Morgunblaðið - 12.04.2012, Qupperneq 40
40 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. APRÍL 2012
OPNUNARTÍMI EFNALAUG
MÁN - FÖS: 8-18 • LAU: 11-13
OPNUNARTÍMI FATALEIGA
MÁN - FÖS: 13-17 • LAU: LOKAÐ
EFNALAUG OG FATALEIGA GARÐABÆJAR | GARÐATORGI 3 | GARÐABÆ | SÍMI 565 6680 | FATALEIGA.IS
Hröð og vönduð þjónusta.
Fjölskyldufyrirtæki til 27 ára.
Persónuleg þjónusta og hagstætt verð.
ALHLIÐA HREINSUN,
DÚKAÞVOTTUR OG
HEIMILISÞVOTTUR
Minnum á
fermingarfötin
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Tækifærin eru allt í kringum þig og
þú þarft bara að grípa þau. Reyndu að
vera jákvæður. Taktu þér tak og hristu af
þér slenið.
20. apríl - 20. maí
Naut Manneskjan sem brosir til þín er
ekki bara að því af því að hún er vin-
gjarnleg. Talaðu tæpitungulaust og segðu
kost og löst á hverjum hlut.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Láttu ekki aðra koma þér í vont
skap. Vertu samt óhræddur við að segja
hug þinn því hreinskilnin borgar sig alltaf.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert í forsvari fyrir hópnum.
Leitaðu eftir hverju tækifæri til að gjalda
góðmennsku sem þér hefur verið sýnd.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú getur ekki hamið eftirvæntingu
þína og þitt góða skap smitar út frá sér í
allar áttir. Ekki elta skuggann þinn, þú
nærð honum aldrei.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Haltu persónulegum samskiptum á
léttum og áhyggjulausum nótum, það færir
þér heppni. Einhvern misskilning þarf að
leiðrétta strax svo ekki hljótist af skaði.
23. sept. - 22. okt.
Vog Persónulegar ástæður leysast með
tímanum eins og erfið þraut. Fyrir vikið
verðurðu frjálsari gagnvart henni.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Margir munu leita ráða hjá
þér. En það getur reynst erfitt að leysa
hvers manns vanda. Því skaltu fara varlega
í ráðleggingum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Samræður við vinkonu gagnast
þér í dag. Gefðu þér tíma til að gaumgæfa
málin. Reyndu ekki að leysa þau fyrr en þú
hefur kynnt þér allar hliðar.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Gefðu þér alltaf tíma til þess að
sjá út annað fólk áður en þú ákveður
hversu náin kynni þú vilt af því hafa.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Leggðu þig fram um að skipu-
leggja þig betur í vinnunni í dag. Hafnaðu
því allri fljótfærni og láttu þig ekki dreyma
um að hætta því sem þér er dýrmætast og
helgast í þessu lífi.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú mátt alltaf búast við því að aðr-
ir vilji hafa eitthvað um það að segja,
hvernig þú vinnur. Talaðu aðeins við þann
sem þú treystir fullkomlega fyrir þínum
málum.
Pétur Beinteinsson skáld fráGrafardal fæddist á þessum
degi hinn 12. apríl 1906. Í Skáldu,
afmælisdagabók Jóhannesar úr
Kötlum, er þetta erindi eftir Pét-
ur:
Ég bið, við entan ævi minnar dag,
við útför mína að köldum grafarbeði,
að einhver megi leika lítinn brag
á lokkinn rauða um það sem aldrei
skeði.
Það er dökkur tónn og djúpur í
þessu erindi, sem von er. Pétur
lést úr berklum 36 ára. Pétur varð
búfræðingur frá Hvanneyri, þar
sem hann lagði grunninn að sínu
ævistarfi og stóð hugur hans til
þess að verða bóndi. Hann hafði
allt sem til þess þurfti: traust og
búhyggindi. Þá tóku berklarnir
hann. Um skeið virtist hann vera
að ná sér, en síðan komu þeir með
tvöföldum þunga. Hann lést eftir
nokkurra missera dvöl á Vífils-
stöðum 2. ágúst 1941. Pétur var
elstur systkinanna frá Grafardal,
en ljóðabók þeirra, átta að tölu,
Raddir dalsins kom út árið 1993.
Kunnust eru Halldóra B. Björns-
son og Sveinbjörn Beinteinsson.
Þóra Elfa Björnsson skáld, dóttir
Halldóru, gaf mér afrit af bréfi
Péturs til móður sinnar, dagsett á
Draghálsi 27, febrúar 1936, –
„tónninn er skemmtilegur og
grallaralegur eins og hann var oft
milli systkinanna, þegar flest lék í
lyndi“ skrifar hún mér.
Pétur lýsir búskaparvafstrinu í
gamansömum tón, þar sem segir
m.a.: „En svo áttu 3 rollur í hús-
unum, ein þeirra kom með gráan
ómerking í haust, karlkyns, þess
vegna var það drepið við fyrsta
tækifæri, eins fór fyrir tveimur
gimbrum og tvílembingshrúti sem
þú áttir; önnur gimbrin var kollótt
og hyrnd, en hin hvít og kollótt og
hrúturinn eins og fólk er flest.
