Morgunblaðið - 19.03.2012, Page 16

Morgunblaðið - 19.03.2012, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Þegar stjórn-völd ákváðuað renna SpKef inn í Lands- bankann kom upp ágreiningur um hvers virði eigna- safn SpKef væri svo skeikaði tugum milljarða. Ákveðið var að ágreiningurinn færi í gerðardóm og síðan var málið lítið rætt fyrr en Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, tók það upp á þingi og spurði Jóhönnu Sig- urðardóttur forsætisráðherra hvort ekki væri eðlilegt að greinargerðir vegna málsins yrðu opinberar og sömuleiðis málflutningurinn. „Ef svo verð- ur ekki hljóta að vakna grun- semdir um að tilgangurinn með því að leggja málið í gerðardóm hafi verið sá að halda ágrein- ingnum frá almenningi, halda honum frá opinberu kastljósi og reyna að leiða umræðuna einhvern veginn í jörð án þess að við í þinginu, fjölmiðlar eða aðrir gætum fengið nákvæmar upplýsingar um hvers eðlis ágreiningurinn er,“ sagði Bjarni. Jóhanna brást fremur já- kvætt við erindinu og sagðist þeirrar skoðunar að svona mál ættu sem mest að vera fyrir opnum tjöldum. Hún hafði þó þann varnagla að hún gerði sér ekki grein fyrir hvort eitthvað gæti hindrað að hægt væri að hafa málflutninginn fyrir opn- um tjöldum, en að hún sæi ekki að neinar hindranir þyrftu að vera fyrir því að greinargerðir yrðu gerðar opinberar. „Að minnsta kosti ættu nefndir þingsins sem um þetta hafa mikið fjallað á þessu þingi að geta fylgst með málinu og feng- ið með eðlilegum hætti grein- argerðir sem um það koma. Ég get ekki séð fyrir mér að eitthvað gæti hindrað það,“ sagði Jóhanna. Þegar Morg- unblaðið leitaði til Landsbankans um greinargerðirnar eftir þessar umræður á þingi fengust þau svör að ekki kæmi til greina að birta þær eða fylgiskjöl. Þegar falast var eftir sömu upplýsingum hjá fjár- málaráðuneytinu fékkst neitun, en þó væri ekki útilokað að upplýsingarnar yrðu birtar þegar málið hefði verið til lykta leitt. Fróðlegt verður að fylgjast með því hvaða upplýsingar stjórnvöld munu veita um málið þegar gerðardómur lýkur störfum, þess ætti ekki að vera langt að bíða. Málið allt hefur verið hið vandræðalegasta fyrir stjórnvöld, ekki síst fyrrver- andi fjármálaráðherra, Stein- grím J. Sigfússon, sem ber á því ríka ábyrgð sem ráðherra. Ekki verður betur séð en að- gerðir hans í málinu og eftir at- vikum aðgerðaleysi hafi kostað ríkissjóð gríðarlegar fjárhæðir. Í þessu máli mun því enn eina ferðina reyna á hvort rík- isstjórn gagnsæis og opinnar stjórnsýslu stendur undir nafni eða ekki. Hingað til á hún afar dapurlegan feril í þessu efni, svo ekki sé fastar að orði kveð- ið, enda hefur öllu verið haldið leyndu sem mögulegt hefur verið og jafnvel gengið lengra en það á alla hefðbundna mæli- kvarða. Koma mun í ljós, vænt- anlega áður en langt um líður, hvort hagsmunir ráðherra til að halda gögnum málsins leyndum verða teknir fram yfir hagsmuni almennings, sem ber skaðann af framgöngu ráð- herrans. Hvort munu hags- munir ráðherrans til leyndar eða almenn- ings til upplýsinga vega þyngra?