Morgunblaðið - 19.03.2012, Side 9
FRÉTTIR 9Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2012
BÍLARAF
BÍLAVERKSTÆÐI
Bílaraf
www.bilaraf.is
Strandgötu 75 • 220 Hafnarfjörður • Sími 564 0400 • bilaraf.is
Allar almennar
bílaviðgerðir
Tímapantanir í síma 564 0400
Gott verð, góð þjónusta!
Startarar og alternatorar
í miklu úrvali
Ful l búð af fal legum fatnaði
á alla fjölskylduna!
F Y R I R Þ I G O G Þ Á S E M
Þ É R Þ Y K I R V Æ N S T U M !
KRINGLUNNISími: 5513200
Sævar Már Gústavsson
saevar@mbl.is
Á fundi leikskólanefndar Kópavogs-
bæjar þann 6. mars síðastliðinn lagði
meirihlutinn fram þá hugmynd að
opna leikskóla við Guðmundarlund
sem er í eigu og rekstri Skógrækt-
arfélags Kópavogs.
Hugmyndin er sú að nýta fokhelt
hús Skógræktarfélagsins við Guð-
mundarlund undir leikskóla-
starfsemi en Skógræktarfélagið hef-
ur ekki getað klárað byggingu
hússins vegna fjárskorts á fjár-
magni. Kópavogsbær myndi þá
leigja húsið af Skógræktarfélaginu í
um 10 ár og klára byggingu hússins í
leiðinni. Í húsnæðinu væri hægt að
reka leikskóla fyrir 35 krakka.
Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri
Kópavogs, segir að ekkert hafi verið
ákveðið varðandi þessa hugmynd og
hún sé í raun á algjöru frumstigi.
Það eigi eftir að skoða hvað þetta
myndi kosta og hvernig þetta yrði
framkvæmt. Þessi hugmynd hafi
verið sett fram til að reyna að leysa
þann skort sem er á leikskólapláss-
um í því hverfi sem leikskólinn
mundi þjónusta.
Skrýtin tillaga
Guðríður Arnardóttir, leiðtogi
Samfylkingarinnar í Kópavogi, seg-
ist hafa miklar efasemdir um þessa
framkvæmd. „Okkar tilfinning í
minnihlutanum er að það sé verið að
reyna finna einhver not fyrir Skóg-
ræktarhúsið svo hægt sé að klára
það en okkur finnst það ekki rétt
nálgun. Það eru mörg félagasamtök
hér í Kópavogi sem vinna gott starf
en eru illa stödd en það er hreinlega
ekki hægt að fara að hjálpa þeim öll-
um,“ sagði Guðríður. Hún segir
þessa lausn dýra og að óhagkvæmt
sé að reka svona litla einingu þar
sem hver nemandi verði dýrari en
ella. Það hafi einmitt verið ástæða
þess að fyrri meirihluti bæjarins
réðst í það að sameina leikskóla.
„Á sama tíma og við erum að
skera niður í leikskólum þá finnst
okkur skrýtið að setja upp leikskóla
þarna,“ segir Guðríður. Hún segir
einnig að það þurfi að aðlaga bygg-
inguna svo hún uppfylli skilyrði fyrir
leikskólastarf, girða af svæðið í
kring og einnig að malbika veginn
upp að húsinu, sem kosti miklar fjár-
hæðir.
Neikvæðnin í fyrirúmi
Ármann segir að það sé ekki rétt
að verið sé að hjálpa Skógrækt-
arfélaginu eitthvað sérstaklega.
Hann segir að fulltrúar menntasviðs
hafi sagt það vera álit sitt að þetta
væri spennandi staðsetning fyrir
leikskóla enda er Guðmundarlundur
mjög fallegur og gróinn reitur og
tengslin við náttúruna mikil. Einnig
tekur hann fram að hægt væri að
framkvæma þessa hugmynd fyrir
tiltölulega lítið fé og að það þyrfti
ekki að ráðast í jafnmiklar fram-
kvæmdir á húsinu og heimreiðinni
að því og minnihlutinn heldur fram.
„Framlag fulltrúa Samfylking-
arinnar í málum sem þessum er með
ólíkindum og neikvæðnin er í algjöru
fyrirrúmi, Við leyfðum þeim að vera
í þessu máli alveg frá byrjun til þess
að hafa allt uppi á borðinu, eins og
þeir hafa talað svo mikið fyrir, en
fáum síðan bara neikvæð viðbrögð,“
segir Ármann.
Hugmynd um leikskóla
við Guðmundarlund
Meirihlutinn í Kópavogi lagði fram þá hugmynd að nýta
hús Skógræktarfélagsins í Kópavogi undir leikskólastarf
Morgunblaðið/Eggert
Kópavogur Meirihlutinn í Kópavogi vill skoða þá hugmynd að reka leik-
skóla í húsi Skógræktarfélags Kópavogs við Guðmundarlund.
Guðrún Sóley Gestsdóttir
gudrunsoley@mbl.is
Stundvísi Iceland Express hefur
aukist talsvert að undanförnu og
má meðal annars rekja það til þess
að aðeins ein vél er í notkun hjá fé-
laginu yfir vetrarmánuðina. Heimir
Már Pétursson, talsmaður Iceland
Express segir að það megi líka
rekja til þess að félagið skipti um
samstarfsaðila í nóvember siðast-
liðnum. Nýi samstarfsaðilinn heitir
Holidays Czech Airlines og notast
við vélar af gerðinni Airbus A320.
Félagið er að sögn Heimis marg-
verðlaunað fyrir stundvísi í Evrópu.
„Vélarnar sjálfar eru mjög nýjar,
elsta vélin þeirra er 6 ára og sú
yngsta ársgömul. Þar af leiðandi er
bilanatíðnin mjög lítil,“ segir Heim-
ir. ,,Fólk er farið að missa af flugi
með Iceland Express af því að það
mætir ekki á réttum tíma og þannig
á það auðvitað að vera.“
Ein vél á lofti
Eins og áður segir er Iceland
Express með eina vél í notkun í
janúar og febrúar. „Svo verðum við
með tvær frá því um miðjan febr-
úarmánuð og svo bætist sú þriðja
við í sumar,“ segir Heimir Már. Í
sumar flýgur flugfélagið til 18
áfangastaða.
Eitthvað hefur borið á því að far-
þegar Iceland Express sem koma
frá Tenerife hafi ekki fengið far-
angur sinn úr heimfluginu. „Hluti
af farangri varð eftir í tvö skipti í
ferðum frá Tenerife. Það varð að
senda þennan farangur til landsins
með öðrum flugvélum og hann kom
ekki til landsins fyrr en nokkrum
dögum seinna,“ segir Heimir.
„Ástæðan fyrir þessu er sú að flug-
vélin sem við notumst við núna hef-
ur ströng öryggisskilyrði þegar
flogið er yfir hafið. Flugmaðurinn
tók í þessum tilfellum ákvörðun í
öryggisskyni um að skilja hluta far-
angursins eftir,“ en 70-80 töskur
voru skildar eftir á Spáni. „Þetta er
því mat flugstjórans hverju sinni,
en búið er að koma í veg fyrir að
þetta gerist aftur,“ segir Heimir.
Úrbætur Stundvísi hefur aukist hjá
flugfélaginu Iceland Express.
Aðeins með eina
flugvél í notkun