Morgunblaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2012 Nemendur Hagaskóla tíndu upp rusl í nágrenni hans í gær og tóku þar með áskorun borgar- starfsmanna um að hver og einn legði sitt af mörkum til að hreinsa borgina eftir veturinn. Börnin fóru um Vesturbæ í flokkum og fylltu hvern plastpokann af öðrum af kaffimálum, síg- arettupökkum, stubbum og flugeldarusli. Eftir vel unnið verk voru pylsur grillaðar í vorsólinni og nemendur borðuðu þær af bestu lyst. Veturinn kvaddur með vorhreinsun Morgunblaðið/Kristinn Nemendur Hagaskóla sýndu samfélagsábyrgð í verki Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Að öllu óbreyttu verður áhöfn Gull- vers sagt upp, alls 15 manns. Ef veiðigjaldafrumvarpið gengur fram í þeirri mynd sem það er í dag er fyrirtækið ekki rekstrarhæft. Það er svo einfalt. Þetta hefur áhrif á 60-70 manns ef starfsmenn í frystihúsi og á landi á Seyðisfirði eru taldir með,“ segir Adolf Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri Gullbergs ehf. á Seyð- isfirði og formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, um áhrifin sem frumvarpið hefði á rekstur eina útgerðarfyrirtækisins í plássinu. „Veiðigjaldið er allt of hátt. Það er ekki nægileg framlegð af rekstrinum til að standa undir því, greiðslu- afborgunum og almennum rekstri.“ Adolf og Steingrímur J. Sigfússon sjávarútvegsráðherra sátu í pall- borði á fundi Félags viðskiptafræð- inga og hagfræðinga í gær. Spurður út í málflutning Stein- gríms, sem hélt utan til Bandaríkj- anna síðdegis í gær og áður en vinnsla þessarar fréttar hófst, sagði Adolf ráðherrann hafa borið brigður á málflutning útvegsmanna í málinu. Skoðun ráðherrans væri sú að þeir gætu vel tekið á sig auknar álögur. „Það er í sjálfu sér eðlilegt að út- gerðin greiði sanngjarnt og eðlilegt veiðigjald. Það þarf hins vegar að vera með þeim formerkjum að eðli- lega rekin fyrirtæki geti staðið undir veiðigjaldinu og haldið starfsemi sinni áfram. Miðað við forsendur veiðigjaldafrumvarpsins mun meginþorri útgerðarfyrirtækja ekki ráða við gjaldtökuna. Það er tekið of mikið út úr rekstri þeirra.“ Ekki boðað til fundar Að sögn Adolfs lýsti Steingrímur sig reiðubúinn til að skoða eitt og annað í þeirri gagnrýni sem hefði komið fram. Ráðherrann hefði hins vegar látið ógert að bjóða fulltrúum útgerðarinnar til fundar með ríkis- valdinu, þótt eftir því hefði verið ósk- að á undanförnum þremur árum. Yrðu að segja upp áhöfninni  Framkvæmdastjóri Gullbergs á Seyðisfirði segir veiðigjaldafrumvarpið óráð  Framlegðin standi ekki undir gjaldinu  Ráðherra hyggst fara yfir gagnrýnina Er að renna út » Frestur til að skila um- sögnum vegna kvótafrum- varpanna rennur út á morg- un. » Steingrímur og Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð- herra kynntu frumvörpin á blaðamannafundi 26. mars sl.Hart tekist á Adolf og Steingrímur á fundinum á Grand hóteli í gær. Ein af afleiðingum jarðskjálftanna sem urðu á Suðurlandi í lok maí 2008 voru miklar breytingar á útbreiðslu jarðhita á svæðinu í kringum starfsstöð Landbúnaðarháskólans á Reykjum í Ölfusi. Þetta hafði m.a. í för með sér að verulega tók að hitna undir 45 ára gömlum sitkagreniskógi sem vaxið hafði fram að því á venjulegum, hrollköldum, íslenskum jarðvegi, eins og segir á vef Skógræktar ríkisins. Upphitunin er mismikil undir skóginum, allt