} Verður upplýst um tjón almennings? Sum mál ogjafnvel sumt fólk fær annars konar umfjöllun en þá sem lýtur al- mennum lög- málum. Umræðan um lofts- lagsbreytingar er þekkt. Þar var fullyrt um vísindalegar sannanir sem reyndust fjarri því að vera algildar eða nægj- anlega traustar. Þeir, sem leyfðu sér að benda á að hin vísindalega forsenda stæði ekki jafn styrkum fótum og réttrúnaðurinn fullyrti, sættu þungum árásum. Endurvinnsla er réttrún- aðarmál líka. En hún höfðar einnig til alls almennings, sem ofbýður sóun okk- ar nútímafólks. En það þýðir ekki að allar upplýsingar eigi ekki að koma fram. Það kom flestum á óvart, sem sam- viskusamlega hafa flokkað heimilissorp og varið til þess drjúgum tíma og raunar einn- ig fjármunum, að allt þeirra puð og góðvilji í garð umhverf- isins virtist fara fyrir lítið. Ung kona á Akureyri gat ekki leynt vonbrigðum sínum og fleirum leið eins. Af hverju var ekki hægt að koma „hreint“ fram við fólk í þessu máli? Af hverju pukur og feluleikur? Af hverju að hafa fólk að fíflum? Upplýsingar um end- urvinnslu plasts komu á óvart} Rétttrúnaður skekkir umræðu Þ að fer vart framhjá neinum hversu harðvítug og blóðþyrst átökin eru í stjórnmálum landsins. Ef menn eru á öndverðum meiði má treysta því að umræðan finnur sér persónulegan farveg. Og álitsgjafarnir rjúka fram með ærumeiðingum og gíf- uryrðum. Maður hlýtur að velta því fyrir sér, hver til- gangurinn er með slíkum skrifum. Og grunur vaknar um að athyglin stígi mönnum til höf- uðs og ásóknin í fleiri flettingar á netinu. En ekkert er nýtt við slíkan málarekstur. Átökin í íslenskum stjórnmálum á síðari hluta tuttugustu aldarinnar mörkuðust af kalda stríðinu eins og allir vita. Og þar var engum eirt. Eins og ráða má af mögnuðu Bar- áttuljóði Elíasar Marar: Ímyndið yður, að lífið sé einkum og sér í lagi fólgið í því að hata. Berjizt ekki fyrir; berjizt gegn. Og síðar: Öskrið og ærið. Sýnið enga vægð. Notfærið yður vald til að sannist þér hafið það. Miskunnið ekki. Eyðið hverir öðrum á báli yðar taumlausu villu. Sama er mér. Og endir kvæðisins kemur aftan að lesandanum – af- hjúpar hatursáróðurinn: Morguninn eftir nótt tortímingarinnar skal ég þerra svitann af ennum yðar þar sem þér skjálfið af ótta við sólargeislann og færa yður vatn úr læknum, þann morgun og ég skal líkna Sigurvegaranum hvar hann þreyttur liggur í allri sinni smæð. Úrvalsmyndin The Help eða Húshjálpin, sem byggð er á skáldsögu Kathryn Stockett frá árinu 2009, fjallar um gjá í samfélagi, nefnilega á milli hvítra og svartra í Jackson, Mississippi. Mikil vigt er í heilræðunum frá þeim undir- okuðu blökkukonum, sem sjá um að ala upp hvítu börnin í glæsivillum Suðurríkjanna – í andrúmslofti haturs. Þar á meðal Aibileen, sem fær litlu stelpuna til að segja aftur og aftur: „Ég er gáfuð. Ég er góð. Ég skipti máli.“ Það þarf að efla viðnámsþróttinn þegar svo margir eru fúsir til niðurrifs. Og Constantine hittir naglann á höfuðið er hún mælir til Skeeter, rithöfundarins unga og metn- aðarfulla: Á hverjum degi sem þér er gefinn ofan jarðar, þá vakn- arðu á morgnana og þarft að taka ákvarðanir. Þú verður að spyrja þig: „Ætla ég að trúa öllu því ljóta sem fíflin segja um mig í dag?“ Þetta er æðruleysisbæn, sem þátttakendur í opinberri umræðu ættu að hafa í huga. pebl@mbl.is Pétur Blöndal Pistill Vatnið úr læknum STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Fram til þessa hafa læknareinir getað ávísað horm-ónatengdum getnaðar-vörnum, eins og pillunni, til kvenna. Breyting þar á gæti orð- ið á næstunni ef nýtt frumvarp Guðbjarts Hannessonar velferð- arráðherra verður samþykkt á Al- þingi. Með því verður hjúkrunar- fræðingum, þar á meðal skóla- hjúkrunarfræðingum og ljósmæðr- um, heimilt að ávísa pillunni ásamt læknum. Guðbjartur kynnti frumvarpið á fundi ríkisstjórnarinnar í síðustu viku og í því er lagt til að hjúkrun- arfræðingar og ljósmæður fái heim- ild til að ávísa hormónatengdum getnaðarvörnum en að heimildin