Morgunblaðið - 19.03.2012, Qupperneq 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2012
Phobophobia, sem er
samsýning íslenskra
myndskreyta, verður
opnuð í Bíó Paradís á
morgun í tengslum
við Hönnunarmars
og mun sýningin
standa yfir í 10
daga.
Á henni verður að
finna plaköt eftir þrjá-
tíu og fjóra teiknara en
þetta er í fyrsta sinn sem
öllum myndskreytum lands-
ins er boðin þátttaka í sýningu
sem þessari.
„Phobia er hið myrka og frumstæða manns-
eðli sem býr sig undir flótta frá ógnum frum-
skógarins. Við erum öll fóbísk, en sumir þjást
verr en aðrir. Þessir einstaklingar geta fyllst af
angist þegar minnst er á sköllótta menn eða við
tilhugsunina að fara á almenningsklósett. Enn
aðrir geta ekki farið í afmæli af ótta við rauðar
blöðrur,“ segir m.a. í tilkynningu en plakötin
verða samansafn innri og ytri geðveilna mann-
kynsins. „Teiknararnir ætla að koma út úr
vinnustofunum með sína eigin sýn á sköllótta
menn með rauðar blöðrur á almenningsklósett-
um.“
Endilega ...
... farðu á Phobophobia
Ljósmynd/Úr safni Kviss búmm bang
Kviss búmm bang Eva Rún Snorradóttir, Vilborg Ólafsdóttir og Eva Björk Kaaber skipa framandverkaflokkinn.
Svanhildur Eiríksdóttir
svei@simnet.is
Eva Björk Kaaber, Eva RúnSnorradóttir og VilborgÓlafsdóttir stofnuðuKviss búmm bang árið
2009. Hópinn kalla þær fram-
andverkaflokk enda er framleiðslan
framandverk þar sem þátttakendum
er boðið inn í tilbúinn heim. Þar eru
engir leikarar og engir áhorfendur,
bara þátttakendur. Og það er heldur
ekkert áþreifanlegt verk eftir, eins og
nafn flokksins gefur skýrt til kynna,
það er upplifunin og áhrifin á þátttak-
endur sem gildir. Nýjasta verk
flokksins er Hótel Keflavík, fram-
andverk sem gerðist á Hótel Keflavík
3 helgar í febrúar og mars og hafði
það að markmiði að aftengja þátttak-
endur við tímann með því að taka af
þeim alla tímamæla. Margir íbúar í
bænum komu að verkinu því verkið
fór víða fram, úti í bæ og innan veggja
hótelsins, sem og í einrúmi inni á hót-
elherbergi hvers og eins þátttakanda,
þar sem þeir skrifuðu m.a. niður fólk í
lífi sínu sem þeir höfðu vanrækt
vegna tímaleysis. Þátttakendur
flökkuðu á milli sófa á göngum hótels-
ins og hittu meðal annars manneskju
sem hafði upplifað geðrof eða veru-
leikarof og sagði frá reynslu sinni af
því, blind manneskja spurði þátttak-
andann út í sjón hans eða hennar, svo
eitthvað sé nefnt. Það var einnig farið
út á lífið í Reykjanesbæ, eftir rúnt um
bæinn, þar sem græjurnar voru hafð-
ar í botni og slúðrað við gínur á
skemmtistað.
Leidd í þögn í kaffiboð
Ég og mín fjölskylda gerðumst
þátttakendur í verkefninu og buðum
6 „hótelgestum“ heim í síðdegiskaffi í
tveimur ólíkum kaffiboðum. Það var
óneitanlega skrítin tilfinning að fara
inn í Hótel Keflavík með handrit í
hendi til að sækja gesti í 3 herbergi á
annarri hæð. Ég mátti bara brosa,
ekki segja orð og leiða þau í þögn
heim til mín. Það eina sem ég vissi
var að gestirnir voru allir með
myndaalbúm og ég átti að forvitnast
um hagi þeirra og fá að heyra sögu
þeirra í gegnum myndaalbúmin, al-
búm sem hver og einn hafði sjálfur
valið og þar með valið hvaða hluta ævi
sinnar hann vildi afhjúpa fyrir
ókunnum gestgjafa. Ég ákvað að fara
bryggjuleiðina akandi heim til mín í
ytra Njarðvíkurhverfi í einskærum
skepnuskap, láta fólkið halda að það
væri að fara á sjóinn. Ég sem er svo
sjóveik. En þegar heim var komið gat
ég boðið fólk velkomið með orðum og
þar með hófst guðdómlegt kaffiboð.
