Morgunblaðið - 19.04.2012, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2012
✝ Svan Frið-geirsson, húsa-
smíðameistari og
fyrrum stöðv-
arstjóri, fæddist 9.
nóvember 1927 á
Akureyri. Hann
lést á Droplaug-
arstöðum 31. mars
2012.
Svan var sonur
hjónanna Friðgeirs
Vilhálmssonar, f.
1893, d. 1955 og Sigurlaugar
Svanlaugsdóttur, f. 1904, d.
1991. Eldri systir Svans var
Selma, f. 1922, d. 2009.
Svan kvæntist 21. maí 1949
eftirlifandi eiginkonu sinni,
Ernu Hreinsdóttur frá Hrísey,
f. 1928. Þau eignuðust tvö
börn; Guðrúnu líffræðing, for-
stöðumann við Blóðbankann, f.
1952 og Geir, bókmenntafræð-
ing, f. 1957. Guðrún er gift Sig-
urði Svavarssyni bókaútgef-
anda. Þau eiga tvö börn;
Svavar, f. 1975, sambýliskona
hans er Virginie Cano og þau
eiga synina Maël og Raphaël
Svan, og Ernu, f. 1977, hennar
maður er Joseph Johns og þau
eiga Viktoríu Guðrúnu og
Magnús James. Geir býr með
Irmu Erlingsdóttur, lektor í
frönskum samtímabók-
menntum og forstöðumanni við
HÍ. Þeirra dætur eru Gríma, f.
1996 og Svanhildur, f. 2002.
Svan fluttist
suður til Reykja-
víkur á unglings-
árum og lærði
húsasmíði. Hann
vann fyrst um sinn
við iðngrein sína
en starfaði lengst
af sem stöðv-
arstjóri hjá BP,
síðar Olís. Hann
reisti sér og sínu
fólki tvívegis hús,
fyrst í Langagerði, síðar í
Grundarlandi.
Svan lagði stund á íþróttir
frá unga aldri og segja má að
þær hafi mótað lífsferil hans.
Hann keppti á skíðum, í hand-
knattleik, knattspyrnu og golfi.
Hann vann Íslandsmeistaratitla
með Fram í boltagreinunum og
lék með landsliðum eldri kylf-
inga í golfi. Svan lagði sig ekki
síður fram í félagsstörfum en
keppni. Hann gegndi for-
mennsku í handknattleiksdeild
Fram og vann margvísleg störf
fyrir Golfklúbb Reykjavíkur,
var m.a. kosinn formaður
klúbbsins í þrígang, 1970-72,
1976 og 1981-82, auk þess sem
hann lagði hart að sér við upp-
byggingu golfvalla félagsins.
Svan hlotnaðist margvíslegur
heiður fyrir störf sín á vett-
vangi íþróttanna.
Svan var jarðaður í kyrrþey
13. apríl 2012 að eigin ósk.
Svan tengdafaðir minn var
mikill atorkumaður og hafði
jafnan hratt á hæli, enda verk-
efnin mörg sem þurfti að kljást
við – og eljan ótrúleg. Ég kynnt-
ist honum á því skeiði lífs hans
þegar allt var á útopnu; vinnan
sannarlega krefjandi og mikil,
en börnin nánast uppkomin
þannig að unnt var að sinna
áhugamálunum, golfinu og
stangveiðinni, af kappi ef vök-
ustundirnar voru nægilega vel
nýttar. Þegar fyrstu barnabörn-
in litu svo dagsins ljós tókst
einnig að finna dýrmætan tíma
handa þeim.
Svan fæddist norður á Ak-
ureyri og var strax allmikill fyr-
ir sér. Hann fékk útrás í íþrótt-
um frá barnsaldri; skíði,
skautar, handbolti, fótbolti.
Hann flutti suður til Reykjavík-
ur með foreldrum sínum á ung-
lingsaldri, þá hafði hann þegar
kynnst konuefni sínu, Ernu
Hreinsdóttur frá Hrísey, og leið-
ir þeirra fléttuðust saman upp
frá því, allt til hinstu stundar.
Fyrir sunnan hélt íþróttaiðk-
unin áfram. Svan lék handbolta
og fótbolta með Fram og vann
til Íslandsmeistaratitla. Jafn-
framt lærði hann húsasmíði og
öðlaðist meistararéttindi í þeirri
grein. Hann byggði tvívegis hús
yfir fjölskylduna, fyrst í Langa-
gerði 120, og síðar í Grundar-
landi 1.
Lengstan hluta starfsævinnar
starfaði Svan hjá Olíuverslun Ís-
lands, sem stöðvarstjóri í Laug-
arnesinu. Starfið fól í sér eftirlit
með afgreiðslustöðvum á lands-
byggðinni, þannig að hann fór
ófáar ferðir um landið. Hann var
allajafna á öflugum bílum og fór
hratt yfir. Þó mér liði ævinlega
vel með Svan, var ég samt aldrei
rór með honum í bíl.
