Morgunblaðið - 12.04.2012, Page 23
FRÉTTIR 23Erlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012
KYNNINGARTILBOÐ Á FLOORMUFFLER
Tilboðsverð: 790 kr. pr. m2
Fullt verð: 1.313 kr. pr. m2
ALLT Í DÚNALOGN
The FloorMufflertm er verkfræðilegt undur, hannað
til að mæta og fara fram úr kröfum markaðarins um
hljóðdempun og pressu.
Meðan birgðir endast
Heimsins besta parketundirlag
fæst nú á Íslandi
• Hentar bæði í fljótandi lögn og til niðurlímingar
• Framúrskarandi kostur fyrir samlímt, gegnheilt, eða harðparket
• 21db hljóðdempun milli hæða
• 33% dempun í rými
• Verndar og minnkar álag á allar læsingar parkets eða harðparkets
• Mesta pressa sem um getur eða 1/10 úr mm
• Dúkurinn er léttur, sterkur og meðfærilegur í notkun
• Dúkurinn er einstaklega rakaþolinn og þarf ekki rakaþolið plast undir
Parketbúðin ehf · Smiðjuvegi 6, rauð gata · 200 Kópavogi · Sími: 567 7777www.parketbudin.is
ÞAÐ DETTUR
áfram í fastanefndinni og gert er ráð
fyrir því að hann taki við forseta-
embættinu af Hu.
Sigur fyrir forsetann og
forsætisráðherrann
Bo Xilai hafði verið spáð sæti í
fastanefndinni þar til tilkynnt var í
síðasta mánuði að honum hefði verið
vikið frá sem leiðtoga komm-
únistaflokksins í Chongqing. Nú í
vikunni var honum síðan vikið úr
stjórnmálaráðinu. Ennfremur var
tilkynnt að eiginkona hans, Gu
Kailai, hefði verið handtekin vegna
gruns um að hún væri viðriðin morð
á Neil Heywood, breskum kaup-
sýslumanni sem mun hafa verið
myrtur í Chongqing í nóvember.
Kínverska fréttastofan Xinhua
sagði að Gu og samstarfsmaður
hennar væru grunuð um morðið og
talið væri að rekja mætti það til
deilu um „viðskiptahagsmuni“. Að
sögn fréttastofunnar sætir Bo Xilai
rannsókn vegna „alvarlegra aga-
brota sem skaða málstaðinn og
ímynd flokksins og ríkisins“. Þegar
kínverskir embættismenn eru sak-
aðir um „alvarleg agabrot“ er yfir-
leitt átt við spillingu.
Sérfræðingar í málefnum Kína
telja að brottvikning Bo Xilai og
handtaka eiginkonu hans eigi ræt-
ur að rekja til valdabaráttu í
flokknum fyrir uppstokkunina í
haust. „Þetta snýst ekki
aðeins um spillingu, þetta
er meiriháttar barátta í
forystusveitinni um
hver eigi að stjórna
landinu,“ hefur frétta-
stofan AFP eftir Pat-
rick Chovanec, prófessor við Tsing-
hua-háskóla í Peking.
Fréttaskýrendur segja að Bo Xilai
hafi tilheyrt fylkingu sem kölluð hef-
ur verið „smáprinsarnir“ og sögð er
hafa tekist á um völdin við fylkingu
undir forystu Hu forseta og Wens
forsætisráðherra. Brottvikning Bo
er því álitin sigur fyrir þá Hu og
Wen sem hafa beitt sér fyrir efna-
hagslegum umbótum í Kína.
Prófsteinn á stjórnkerfið
Bo Xilai hafði skorið upp herör
gegn spillingu í Chongqing og staðið
fyrir herferð sem þótti minna á
menningarbyltinguna í valdatíð
Maós Tse Tung. Herferðin fólst m.a.
í því að embættismenn voru sendir í
endurhæfingarvinnu í sveitunum og
starfsmenn fyrirtækja látnir syngja
byltingarsöngva. Frjálslyndari
mönnum í forystusveit flokksins
þótti hann ganga of langt í herferð-
inni.