Rollurnar þínar heita Kylja, Drífa
og Gufa. Ef þú værir Bjartur í
Sumarhúsum þá mundi þjer verða
þessi vísa á munni:
Kvölds vill rjúfa rökkurdjúp
roklofts - úfin glufa.
Krafsa af þúfum klakahjúp
Kylja, Drífa og Gufa.
Og enn:
Inni í húsi hef ég lamb
heys við dúsur miklar,
hárin brúsa í háan kamb
hvar í lúsin spriklar.
Þá mundirðu líka eiga tík og
kveða við raust:
Komdu tík og kysstu mig
kostarík, það veit jeg,
engar flíkur fela þig
fáar slíkar leit jeg.
Og leggja aðaláhersluna á mið-
rímið að íslenskum þjóðarsið.“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hárin brúsa í háan kamb
G
re
tt
ir
S
m
áf
ól
k
G
æ
sa
m
am
m
a
o
g
G
rí
m
ur
F
er
di
n
an
d
SÆKTU
PRIKIÐ ODDI!
EÐA FÁÐU ÞAÐ BARA Á HAUSINN,
ÉG HEF LÍKA GAMAN AF ÞVÍ
TÝPA
HVERS
ER ÉG?
ÞAÐ ER GÓÐ
SPURNING.
VIRKILEGA GÓÐ
SPURNING
ÞESSU ER EKKI AUÐVELT AÐ
SVARA. SVONA ER ÞAÐ
ÞEGAR STÓRT ER SPURT...
ÉG GET BARA
ÓMÖGULEGA
SVARAÐ ÞVÍ, ÞETTA
ER VIRKILEGA
ERFITT...
HJÁLP!
ÞETTA ER
RÉTT HJÁ ÞÉR
KAFTEINN,
ÞETTA ER
EINHVERSKONAR
KRÖFTUGUR
ORKUSKJÖLDUR
JÁ
GOTT!
ERTU BÚINN
AÐ FARA Í BAÐ,
GREIÐA Á ÞÉR HÁRIÐ,
BURSTA Í ÞÉR
TENNURNAR OG NÁ
SKÍTNUM UNDAN
NÖGLUNUM Á ÞÉR?
*ANDVARP* HÉRNA
ÁÐUR FYRR ÞURFTI ÉG BARA
AÐ ÞVO Á MÉR HENDURNAR
FYRIR MATINN
H
ró
lfu
r
hr
æ
ði
le
gi
HÆTTU
AÐ HUGSA UM
RAUÐHÆRÐU
STELPUNA, ÞÚ ERT
EKKI HENNAR
TÝPA
Aðlaðandi konur ættu að sleppa þvíað senda myndir með starfs-
umsóknum, ef marka má rannsókn,
sem gerð var í Ísrael. Tveir viðskipta-
fræðingar, Bradley Ruffle við Ben-
Gurion-háskóla og Ze’ev Shtudiner
við Ariel-háskóla, gerðu rannsóknina.
Þeir svöruðu starfsauglýsingum með
tveimur umsóknum, annarri mynda-
lausri, hinni með mynd. Fylgdu ýmist
myndir af „meðalandlitum“ eða sér-
deilis ásjálegum andlitum. Ruffle og
Shtudiner létu fjórar konur og fjóra
karla meta myndirnar og raða þeim á
fegurðarkvarða.
x x x
Mikill munur var á viðbrögðum eft-ir því hvort mynd fylgdi eða
ekki. Meðalsætum körlum var að
meðaltali boðið í viðtal við elleftu
hverja umsókn, en sætu körlunum við
fimmtu hverja. Hinum fyrrnefndu
hefði orðið betur ágengt hefðu þeir
ekki sent mynd. Þá hefðu þeir komist
í viðtal eftir sjö umsóknir að með-
altali. Þessar niðurstöður komu rann-
sakendunum ekki á óvart. Þeim brá
hins vegar þegar kom að konunum.
Eftir því sem konurnar, sem sóttu
um, voru fallegri fjölgaði synj-
ununum. Meðalfallegar konur kom-
ust í viðtal í sjöundu hverri tilraun,
aðlaðandi konur í áttundu hverri.
Þær sem sendu enga mynd komu
best út og fengu viðtal við sjöttu
hverja tilraun. Rannsakendurnir fóru
á stúfana og athuguðu málið.
x x x
Fyrst veltu þeir fyrir sér hvortljóskuþátturinn skipti máli. Þeir
létu dómnefndina, sem mat mynd-
irnar, einnig ráða í greind fólksins á
þeim og féll enginn í ljóskugildruna.
Þá athuguðu þeir hverjir sæju um
ráðningar. Nánast undantekning-
arlaust voru það konur, 85% ef ráðn-
ing fór fram innan fyrirtækis, en 96%
ef notast var við ráðningarfyrirtæki.
Leiða þeir þess vegna að því getum
að konur, sem sjá um ráðningar, vilji
ekki aðlaðandi konur á vinnustaðinn
vegna þess að þær keppi við þær um
athygli karlanna. Konur í ráðning-
arfyrirtækjum létu útlit kven-
umsækjenda sig reyndar einu gilda.
Allar féllu þær hins vegar fyrir sætu
körlunum.
Víkverji
Orð dagsins: Biðjið og yður mun gef-
ast, leitið og þér munuð finna, knýið
á, og fyrir yður mun upplokið verða.
(Matt. 7, 7.)