Golfið átti hug Svans eftir að
hann ánetjaðist því. Hann var
góður golfari og ákafur keppn-
ismaður, lék m.a. með landslið-
um eldri kylfinga. Áhuginn var
þó ekki síður bundinn við fé-
lagsstarfið og uppbyggingu
Golfklúbbs Reykjavíkur. Hann
settist í formannsstól alls þrisv-
ar sinnum og starfaði einnig
sem vallarstjóri. Ég lék með
honum nokkra hringi og
ástríðan leyndi sér ekki. Honum
var umhugað um að menn um-
gengjust vellina af virðingu,
virtu meðspilara og reglur leiks-
ins, og hafði takmarkaða þol-
inmæði gagnvart þeim sem það
gerðu ekki.
Barnabörnin fékk Svan í
tveimur hollum, með um 20 ára
millibili. Þegar dætur Geirs
fæddust var hann að ljúka
starfsævinni og gaf sér ríkuleg-
an tíma í afastúss. Sérlega fal-
legt var að fylgjast með sam-
bandi hans og Grímu;
umhyggjunni, natninni og ást-
úðinni. Hann fékk þó ekki að
njóta ævikvöldsins til fulls, því
endurtekin áföll rýrðu lífsgæði
hans og færðu þennan ákafa-
mann að hliðarlínunni. Barna-
börn og barnabarnabörn kveiktu
þó glóð í augum hans alla tíð.
Því er stundum haldið fram
að fólk verði íhaldssamara með
aldrinum. Það átti svo sannar-
lega ekki við um Svan. Sem ein-
lægur jafnaðarmaður gladdist
hann þegar Samfylkingin var
stofnuð og átti sér stóra
drauma. Hann sótti fundi og var
ávallt reiðubúinn að segja vinum
til vamms. Hann fylgdist með
stjórnmálunum meðan hugurinn
entist.
Mikill höfðingi hefur kvatt
okkur og ég á eftir að sakna
hans sárt, eins og fólkið hans
allt. Vertu nú kært kvaddur,
Svan, og hafðu þökk fyrir allt og
allt.
Sigurður Svavarsson.
Svan Friðgeirsson
Elskulegur afi minn var besti
afi sem hægt er að hugsa sér.
Eiginlega bara mesti snillingur
sem ég hef nokkurn tímann
kynnst. Mér finnst leiðinlegt að
ég hafi aldrei náð að segja hon-
um það.
Síðustu dagar hafa verið
heldur betur óraunverulegir.
Það er erfitt að ímynda sér lífið
án afa sem hefur alltaf verið til
staðar. Það tekur mig sárt að
síðustu jól hafi verið síðustu jól-
in okkar saman og að ég fái ekki
lengur símtöl frá honum þar
sem hann segir „Hæ, þú varst
að hringja, er allt í lagi? Viltu að
ég komi og sæki þig?“ af því að
hann var fyrstur í símaskránni í
gsm-símanum og ég var alltaf að
hringja óvart í hann. Já, það er
óraunverulegt að hann sé ekki
lengur hjá okkur. En eins og
amma benti mér á þá var það nú
alveg í hans anda að fara svona
fljótt. Hann var alltaf svo
stressaður og hlutirnir urðu
helst að gerast í gær sem mér
þótti nú ekkert leiðinlegt þegar
ég var yngri og vildi láta mála
herbergið mitt eða eitthvað í þá
veruna. Þá bað ég bara afa um
það svo að það myndi gerast
strax. Enda erfði ég óþolinmæð-
ina frá honum.
Það er ótrúlegt að hugsa til
þess að það sé ekki einu sinni
liðið ár síðan hann hjálpaði mér
Stefán Ágúst
Stefánsson
✝ Stefán ÁgústStefánsson
fæddist í Reykjavík
3. október 1940.
Hann lést á krabba-
meinsdeild Land-
spítalans við Hring-
braut 1. apríl 2012.
Útför Stefáns fór
fram frá Fríkirkj-
unni í Hafnarfirði
10. apríl.
að flytja búslóðina
uppá þriðju hæð.
Hann var alltaf svo
hress að ég hélt ég
ætti eftir að geta
notið samvista við
hann í að minnsta
kosti 20 ár til við-
bótar og að hann
fengi tækifæri til
að spilla barna-
barnabörnunum
sínum eins og hann
hefur spillt okkur barnabörnun-
um. Enda sagði pabbi einu sinni
við mig að hann hlakkaði svo til
að eignast barnabörn svo að
hann gæti gert þau jafn óþæg
og afi hafði gert okkur systk-
inin.
