Morgunblaðið - 17.03.2012, Qupperneq 52
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Í raun má segja að þessi tvö bita-
stæðu kammerverk sem við ætlum
að flytja rammi inn feril Dimitris
Shostakovits,“ segir Sigurður Hall-
dórsson sellóleikari og vísar þar
annars vegar til sónötu fyrir selló og
píanó í d moll op. 40 og hins vegar
Rómönsusvítu við ljóð Alexanders
Blok fyrir sópran, fiðlu, selló og pí-
anó. Verkin tvö verða leikin á 15.15
tónleikasyrpunni í Norræna húsinu
á morgun kl. 15.15, en á milli þeirra
verður flutt smáverkið Moderato
fyrir selló og píanó. Flytjendur á
tónleikunum eru auk Sigurðar þær
Alexandra Chernishova sópran-
söngkona, Nína Margrét Gríms-
dóttir píanóleikari og Hildigunnur
Halldórsdóttir fiðluleikari.
„Shostakovits samdi sónötuna á
fjórða áratug síðustu aldar skömmu
áður en verk hans voru bönnuð af yf-
irmönnum tónlistarmála í Sovétríkj-
unum,“ segir Sigurður og rifjar upp
að með óperu sinni Lafði Macbeth af
Mtensk hafi Shostakovits fallið í
ónáð yfirvalda. „Um það leyti sem
hann var að skrifa sónötuna var mik-
ið tilfinningalegt umrót í lífi tón-
skáldsins, en hann skildi tímabundið
við eiginkonu sína vegna þess að
hann varð ástfanginn af ungum
nemanda,“ segir Sigurður og tekur
fram að verkið beri merki alls þessa
umróts. „Í verkinu eru miklar and-
stæður. Þannig eru fyrsti og þriðji
kaflinn innhverfir og íhugulir, en
verkið brotið upp með hnyttnum og
hröðum köflum þess á milli,“ segir
Sigurður sem þekkir verkið vel enda
eru 25 ár síðan þau Nína Margrét
fluttu verkið fyrst saman á tón-
leikum.
Stefnumót við dauðann
„Svítuna samdi Shostakovits seint
á sjöunda áratug síðustu aldar að-
eins nokkrum árum fyrir dauða sinn.
Þetta eru dramatísk og áhrifarík
ljóð sem fjalla um stríð, ást, blóð,
dauðann, Guð og tónlistina. Shosta-
kovits sagði yfirvöldum að verkið
væri samið í tilefni af 50 afmæli
Októberbyltingarinnar, en í raun
var verkið tileinkað sópransöngkon-
unni Galinu Vishnevskayu og eig-
inmanni hennar Mstislav Rostropo-
vich sellóleikara,“ segir Sigurður og
tekur fram að verkið verði flutt á
rússnesku. „Hins vegar er mynd-
málið hjá Shostakovits svo skýrt að
það liggur við að maður skilji orðin.“
Verkin tvö ramma inn ferilinn
15.15 tónleikar
tileinkaðir Dimitri
Shostakovits
Rammi Sigurður Halldórsson, Hildigunnur Halldórsdóttir, Alexandra Chernishova og Nína Margrét Grímsdóttir.
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 17. MARS 2012
Gunnar Kvaran sellóleikari og El-
ísabet Waage hörpuleikari leika í
Þorlákskirkju á morgun kl. 16.
Tónleikarnir eru hluti af tónleika-
röð sem nefnist Tónar við hafið. Á
efnisskránni eru barokktónverk og
rómantísk verk auk draumkenndra
tónsmíða og fjörugra dansa sem
sérstaklega voru samin fyrir dúóið.
Samstarf Gunnars og Elísabetar
nær aftur til ársins 1993, en síðustu
níu ár hafa þau leikið reglulega
saman.
Tónar við hafið í
Þorlákskirkju
Samhljómur Gunnar Kvaran og
Elísabeth Waage leika barokktónverk.
Söngvaskáldið Lise Sinclair frá
Hjaltlandseyjum kemur fram á tón-
leikum í Norræna húsinu í dag kl. 16
ásamt fríðu föruneyti. Þar flytur hún
flokk sönglaga sem hún samdi í sam-
vinnu við Ástvald Traustason og
byggist á textum úr smásagnasafni
Orkneyjaskáldsins George Mackay
Brown sem nefnist Einmunatíð (A
Time to Keep). Þar má finna ein-
stakar frásagnir sem gerast í harð-
býlu en fögru landslagi eyjanna
norður af Skotlandi. Að sögn að-
standenda tónleikanna þykja sög-
urnar nærfærnar, lýsandi og skáld-
legar í anda höfundarins, um leið og
þær bera norræn sérkenni.
Með Sinclair og Ástvaldi á tónleik-
unum leika Inge Thomson, Brian
Cromarty og Ewan Thomson, en
þau eru öll tónlistarfólk frá norður-
eyjunum. Ljóðskáldið og þýðandinn
Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson hefur
þýtt öll söngljóðin á íslensku og mun
hann á tónleikunum flétta þýðingum
sínum inn í dagskrána. Að sögn
skipuleggjenda er tónlistin fjöl-
breytt. Með söng, píanói, fiðlu, gítar,
harmóníku, mandólíni, banjói og
orgeli eru samofnar ríkar hefðir úr
nýrri skoskri þjóðlagatónlist en jafn-
framt sótt í íslenska djasstónlist.
Tónlistin var nýverið gefin út á tvö-
földum geisladiski og fylgir hópur-
inn verkinu eftir með tónleikum á
Orkneyjum, Friðarey, Hjaltlandi, í
Edinborg og í Reykjavík.
