Morgunblaðið - 19.03.2012, Side 18

Morgunblaðið - 19.03.2012, Side 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2012 Nýttu svalirnar allt árið um kring idex.is - sími: 412 1700 - merkt framleiðsla Skjól Lumon svalagler veitir skjól gegn rigningu og roki. Mjög einfalt er að opna svalaglerið og renna því til og frá. Hljóð- og hitaeinangrun Svalaglerin veita hljóð- og hita- einangrun sem leiðir til minni hljóðmengunar innan íbúðar og lægri hitakostnaðar. Óbreytt útsýni Engir póstar eða rammar hindra útsýnið sem helst nánast óbreytt sem og ytra útlit hússins. Auðveld þrif Með því að opna svalaglerið er auðvelt að þrífa glerið að utan sem að innan. Stækkaðu fasteignina Með Lumon svalaglerjum má segja að þú stækkir fasteignina þína þar sem þú getur nýtt svalirnar allan ársins hring. hefur svalaglerin fyrir þig! –– Meira fyrir lesendur : Katrín Theódórsdóttir Sími 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUN AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, mánudaginn 26. mars. Meðal efnis: Viðburðir páskahelgarinnar. Girnilegar uppskriftir af veislumat og öðrum gómsætum réttum ásamt páskaskreytingum, páska- eggjum, ferðalögum o.fl SÉRBLAÐ Páskablaðið Morgunblaðið gefur út sérblað 30. mars tileinkað páskahátíðinni Pásk ablað ið Það hefur verið í tísku, sérstaklega hjá þeim sem eru fylgjandi inngöngu í ESB, að herma það upp á ís- lensku krónuna, að hún sé ónýt. Að hún sé ekki lengur brúkleg sem gjaldmiðill. Hafa þeir hinir sömu sagt að vegna þessa sé réttast að við göngum í ESB, því að slíkri inngöngu fylgi evra með í kaup- bæti, ekki ósvipað og plasthringirnir sem voru alltaf með morgunkorninu hérna um árið. Margir hafa verið móttækilegir fyrir árásunum á krónuna og talið skynsamlegt að taka upp nýjan gjaldmiðil, þótt þeir séu að sama skapi á móti inngöngu í ESB. Þeirra lausn hefur verið einhliða upptaka einhvers annars gjaldmiðils. Hafa bandaríski og kanadíski dollarinn ásamt norsku krónunni komið sterk- ir inn sem valmöguleikar. Frelsarinn handan hafsins Hið stórmerkilega hefur svo gerst, að núna berast þær fréttir yfir hafið að við getum bara tekið upp gjaldmiðilinn þeirra án nokkurra vandræða. Eftir að Kanada reið á vaðið voru Norðmenn fljótir að senda dulin tilboð í að taka upp krónuna þeirra. Við fyrstu sýn gæti þetta verið töfralausn- in. Nýr gjaldmiðill sem kemur í veg fyrir hinar óþreytandi hagsveiflur sem alltaf leika okkur Íslendinga grátt. En svo er ekki. Ástæðan fyrir kan- adíska og norska áhug- anum er einfaldlega sú að við höfum upplýst nágranna okkar um að fullveldið, landið og miðin séu til sölu. Auðvitað byrja þeir þá að bjóða í. Áður en við köstum krónunni og seljum okkur hæstbjóðandi skulum við hafa í huga þá einföldu stað- reynd, að hver sú þjóð sem ekki fer með forræði gjaldmiðils síns er ekki fullvalda. Kötturinn í sekknum Hvað ætlum við að gera tveimur eða þremur árum eftir að við höfum tekið upp nýjan gjaldmiðil og um- ráðamenn hans koma hingað og krefjast fulls og ótakmarkaðs að- gangs að fiskimiðum okkar, orku- verum og vatninu? Við einfaldlega verðum að segja já, því við höfum ekkert val. Fullveldið hverfur nefni- lega með krónunni. Nú segja menn að þetta sé rétt varðandi aðra gjaldmiðla en evru, þar sem við komum til með að sitja við ákvörðunarborðið sem fullgildir meðlimir ESB-klúbbsins. Þótt rétt sé að við sitjum við borðið þýðir það ekki að við komum til með að ráða einu eða neinu. Vægi okkar, sér- staklega þegar Lissabonsáttmálinn hefur að fullu tekið gildi, verður svo lítið að það er í raun bara táknrænt. Ef einhver efi er um að aðkoma okkar sé táknræn, þá vísa ég til nú- verandi evruvandræða og hvernig það voru Frakkland og Þýskaland sem tóku allar ákvarðanir og hinar þjóðirnar urðu að gjöra svo vel og fylgja á eftir. Ég vil vara við öllu daðri við er- lenda gjaldmiðla þar sem því fylgir óhjákvæmilega afsal fullveldis ís- lensku þjóðarinnar. Ekki láta glepj- ast af gylliboðum, heldur stöndum vörð um gjaldmiðilinn og fullveldið. Það er ekkert að krónunni, bara fólkinu sem er að tala hana niður. Að kasta fullveldinu Eftir Jón Lárusson » Sú þjóð sem ekki fer með forráð gjald- miðils síns er ekki full- valda Jón Lárusson Höfundur hefur gefið kost á sér í embætti forseta Íslands og heldur úti