Morgunblaðið - 24.04.2012, Side 6

Morgunblaðið - 24.04.2012, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2012 PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 12, föstudaginn 27. apríl. NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir kata@mbl.is Sími: 569-1105 Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um Íslandsmótið Pepsí-deild karla í knattspyrnu 4. maí. Farið verður um víðan völl og fróðlegar upplýsingar um liðin sem leika sumarið 2012. ÍSLANDSMÓTIÐ PEPSÍ-DEILD KARLA Í KNATTSPYRNU 2012 –– Meira fyrir lesendur SÉRBLAÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Verði frumvörp um stjórn fiskveiða og veiðigjöld að lögum er óhjá- kvæmilegt að þau stuðli að veikara gengi krónunnar, segir m.a. í um- sögn Landssambands íslenskra út- vegsmanna, Samtaka fiskvinnslu- stöðva og Samtaka atvinnulífsins um frumvörpin. Samtökin sendu at- vinnuveganefnd Alþingis umsögn sína í gær og segir þar að frumvörpin feli í sér að verið sé að breyta núgild- andi fiskveiðistjórnunarkerfi í skatt- kerfi. Samtökin eru í öllum aðal- atriðum ósammála efni frumvarp- anna og segir í umsögninni að áform stjórnvalda muni færa umhverfi ís- lensks sjávarútvegs áratugi aftur í tíma. Bent er á að frumvörpin hafi verið unnin án samráðs við hagsmunaaðila og þá sem þekkja til reksturs fyrir- tækja sem stunda veiðar og vinnslu sjávarafurða. Með frumvörpunum sé lagt til að breyta grundvallarfor- sendum í rekstri fyrirtækjanna með því annars vegar að banna frjálst framsal aflahlutdeildar og auka póli- tíska úthlutun aflaheimilda og hins vegar með ofurskattlagningu sem leiða muni til fjöldagjaldþrota í greininni. Í frumvörpunum sé lagt til að gera upptækan til ríkissjóðs meira eða minna allan hugsanlegan hagnað af rekstri sjávarútvegsfyrir- tækjanna og að auki sé lagt til að auka jafnt og þétt ráðherraúthlutun aflaheimilda. Átök á vinnumarkaði Í umsögninni segir: „Frumvörpin ógna tilveru fyrirtækja sem tengjast og byggja á rekstri sjávarútvegsfyr- irtækja, setja hag og framtíð starfs- manna fyrirtækja í uppnám og skap- ar mikla óvissu um hagsmuni margra byggðarlaga. Augljóst er að stór- aukin skattlagning á sjávarút- vegsfyrirtækin mun hafa alvarleg áhrif á landsbyggðina enda eru sjávarútvegsfyrirtækin burðarásar í fjölmörgum samfélögum á lands- byggðinni. Ein afleiðing þessara frumvarpa er sú að með þeim er veg- ið að hlutaskiptakerfi gildandi kjara- samninga sjómanna og útgerð- armanna. Kerfið mun ekki geta staðið óbreytt eftir svona grundvall- arbreytingu og slíkt kallar á heildar- endurskoðun sem mun fyrirsjáan- lega leiða til alvarlegra átaka á vinnumarkaði. Verði frumvörpin að lögum mun sjávarútvegurinn smám saman drag- ast aftur úr öðrum atvinnugreinum, keppinautum sínum í öðrum löndum og laun sjómanna og annars starfs- fólks rýrna. Fjárfestingar munu minnka, rannsóknir og nýsköpun bíða hnekki og langtímahugsun mun víkja fyrir skammtímaráðstöfunum. Allt þetta mun einnig hafa áhrif langt út fyrir sjávarútveginn sjálfan. Um frumvörpin getur því aldrei orðið sátt – hvorki við sjávarútveginn sjálfan né annað atvinnulíf í landinu.