Morgunblaðið - 19.03.2012, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Veldu einhverja tíu ávexti
á ávaxtamarkaði Krónunnar
– fyrst o
g fremst
ódýr!
og þú borgar...
Stjórnlagamálið í mikilli tímaþröng
Þingsályktunartillaga um þjóðaratkvæðagreiðslu þarf að hljóta samþykki þingsins fyrir lok mars ef
halda á atkvæðagreiðsluna samhliða forsetakosningunum Tillagan hefur ekki enn verið lögð fram
Skúli Hansen
skulih@mbl.is
Áætlað er að þjóðaratkvæðagreiðsla
um tillögur stjórnlagaráðs fari fram
30. júní næstkomandi samhliða næstu
forsetakosningum.
„Ef þjóðaratkvæðagreiðsla á að fara
fram í sumar, þá þarf að koma fram ný
þingsályktunartillaga með nákvæmari
útfærslu á þjóðaratkvæðagreiðslunni,
þ. á m. með mótuðum spurningum sem
á að spyrja, en sú þingsályktunartil-
laga hefur ekki verið lögð fram ennþá,“
segir Birgir Ármannsson, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, og bætir við:
„Staðan er auðvitað sú að samkvæmt
ætlaður skammur tími fyrir þingið til
að móta endanlega tillögurnar sem
eiga að fara í þjóðaratkvæðagreiðslu
og síðan er náttúrlega skammur tími
fram að kosningum og hætta á að ef
þetta verður samhliða forsetakosning-
um þá verði athygli bæði fjölmiðla og
hins almenna kjósanda mjög dreifð,“
segir Birgir, aðspurður hvort ekki sé
verið að veita kjósendum of skamman
frest til þess að móta skoðun sína á
málinu.
Flestir með mótaðar skoðanir
„Já, ég geri ráð fyrir því, við miðum
við það og við erum að vinna þessar
spurningar,“ segir Róbert Marshall, 2.
varaformaður stjórnskipunar- og eft-
irlitsnefndar, spurður hvort hann telji
líkur á því að þjóðaratkvæðagreiðslan
verði haldin 30. júní. Spurður hvort
verið sé að veita kjósendum of skamm-
an tíma til að taka ákvörðun í málinu
segir Róbert: „Nei, ég held að í flestum
tilfellum sé fólk með skoðanir á þessu
máli og sé búið að móta sér skoðanir á
því fyrir löngu og við erum náttúrlega
ekki að byrja á þessu þarna, við erum
búin að vera með þetta stjórnarskrár-
mál í ferli í langan tíma.“ Róbert bend-
ir jafnframt á að þónokkur þingmeiri-
hluti sé fyrir málinu. Hann hafi því
ekki áhyggjur af því að málið tefjist í
þinginu.
lögum um ráðgefandi þjóðaratkvæða-
greiðslu, sem voru samþykkt í fyrra,
þá þarf að samþykkja svona tillögu
þremur mánuðum fyrir kjördag, þann-
ig að ef þjóðaratkvæðagreiðslan á að
fara fram í lok júní, þá verður að klára
þetta mál í þinginu fyrir 30. mars.“
Fáir þingdagar í mars
Að sögn Birgis er sá vandi fyrir
hendi að aðeins örfáir þingdagar eru
eftir í marsmánuði og nefnir hann sem
dæmi að síðar í vikunni hefjist þing
Norðurlandaráðs en það er haldið á Al-
þingi. „Þannig að maður veltir fyrir
sér, á þessum tímapunkti, hver hin
raunverulegu áform meirihlutans í
nefndinni eru, en um það hef ég ekkert
heyrt,“ segir Birgir. Hann bendir jafn-
framt á að ferlið sem málið sé nú komið
í sé bæði flókið og ruglingslegt. „Þetta
er auðvitað skammur tími. Það er bæði
Birgir
Ármannsson
Róbert
Marshall
Ríkisstjórnin samþykkti síðastliðinn föstudag viðbótar-
útgjöld upp á 88,5 milljónir króna vegna eldgosanna á Suð-
urlandi. Ríkisstjórnin hefur nú lagt til viðbótarfjárveiting-
ar sem nema um 1,3 milljörðum króna frá því að
eldgosahrinan hófst í maí árið 2010.