frá því að vera brot úr gráðu þar sem langt er niður á jarðhitann og upp í allt að +50 °C þar sem grynnst er. Fáir, ef nokkrir, búa svo vel að geta rannsakað áhrif hækkandi jarðvegshita á svipaðan hátt og gerist í jarð- hitaskóginum, segir á skogur.is Í haust var því ákveðið að setja af stað forverkefni í sam- starfi nokkurra vísindamanna við Landbúnaðarháskóla Ís- lands og Rannsóknastöð skógræktar á Mógilsá, með það að markmiði að koma á fót alþjóðlegu rannsóknaverkefni á sviði jarðvegs- og skógvistfræði í jarðhitaskóginum á Reykjum. Verkefnið hefur fengið nafnið „Jarð- hitaskógurinn“ og núna, örfáum mánuðum eftir að verk- efnið var fyrst kynnt erlendis, eru formlegir þátttakendur í því orðnir 19, frá 5 íslenskum háskólum/rannsóknastofn- unum og fimm erlendum háskólum. aij@mbl.is Úr hrollkaldri jörðinni í upphitaða moldina Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Jarðhiti Námsmenn skoða jarðhitasvæðið á Reykjum.  Jarðhitaskógurinn á Reykjum vekur víða athygli Íslensk stjórn- völd hafa komið athugasemdum á framfæri við Evr- ópusambandið (ESB) vegna framgöngu þess vegna Icesave- málsins sem nú er komið fyrir EFTA- dómstólinn. Sem kunnugt er óskaði ESB eftir leyfi til meðalgöngu í Icesave-málinu. Í at- hugasemdinni felst að íslensk stjórn- völd telji þessa framkomu ESB óeðlilega gagnvart ríki sem á í við- ræðum um aðild að sambandinu. Kristján Guy Burgess, aðstoð- armaður utanríkisráðherra, sagði að haft hefði verið í sambandi við sendi- herra ESB á Íslandi, sem var stadd- ur erlendis, og var haldinn fundur embættismanna með staðgengli sendiherrans til að koma athuga- semdinni á framfæri. Einnig komu embættismenn athugasemdinni á framfæri við fulltrúa framkvæmda- stjórnar Evrópusambandsins í Brussel. Lögfræðileg merking hugtaksins meðalganga er „heimild manns til að ganga inn í dómsmál ef úrslit þess skipta hann máli“, samkvæmt Ís- lensku alfræðiorðabókinni. Íslensk stjórnvöld lögðu það í hendur EFTA-dómstólsins að ákveða hvort meðalganga framkvæmdastjórnar ESB yrði leyfð. gudni@mbl.is Fram- koma ESB óeðlileg ESB Bað um aðild að Icesave-málinu.  Athugasemd við ósk um meðalgöngu Rúta með 68 unglingum á leið í skólaferðalag fór út af veginum en valt þó ekki á vegamótum Nesja- vallavegar og Grafningsvegar í gær- kvöldi. Aðeins einn úr hópnum kenndi sér meins og var fluttur með sjúkrabíl til Reykjavíkur en meiðsli hans eru ekki talin alvarleg. Hinir sluppu ómeiddir. Fjölmennt lið lög- reglu og sjúkraliða fór á staðinn þegar tilkynnt var um slysið. Ekki liggur fyrir hvað varð til þess að rút- an fór út af veginum en talið er að bremsurnar hafi gefið sig. Ákveðið var að láta þetta ekki koma í veg fyr- ir fyrirhugað skólaferðalag og héldu unglingarnir áfram á áfangastað, þar sem fulltrúar frá Rauða krossi Íslands ætluðu að ræða við krakk- ana síðar í gærkvöldi um atburðinn. Rúta fór út af veginum Turninum 12. hæð - 201 Kópavogur - www.domusnova.is Markarflöt 21 - Garðabæ Axel Axelsson Löggiltur fasteignasali Heimir Bergmann Sími 822 3600 heimir@domusnova.is heimir.domusnova.is Smekklegt einbýlishús 5-6 herbergja á einni hæð ásamt 50 m2 bílskúr. Samtals 202,0 m2, þar af er íbúðin 152 m2. Verð 59,9 m. Verið velkomin. Gleðilegt sumar OPIÐ HÚS Í DAG 19. APRÍL FRÁ KL. 17.00-17.30

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.