Morgunblaðið - 19.03.2012, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2012
Aðstoðarforsætisráðherra Kína, Li
Keqiang, sagði fjölmiðlum á sunnu-
dag að gera þyrfti vandasamar úr-
bætur á efnahagsmálum landsins, og
það án tafar. Reuters segir yfirlýs-
ingu Li til marks um ríkari áherslur
stjórnvalda í Peking á markaðshag-
kerfi en ummæli hans koma viku eft-
ir að stjórnvöld ráku metnaðarfullan
leiðtoga Chongqing-héraðs sem vildi
sjá meiri þáttöku ríkisins í hagkerf-
inu.
Misskipting veldur ólgu
Li sagði komið að ögurstundu fyr-
ir yfirstandandi breytingar á efna-
hagsmódeli Kína. Hann talaði um
hnitmiðaða, sveigjanlega og fram-
sýna stefnu sem hefði það að mark-
miði að viðhalda hlutfallslega örum
hagvexti en einnig að halda verðlagi
stöðugu. Li, sem talinn er líklegur
arftaki forsætisráðherrans Wen
Jiabao, tilgreindi sérstaklega um-
bætur á sviði skattamála, fjármála-
geirans og tekjujöfnunar, og eins að
leyfa markaðsöflum að leika stærra
hlutverk í ráðstöfun auðlinda.
Ummæli Lis koma í kjölfar ræðu
Wen Jiabao um að Kína þurfi að fást
við hægari vöxt og miklar pólitískar
umbætur svo ekki komi upp alvar-
legir hnökrar. Hann talaði um að
dreifa auði þjóðarinnar með jafnari
hætti og að hann mundi nota síðasta
ár sitt í embætti til að ráðast að rót-
um óánægju sem gæti skapað upp-
lausnarástand.
Spár um hagvöxt fyrir yfirstand-
andi ár voru færðar úr 8% í 7,5% en
verðbólga er 3,2% og nokkuð undir
4% markmiði stjórnvalda. ai@mbl.is
Umbætur mega ekki bíða
Merki um ríkari áherslu á markaðslausnir í Kína og
um að dreifa auði landsins betur Komið að ögurstundu
AP
Verkefni Aðstoðarforsætisráðherra Kína, Li Keqiang, segir áríðandi að
breyta m.a. umgjörð skattamála og fjármálageirans.
H
a
u
ku
r
0
9
b
.1
1
Guðni Halldórsson
lögfræðingur,
gudni@kontakt.is
Haukur Halldórsson hdl.
haukur@kontakt.is
Brynhildur Bergþórsdóttir
rekstrarhagfræðingur,
lögg. verðbr.- og fasteignasali,
brynhildur@kontakt.is
Gunnar Svavarsson
viðskiptafræðingur,
gunnar@kontakt.is
Jens Ingólfsson
rekstrarhagfræðingur,
jens@kontakt.is
Sigurður A.
Þóroddsson hrl.
sigurdur@kontakt.is
Forgangslisti er nýjung fyrir kaupendur og fjárfesta.
Skráning á www.kontakt.is
• Skráðu þig á forgangslista og við sendum þér reglulega upplýsingar í
tölvupósti um tækifæri sem við getum ekki sett í auglýsingar.
Upplýsingar og skráning á www.kontakt.is.
• Sigurplast - umbúðir. Rótgróið plastframleiðslufyrirtæki.
Sjá nánar á forsíðu www.kontakt.is.
• Heildverslun með vinsælar snyrtivörur fyrir fagfólk. Ársvelta 60 mkr.
Góð afkoma.
• Rótgróið gólfefnafyrirtæki í mjög góðum rekstri. Ársvelta 200 mkr.
EBITDA 20 mkr.
• Glæsilegur veitingastaður á besta stað í Reykjavík. Góð velta og afkoma.
• Innflutningsfyrirtæki með vörur fyrir gróðurhús. Ársvelta 100 mkr. og mjög
vaxandi. Góð afkoma.
• Rótgróið framleiðslufyrirtæki á einkennisfatnaði óskar eftir fjármála- eða
framkvæmdastjóra og meðeiganda. Starfssvið m.a. fjármál og innkaup.
