Morgunblaðið - 24.04.2012, Side 12

Morgunblaðið - 24.04.2012, Side 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2012 Könnun Gamli Garður við Hringbraut. Þjóðháttadeild Þjóðminjasafns Ís- lands hefur nú gefið út spurn- ingaskrá um heimili á Stúd- entagörðum. Hafa spurningarnar verið sendar á netföng allra íbúa garðanna. Spurningaskráin er hluti af meist- araverkefni Sigrúnar Hönnu Þor- grímsdóttur í þjóðfræði við Há- skóla Íslands. Spurningaskráin er send út í samvinnu við Félagsstofnun stúd- enta sem heitir einum svaranda niðurfellingu á leigu í maí. Rannsaka heimili á Stúdentagörðum Traktorasögur verða sagðar í bókakaffi Gerðubergs á mið- vikudagskvöld, 25. apríl, á slaginu klukkan 20. Sögurnar segir Bjarni Guð- mundsson, sem hefur skrifað tvær bækur um traktora á Íslandi en þær heita …og svo kom Ferguson og Alltaf er Farmall fremstur. Þar er fjallað um fyrstu heimilisdráttar- vélarnar, sem fluttar voru hingað til lands eftir síðari heimsstyrjöld. Bjarni hefur verið prófessor í bú- tækni við Landbúnaðarháskólann og stundað rannsóknir á verkun fóðurs og tækni við fóðuröflun. Bjarni lauk föstu starfi við skólann í ágúst 2008 og sinnir nú sérverk- efnum á vegum hans í hálfu starfi. Hann er einnig forsvarsmaður Landbúnaðarsafns Íslands og fæst við búnaðarsöguleg viðfangsefni. Sögur Ferguson notaður við heyskap. Segir sögur af traktorum Átta fulltrúar í Reykjavíkurráði ungmenna funda með borgarfulltrúum í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag. Fer fundurinn fram í fundarsal borgarstjórnar og hefst kl. 14. Hann verður sendur út beint á vef Reykjavíkurborgar, reykjavik.is. Málefni ungs fólks verða í brennidepli á fundinum og verða ræddar tillögur frá ungmennaráðum í hverfum Reykjavíkur, s.s. um bættar samgöngur, at- vinnumál ungs fólks, menntun, getnaðarvarnir og götulist. Fundur Reykjavíkurráðs ungmenna og borgar- stjórnar hefur verið árviss viðburður í borgarstjórn í ellefu ár, að því er segir í tilkynningu. Ungmenni ræða við borgarstjórn í dag Ráðhús Reykjavíkur. Sjálfboðaliðar óskast í Ráðhús Reykjavíkur milli kl. 17 og 21 í dag til að aðstoða nýstofnaðan Mennt- unarsjóð Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur við að búa til Mæðra- blómið 2012 undir handleiðslu Steinunnar Sigurðardóttur og fleiri hönnuða. Er fólk á öllum aldri hvatt til að koma og leggja málinu lið en tak- markið er að búa til 1000 blóm sem seld verða í tengslum við mæðra- daginn sem er annar sunnudagur í maí. Um er að ræða fjársöfnun til að styrkja konur í lægstu tekju- þrepunum til náms. Í tilkynningu segir, að verkefnin séu við allra hæfi í Ráðhúsinu. Fólk er einnig beðið um að koma með efnisafganga, eða rauðar flíkur úr allskonar efnum. Leitað að sjálf- boðaliðum STUTT Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Meiri afli fékkst í nýafstöðnu neta- ralli en nokkru sinni áður, en það fór nú fram í 17. skipti, en rallinu lauk um helgina. Aflabrögð voru yfirleitt góð og í Breiðafirðinum voru fyrri met slegin. Líkt og undanfarin ár voru aflabrögð þó lé- leg í kantinum austan við Eyjar. Kristján Kristjánsson, skipstjóri á Kristbjörgu ÍS, lagði netin við Reykjanes að Þrídröngum og segir hann að sum svæðin hafi gefið „óskaplega mikið af fiski“, og nefnir Selvogsbankann sem dæmi. Krist- björgin tók ekki þátt í rallinu í fyrra. „Aflinn var ævintýralegur á köflum og ég hef sjaldan séð annað eins,“ segir Kristján. Þeir drógu trossurnar 54 sinnum og komu að landi með 285 tonn. Saxhamar SH frá Rifi lagði netin í Breiðafirði og lauk rallinu fyrir viku. Aflinn sló fyrri met að sögn Friðþjófs Sævarssonar, skipstjóra, en þetta er fjórða árið í röð sem Saxhamar tekur þátt í þessu verk- efni. „Við höfum oft fengið góðan afla í rallinu, en ekki eins víða og núna,“ segir Friðþjófur. „Við vorum nán- ast í góðri veiði alla daga, aðeins þrjár lagnir af 50 svöruðu ekki al- mennilega. Dagana fyrir páska var aflinn eiginlega yfirgengilegur og þó við værum með riðla fyrir smærri fisk saman við í öllum net- unum, eins og gert er í rallinu, þá var meðalþyngdin 6-7 kíló af slægðu,“ segir Friðþjófur. Til hliðsjónar við fiskveiðiráðgjöf Sex bátar taka þátt í netarallinu á hrygningarsvæði þorsks í kring- um landið og er sami netafjöldi lagður á sömu slóðum ár eftir ár. 45-60 trossur eru lagðar á hverju svæði og er þeim dreift innan svæða á helstu hrygningarslóðir þorsks. Á hverju svæði er helm- ingur lagður í fyrirfram ákveðna punkta. Niðurstöðurnar eru hafðar til hliðsjónar við fiskveiðiráðgjöf, en einnig er í rallinu m.a. aflað upplýs- inga um aldur, kynþroska, stærð og dreifingu hrygningarstofns þorsks- ins, samkvæmt upplýsingum frá Val Bogasyni, verkefnisstjóra neta- ralls Hafrannsóknastofnunar. „Aflinn ævintýralegur á köflum“  Meiri afli í netaralli Hafrannsóknastofnunar en nokkru sinni áður  Fyrri met slegin í Breiðafirði  Aflabrögð þó enn léleg í kantinum austan við Eyjar  Vorum í góðri veiði nánast alla daga Morgunblaðið/Alfons Fiskirí Selvogsbankinn hefur gefið góðan afla í netaralli tvö síðustu ár og segist skipstjórinn á Kristbjörgu sjaldan hafa séð annan eins afla og í rallinu sem lauk um helgina. Morgunblaðið/Alfons Árlegt Mikilvægar upplýsingar fást um hrygningarstofn þorsks í netarallinu. –– Meira fyrir lesendur PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS Morgunblaðið gefur út stórglæsilegt blað um garðinn föstudaginn 18. maí. Garðablaðð verður með góðum upplýsingum um garðinn, pallinn, heita potta,sumarblómin, sumarhúsgögn og grill. Katrín Theódórsdóttir Sími 569 1105 kata@mbl.is NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 12, mánudaginn 14. maí. Garða blaðið SÉ RB LA Ð Garðablað Fjölskylduhjálp Íslands ENGINN ÁN MATAR Á ÍSLANDI HJÁLP Á HEIMASLÓÐUM, Söfnunarreikningur Fjölskylduhjálpar Íslands 546-26-6609, kt 660903-2590.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.