Morgunblaðið - 12.04.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012
Ný
ju
ng
!
Ljótur frá MS er bragðmikill og spennandi
blámygluostur. Láttu hann koma þér á
óvart og dæmdu hann eftir bragðinu.
Ljótur að utan
– ljúfur að innan
Svanhildur Eiríksdóttir
svei@simnet.is
Þ
að er nokkuð magnað að
stíga inn í heim guðanna
í nýju sýningarrými í
Víkingaheimum þar sem
sýningunni Örlögum
guðanna hefur verið fundinn staður.
Í heyrnartólum hljómar seiðandi tón-
list Hilmars Arnar Hilmarssonar,
þokuslæðingur í sýningarrýminu
framkallar dulúðuga stemningu og
leiðsögn kemur manni að efninu og
leiðir um sýninguna. Aðgangseyrir
ætti ekki að fæla neinn frá, því hon-
um er haldið í lágmarki og frítt er
fyrir börn 14 ára og yngri. Leiðsögn-
in er til á nokkrum tungumálum.
U-beygja eftir hrun
Sýningin Örlög guðanna er sam-
starfsverkefni Ingunnar Aldís-
ardóttur þjóðfræðings og Kristínar
Rögnu Gunnarsdóttur myndlist-
arkonu. Sýningin hófst í Hveragerði
en U-beygja og óumflýjanleg örlög
urðu þess valdandi að henni var fund-
inn staður í Víkingaheimum. „Það
stóð til að koma á fót mikilli sýningu
eða svokölluðu „Theme park“ hér á
landi um norrænu goðafræðina og
var fjármögnun á því dæmi svo til í
höfn þegar hrunið varð og ekkert
varð úr verkefninu. Þeir aðilar sem
að því stóðu vildu þó ekki gefa hug-
mynd um sýningu um norræna goða-
fræði alveg upp á bátinn og var því
haft samband við mig og ég fengin til
að setja fram hugmynd um hvernig
mætti gera eitthvað slíkt þótt í mun
smærri mæli væri,“ sagði Ingunn Al-
dísardóttir, sýningarstjóri og annar
höfunda Örlaga guðanna, í samtali
við blaðamann. Ingunn hafði í fram-
haldi samband við Kristínu Rögnu
Gunnarsdóttur myndlistarkonu en
saman höfðu þær unnið að sam-
nefndri bók, sem Mál og menn-
ing gaf út árið 2008. Sýningin í
Víkingaheimum er þó ekki unnin
upp úr bókinni, þótt efniviðurinn
sé sá sami.
Til Reykjanesbæjar eftir
brotlendingu
Sýning Ingunnar og Krist-
ínar Rögnu var upphaflega sett
upp í Eden í Hveragerði, þar sem
koma átti á fót eins konar setri um
norræna goðafræði og var gefið
nafnið Iðavellir. Fjárhagslegur
Litgleði og dulúð í
Víkingaheimum
Örlög guðanna er heiti á sýningu tengdri norrænni goðafræði sem nýverið var
opnuð í Víkingaheimum. Ingunn Aldísardóttir þjóðfræðingur og Kristín Ragna
Gunnarsdóttir myndlistarkona eru höfundar sýningarinnar.
Eineygður Óðinn og hrafnar hans og sagnabrunnar, Huginn og Muninn.
Atgangur Það er farsælast að reita ekki jötna til reiði.
Vefsíðan eða bloggið cherry blossom
world er skemmtileg síða fyrir fag-
urkera sem finnst gaman að fylgjast
með og skoða tísku og hönnun. Á síð-
unni er að finna skemmtilegar lausnir
fyrir heimilið. Þar á meðal er að festa
saman tímaritabunka með tveimur
beltum í ólíkum lit og nota sem nátt-
borð eða lítið innskotsborð. Blogg-
arinn gefur líka fallegar hugmyndir
að borðskrauti og því sem henni
finnst sniðugt og fyndið í flokk sem
kallast: fyndið í dag eða það sem læt-
ur mér líða vel í dag. Á cherry blos-
som world er líka að finna ótal tengla
inn á vefsíður tengdar hönnun og
tísku. Höfundur síðunnar segir hana
vera sína uppsprettu innblásturs í líf-
inu. Hér setji hún inn ljósmyndir og
hugleiðingar um allt það er snýr að
tísku og hönnun. Skemmtileg síða
með fallegum myndum sem vert er
að líta á.
Vefsíðan www.cherry-blossom-world.blogspot.com
Blómstrandi Síðan heitir hið sama og hin fallegu kirsuberjatré í Japan.
Uppspretta hugmynda
AFP
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Bókin Örlög guðanna var tilnefnd til Íslensku bók-
menntaverðlaunanna árið 2008 og myndverk úr
henni voru sýnd í Þjóðminjasafninu. Kristín Ragna
hlaut myndskreytiverðlaun Dimmalimm árið 2008
fyrir verkið og fékk viðurkenningu frá FÍT. Efni sýn-
ingarinnar er komið frá Snorra-Eddu og Eddukvæð-
unum en Ingunn laumar inn í textann ofurlitlum
fræðilegum upplýsingumar svo lítið beri á, enda
hennar sérsvið. Páll Ragnarsson, yfirljósameistari í
Hörpu, hannaði lýsinguna í Örlögum guðanna. Ljós-
in skipta miklu máli fyrir stemninguna og setja svip
á þann heim sem þarna er reynt að lýsa. Fjölmargir
aðrir komu að uppsetningu, m.a. smiðir.
Ljósin skipta miklu máli
ÖRLÖG GUÐANNA
Annað erindi um persónur í Njálu
verður flutt kl. 17:30 í dag í Bókasafn-
inu í Hveragerði. Þá fjallar Bjarni Ei-
ríkur Sigurðsson sögumaður um
Flosa Þórðarson, sem einnig er
nefndur Brennu-Flosi. Erindið tengist
sýningu á myndverkum Þórhildar
Jónsdóttur af persónum í Njálu en
síðasti sýningardagur er í dag. Mynd-
irnar eru í eigu Bjarna Eiríks Sigurðs-
sonar en þær eru unnar eftir lýs-
ingum hans gegnum síma á
persónum Njálu eins og hann taldi að
þær hefðu getað litið út í lifanda lífi.
Bjarni Eiríkur er þekktur fyrir
Njáluerindi sín í Sögusetrinu á Hvols-
velli og víðar, en hann hefur búið
bæði í Hveragerði og Ölfusi. Þórhild-
ur er fædd að Breiðabólstað í Fljóts-
hlíð. Hún stundaði nám við Mynd-
lista- og handíðaskóla Íslands
1968-1972 og hefur síðan starfað við
grafíska hönnun og málun. Síðustu
25 ár hefur hún rekið eigin vinnu-
stofu, Auglýsingastofu Þórhildar.
Þórhildur fæst m.a. við olíu-, vatns-
lita- og pastelmyndir, blek-, krítar- og
tölvuteikningar, en myndirnar á sýn-
ingunni eru einmitt unnar með hjálp
tölvutækni. Allir eru velkomnir og
verður kaffi og spjall í boði eftir er-
indið.
Erindi um persónur í Njálu
Njáll Mynd Þórhildar Jónsdóttur.
Brennu-Flosi
á bókasafninu