Morgunblaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2012
Háaleitisbraut 66, 1O3 Reykjavík, Sími 528 44OO
Einnig er hægt að
hringja í söfnunar-
símann 9O7 2OO2,
gefa framlag á
framlag.is,
gjofsemgefur.is eða
á söfnunarreikning
O334-26-886,
kt. 45O67O-O499.
Valgreiðsla hefur verið send í
heimabanka þinn. Með því að greiða
hana styður þú innanlandsaðstoð
Hjálparstarfs kirkjunnar og hjálpar
til sjálfshjálpar.
Hjálpum heima
www.help.is
PI
PA
R\
TB
W
A
•
SÍ
A
•
12
07
4
4
Hjálparstarf kirkjunnar veitir fjölbreytta
aðstoð á Íslandi. Við hjálpum til sjálfshjálpar.
Nú styttist í sumarfrí hjá flestum.
Fyrir vikið er um að gera að huga
að öðru en vetri, sorg og sút og
hypja sig af klettinum kalda. Á vef-
síðunni inyourpocket.com má finna
upplýsingar um leyndar perlur í Evr-
ópu. Sérstaklega er lögð áhersla á
austanverða Evrópu og gaman er að
sjá hvað leynist í borgum eins og
Gdansk og Riga. Vefsíðan einblínir
nær eingöngu á borgirnar. Einnig
má þó finna umfjallanir um stöku
náttúruperlur sem margur ferða-
maðurinn hefur ekki séð. Á vefsíð-
unni má jafnframt sjá ummæli ann-
arra ferðalanga sem vilja benda
öðrum á eitthvað smálegt. Til að
mynda bendir einn á góðan ham-
borgara í Minsk í Hvíta Rússlandi og
annar á gott kaffihús í Plzen í Tékk-
landi. Eins eru þar unnar greinar frá
höfundum síðunnar sem segja nán-
ar frá einhverju sem einkennir við-
komandi borg. Iðngrein, listir eða
íþróttir svo dæmi séu nefnd.
Heimasíðan www.inyourpocket.com
Morgunblaðið/Eggert
Veðurblíða Erlendir ferðamenn á Laugavegi setja svip sinn á mannlífið.
,
Lífið er ferðalag
Grundartangakórinn og Óskar Pét-
ursson fagna sumri í Vinaminni á
Akranesi í dag kl 16.00 og annað
kvöld í Ytri-Njarðvíkurkirkju kl.
20.30. Með kórnum syngja einsöng
og tvísöng þeir Óskar Pétursson,
Smári Vífilsson, Bjarni og Guðlaugur
Atlasynir. Þá kemur Óskar Pétursson
fram með Tindatríóinu og munu þeir
flytja nokkur kvartettlög í anda Gal-
gopanna, sem gerðu garðinn fræg-
ann á Norðurlandi áður en Óskar tók
upp á því að syngja með bræðrum
sínum. Stjórnandi kórsins er Atli
Guðlaugsson en um hljóðfæraleik sjá
Flosi Einarsson á píanó og Rut Berg
Guðmundsdóttir á harmonikku og
þverflautu.Grundartangakórinn hefur
starfað af miklum þrótti í 32 ár og
hefur haldið söngskemmtanir víða
um land svo og erlendis.
Endilega …
… hlýðið á sumartónleika
Söngur Kórinn hefur starfað í 32 ár.
Karlakór Grafarvogs syngur inn sum-
arið í Grafarvogskirkju í dag, sumar-
daginn fyrsta. Kórinn var stofnaður
síðastliðið haust og eru þetta fyrstu
sjálfstæðu tónleikar hans. Þeir hefjast
klukkan 17 og er yfirskrift þeirra
„Syngjum inn sumarið saman“.
Auk karlakórsins kemur kvartettinn
Raddbandið fram á tónleikunum í
fyrsta skipti eftir nokkurra ára hlé.
Raddbandið skipa þeir Árni Jón Egg-
ertsson, Hafsteinn Sv. Hafsteinsson,
Páll Ásgeir Davíðsson og Sigurður
Grétar Sigurðsson. Hafsteinn er jafn-
framt félagi í Karlakór Grafarvogs og
mun hann einnig syngja einsöng með
kórnum ásamt því sem sönghóparnir
syngja saman nokkur lög.