verði bundin því skilyrði að viðkom- andi starfi á heilbrigðisstofnun þar sem fyrir hendi er heilsugæsla, kvenlækningar eða fæðingarþjón- usta. Landlæknir mun veita hjúkr- unarfræðingum og ljósmæðrum leyfi til lyfjaávísunar að uppfylltum nánar tilgreindum skilyrðum, m.a að hafa sótt og staðist fræðilegt og klínískt námskeið um lyfjaávísanir hjá Háskóla Íslands. Snýst um ábyrga kynhegðun Talið er að með frumvarpinu muni aðgangur kvenna að getnað- arvörnum batna og kynheilbrigðis- þjónusta eflast og verða markviss- ari. Tilgangurinn er aðallega að reyna að koma í veg fyrir ótíma- bærar þunganir unglingsstúlkna með því að auðvelda þeim aðgang að getnaðarvörnum. Bryndís Jónsdóttir framkvæmdastjóri SAMFOK, Sam- taka foreldra grunnskólabarna í Reykjavík, segist ekki sjá að frum- varpið leysi þann vanda. Hún er á því að aðgangur íslenskra kvenna að getnaðarvörnum megi batna en ekki ef tilgangurinn er að skóla- hjúkrunarfræðingar geti ávísað getnaðarvörnum án samráðs við foreldra til mjög ungra barna. „Ef að svona ung börn eru far- in að stunda kynlíf eru getnaðar- varnir ekki mesta áhyggjuefnið heldur frekar uppeldið, forvarnir og fræðsla um kynheilbrigði og ábyrga kynhegðun. Það má ekki undanskilja drengina þarna, þeir þurfa líka að fá fræðslu og bera ábyrgð á sinni kynhegðun,“ segir Bryndís. Hafa ekki efni á pillunni Lúðvík Ólafsson, lækninga- forstjóri Heilsugæslu höfuðborg- arsvæðisins, segir að þar séu skipt- ar skoðanir um frumvarpið. „Með því er verið að reyna að draga úr þeim fjölda ungra stúlkna sem fer í fóstureyðingu, en ef getn- aðarvarnirnar eru hindrunin þá er það ekki vegna þess að þær fái ekki tíma hjá lækni á heilsugæslustöð- inni, þá er það vegna þess að þær telja sig ekki hafa efni á pillunni og þá er eina ráðið að hafa pilluna fría fyrir þennan hóp,“ segir Lúðvík. Hann er sjálfur á þeirri skoðun að pillan eigi ekki að vera lyfseð- ilsskyld, að konur eigi að hafa frían aðgang að henni en ef spurningar vakni geti þær leitað til læknis. Í umræðu um frumvarpið hef- ur komið fram að unglingar séu feimnir við að fara inn á heilsu- gæslustöðvar, Lúðvík segir það vera hið mesta bull. „Það var ný- lega gerð talning á því og kom í ljós að 80% framhaldsskólanema hafa samskipti við sína heilsugæslu á hverju ári. Það eru engar vísbend- ingar um það að unglingar hér á landi séu feimnir við að fara í heilsugæsluna.“ Vilja auka aðgengi unglinga að pillunni Morgunblaðið/Kristinn Getnaðarvörn Ef frumvarpið nær fram að ganga geta skólahjúkrunarfræð- ingar ávísað pillunni til ólögráða stúlkna án samráðs við foreldra. Með frumvarpinu er brugðist við tilmælum barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna en nefndin lýsti nýlega yfir áhyggjum vegna fjölda þungana og fóstureyðinga meðal stúlkna undir 18 ára aldri hér á landi. Er bent á að ástæða fyrir þessu geti verið skortur á þekkingu um kynheilbrigði, að- gengi að getnaðarvörnum og ráðgjafarþjónustu um kynheil- brigði og jafnframt lagt til að úr þessu verði bætt. Samkvæmt upplýsingum Landlæknisembættisins fóru fimm stúlkur yngri en 15 ára í fóstureyðingu árið 2010 en 177 stúlkur á aldrinum 15 til 19 ára. Á aldursbilinu 20 til 24 ára fóru 262 í fóstureyðingu 2010. Er það fjölmennasti aldurshópurinn sem fer í fóstureyðingu ár hvert. Lesa má um lög og reglur varðandi kynlíf unglinga á vef- síðu Umboðsmanns barna: www.barn.is/barn/adalsida/ malaflokkar/kynlif. Áhyggjur af kynheilbrigði FÓSTUREYÐINGAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.