Eldhúsborðið heima hjá mér svignaði
undan kræsingum í boði Kviss búmm
bang, gestirnir, heimilisfólkið og kær
vinkona umkringdu borðið og um-
ræðuefni skorti ekki.
Það kom mér í raun mjög á óvart
hversu samræður urðu óþvingaðar og
hversu mikið var hægt að spjalla um
við ókunnugt fólk. Skýringarinnar
var ekki síst að leita í því að mest af
Spjallað við fólk út
frá myndaalbúmi
Framandverkaflokkurinn Kviss búmm bang kom vasklega inn í bæjarlíf Reykjanes-
bæjar í febrúarmánuði síðastliðnum með framandverkið Hótel Keflavík í farteskinu.
Á morgun er vorjafndægur. Ekki allir
eru með það á hreinu hvað jafn-
dægrin, sem eru tvisvar á ári, tákna
en hægt er að fræðast um vorjafn-
dægrið í grein á síðu Veðurstofu Ís-
lands. Vorið er sagt hefjast við vor-
jafndægur og ná fram að
sumarsólstöðum, 20. júní, en líkt og
Íslendingar þekkja þá fer veðrið
sjaldnast eftir þessum skilgrein-
ingum mannanna.
Sagt er frá því að jafndægur miðist
við að sólin sé beint yfir miðbaug
jarðar og þá sé stefna frá miðju jarð-
ar í sólmiðju hornrétt á snúningsás
jarðar. Um vorjafndægur séu dagur
og nótt álíka löng og lengist dagurinn
um 6-7 mínútur á hverjum degi. Sum-
ir segja að á jafndægrum séu dagur
og nótt jafnlöng en málið er ekki svo
einfalt. Áhugasömum er bent á að
skoða greinina og lesa sér meira til
um málið.
Vefsíðan www.vedur.is/vedur/frodleikur/greinar/nr/1843
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sólsetur Vorjafndægur er á morgun og þá eru dagur og nótt álíka löng.
Fræðst um vorjafndægrið
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Merk tímamót eru um þessar
mundir í lífi Báru Magnúsdóttur,
eiganda og framkvæmdastjóra
Dansræktar JSB; 45 ár eru liðin frá
því að hún stofnaði Jazzballett-
skóla Báru og gerðist þar með
brautryðjandi á Íslandi í kennslu í
nútímalistdansi. Jafnframt braut
hún blað með því að bjóða konum
líkamsrækt sem byggist á dans-
þjálfun og hefur fyrirtækið annast
þennan tvíþætta rekstur allar götur
síðan.
Í dag er skólinn starfræktur í
samráði við menntamálaráðuneytið
og einkennir mikill faglegur metn-
aður allt skólastarfið. Árlega eru
haldnar veglegar nemendasýningar
í Borgarleikhúsinu.
Að þessu sinni verður Ísland í að-
alhlutverki á nemendasýningunni
og hefst afmælishátíð JSB form-
lega með sýningu sem ber heitið Ís-
land er land þitt í Borgarleikhúsinu
Tímamót í sögu JSB
Ísland hyllt á
danssýningu
Fermingardagurinn minn
Gestabók - myndir - skeyti
Fæst í öllum helstu
bóka- og blómaverslunum landsins
V/Reykjalund - Mosfellsbæ - Sími 562 8500 - www.mulalundur.is
Múlalundur - fyrir betri framtíð