Um 30 félagar eru í Karlakór Graf-
arvogs. Stjórnandi Karlakórs Graf-
arvogs er Íris Erlingsdóttir söngkenn-
ari og hafði hún veg og vanda af
stofnun kórsins. Píanóleikari á tón-
leikunum er Kjartan Valdemarsson.
Meðal laga á efnisskrá tónleikanna er
Ísland eftir Sigfús Einarsson og Hann-
es Hafstein, Rósin, eftir Friðrik Jóns-
son og Guðmund Halldórsson, Sungn-
ar verða þekktar söngperlur á
tónleikunum þeirra á meðal má nefna
Það er svo margt eftir Inga T. Lár-
usson og Einar E. Sæmundsson,
Kvöldið er fagurt sem er enskt þjóðlag
við ljóð Ingólfs Þorsteinssonar, rímna-
syrpan Stundum þungbær þögnin er
eftir Sigurð Breiðfjörð og fleiri, sem
sungið er við íslenskt þjóðlag sem Jón
Ásgeirsson útsetti og samdi hluta af.
Auk framangreindra laga eru ýmis
fleiri lög á efnisskránni. Meðal þeirra
laga sem Raddbandið syngur má
nefna lögin Kenndu mér að kyssa rétt,
Fljúgðu, Harðsnúna Hanna og Fyrsti
kossinn, en einnig munu Karlakór
Grafarvogs og Raddbandið syngja
saman þrjú lög: Lion sleeps tonight,
Banana Boat Song og Can’t help fall-
ing in love.
Tónleikar Karlakórs Grafarvogs
Syngja inn sumarið
Æfing Félagar í Karlakór Grafarvogs hefja upp raust sína, kórinn syngur á tónleikum í dag, sumardaginn fyrsta.
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Þ
að er nóg að gera og í
raun allt dálítið á suðu-
punkti í vinnustofu út-
skriftarnema Listahá-
skóla Íslands í fata-
hönnun þegar ljósmyndara og
blaðamann ber að garði síðdegis á
mánudegi. Framundan er tískusýn-
ing á útskriftarlínu nemendanna í
kvöld en þeir hafa síðustu daga lagt
lokahönd á hönnun sína.
Handprentað efni
Nemendur, fyrirsætur og
kennarar eru samankomnir á vinnu-
stofunni og nemendur mæla, máta
og sníða það sem þarf til að fatn-
aðurinn falli fullkomnlega að líkama
fyrirsætanna. Þetta er lokahnykk-
urinn og sá punktur sem allt námið
hefur miðað að svo spennan er að
sjálfsögðu nokkur.
„Þetta er stórt verkefni sem
allt þetta nám stefnir einhvern veg-
inn að. Þær eru 11 stelpur og hver
er með átta alklæðnaði en sumar
eru líka að gera fylgihluti. Þær eru
búnar að vera allt árið að vinna að
þessu og því mikil vinna sem liggur
að baki. Um 20% af náminu er
tæknilegt og þá læra nemendur að
sauma og sníða. Svo er prent-
námskeið þar sem þær læra að
prenta og margir nota handprentað
efni. Það er nokkuð erfitt að nálgast
efni hér svo þær eru dálítið í því að
búa til eigin efni, bródera, prjóna og
lita ull og prjóna úr henni. Í ár er
dálítið mikið af leðurfötum og eitt-
hvað af mokkaskinni og svo eitthvað
af „high tech“ efnum. Mikið af
þessu kaupum við frá fyrirtækjum í
Framsækin fata-
hönnun framtíðar
Útskriftarsýning fatahönnunarnema í Listaháskóla Íslands fer fram í kvöld. Þar
sýna nemendur afrakstur vetrarins en hver og einn nemandi hannar átta al-
klæðnaði. Algengt er að nemendur handgeri efnin sem fatnaðurinn er gerður úr
en í ár er leður og mokkaskinn vinsælt í bland við meiri framtíðarefni.
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Spekúlerað Linda Björg Árnadóttir fer yfir málin með nemendum sínum.
Vandvirkni Handtökin á lokasprettinum geta verið ansi mörg.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.