Morgunblaðið - 19.03.2012, Síða 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2012
Álnabær veitir alhliðaþjónustu er lýtur að gardínum.
Máltaka, uppsetning og ráðleggingar.
SCREEN- OG
RÚLLUGARDÍNUR
Henta vel þar sem sól er mikil
en þú vilt samt geta séð út
Álnabær
Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta.
Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri
alnabaer.is ▪ Opnunartími: mán -fös 11-18
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Vitað er að þrír óbreyttir borgarar
létu lífið og tugir særðust í öflugu
sprengjutilræði í íbúðahverfi nálægt
miðstöð öryggislögreglunnar í
Aleppo í Sýrlandi í gær. Daginn áð-
ur féllu 27 manns og á annað hundr-
að særðist í bílsprengjum í höfuð-
borginni Damaskus. Ríkisfjölmiðlar
kenna nú flugumönnum Sádi-Araba
og Katarmanna um hermdarverkin
í landinu.
Stjórn Bashars al-Assads Sýr-
landsforseta er talin njóta mikils
stuðnings í Damaskus og Aleppo
sem er næststærsta borg landsins
og kenndu ríkisfjölmiðlar andstæð-
ingum hennar um tilræðin. Um
væri að ræða fólk sem vildi grafa
undan tilraunum til að finna frið-
samlega lausn. En margir úr stjórn-
arandstöðunni segja að menn As-
sads standi á bak við tilræðin og
þannig sé ætlunin að reyna að
sverta orðspor andstæðinga forset-
ans.
„Á bak við sprengingarnar í gær
[laugardag] voru hryðjuverkamenn
sem studdir eru erlendum ríkjum
er fjármagna þá og vopna þá,“ sagði
Al-Baath, málgagn stjórnarflokks
Assads. Ráðamenn í Sádi-Arabíu og
Katar hafa beitt sér mjög gegn Ass-
ad í Arababandalaginu sem hefur
fordæmt framferði hans. Annað
blað, Ath-Thawra, gekk lengra og
kenndi umræddum ríkjum beinlínis
um hryðjuverkin. „Við þekkjum
blóðistokkið hatur þeirra sem stafar
af öfund,“ sagði blaðið.
Saka Sádi-Araba um tilræði
Fjölmiðlar Assads segja grannríki fjármagna og vopna hryðjuverkamenn
Menn forsetans sakaðir um að standa sjálfir fyrir bílsprengjutilræðunum
AFP
Tilræði Sýrlenskir lögreglumenn
kanna aðstæður í Aleppo í gær.
Þúsundir hafa fallið
» Talið er að yfir 8.000
manns, aðallega vopnlausir
borgarar, hafi fallið í átök-
unum sem hófust fyrir réttu
ári.
» Talsmenn SÞ segja að um
30.000 manns hafi flúið til
Tyrklands og fleiri grannríkja
Sýrlands vegna átakanna.
» Andstæðingar Assads eru
einkum súnni-múslímar og
óttast ýmsir minnihlutahópar
um sinn hag ef súnnítar sigra.
Joachim Gauck
var í gær kjörinn
forseti Þýska-
lands og hlaut
þorra atkvæða
kjörmanna enda
studdu fulltrúar
stærstu flokk-
anna hann.
Hann er fyrr-
verandi, austur-
þýskur prestur,
og barðist gegn kommúnistastjórn-
inni sem féll 1990. Gauck, sem er 72
ára, afhjúpaði ýmsa glæpi aust-
urþýsku öryggislögreglunnar
gömlu, Stasi, þegar hann var yf-
irmaður stofnunar sem annast
skjalasafn Stasi. kjon@mbl.is
Gauck forseti og
hlaut þorra atkvæða
Joachim
Gauck
ÞÝSKALAND
Fundist hafa líkamsleifar í hlíðum
Kebnekaise-fjalls í Svíþjóð þar sem
norska Hercules-herflugvélin hrap-
aði í liðinni viku. Fimm Norðmenn
fórust með vélinni en hún mun hafa
skollið á hamravegg rétt neðan við
tindinn. Brakið dreifðist yfir mjög
stórt svæði.