Samráðshópur ráðuneytisstjóra um viðbrögð við nátt-
úruhamförum hefur verið að störfum frá fyrri hluta árs
2010 og skilaði hann nýverið tillögum sínum til ríkisstjórn-
arinnar. Meðal annars var tekið mið af áherslum fulltrúa
sveitarfélaganna þriggja á gossvæðinu við úthlutun.
Meðal þeirra viðbótarútgjalda sem ríkisstjórnin sam-
þykkti var 82,5 milljóna króna aukafjárframlag til Vega-
gerðarinnar vegna viðbótarútgjalda sem urðu vegna eld-
gosa og hamfara tengdra þeim.
Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra fær sex milljóna
króna aukafjárframlag vegna aukinna útgjalda á vegum
deildarinnar.
Einnig var samþykkt að beiðni frá Landgræðslu ríkisins
um aukin fjárframlög yrði vísað í hefðbundið fjárlagaferli.
saevar@mbl.is
Viðbótarútgjöld vegna
eldgosanna á Suðurlandi
Ríkisstjórnin samþykkti að
bæta við 88,5 milljónum króna
Síðasti fundar-
dagur Alþingis
fyrir páska er 29.
mars, að sögn
Ástu Ragnheiðar
Jóhannesdóttur,
forseta Alþingis,
en fundahöld
þingsins hefjast
síðan aftur hinn
16. apríl næst-
komandi. „Það
þarf að vera búið að skila þing-
málum, sem eiga að afgreiðast fyrir
vorið, í síðasta lagi 31. mars,“ segir
Ásta og bendir á að þinginu verði
slitið 31. maí næstkomandi.
Styttist í
páskafrí
Ásta Ragnheiður
Jóhannesdóttir
Þingi slitið 31. maí
Vélsleðamaður slasaðist á Flateyj-
ardal, milli Eyjafjarðar og Skjálf-
andaflóa, um miðjan dag í gær.
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti
manninn og flutti undir lækn-
ishendur á Sjúkrahús Akureyrar.
Maðurinn hlaut töluverða áverka,
m.a. á baki og fótum.
Vitað er að maðurinn var í hópi
vélsleðamanna á ferðalagi um Flat-
eyjardal en ekki var hægt að upp-
lýsa hvernig slysið bar að.
Þyrlan sótti
vélsleðamann
Þegar leikarinn Björn Thors fékk Grímuverðlaun 2009 sem leikari ársins í
aðalhlutverki fyrir hlutverk í sýningunni Vestrið eina tileinkaði hann verð-
launin Önnu Flosadóttur, gamla listakennaranum sínum úr Hlíðaskóla.
Anna hefur um áraraðir unnið ötullega að því að kynna unglingum í skól-
anum listir og menningu. Á laugardagskvöldið var frumsýndur nýr söng-
leikur í Hlíðaskóla undir stjórn Önnu. Áður en sýningin hófst steig Björn á
svið og afhenti skólanum formlega Grímuna til varðveislu. Anna tók við
styttunni en hún hafði ekki haft hugmynd um þessi áform Björns.
Afhenti gamla listakennaranum sínum Grímuna
Morgunblaðið/Golli
G. Pétur Matthíasson, upplýsinga-
fulltrúi hjá Vegagerðinni, segir að
þau viðbótarfjárframlög sem Vega-
gerðin fær eigi eftir að koma að góð-
um notum. Peningar séu af mjög
skornum skammti og í raun sé löngu
búið að nota þennan pening.
Mestur hluti viðbótarfjárframlag-
anna mun fara í verkefni og aðgerðir
tengdar Svaðbælisá og einnig í
byggingu og endurnýjun varnargarða. Einnig er lík-
legt að peningurinn fari í aðgerðir vegna Mark-
arfljótsbrúar.
„Við erum alltaf að lenda í niðurskurði og útgjöld
að aukast, til dæmis út af eldgosunum, þannig að
þetta framlag er mjög mikilvægt,“ segir Pétur.
Fara í Svaðbælisá
BÚIÐ AÐ NOTA PENINGINN
G. Pétur
Matthíasson