Morgunblaðið - 19.04.2012, Qupperneq 34
34 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 19. APRÍL 2012
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
Nemendaleikhús Listaháskóla Ís-
lands frumsýnir nýtt íslenskt leikrit
sem nefnist Óraland annað kvöld í
Smiðjunni kl. 20:00. Verkið er
spunaverk og samið af leikaranem-
unum sjálfum í samvinnu við list-
ræna stjórnendur sýningarinnar
þau Jón Atla Jónasson og Unu Þor-
leifsdóttur, sem jafnframt er leik-
stjóri sýningarinnar.
Að sögn Jóns Atla var ekkert
handrit fyrir hendi þegar hópurinn
byrjaði vinnu sína, aðeins spurn-
ingar þátttakenda og vangaveltur
þeirra um stöðu einstaklingsins í
samfélagi þar sem sjónarspil og órar
eru allsráðandi.
Hvert er gjaldið?
„Hvatinn að þessu verkefni er að
gera leiksýningu um samtímann. Við
lifum í samfélagi þar sem við stönd-
um ekki með neinu eða neinum, við
veljum ekkert og þar með höfnum
við heldur ekki neinu. Meðal þess
sem við rannsökum í sýningunni er
hvaða verði sú afstaða er keypt.
Eins skoðum við hvað má og má ekki
fjalla um í leikhúsi og einnig hvar
mörkin milli raunveruleikans og
fantasíunnar liggja,“ segir Jón Atli
og tekur fram að notast hafi verið við
margvíslegar aðferðir í vinnuferlinu,
s.s. spuna, trúðatækni, skrifaðan
texta þátttakenda sem og lánaðan og
stolinn texta eins og opinberar yf-
irlýsingar, afsökunarbeiðnir og
blaðaviðtöl. „Síðan ritstýrði ég hand-
ritinu,“ segir Jón Atli þegar hann er
spurður nánar um eigin aðkomu.
Aðspurður segir Jón Atli sýn-
inguna vera pólitíska. „Enda er allt
leikhús pólitískt, hvort heldur leikinn
er klassískur texti eða Galdrakarlinn
í Oz. Því það er alltaf pólitísk ákvörð-
un hvað sett er á svið og hvað ekki,“
segir Jón Atli.
Spurður um gildi þess að leiklist-
arnemendur fái tækifæri til þess að
móta handrit sýningar líkt og raunin
er í Óralandi segir Jón Atli það mjög
mikið. „Það skerpir á því að þau eru
líka skapandi listamenn, en ekki bara
túlkandi. Það verður þeim líka gott
veganesti fyrir framhaldið að hafa
reynslu af því að skapa sýningu frá
grunni,“ segir Jón Atli að lokum.
Óraland er nýtt íslenskt leikrit hjá Nemendaleikhúsinu
Leiksýning um
óra samtímans
HULDA BJÖRK GARÐARSDÓTTIR · GISSUR PÁLL GISSURARSON / ÞÓRA EINARSDÓTTIR · GARÐAR THÓR CORTES
ÁGÚST ÓLAFSSON · HRÓLFUR SÆMUNDSSON · JÓHANN SMÁRI SÆVARSSON
HERDÍS ANNA JÓNASDÓTTIR · BERGÞÓR PÁLSSON
HLJÓMSVEITARSTJÓRI: DANÍEL BJARNASON · LEIKSTJÓRI: JAMIE HAYES
LEIKMYND: WILL BOWEN · BÚNINGAR: FILIPPÍA ELÍSDÓTTIR · LÝSING: BJÖRN BERGSTEINN GUÐMUNDSSON
„Tímamótaviðburður í tónlistarlífinu“
- Jónas Sen, Fréttablaðið
„Frábær skemmtun og frammistaða“
- Ríkharður Örn Pálsson, Morgunblaðið
„Þarna verða til sannir töfrar...
Maður tók andköf í glæsilegustu aríunum“
- Silja Aðalsteinsdóttir, tmm.is
„Bravo! Bravi! Bravissimo!“
- Ólafur Arnarson, pressan.is
FÖSTUDAGINN 20. APRÍL KL. 20 - UPPSELT
LAUGARDAGINN 21. APRÍL KL. 20 - LOKASÝNING
- Hugo Shirley, Daily Telegraph, London
„Rosaleg upplifun... Sjónarspilið var magnað...
Snilldarlega vel sett upp“
- Ingi Þór Jónsson og Kristjana Stefánsdóttir,
Listræninginn á Rás 1
„Stórkostleg sýning í öllu tilliti...
Sennilega besta uppfærsla sem ég hef séð
hjá Íslensku óperunni“
- Helgi Jónsson, Víðsjá á Rás 1
MIÐASALA Í HÖRPU OG Á WWW.HARPA.IS
ALLRA SÍÐUSTU SÝNINGAR UM HELGINA
Gróska, félag myndlistarmanna í
Garðabæ og á Álftanesi, heldur
sína fjórðu samsýningu sumardag-
inn fyrsta á göngugötunni Garða-
torgi 3 og í sal Grósku á annarri
hæð undir yfirskriftinni „Vor“.
Þóra Einarsdóttir formaður
Grósku opnar sýninguna kl. 15 og
spilar Stórsveit tónlistaskóla
Garðabæjar nokkur lög við það
tækifæri. Kl. 16.30 verður haldið
uppboð á 27 málverkum úr
„Keðjuverki I“ og „Keðjuverki II“
undir stjórn Gunnars Gunn-
arssonar.
Keðjuverk I var unnið af þrettán
listamönnum helgina 28. og 29.
janúar sl. og og Keðjuverk II unnu
fjórtán listamenn 17. mars og 12.
apríl. Verkin voru unnin þannig að
listamennirnir máluðu hver á sinn
striga í um 10 mínútur þegar strig-
inn var færður til næsta manns og
svo koll af kolli þangað til allir
voru búnir að mála á alla strigana.
Sýningin stendur til 29. apríl.
Sumarsýning
Grósku
Verk gömlu meistaranna verða í
forgrunni á tónleikunum á laugar-
dag. Þar fá viðstaddir tækifæri til
að fylgjast með hljóðfæraleik-
urunum úr návígi og spyrja þá
spurninga um m.a. verkin og tón-
skáldin.
Efnisskráin er sérstaklega sett
saman með leikskólabörn, yngri
grunnskólabörn og fjölskyldur
þeirra í huga.
Aðgangur á tónleikana er ókeyp-
is og allir velkomnir.
Kammersveit Reykjavíkur heldur
tvenna tónleika fyrir börn á Barna-
menningarhátíð í Reykjavík. Þeir
fyrri verða í Tjarnarbíói í dag kl. 14
og þeir seinni í Iðnó á laugardaginn
kemur kl. 14. Á tónleikunum í dag
verður áheyrendum gefin innsýn í
heim nútímatónlistar með því að
fylgjast með flutningi tveggja nýrra
tónverka, annars vegar Laur eftir
Guðmund Stein Gunnarsson og
Karaoke eftir Inga Garðar Er-
lendsson.
Nýtt í bland við
gömul tónverk
Fjölbreytt Kammersveit Reykjavíkur ásamt Guðmundi Steini Gunnarssyni.
Kammersveit Reykjavíkur með
tvenna tónleika á Barnamenningarhátíð