Á svona stundum er gott að
eiga góðar og fallegar minning-
ar og ég er svo lánsöm að eiga
ógrynni af þeim. Við systkinin
höfum alltaf verið svo mikið með
ömmu og afa og eigum ekkert
nema yndislegar minningar um
þau og munum að sjálfsögðu
halda áfram að búa til góðar
minningar með ömmu.
Amma og afi hafa alltaf verið
til staðar fyrir mig og tekið þátt
í því sem ég hef tekið mér fyrir
hendur. Þau mættu til dæmis á
fótboltaleiki, fimleikamót,
fylgdu mér út á flugvöll þegar
ég flutti til útlanda og sendu
mér reglulega pakka með ís-
lenskum mat og sælgæti – það
þótti mér vænt um. Ég á líka
dýrmætar minningar frá sum-
arfríum með ömmu og afa, bæði
í Reykjavík og á ferðalögum um
landið. Það er gott að eiga svona
ömmu og afa.
Fyrsti apríl, dagur tileinkað-
ur gríni og hrekkjum, er mjög
viðeigandi dánardagur afa.
Verst er að hann hafi ekki verið
eftir mörg ár. Telja mætti að
hann hafi sjálfur valið sér þenn-
an dánardag þar sem hann var
mikill brandarakall og stríðnis-
púki. Hann hafði gott lag á því
að hrista upp í fólki. Ég brosi
bara við tilhugsunina.
Ég sakna þín, elsku afi minn!
Arna Rut Þorleifsdóttir.
Elsku Stebbi.
Okkur langaði með nokkrum
orðum að kveðja þig, elsku vin-
ur, og þakka þér fyrir samfylgd-
ina. Það er enginn vafi í okkar
huga að samverustundir fjöl-
skyldna okkar verða ekki eins
fjörugar án þín.
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
x
Drottinn minn réttu sorgmæddri
sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að
morgni.
x
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér
nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Hvíl í friði elsku vinur, við
munum ræða enska boltann
seinna.
Elsku Oddný, Hulda, Róbert,
Vignir og fjölskyldur. Ykkur
vottum við okkar innilegustu
samúð.
Katrín Heiða, Þórdís og Jón.
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Borgarbraut 25 A, fnr. 211-1029, Borgarnesi, þingl. eig. Einar Páll
Pétursson, gerðarbeiðendur Arion banki hf. og Sýslumaðurinn í
Borgarnesi, miðvikudaginn 25. apríl 2012 kl. 13:50.
Borgarbraut 26, fnr. 211-1032, Borgarnesi, þingl. eig.Torfi Júlíus Karls-
son og Ingunn Jóhannesdóttir, gerðarbeiðandi Arion banki hf., mið-
vikudaginn 25. apríl 2012 kl. 14:00.
Brákarbraut 1, fnr. 211-1160, Borgarnesi, þingl. eig. Karl IngiTorfason,
gerðarbeiðendur Arion banki hf. og Vátryggingafélag Íslands hf., mið-
vikudaginn 25. apríl 2012 kl. 13:30.
Brákarbraut 17, fnr. 211-1198, Borgarnesi, þingl. eig. Propagator ehf.,
gerðarbeiðandi Sjóvá- Almennar hf., miðvikudaginn 25. apríl 2012
kl. 13:40.
Garðavík 13, fnr. 211-1338, Borgarnesi, þingl. eig. Guðný Guðjónsdótt-
ir, gerðarbeiðandi Arion banki hf., miðvikudaginn 25. apríl 2012 kl.
14:10.
Sýslumaðurinn í Borgarnesi,
18. apríl 2012.
Stefán Skarphéðinsson, sýslumaður.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Bíldshöfði 12, 204-3165, Reykjavík, þingl. eig. Víking ehf., gerðarbeið-
andi Reykjavíkurborg, þriðjudaginn 24. apríl 2012 kl. 11:00.
Bíldshöfði 18, 222-2985, Reykjavík, þingl. eig. Kvikkhúseign ehf., gerð-
arbeiðendur Íslandsbanki hf. og Reykjavíkurborg, þriðjudaginn
24. apríl 2012 kl. 11:30.
Funahöfði 17, 204-3047, Reykjavík, þingl. eig. Víking ehf., gerðarbeið-
andi Reykjavíkurborg, þriðjudaginn 24. apríl 2012 kl. 10:00.
Funahöfði 17, 222-1498, Reykjavík, þingl. eig. Víking ehf., gerðarbeið-
andi Reykjavíkurborg, þriðjudaginn 24. apríl 2012 kl. 10:15.
Funahöfði 17, 222-1499, Reykjavík, þingl. eig. Víking ehf., gerðarbeið-
andi Reykjavíkurborg, þriðjudaginn 24. apríl 2012 kl. 10:30.
