Morgunblaðið - 19.03.2012, Page 26

Morgunblaðið - 19.03.2012, Page 26
26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 19. MARS 2012 Aðalsteins Jörundssonar var að gefa frá sér hljómplötuna BÆN sem er unnin í samvinnu við Valdi- mar Jóhannsson og gefin út af FALK. Platan var gefin út í desem- ber og er fáanleg á tónlistarvefnum gogoyoko en er núna að koma í all- ar betri hljómplötuverslanir eftir helgi eða 21. mars. Platan er þriðja útgáfuverkefni AMFJ en fyrsta verk hans sem kemur út á geisladisk. Tónlist AMFJ er að öllu jöfnu lýst sem óhljóðatónlist eða listrænt ágengri raftónlist. Platan er ágeng og há- vær en AMFJ sækir innblástur víða og meðal annars til íslenskrar sam- tíðar, dauðarokks og þjóðsagna. Á plötunni er ekki fetaður með- alvegur heldur takast á brjál- æðislegar hæðir og tilfinn- ingaþrungnar lægðir. Bæn Ný plata frá Aðalsteini Jörundssyni kemur í verslanir miðvikudaginn 21. mars. BÆN frá AMFJ á leið í verslanir Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Hafgolufólk er nýútkomin skáld- saga eftir Önnu Dóru Antonsdóttur og er sjötta bók höfundar. Anna Dóra er spurð af því hvernig fólk hafgolufólkið sé. „Þetta er fólk sem hefur lifað og starfað í hafgolunni fyrir norðan,“ segir hún. „Nánar til- tekið fjallar bókin um stóran systk- inahóp sem elst upp á millistríðs- árunum og byrjar að feta lífsbrautina í lok stríðs. Það má kannski segja að þetta sé kynslóðin sem ól mig upp.“ Er þá sitthvað ævisögulegt í bók- inni? „Þetta er skáldsaga en ég nota þar auðvitað ýmislegt sem ég hef upplifað og séð og heyrt. Fyrst og fremst er verkið saga fólks.“ Er þetta dramatísk saga? „Sjálf gæti ég ekki flokkað hana en sakamálasaga er hún pottþétt ekki og ekki ástarsaga. En það ger- ist margt í lífi venjulegs fólks, stundum dramatískir atburðir. Flestir upplifa eitthvað slíkt á æv- inni.“ Sakamál frá 19. öld Þetta er sjötta bókin þín. Hvenær byrjaðir þú að skrifa? „Ég hef alltaf verið að skrifa en gaf ekkert út fyrr en 1998. Þá kom út fyrsta bókin mín, Voðaskotið. Hún er heimildarskáldsaga og fjallar um forföður minn sem var ákærður fyrir morð. Það mál kom upp um 1830. Hann var prestssonur frá Ufsum í Svarfaðardal. Fjórtán ára gamall var hann sakaður um að hafa skotið, óviljandi, vinnukonu á bænum, en þar hafði verið skilin eft- ir hlaðin byssa. Líkið var grafið upp og málið rannsakað. Dómarinn komst að þeirri niðurstöðu að jafn- vel þó að drengurinn hefði skotið konuna hefði það verið þvílíkt óvilja- verk að ekki væri hægt að fella yfir honum dóm. Málinu var því vísað frá. En almenningsálitið dæmdi hann og við það bjó hann alla ævi. Amma mín mundi eftir þessum afa sínum þannig að það má segja að ég hafi fengið söguefnið beint í æð. Þegar ég hafði svo tíma til þá fór ég að rannsaka þetta mál, sökkti mér niður í heimildir og skrifaði skáld- sögu um málið.“ Hvernig viðtökur hafa verk þín fengið? „Það er nokkuð misjafnt en Voða- skotið gekk mjög vel. Sumar af bók- um mínum hef ég gefið út sjálf og það er ansi strembið. Það er í sjálfu sér ekki erfitt að fá bækur prent- aðar, það er eiginlega minnsta mál- ið, en markaðssetningin á ekki vel við mig því ég er ákaflega lin við að markaðssetja eigin bækur. Þegar ég gaf út Voðaskotið hafði ég systur mína, sem er markaðsfræðingur, með í ráðum og hún er við hliðina á mér núna. Núna er ég líka með út- gefanda sem er bókaútgáfan Tindur og það er stórmunur.“ Barnabók upp úr Sturlungu Anna Dóra er kennari við Iðn- skólann í Hafnarfirði og kennir þar sögu og íslensku en hún er sagn- fræðingur að mennt. Hún segist skrifa bækur sínar á sumrin. „Bókin Hafgolufólkið er skrifuð í elsta hús- inu í Dalvík sem heitir Nýibær, en einn eigenda Júlíus Kristjánsson og Ragnheiður kona hans hafa verið svo elskuleg að leyfa mér að vera þar um tíma yfir sumarið. Þar var ég ein og þegar svo er þá gengur mjög vel að skrifa. Júlli skrifaði raunar formála að fyrstu bók minni, Voðaskotinu.“ Ertu farin að leggja drög að næstu bók? „Mér finnst einsýnt að ég muni halda áfram með hafgolufólkið, því þetta er svo spennandi fólk. Ég er líka með barnabók í pípunum, er komin vel á veg með að skrifa hana en hún er unnin upp úr Sturlungu. Þegar ég las Sturlungu á sínum tíma hugsaði ég með mér að fróð- legt gæti verið að velta fyrir sér sjónarhorni barna á þessum tíma. Í barnabókinni er ég að skrifa um at- burði í kringum Örlygsstaðabar- daga. Sturla Þórðarson segir ná- Fólkið í haf- golunni fyrir norðan  Hafgolufólk er ný skáldsaga eftir Önnu Dóru Antonsdóttur Hvað ertu að hlusta á um þessar mund- ir? Ég hlusta mikið á soundcloud-síðuna þar sem eru alls kon- ar góð „remix“ en svo hlusta ég á Cold Panda, James Pants, Youth Lagoon, John Cage og Harold Budd og fullt af gamalli og góðri tón- list. Hvaða plata er sú besta sem nokkurn tíma hefur verið gerð að þínu mati? I Can Hear the Heart Beating As One með Yo la Tengo, Loveless með My Bloody Val- entine og TNT með Tortoise. Hver var fyrsta platan sem þú keyptir og hvar keyptir þú hana? Maxinquaye með Tricky hjá Kidda í Hljómalind. Hvaða íslensku plötu þykir þér vænst um? Allar plöturnar með Ellý Vil- hjálms. Hvaða tónlist- armaður værir þú mest til í að vera? Beyoncé eða John Cage. Ha ha ha … Hvað syngur þú í sturtunni? Ég fer mest í bað en syng Elton John og kraftballöður. Hvað fær að hljóma villt og galið á föstudagskvöldum? Diskó og alls konar góð raftónlist En hvað yljar þér svo á sunnudags- morgnum? Eitthvað gamalt og gott og íslensk raftónlist er æði á sunnu- dagsmorgnum. Já og TNT með Tortoise er mjög góð á sunnudags- morgnum líka. Í mínum eyrum Björk Viggósdóttir Elton John og kraftballöður

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.