Lise Sinclair er fædd og uppalin á
Fair Isle (Friðarey) og er þar bú-
sett, miðja vegu milli Orkneyja og
Hjaltlands. Fyrir fjórum árum sendi
hún frá sér geisladiskinn Ivver
Entrancin Wis sem hlaut afbragðs
viðtökur. Hún heimsótti Ísland
haustið 2010 og tók þátt í tónlistar-
dagskrá í Iðnó á Alþjóðlegri bók-
menntahátíð í Reykjavík.
Einmunatíð frá Orkneyjum
Söngvar Lise Sinclair frá Friðarey.
Lise Sinclair og Ástvaldur Trausta-
son flytja frumsaminn sönglagaflokk
Fyrirtækið Pabba kné, sem sérhæf-
ir sig í framleiðslu á myndlist, efnir
til sýningar á nýjum verkum eftir
Jóhann Ludwig Torfason í Galleríi
Klósetti á Hverfisgötu 61.
Sýningin, sem ber yfirskriftina
Þú kemur með næst verður opnuð í
dag kl.17 og aðeins opin í dag og á
morgun.
Í verkunum sem líkja eftir minja-
gripum, birtist sjónarhorn sem að
öllu jöfnu dvelur ekki á yfirborðinu
en ber með sér keim sem undan-
farið hefur borist inn í vitund lista-
mannsins og litað mynd hans af ís-
lensku samfélagi.
Sjónarhorn Jóhann Ludwig Torfason.
Jóhann Ludwig í
Galleríi Klósetti
Árni Rúnar Sverrisson myndlistar-
maður opnar sýningu í Reykjavík
Art Gallery í dag kl. 14.
Á sýningunni verða fimmtán
verk, olíuverk á striga, þar sem
Árni beinir sjónum að skófum og
fléttum sem hlaðast á steina og
kletta í landslaginu. Í grein Jóns
Proppé í sýningarskrá segir að
Árni fangi þessa smáu veröld svo
nákvæmlega að undrum sæti.
Sýnd nálæg
náttúra
Skófir Árni Rúnar Sverrisson opn-
ar sýningu í Reykjavík Art Gallery.
Þorsteinn Helgason, tónlistarmaður,
arkítekt og myndlistarmaður, opnar
sýningu í Gallerí Fold í dag kl. 15.
Hann nefnir sýninguna Samspil.
Þorsteinn segir verk sín orðin
stærri frá fyrri sýningum og að einn-
ig notist hann nú meira við akrýl en
áður. „Samspil er gott nafn á sýn-
inguna þar sem verkin eru meðal
annars innblásin af náttúrunni, arki-
tektúr og tónlist. Tenginguna við
tónlist má líka finna í nöfnum verk-
anna og sem dæmi má nefna nöfn
eins og Hrynjandi, Flæði og Stef.“
Sýning Þorsteins stendur til 29.
mars og er opin kl. 10 til 18 mánu-
daga til föstudaga, kl. 11 til 18 laug-
ardaga og sunnudaga kl. 14 til 16.
Morgunblaðið/Ernir
Samspil Þorsteinn Helgason opnar
sýningu í Gallerí Fold í dag.
Samspil
í Fold
Þorsteinn Helga-
son sýnir málverk
Í þessu skyni hefur Rótarýsjóðurinn komið á samvinnu við sjö virta háskóla:
Universidad del Salvador, Argentínu
University of Queensland, Ástralíu
Duke University & University of North Carolina, USA
University of Bradford, Englandi
Uppsala University, Svíþjóð
International Christian University, Japan
Styrkirnir, sem eiga að standa undir tveggja ára námskostnaði, eru alþjóðlegir
samkeppnisstyrkir. Rótarýhreyfingin á Íslandi má senda eina umsókn. Val íslenska
umsækjandans fer fram eftir ítarleg viðtöl og könnun á námsferli og störfum. Makar,
afkomendur og makar afkomenda lifandi Rótarýfélaga geta ekki sótt um styrkinn.
Tíu Íslendingar hafa fengið friðarstyrki frá því þeir voru fyrst veittir árið 2002.
Nánari upplýsingar um námið, háskólana og umsóknarskilmála er að finna á
heimasíðu Rotary International:
http://www.rotary.org/EN/STUDENTSANDYOUTH/EDUCATIONALPROGRAMS/RO
TARYCENTERSFORINTERNATIONALSTUDIES/Pages/HowToApply.aspx .
Umsóknareyðublaðið er að finna undir World peace fellowship. Einnig má nálgast
upplýsingar á skrifstofu Rótarýumdæmisins (rotary@rotary.is). Sími 568-2233 (eða í
síma 525-4818).
Þeir sem hafa hug á að sækja um styrk eru beðnir um að senda ítarlegt
æviágrip og lýsingu á markmiði með framhaldsnámi fyrir 22. apríl til Skrifstofu
Rótarýumdæmisins, Suðurlandsbraut 54, 108 Reykjavík, merkt "Friðarstyrkur".
ALÞJÓÐLEGIR FRIÐARSTYRKIR
RÓTARÝHREYFINGARINNAR 2013-2015
Rótarýsjóðurinn, ROTARY FOUNDATION, sem rekinn er af
Alþjóða Rótarýhreyfingunni, mun veita allt að 60 styrki til tveggja ára meistaranáms
skólaárin 2013-2015. Styrkirnir verða veittir til náms og rannsókna sem tengjast
alþjóðasamstarfi og eflingu friðar í heiminum og eru ætlaðir fólki sem þegar hefur
reynslu af alþjóðastarfi auk þess að hafa lokið fyrstu háskólagráðu.
lau. 17. mars kl. 13:30 – Aukasýning
lau. 17. mars kl. 15:00 – Aukasýning
sun. 18. mars kl. 13:30
sun. 18. mars kl. 17:00