“ Dregur úr skilvirkni Í umsögninni segir að styrkur gjaldmiðilsins til lengri tíma ráðist fyrst og fremst af skilvirkni atvinnu- lífsins, ekki síst útflutningsgreina, og framleiðniþróun í samanburði við keppinauta á alþjóðlegum markaði. Áformaðar breytingar muni draga strax úr skilvirkni sjávarútvegsins og hamla getu hans til framþróunar, aukinnar framleiðni og verðmæta- sköpunar til lengri tíma. Raungengi krónunnar, þ.e. inn- lend launa- og verðlagsþróun í er- lendri mynt, muni láta undan síga enn frekar en orðið er og valda sí- versnandi lífskjörum almennings. Hætt er við að sú þróun muni stuðla að stöðugum kjaraátökum og ófriði á vinnumarkaði þar sem launaþega- samtök muni leitast við að endur- heimta fyrri kaupmátt sem ekki verð- ur innstæða fyrir og því muni afleiðingarnar birtast í stigmagnandi víxlverkunum gengislækkana, verð- bólgu og kauphækkana sem af illu einu eru þekktar frá áttunda og ní- unda áratug síðustu aldar. „Verði frumvörpin að lögum munu þau augljóslega kollvarpa rekstri sjáv- arútvegsfyrirtækja, aflahlutdeildir verða gerðar upptækar og verðlausar á næstu 20 árum, stórauka skatt- heimtu á sjávarútveginn með þeim hætti að í raun er um eignaupptöku að ræða, innleiða skammtímasjónarmið sem grafa undan ábyrgri nýtingu nytjastofna og auka verulega óvissu í atvinnugreininni,“ segir í umsögninni. Fiskveiðistjórn breytt í skattkerfi  Harðorð umsögn LÍÚ, SF og SA um fiskveiðifrumvörpin  Setja hag og framtíð starfsmanna í uppnám  Stuðla að veikara gengi  Ógna tilveru fyrirtækja  Óvissa um hag margra byggðarlaga Hækkun veiðigjalds á landshluta G ru nn ko rt /L of tm yn di re hf . H ei m ild :D el oi tt e Frumvörp til laga um stjórn fiskveiða - Áhrif á starfandi sjávarútvegsfyrirtæki Veiðigjald fyrirtækja í 10 gjaldhæstu sveitarfélögunum Veiðigjald í milljónum Á hvern Hlutfall Bæjarfélög króna íbúa í% Vestmannaeyjar 3.716 886.805 15,9% Fjarðabyggð 2.964 644.413 12,7% Reykjavíkurborg 2.678 22.544 11,5% Akraneskaupstaður 1.466 222.438 6,3% Grindavíkurbær 1.436 507.247 6,2% Akureyrarkaupstaður 1.379 77.114 5,9% Hornafjörður 1.308 611.259 5,6% Snæfellsbær 817 469.484 3,5% Ísafjörður 751 200.357 3,2% Fjallabyggð 696 341.207 3% Veiðigjald eins og það reiknast út samkvæmt ákvæðum frumvarpsins miðað við úthlutun fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 (í m. kr.) Álagt veiðigjald fyrir fiskveiðiárið 2011/2012 ím.kr. (9,46krónur áhvert þorskígildi) Veiðigjald á íbúa ef veiðigjaldafrumvarpið verður samþykkt (í kr.) 1. 42 5 25 9 20 2. 19 2 Vestfirðir 2. 81 0 45 2 18 2. 80 9 Vesturland 3. 03 9 4 86 14 .9 28 Höfuðb.- svæðið 2. 18 6 38 6 10 2. 87 4 Suðurnes 5. 40 5 75 5 20 8. 86 1 Suðurland 3. 69 6 46 8 36 1. 60 6 Austur- land 4. 03 1 60 5 13 8. 89 3 Norður- land eystra 71 4 12 1 99 .1 17 Norður- land vestra Með umsögn LÍÚ, SA og SF fylgir álitsgerð frá LEX lögmannsstofu, undirrituð af Karli Axelssyni, Ás- gerði Ragnarsdóttur og Huldu Árnadóttur. Eftir að hafa fjallað um ýmis álitaefni segir svo í samantekt: „Að teknu tilliti til þessa telja undirrituð að ákvæði frumvarp- anna hafi veruleg neikvæð áhrif á rekstur aðila sem starfa við fiskveiðar og geti jafnvel leitt til þess að hann leggist af. Er þá gengið afar langt í þá veru að svipta slíka aðila með öllu grund- velli atvinnuréttinda sem njóta stjórnarskrárverndar eða í öllu falli takmarka slík réttindi með stórfelldum hætti. Í samræmi við þetta er það mat undirritaðra að fyrirliggjandi frumvörp skerði at- vinnuréttindi núverandi hand- hafa aflaheimilda með ótvíræð- um hætti og þá þannig að það fái ekki staðist eignarréttarákvæði 72. gr. stjórnarskráinnar án þess að til bótaskyldu stofnist, en sú bótaskylda er þess eðlis að gerð er krafa um að fullt verð skuli koma fyrir.