Morgunblaðið - 24.04.2012, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2012
Guðrún Guðmundsdóttir
verkefnastjóri
- Æðislegir tímar og aðstaðan
er frábær!
E
F
L
IR
a
lm
a
n
n
a
te
n
g
s
l
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
g
ra
fí
s
k
h
ö
n
n
u
n
Ekki eru þeir dæmigerðir skoð-anabræður Halldór Jónsson
verkfræðingur og Tryggvi Gísla-
son fyrrverandi skólameistari.
En svona skrifaþeir, hvor úr
sinni átt, í gær.
Tryggvi: „Fjórirviðmælendur í
Silfri Egils í dag
komu fram sem
fulltrúar slúðurbera
af götunni og höfðu
lítið að segja af viti
um stjórnmálin og
þjóðmálin annað en
órökstuddar per-
sónulegar skoðanir
sínar.
Þar örlaði ekki á yfirvegaðrigreiningu á mönnum og mál-
efnum. Mikill hluti umræðunnar
fór svo í að tala um fátæklega um-
ræðuhefð á Íslandi og þjóðernis-
hroka Íslendinga.
Féll umræða fjórmenningannaalgerlega inn í þá mynd sem
þeir drógu sjálfir upp.
Sannaðist á fjórmenningunum aðauðveldara er að kenna heil-
ræðin en halda þau.“
Halldór (aðeins stytt): „Það erömurlegt að af fjórum mönn-
um af fimm mönnum saman-
komnum í þessum þreytta þætti
skuli bara einn skilja grundvall-
arstaðreyndir málsins.
Það var Óli Björn og hafi hannþökk fyrir sitt ljós í myrkr-
inu.“
Silfrið virðist hafa verið upp ásitt allra besta þessa helgina.
Tryggvi Gíslason
Silfurhúð
STAKSTEINAR
Halldór Jónsson
Veður víða um heim 23.4., kl. 18.00
Reykjavík 6 skýjað
Bolungarvík 1 skýjað
Akureyri 7 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 7 skýjað
Vestmannaeyjar 6 skýjað
Nuuk -7 skýjað
Þórshöfn 6 skýjað
Ósló 6 skýjað
Kaupmannahöfn 8 léttskýjað
Stokkhólmur 10 skýjað
Helsinki 10 heiðskírt
Lúxemborg 8 skýjað
Brussel 8 skúrir
Dublin 10 léttskýjað
Glasgow 7 skúrir
London 7 skúrir
París 10 skúrir
Amsterdam 12 léttskýjað
Hamborg 12 léttskýjað
Berlín 15 heiðskírt
Vín 14 alskýjað
Moskva 15 léttskýjað
Algarve 21 léttskýjað
Madríd 20 skýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 17 léttskýjað
Róm 17 léttskýjað
Aþena 17 skýjað
Winnipeg 10 skýjað
Montreal 3 skúrir
New York 10 alskýjað
Chicago 12 léttskýjað
Orlando 20 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
24. apríl Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 5:22 21:31
ÍSAFJÖRÐUR 5:14 21:48
SIGLUFJÖRÐUR 4:57 21:32
DJÚPIVOGUR 4:48 21:03
Gengið hefur verið frá samningum við nýja
leigutaka Haukadalsár í Dölum og taka þeir við
ánni fyrir sumarið 2013. Gildir samningurinn til
haustsins 2016. Einkahlutafélag Kenneths Johns
Deurloo leigir ána en fulltrúar hans eru þeir Sig-
þór Steinn Ólafsson og Þorgils Helgason, sem
báðir hafa starfað sem veiðileiðsögumenn.
Bandaríkjamaðurinn Deurloo þekkir ána vel,
hefur veitt reglulega í henni sem og fleiri ám hér
á landi. Mun Haukadalsá vera leigð á rúmar 35
milljónir króna á ári, en um laxasvæðið svokall-
aða er að ræða, frá Haukadalsvatni til sjávar.
Veitt er á fimm stangir á svæðinu, sem hefur
verið afar vinsælt veiðisvæði um langt árabil, að-
gengilegt og gjöfult. Í sumar lýkur leigutíma
Svisslendingsins Dopplers, sem leigt hefur ána
um árabil en hann leigir einnig Flekkudalsá og
Deildará á Melrakkasléttu og var einnig um
skeið með Ormarsá á Sléttu.
Þorgils segir það vera stefnu leigutakans og
landeigenda að gera Haukadalsá að sjálfbærri
fluguveiðiá en til þessa hefur bæði verið veitt á
flugu og maðk í ánni.
Meðalveiði í Hauku er um 700 laxar og er veið-
in nokkuð stöðug. Býr hún að jafnara vatns-
rennsli en margar Dalaánna, þótt hún geti einn-
ig orðið nokkuð vatnslítil í langvarandi þurrka-
tíð. Í fyrra veiddust 667 laxar. efi@mbl.is
Nýir leigutakar að Haukadalsá í Dölum
Morgunblaðið/Einar Falur
Haukadalsá Hún er gjöful og vinsæl laxveiðiá.
Forinnritun fyrir nemendur í 10.
bekk grunnskóla í framhaldsskóla
næsta skólaár er lokið. Um 89%
þeirra nemenda, sem ljúka grunn-
skóla í vor, innrituðu sig, eða 4.052
nemendur af þeim 4.548 sem gert er
ráð fyrir að ljúki grunnskóla í vor.
Verzlunarskóli Íslands virðist vin-
sælasti framhaldsskóli landsins, en
535 nemendur skráðu skólann sem
fyrsta val. Þar verða teknir inn 336
nýnemar. 328 völdu Menntaskólann
við Hamrahlíð sem sitt fyrsta val og
535 völdu MR.
Opnað verður fyrir innritun 10.
bekkinga 4. maí nk. og er síðasti dag-
ur til að skrá sig 8. júní, að því er seg-
ir í tilkynningu frá menntamálaráðu-
neytinu. Þar segir ennfremur að
aðsókn í suma skóla sé umfram
fjölda nýnemaplássa og því ljóst að
ekki komist allir í þann skóla sem
þeir völdu sem fyrsta valkost.
Á haustönn 2011 fengu rúmlega
98% nemenda inni í öðrum hvorum
þeirra skóla, sem þeir sóttu um.
89% ætla
áfram í nám
Skólar Flestir 10. bekkinga ætla í
framhaldsskóla í haust.