Gnoðarvogur 82, 202-3562, Reykjavík, þingl. eig. db. Bjarneyjar Alex-
andersdóttur, gerðarbeiðandi Geysir 2008-I Institutional Inverstor
Fund, þriðjudaginn 24. apríl 2012 kl. 14:00.
Gunnarsbraut 42, 201-2175, Reykjavík, þingl. eig. Áslaug Nanna
Ingvadóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Reykjavíkurborg,
þriðjudaginn 24. apríl 2012 kl. 14:30.
Skipasund 21, 201-8211, Reykjavík, þingl. eig. Viðar Garðarsson,
gerðarbeiðandi Reykjavíkurborg, þriðjudaginn 24. apríl 2012 kl. 13:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
18. apríl 2012.
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Barðastaðir 39, 225-9993, Reykjavík, þingl. eig. Hildur Guðlaug Hall-
varðsdóttir og Ragnar Heiðar Júlíusson, gerðarbeiðendur Byko ehf.,
Frjálsi fjárfestingarbankinn hf., Reykjavíkurborg og Sýslumaðurinn á
Blönduósi, mánudaginn 23. apríl 2012 kl. 13:30.
Barmahlíð 35, 203-0626, Reykjavík, þingl. eig. Emilía B. Jóhannesdótt-
ir, gerðarbeiðendur Arion banki hf. og Reykjavíkurborg, mánudaginn
23. apríl 2012 kl. 10:30.
Fífurimi 38, 204-0439, Reykjvík, þingl. eig. Ingibjörg Jensdóttir, gerðar-
beiðandi Íslandsbanki hf., mánudaginn 23. apríl 2012 kl. 14:00.
Miðtún 17, 200-9582, Reykjavík, þingl. eig. db. Péturs Hólmsteins-
sonar, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður og Sparisjóður Rvíkur og
nágr., útib., mánudaginn 23. apríl 2012 kl. 11:00.
Silfurteigur 1, 201-9045, Reykjavík, þingl. eig.Tinna Aðalbjörnsdóttir,
gerðarbeiðandi Íslandsbanki hf., mánudaginn 23. apríl 2012 kl. 11:30.
Skólavörðustígur 19, 200-6141, Reykjavík, þingl. eig. Sigurður Pálmi
Ásbergsson, gerðarbeiðendur Kreditkort hf., Reykjavíkurborg ogToll-
stjóri, mánudaginn 23. apríl 2012 kl. 10:00.
Vagnhöfði 17, 204-3115, Reykjavík, þingl. eig. Víking ehf., gerðarbeið-
andi Reykjavíkurborg, mánudaginn 23. apríl 2012 kl. 14:30.
Vagnhöfði 17, 223-2183, Reykjavík, þingl. eig. Víking ehf., gerðarbeið-
andi Reykjavíkurborg, mánudaginn 23. apríl 2012 kl. 14:45.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
18. apríl 2012.
Morgunblaðið birtir minning-
argreinar endurgjaldslaust
alla útgáfudaga.
Skil | Þeir sem vilja senda Morg-
unblaðinu greinar eru vinsamlega
beðnir að nota innsendikerfi
blaðsins. Neðst á forsíðu mbl.is
má finna upplýsingar um innsend-
ingarmáta og skilafrest. Einnig
má smella á Morgunblaðslógóið
efst í hægra horninu og velja við-
eigandi lið.
Skilafrestur | Sé óskað eftir birt-
ingu á útfarardegi þarf greinin að
hafa borist á hádegi tveimur virk-
um dögum fyrr (á föstudegi ef út-
för er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, jafnvel þótt grein
hafi borist innan skilafrests.
Lengd | Hámarkslengd minning-
argreina er 3.000 slög. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum. Hægt er að senda stutta
kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur.
Formáli | Minningargreinum
fylgir formáli sem aðstandendur
senda inn. Þar kemur fram hvar
og hvenær sá sem fjallað er um
fæddist, hvar og hvenær hann lést
og loks hvaðan og hvenær útförin
fer fram. Þar mega einnig koma
fram upplýsingar um foreldra,
systkini, maka og börn, svo og
æviferil. Ætlast er til að þetta
komi aðeins fram í formálanum,
sem er feitletraður, en ekki í
minningargreinunum.
Undirskrift | Minningargreina-
höfundar eru beðnir að hafa
skírnarnöfn sín undir greinunum.
Minningargreinar
✝
Hjartans þakkir til ykkar allra sem sýnduð
okkur samúð og hlýju vegna andláts og
útfarar elskulegs eiginmanns míns og vinar,
föður, tengdaföður, afa og langafa,
JÓNS MARINÓS KRISTINSSONAR.
Innilegt þakklæti til alls starfsfólks á
hjúkrunarheimilinu Garðvangi Garði fyrir
einstaka umönnun og hlýju í hans garð.
Guð blessi ykkur öll.
Sonja I. Kristensen,
börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn.