Morgunblaðið - 24.04.2012, Side 14

Morgunblaðið - 24.04.2012, Side 14
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2012 Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Meirihluti Landsdóms, eða níu dóm- arar af 15, sakfelldu Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, í gær fyrir eitt ákæruatriði en sýknaði hann af þremur. Sex dómarar vildu sýkna Geir af öllum ákæruliðunum. Áður hafði Landsdómur vísað frá dómi tveimur ákæruatriðum í upp- haflegri ákæru Alþingis. Geir var ekki gerð refsing í málinu og ákvað dómurinn að í ljósi þess að Geir var sakfelldur „fyrir lítinn hluta þeirra sakargifta, sem bornar hafa verið á hann í málinu“ sé rétt að all- ur sakarkostnaður verði felldur á ríkissjóð. Þar með talin eru mál- svarnarlaun skipaðs verjanda hans, Andra Árnasonar hæstaréttarlög- manns, 24.434.850 krónur, auk út- lagðs kostnaðar hans að fjárhæð 784.580 krónur. Bar að halda ráðherrafundi Meirihluti Landsdóms finnur Geir sekan um athafnaleysi, fyrir að hafa ekki tekið mál upp innan ríkisstjórn- arinnar í aðdraganda bankahruns- ins. Í liðnum sem Geir var sakfelldur fyrir, sem var nr. 2 í ákærunni, var hann ákærður fyrir að hafa á tíma- bilinu frá febrúar 2008 og fram í októberbyrjun, látið farast fyrir að framkvæma það sem fyrirskipað er í 17. gr. stjórnarskránni um skyldu til að halda ráðherrafundi um mikilvæg stjórnarmálefni. Lítið hafi verið fjallað á ráðherrafundum um yf- irvofandi háska, ekki fjallað form- lega um hann á ráðherrafundum og ekkert skráð um þau efni á fund- unum. Þó hafi að því er sagði í ákær- unni verið sérstök ástæða til þess, einkum eftir fund hans, Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, Árna M. Mat- hiesen og formanns stjórnar Seðla- bankans 7. febrúar 2008, eftir fund hans og Ingibjargar Sólrúnar með bankastjórn Seðlabankans 1. apríl 2008 og í kjölfar yfirlýsingar til sænsku, dönsku og norsku seðla- bankanna 15. maí 2008. Ekki sakfellt ef þessi mál hefðu verið tekin upp í ríkisstjórn Meirihluti landsdóms fjallar um þetta og segir m.a. í rökstuðningi fyrir sakfellingu að sú háttsemi hans að láta farast fyrir að halda ráð- herrafundi um þessi mál „varð ekki eingöngu til þess að brotin væri formregla, heldur stuðlaði hún að því að ekki var á vettvangi rík- isstjórnarinnar mörkuð pólitísk stefna til að takast á við þann mikla vanda, sem ákærða hlaut að vera ljós í febrúar 2008. Ef slík stefna hefði verið mörkuð og henni síðan fylgt eftir á skipulegan hátt, þar á meðal af Seðlabanka Íslands og Fjármálaeftirlitinu, má leiða að því rök að draga hefði mátt úr því tjóni, sem hlaust af falli bankanna í byrjun október 2008,“ segir í rökstuðningi meirihluta Landsdóms. Í dómsniðurstöðu segir einnig að ákærði sé „sakfelldur fyrir að hafa af stórfelldu gáleysi látið farast fyrir að halda ráðherrafundi um mikilvæg stjórnarmálefni eins og fyrirskipað er í 17. gr. stjórnarskrárinnar, þrátt fyrir að honum hlaut að vera ljós sá háski, sem vofði yfir bankakerfinu og þar með heill ríkisins,[…], með þeim afleiðingum að ekki var um þau málefni fjallað á vettvangi ríkis- stjórnarinnar,“ segir í niðurstöð- unni. Þar segir einnig að við ákvörðun viðurlaga verði „að líta til þess að þetta brot telst hafa