vefsíðunni www.jonlarusson.is. Bréf til blaðsins Það er grátbroslegt að sjá það sem fram fer í Þjóðmenningarhús- inu. Þessi skrípaleikur sem þar er leikinn er svo viðbjóðslegur að öllu sómakæru fólki er orðið flök- urt. Sakborningurinn gengur um salinn skælbrosandi, heilsar öllum vitnum með handabandi, vitnin brosa og taka í hönd hans og þakka fyrir síðast. Önnur vitni sem á að yfirheyra síðar fá að vera í salnum og punkta hjá sér það sem fyrri vitni segja svo að öllu beri saman sem segja má. Ekkert skal segja um annan, svo ég sjálfur fái ekki gú- morinn. Sem sagt, samtryggingin alger. Saksóknari biður vitnin að segja frá aðdraganda hrunsins og þeir segja allir það sem allir vita og allir fjölmiðlar hafa sagt frá hundrað sinnum. Og ef saksóknari gerist svo djarfur að spyrja vitnið einhvers frekar, þá svara allir á sama veg: Það var ekkert hægt að gera, ég vissi ekkert, ég man það ekki og hrunið var ekki mér að kenna. Og saksóknari er svo hógvær að hún vogar sér ekki að láta sak- borning eða vitni sverja eið að sannleiksgildi frásagna sinna eða spyrja hvort enginn þerra beri neina ábyrgð á því hvernig komið sé fyrir þessari þjóð. Nei það má ekki spyrja elítu landsins óþægi- legra spurninga. Það er ekki minnsti neisti þess að nokkur af þessum svokölluðu framámönnum þjóðarinnar hafi kjark eða sjái sóma sinn í því að viðurkenna að þeim hafi orðið á í verkum sínum, þótt allir viti að öllum verður ein- hvern tíma eitthvað á í verkum sínum. Nei þessar gungur eru svo full- komnar að það er af og frá að þeim hafi orðið á. Þetta er aðeins þróaðra en sandkassaleikur smá- barna, þar sem hver kennir öðrum um óknyttina. Hér er landsdóms- leikurinn kominn á það lágkúru- stig að enginn segir neitt. Í grein minni um ábyrgð manna á gjörðum sínum bendi ég á að all- ir bera ábyrgð í einhverri mynd á gjörðum sínum brjóti þeir lands- lög. Dómar um fébætur, missi at- vinnuréttinda og fangelsisvist vegna ábyrgðarleysis í athöfnum eru öllum kunnir, jafnvel 17 ára unglingur, sem í gáleysi brýtur umferðarlög, er dæmdur. Í lögum um ráðherraábyrgð er heill lagabálkur sem útlistar ná- kvæmlega að það sem hér gerðist í hruninu sé á ábyrgð ráðherra. En hér er um framámenn þjóð- arinnar að ræða og þeir skulu vera stikkfrí í störfum sínum en alþýð- an ein má byrðarnar bera. Í öllu því stóði sem stefnt hefur verið til þessa landsdóms-leiks er einn sem ægishjálm ber yfir alla aðra í sið- ferðisþroska, trúverðugleika og heiðarleika og hann er fyrrverandi forsætisráðherra og seðlabanka- stjóri, mesti skaðvaldur sem Ís- land hefur alið. Ef hætt er öllu háði þá er hryggilegt að sjá hvernig komið er fyrir þessum hópi. Siðferði hans er komið niður fyrir 0-flokk, trúverðugleiki hans í mínusflokk og heiðarleiki hans niður í það neðsta. Þetta er dómur 80 ára alþýðumanns og eflaust ótal margra annarra. Og það er hámark hneykslunar að þessi skrípaleikur skuli háður í húsinu sem kennt er við þjóð- menningu. Er það nú þjóð- menning! HAFSTEINN SIGURBJÖRNSSON, eldri borgari. Landsdóms-leikurinn í Þjóðmenningarhúsinu Frá Hafsteini Sigurbjörnssyni Hafsteinn Sigurbjörnsson - nýr auglýsingamiðill 569-1100 finnur@mbl.is Bridsdeild Félags eldri borgara í Reykjavík Tvímenningskeppni spiluð í Ás- garði, Stangarhyl 4, fimmtudaginn 152. mars. Spilað var á 14 borðum. Meðalskor: 312 stig. Árangur N-S: Birgir Sigurðss. – Jón Þór Karlsson 370 Oddur Jónsson – Óskar Ólafsson 370 Ingibj. Stefánsd. – Margrét Margeirsd. 347 Haukur Harðarson – Ágúst Helgason 334 Árangur A-V: Friðrik Jónsson – Tómas Sigurjónss. 365 Sigurjón Helgason – Helgi Samúelss. 361 Albert Þorsteinss. – Björn Árnason 361 Svanh. Gunnarsd. – Magnús Láruss. 352 Hraðsveitakeppnin í Kópavogi Nú er lokið þremur kvöldum af fjórum í Hraðsveitakeppni Brids- félags Kópavogs þar sem ellefu sveitir keppa. Sveit Guðlaugs Bessasonar er enn í efsta sætinu og hefur 50 stiga forystu á næstu sveit. Allnokkrar sveitir koma í humátt á eftir en þurfa verulega gott gengi síðasta kvöldið til að gera atlögu að toppsætinu. Staða efstu sveita: Guðlaugur Bessason 1747 Hjálmar S. Pálsson 1697 Vinir 1688 Baldur Bjartmarsson 1653 Erla Sigurjónsdóttir 1631 Sveinn Símonarson 1630 BRIDS Umsjón Arnór G. Ragnarsson| norir@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.