“ Í álitsgerðinni er fjallað um skattheimtu sem gert er ráð fyrir í frumvarpi um veiðigjöld og færð „rök fyrir því að sú skatt- heimta sem gert er ráð fyrir kunni að fara út fyrir það stjórn- skipulega svigrúm sem skatt- lagning sætir og teljist bótaskyld eignarskerðing eða eignarnám af þeim sökum, sbr. 72 grein stjórn- arskrár. Þá er ekki loku fyrir það skotið að frumvarpið feli í sér afturvirka skattlagningu, sem brjóti í bága við 2. mgr. 77. gr. stjórnarskrár“. Stofnast til bótaskyldu ÁLITSGERÐ LÖGMANNA Baldur Arnarson baldura@mbl.is Aðeins 17 af 75 sjávarútvegsfyrir- tækjum sem tóku þátt í rannsókn Deloitte á áhrifum nýja veiðigjalda- frumvarpsins munu geta staðið undir hækkun á gjaldinu í óbreyttri mynd. Óvissa er um hvort 5 félög geti staðið undir nýja gjaldinu, 45 munu ekki standa undir því og 8 munu þurfa að fara í fjárhagslega endurskipulagn- ingu vegna breytinganna. Jafngildir þetta því að tæp 23% fyrirtækjanna eru talin ráða við gjald- ið. Þetta kemur fram í fylgiskjali með sameiginlegri umsögn Landssam- bands íslenskra útvegsmanna, Sam- taka fiskvinnslustöðva og Samtaka atvinnulífsins um nýju kvótafrum- vörpin sem birt var á vef atvinnuvega- nefndar Alþingis í gær. Stórar útgerðir yrðu í vanda Tekin eru dæmi af tíu útgerðum og eru þær flokkaðar eftir því hvaða áhrif fyrirhuguð veiðigjöld eru talin munu hafa á rekstur þeirra. Í einum flokknum eru fyrirtækin flokkuð eftir því hvort óvissa er um hvort félagið standi undir hækkun á veiðigjaldi. HB Grandi fellur í þennan flokk en veiðigjaldið er talið munu hækka úr 267 milljónum í 2.450 millj- ónir króna. Vinnslustöðin í Vest- mannaeyjum er í sama flokki en gjaldið hjá henni færi úr 101 milljón króna í 971 milljón króna. Í öðrum flokki eru félög sem ekki eru talin munu standa undir hækkun á veiðigjaldi að óbreyttu. Skinney Þinganes er eitt þessara félaga en veiðigjaldið sem félagið greiðir mun nærri tífaldast, fara úr 97 milljónum í 929 milljónir króna. Eskja er í sama flokki en þar lætur nærri að veiði- gjaldið ellefufaldist, úr 68 milljónum króna í 736 milljónir króna. Rammi er líka í þessum flokki en gjaldið sem fé- lagið greiðir færi úr 88 milljónum króna í 694 milljónir króna. Hrað- frystihúsið Gunnvör er einnig í þess- um flokki en gjaldið færi þar úr 60 milljónum í 475 milljónir króna. Hrað- frystihús Hellissands fer í sama flokk en gjaldið sem útgerðarfélagið greiðir færi úr 15 milljónum í 111 milljónir króna. Undantekningarnar Þá eru tilgreind félög sem eiga að geta staðið undir hækkun á veiði- gjaldi. Meðal þeirra er FISK Seafood en í því tilviki mun gjaldið hækka úr 107 milljónum í 865 milljónir. Félagið Stálskip á líka að ráða við hækkunina en í því dæmi færi gjaldið úr 27 millj- ónum í 218 milljónir. Útgerðarfélagið Frár í Vestmannaeyjum er einnig tal- ið geta staðið undir gjaldinu en gjald- ið sem það greiðir ríflega sjöfaldast, fer úr 6 milljónum króna í 43 milljónir króna. Loks á Geir ehf. á Þórshöfn að geta staðið undir gjaldtökunni sem færi úr 4 milljónum í 31 milljón króna. Innan við fjórðungur ræður við veiðigjöld  Deloitte metur greiðsluhæfi útgerða vegna frumvarps Morgunblaðið/Ernir Vinnsla Hjá HB Granda.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.