verið framið af stórfelldu gáleysi. Þótt ákærði hafi með þessu ekki eingöngu brotið gegn formreglu, svo sem rakið var hér áður, verður ekki horft fram hjá því að ekki hefði komið til sakfell- ingar í málinu hefði ákærði gætt að því einu að taka þessi málefni upp innan ríkisstjórnarinnar, eins og honum bar samkvæmt 17. gr. stjórn- arskrárinnar. Í málinu er ákærði sýknaður af alvarlegustu brotunum, sem hann var borinn sökum um. Hann er 61 árs að aldri og hefur ekki áður hlotið refsidóm. Að öllu virtu verður honum ekki gerð refsing í málinu,“ segir í dómi meirihluta Landsdóms. Sekur um eitt ákæruatriði  Ekki gerð refsing og sakarkostnaður felldur á ríkið  Sex dómarar vildu sýkna af öllum liðum  Stórfellt gáleysi að hafa ekki haldið ráðherrafundi  Sýknaður af alvarlegustu brotunum Morgunblaðið/Kristinn Dómsuppkvaðning Fimmtán dómarar Landsdóms gengu í sal Þjóðmenningarhússins á slaginu kl. 14 og var dómsorð lesið upp að viðstöddu fjölmenni. Morgunblaðið/Kristinn Saksóknarar Sigríður J. Friðjónsdóttir, saksóknari Alþingis, og Helgi M. Gunnarsson varasaksóknari bíða eftir uppkvaðningu Landsdóms í gær. Niðurstaða Landsdóms Af þeim 15 dómurum sem sitja í Landsdómi mynduðu níu dóm- arar meirihluta í málinu gegn Geir H. Haarde og sakfelldu hann fyrir eitt ákæruatriði af fjórum. Þeir eru Markús Sigurbjörnsson, Brynhildur Flóvenz, Eggert Ósk- arsson, Eiríkur Tómasson, Hlöð- ver Kjartansson, Ingibjörg Bene- diktsdóttir, Magnús Reynir Guðmundsson, Viðar Már Matt- híasson og Vilhjálmur H. Vil- hjálmsson. Fimm dómarar skiluðu sam- eiginlegu séráliti og vildu sýkna Geir af öllum ákæruatriðunum. Eru þeir ósammála meirihluta dómenda um sakfellingu sam- kvæmt 2. hluta ákærunnar. Þess- ir dómarar eru Ástríður Gríms- dóttir, Benedikt Bogason, Fannar Jónasson, Garðar Gíslason og Linda Rós Michaelsdóttir. Einn dómari, Sigrún Magnús- dóttir, vildi einnig að Geir yrði sýknaður af öllum ákærulið- unum. Hún skilaði sératkvæði og kvaðst vera sammála forsendum og niðurstöðum meirihlutans um þá þrjá ákæruliði sem Geir var sýknaður af og hún var sammála minnihlutanum um síðasta ákæruliðinn og því bæri að sýkna Geir af öllum ákærum. Dómur Landsdóms er mjög viðamikill, samtals 415 blaðsíður að stærð. Meirihluti Alþingis samþykkti að höfða málið gegn Geir 28. september árið 2010. Tillögur um að ákæra þrjá aðra fyrrver- andi ráðherra, þau Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur, Árna M. Mathiesen og Björgvin G. Sig- urðsson, voru felldar á þinginu. Saksóknari Alþingis höfðaði mál- ið formlega með ákæru 10. maí á seinasta ári. Var hún í sex ákæruliðum. Með úrskurði dóms- ins 3. október 2011 var fyrstu tveimur ákæruliðunum vísað frá dómi. Fram kemur í dómnum að samkvæmt framlagðri tíma- skýrslu verjanda hefur hann ásamt aðstoðarmönnum sínum varið samtals 1.947 klukkustund- um til málsvarnar ákærða. Af dómurum Landsdóms eru fimm hæstaréttardómarar, tveir aðrir eru löglærðir og átta voru kosnir af Alþingi. Níu mynduðu meirihluta en sex vildu sýkna Geir að fullu LANDSDÓMUR KLOFNAÐI Í MÁLINU GEGN GEIR H. HAARDE 14 Síðumúla 11, Sími 5686899, netfang vfs@vfs.is, 108 Reykjavík. www.vfs.is RAFMAGNSVERKFÆRI FAGMANNSINS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.