Vélin tók þátt í æfingu með
sænskum og norskum orrustu-
vélum er skipt var í lið, annar hóp-
urinn átti að ráðast á Hercules-
vélina, hinn verja hana. Hugsanlegt
er að flugmenn vélarinnar hafi
flogið of lágt til að reyna að forðast
að verða skotmark. kjon@mbl.is
Fundu líkamsleifar
á Kebnekaise-fjalli
SVÍÞJÓÐ
Hundar hafa
margfalt meira
þefnæmi en
menn og nú er
m.a. farið að
nýta þennan
hæfileika til að
þjálfa dýrin í
að greina
krabbamein.
Sænska jarð-
fræðingunum
Peter Bergman hefur nú að sögn
Dagens Nyheter tekist kenna schä-
ferhundinum sínum, Rex, að finna
gull í jörðu. Rannsóknasjóðurinn
Vinnova hefur verðlaunað Berg-
man og álítur að málmhundar geti
komið að miklu gagni hjá námufyr-
irtækjum. Bergman vonar að hann
geti boðið upp á námskeið fyrir
hunda og jarðfræðinga innan nokk-
urra mánaða. kjon@mbl.is
Kennir hundum
að þefa uppi gull
LYKTNÆMI
Koptar, en svo
nefnast kristnir
menn í Egypta-
landi, syrgja nú
Shenuda III.,
páfa koptakirkj-
unnar, sem lést á
laugardag, 88 ára
að aldri. Tugþús-
undir manna voru
í gær í biðröð við
dómkirkjuna í Kaíró þar sem líkið var
í fullum skrúða á stól páfa en hann
verður jarðsettur á morgun.
Kristnir Egyptar eru um 10%
þjóðarinnar. Þeir óttast um öryggi
sitt en spenna milli múslíma og krist-
inna hefur aukist eftir byltinguna í
fyrra. Hafa ofstækisöfl ráðist á kopta
og brennt kirkjur þeirra. Shenuda
varð páfi 1972 og naut mikillar virð-
ingar, hann reyndi eftir mætti að
vernda söfnuð sinn. kjon@mbl.is
Shenuda
syrgður
í Kaíró
Shenuda III páfi
Húsnæðisverð hefur hækkað gríð-
arlega í Kína á síðustu árum og mik-
ið verið byggt. Vestrænir hagfræð-
ingar segja vaxandi hættu á að
fasteignabólan í Kína springi og það
gæti að sögn þeirra haft afar slæmar
afleiðingar. Efnahagur Kína sé nú
háðari húsbyggingum en sá banda-
ríski var rétt áður en kreppan vegna
undirmálslánanna til húsbygginga
skall á haustið 2007.
Dæmi eru um hverfi óseldra ný-
bygginga víða um landið, frægast
þeirra er nýja borgin í Ordos í hér-
aðinu Innri-Mongólíu sem er nyrst í
landinu. Fyrir um 20 árum varð þar
mikið kolaæði, fjöldi einkarekinna
námufyrirtækja hóf gröft og skildu
sums staðar eftir sig risastórar, opn-
ar holur á steppunni.
Borgaryfirvöld í Ordos skipulögðu
nýja borg fyrir hundruð þúsunda
manna og þar er aðaltorgið kennt
við hetju Mongóla, Genghis Khan.
Miklir skýjakljúfar eru við torgið en
þeir standa auðir og sama er að
segja um megnið af blokkaríbúð-
unum. Sumar eru hálfkláraðar.
Fleiri skuggahliðar eru á efna-
hagsundrinu. Rétt fyrir utan glæst-
ar verslunarmiðstöðvarnar og skýja-
kljúfana í miðborgunum er annar
ömurlegri veruleiki. Mikið er um
betl, að sögn BBC. Ef marka má op-
inberar tölur eru um 150.000 heim-
ilislaus börn á götunum. kjon@mbl.is
AFP
Varað við fasteignabólu
Skuggahliðar á efnahagsundrinu sem umbylt hefur Kína á síðustu áratugum
Ný hverfi standa auð og 150 þúsund heimilislaus börn á götum stórborganna
Skjól Hópur heimilislausra í borginni Hefei í Anhui-héraði í Kína hefur hér hreiðrað um sig undir brú.