Daniel Lynch, sérfræðingur í kín-
verskum stjórnmálum við Háskóla
Suður-Kaliforníu, telur að mál Bo og
eiginkonu hans geti verið prófsteinn
á styrk kínverska stjórnkerfisins.
„Ef í ljós kemur að Bo og Gu séu í
raun sek um svívirðilega glæpi getur
flokkurinn eflt stjórnkerfið með því
að halda því fram að brottvikningin
og hugsanleg saksókn sanni að í
Kína sé enginn hafinn yfir lögin,“
hefur AFP eftir Lynch. „Þetta getur
á hinn bóginn skaðað stjórnkerfið ef
ásakanirnar reynast standa á veik-
um grunni, eða ef margir draga þá
ályktun að Bo og Gu hafi orðið fyrir
ósanngjarnri árás í valdabaráttu
milli fylkinga.“
á harða valdabaráttu
Bandaríska fyrirtækið Terrafugia
hefur hannað flugbíl og segir að
ekkert sé því til fyrirstöðu að hann
verði settur á markað innan árs.
Átta mínútna reynsluflug farar-
tækisins gekk vel, að sögn stjórn-
enda fyrirtækisins.
„Með þessu flugi hefur hópurinn
sýnt að við getum látið drauminn
rætast, draum sem álitinn var
ógerningur,“ sagði stofnandi
Terrafugia, Carl Dietrich.
Flugbíllinn á að kosta 279.000
dollara, jafnvirði tæpra 36 milljóna
króna. Um 100 flugbílar hafa þegar
verið pantaðir. Fyrirtækið vonar að
slík farartæki verði orðin fremur
algeng eftir 10-15 ár.
Hægt er að leggja vængi bílsins
saman og hann kemst þá fyrir í
venjulegum bílskúr. Farartækið
þarf 762 metra langa flugbraut til
að hefja sig til flugs, að sögn frétta-
stofunnar AFP.
Estudio R. Carrera fyrir
BÍLL SEM GETUR FLOGIÐ
Heimild: www.terrafugia.com
Sæti fyrir
tvo í
stjórnklefa
Þriggja blaða
skrúfa
Vængir sem geta lagst saman
Flugvélin breytist í bíl á 30 sekúndum
þegar vængirnir leggjast saman
Hámarkshraði
Eldsneytiseyðsla
Drægi
Vænghaf
Lengd
Í FLUGI
185 km/klst
8,4 lítrar á 100 km
787 km
8m
6m
Í AKSTRI
104 km/klst
6,7 lítrar á 100 km
1.296 km
2,3 m
6 m
Þeir sem eru
ekki með
flugmanns-
skírteini þurfa
að taka
flugpróf til að
geta flogið
bílnum
Vél
Ein 100 hestafla vél knýr skrúfuna í
flugi og afturhjól bílsins þegar
honum er ekið
Flugbíll senn á markað
Þegar Neil Heywood, 41 árs
breskur kaupsýslumaður,
fannst látinn á hótelherbergi í
Chongqing í nóvember sögðu
kínverskir lögreglumenn að
hann hefði dáið vegna „ofneyslu
áfengis“. Þeir sögðu breska
ræðismanninum í borginni að
líkið hefði þegar verið brennt án
þess að það hafi verið krufið.
Að sögn Financial Times
töldu margir vinir Heywoods
þessa skýringu mjög grun-
samlega vegna þess að hann
hefði alltaf drukkið í hófi. Fjöl-
skylda hans taldi þó líklegt að
hann hefði dáið úr hjartaáfalli,
eins og faðir hans fyrir átta ár-
um. Þetta breyttist hins vegar
þegar Wang Lijun, lögreglustjóri
Chongqing, fór á skrifstofu
bandarísks ræðismanns í febr-
úar og óskaði eftir hæli í
Bandaríkjunum vegna
þess að hann óttaðist
um líf sitt. Hann féllst á
að fara til Peking og
hermt er að
hann hafi sagt
lögreglunni að
eitrað hafi
verið fyrir
Heywood.
Eitrað fyrir
Heywood?
DULARFULLUR DAUÐDAGI
Bo Xilai