20-30% hlutur í boði fyrir 12-17 mkr og frekari kaupréttur mögulegur.
• Heildverslun með vinsælar sérvörur. Ársvelta 70 mkr. EBITDA 15 mkr.
• Stórt þjónustufyrirtæki í ræstingum. Traustir viðskiptavinir og góð afkoma.
• Mjög spennandi innflutningsfyrirtæki með vörur fyrir kæliiðnaðinn.
• Heildsala með þekkt merki í tískufatnaði. Selur vörur í 20 verslunum um land
allt, auk eigin verslunnar í Kringunni og outlets á besta stað. Ársvelta um
250 mkr.
Opið virka daga frá 9-18
og lau frá 10-16
TÁLGUHNÍFAR
Mikið úrval tálgu- og vinnuhnífa frá Mora
Mikið úrval útskurðar- og rennijárna
Lykilverslun við Laugaveg síðan 1919
Áratuga þekking og reynsla
Laugavegi 29 - sími 552 4320
www.brynja.is - brynja@brynja.is
Verð
3.195 kr. Verð
3.915 kr.
Eldsneytisverð í Bandaríkjunum
hækkaði á sunnudag, níunda
daginn í röð, og nálgast nú
verðmetið sem sett var í júlí
2008 þegar gallonið kostaði 4,11
dali.
Meðalverðið við pumpuna í
Bandaríkjunum var á sunnduag
orðið 3,838 dalir samkvæmt
bandarísku bifreiðaeigenda-
samtökunum AAA. Fyrir mánuði
kostaði gallonið 3,53 dali.
Á markaðssvæðum eins og
Kaliforníu, Nevada, Washington
og New York kostar gallonið nú
um og yfir fjóra dali.
ai@mbl.is
Bensín
vestanhafs
á uppleið
Tælenski auðjöfurinn Chaleo Yoo-
vidhya lést á laugardag af nátt-
úrulegum orsökum. Chaleo er
sennilega þekktastur fyrir að hafa
þróað orkudrykkinn Red Bull.
Hann var annar ríkasti Tælending-
urinn skv. samantekt Forbes árið
2010, og í 205. sæti yfir ríkustu
menn heims, með eignir upp á um
fimm milljarða bandaríkjadala eða
637 milljarða króna. Wall Street Jo-
urnal segir heimildir greina á um
aldur milljarðamæringsins en hann
var a.m.k. 88 ára gamall.
Gos og kappakstursbílar
Chaleo byggði veldi sitt upp frá
grunni en hann fæddist inn í fá-
tæka fjölskyldu kínverskra innflytj-
enda í Tælandi. Á 7. áratugnum
stofnaði hann fyrirtæki sem fram-
leiddi sýklalyf, en sama fyrirtæki
þróaði síðar gosdrykkinn Karating
Daeng. Drykkurinn sló í gegn í
heimalandinu
m.a. meðal öku-
manna og verka-
manna sem vant-
aði orkuskammt.
Árið 1984 hóf
Chaleo samstarf
við austurríska
fjárfestinn Deit-
rich Mateschitz
um sölu og dreif-
ingu á drykknum
á heimsvísu undir enska heitinu
Red Bull.
Í dag er orkudrykkurinn vinsæli
til sölu í 164 löndum. Á árinu 2011
seldust um 4,25 milljarðar Red
Bull-dósa um allan heim, sem var
11% aukning frá fyrra ári. Fyr-
irtækið heldur m.a. úti liði í Form-
úlu 1-kappakstrinum og keypti árið
2006 fótboltaliðið MetroStars sem
nú ber nafn drykkjarins, New York
Red Bulls. ai@mbl.is
Vellauðugur
skapari Red Bull
fellur frá
Einn af ríkustu mönnum Tælands
fæddist inn í fátæka innflytjendafjölskyldu
AP
Chaleo
Yoovidhya
Veldi Red Bull er þekkt vörumerki um allan heim og heldur bæði úti nokkuð
farsælu liði í Formúlu 1-kappakstrinum og bandarísku fótboltaliði.