslu um nokkuð langt skeið. En lengst af starfaði hann þó við Menntaskólann í Reykjavík. Það var hans skóli, þar var hann sjálfur nemandi, þar hóf hann kennslu tutt- ugu og tveggja ára, var þar yfir- kennari um langt skeið frá 1939-65 og rektor skólans á árunum 1965-70. Einar var afar áhugasamur og vinsæll kennari. Hann sinnti mjög félagslífi nemenda i frístundum sín- um, endurgjaldslaust, ók oft nem- endum í lengri og skemmri ferðalög á skólabílnum Grána, sem áður fyrr var nýttur til fræðslu- og skemmti- ferða, og hafði alla tíð mikinn áhuga á menntaskólaselinu og hinu merka og forna leiklistarstarfi skólans, Herranótt, sem á rætur að rekja til skólans frá því hann var í Skálholti. Einar var þægilegur og yfirlæt- islaus í framkomu, víðsýnn og frjáls- lyndur. En hann var afar íhalds- samur í skólamálum í góðum skilningi þess orðs og bar virðingu fyrir sögu þessarar elstu mennta- stofnunar landsins. Hann taldi að menntun hefði það megin hlutverk að göfga manninn, hafði ætíð þungar áhyggjur af ört vaxandi „verðbólgu“ í menntun og taldi t.d. fráleitt að nokkur kæmist upp með það að ná stúdentsprófi án þess að læra til- tekið lágmar í latínu.Hann barðist gegn hugmyndum um flutning skól- ans úr Miðbænum, og lét í sinni rekt- orstíð gera upp gamla skólahúsið og færa til fyrra horfs. Endurminningar Einars, Úr dag- bók Einars Magg, komu út 1984. Einar lést 12. ágúst 1986. Merkir Íslendingar Einar Magnússon HVERN ÆTLAR ÞÚ AÐ GLEÐJA Í DAG?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.