Morgunblaðið - 24.04.2012, Page 16

Morgunblaðið - 24.04.2012, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2012 Niðurstaða Landsdóms Finndu okkur á facebook.com/lindexiceland Kjóll, 3995,– Toppur, 2995,– Hjörtur J. Guðmundsson Ylfa K. Ásgeirsdóttir „Mér finnst standa upp úr að allir dómarar í Landsdómi séu sammála um að Geir sé saklaus af öllum þeim ákæruliðum sem rætt var um í rann- sóknarskýrslu Alþingis og voru tilefni þess að lögð var fram tillaga um ákæru. Þetta eru liðirnir sem mest var tekist á um á Alþingi og þetta eru þeir ákæruliðir sem stór hluti Alþing- is taldi að ættu að leiða til ákæru gegn allt að fjórum ráðherrum,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, um niðurstöðu Landsdóms í máli Geirs H. Haarde. Landsdómur hafi ekki aðeins vísað tveimur af þessum ákæruliðum frá heldur telji að Geir sé saklaus af þeim öllum. „Ég tel að heildarniðurstaða málsins sé því sem næst fullnaðarsig- ur fyrir Geir,“ segir Bjarni en telur það furðu sæta að meirihluti dómsins sjái tilefni til þess að sakfella vegna þess formsatriðis að halda ekki ráð- herrafundi, ekki síst í því ljósi að ekki sé véfengt að um áratugalanga venju sé að ræða. Þetta eitt og sér hafi aldr- ei verið tilefni til ákæru í málinu. „Þeir sem hafa staðið fyrir þessari málsókn verða auðvitað að svara fyrir sína pólitísku ábyrgð á því að efna til þessa máls sem Landsdómur hefur í öllum meginatriðum málsins annað- hvort sýknað eða vísað frá þeim mála- tilbúnaði sem til var stofnað,“ segir Bjarni ennfremur. „Nú er búið að leiða þetta mál til lykta í samræmi við stjórnarskrá og landslög og niðurstaða fengin og ég held að það hljóti allir að vera fegnir því að þessu sé lokið þótt eflaust séu blendnar tilfinningar víða í brjósti manna gagnvart dómnum,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra og formaður VG, um dóminn yfir Geir. „Auðvitað höfum við vitað alveg frá því við sameinuðumst formenn stjórnmálaflokkanna um að flytja frumvarp um rannsóknarnefnd Al- þingis að eitthvað af þessu tagi gæti beðið okkar,“ bætir Steingrímur við. „Þar var komið inn á það að nefndin skyldi m.a. líta til ábyrgðar stjórn- málamanna eða ráðherra og Alþingi bjó sig undir niðurstöður rannsókn- arnefndarinnar með því að skipa sér- nefnd til að taka við skýrslunni.“ Þegar niðurstöður þar lágu fyrir hafi verið ljóst að Alþingi gat ekki vik- ið sér undan því að fjalla um og taka afstöðu til ábyrgðar stjórnmálamann- anna. „Það var svo gert á grundvelli þess að gengið var til atkvæða um til- lögur meirihluta og minnihluta sér- nefndar Alþingis. Málið fór í þennan farveg til Landsdóms og niðurstaðan nú fengin. Ég tel að hún sýni að málið átti erindi þangað sem það fór.“ Vissi hann einn manna af krísu? „Niðurstaðan er náttúrlega fyrst og fremst sýkna. Það var búið að vísa frá stórum ákæruliðum og síðan eru dómarar sammála um að sýkna í helstu atriðunum sem eftir stóðu að undanskildu því að boða til ráðherra- funda um stöðuna í efnahagsmálum,“ segir Sigmundur Davíð Gunnlaugs- son, formaður Framsóknarflokksins. Hann segist telja nokkuð sérstakt að sakfellt skuli hafa verið vegna þess ákæruliðar. „Það er svona nánast eins og menn telji að Geir Haarde hafi einn manna í heiminum, eða að minnsta kosti hér á landi, vitað af þessari fjármálakrísu sem þá var í gangi. Hún var auðvitað mikið til um- ræðu um allan heim og ekki hvað síst hér á landi, bæði í þinginu og í pólitík- inni. Þar af leiðandi er ekki hægt að halda því fram að málinu hafi verið leynt fyrir ríkisstjórninni þó að það hafi ekki verið rætt formlega á ríkis- stjórnarfundi,“ segir Sigmundur. Aðspurður hvort hann hafi búist við þeirri niðurstöðu sem Landsdómur komst að segist Sigmundur ekki hafa átt von á því að neinn af ákærulið- unum nægði til sakfellingar eins og meðal annars hafi komið fram hjá honum á Alþingi. Fagnaðarefni fyrir Geir „Geir H. Haarde var borinn mjög þungum sökum. Hann var ákærður fyrir að með athafnaleysi hafa ekki gripið til aðgerða sem hefðu getað af- stýrt hruni. Nú hefur Landsdómur með afdráttarlausum hætti sýknað hann af þessu. Það er auðvitað fagn- aðarefni fyrir Geir en það er líka fagn- aðarefni fyrir þá sem sátu í þeirri ríkisstjórn sem hann veitti forystu vegna þess að í dómsorðinu felst líka yfirlýsing Landsdóms um að sú ríkis- stjórn átti ekki völ á neinum aðgerð- um sem hefðu getað afstýrt banka- hruninu. Þar með er endanlega búið að afgreiða staðhæfingar um slíkt.“ Þetta segir Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra í samtali við mbl.is um niðurstöðu Landsdóms í gær. Össur segir það ekki hafa komið sér á óvart að Landsdómur telji ríkisstjórn Sjálfstæðisflokksins og Samfylking- arinnar undir forsæti Geirs, sem Öss- ur sat í sem iðnaðarráðherra, ekki hafa getað afstýrt bankahruninu enda sé það í fullu samræmi við niðurstöð- ur skýrslu Rannsóknarnefndar Al- þingis. „Hvað varðar þann ákærulið sem Geir er sakfelldur fyrir, að hafa ekki kallað saman ráðherrafund um mikilvæg stjórnarmál, þá er ég ósam- mála því. Það er í ósamræmi við verk- hefðir ríkisstjórna áratugum saman. Ég hins vegar virði Landsdóm, þetta er hans niðurstaða,“ segir Össur en bætir því við að hann geti hins vegar ekki talið það brot meiriháttar í ljósi þess að Geir sé ekki dæmdur til refs- ingar vegna þess af hálfu Landsdóms. „Það sem ég iðrast alla tíð, frá því að hin sögulega atkvæðagreiðsla var háð í sölum Alþingis 2010, er að hafa í þessu spennuþrungna andrúmslofti ekki haft vit eða rænu á því, þegar ljóst var að í það stefndu að Geir einn stæði frammi fyrir dómnum, að óska eftir fundarhléi á því kvöldi og fá þingflokka til þess að ráða ráðum sín- um. Það voru glöp af minni hálfu og allra annarra sem þar voru staddir,“ segir Össur. Morgunblaðið/Kristinn Landsdómur í gær Geir H. Haarde og verjandi hans Andri Árnason bíða þess að dómarar í Landsdómi gangi í salinn. Lengst til hægri er Inga Jóna Þórðardóttir, eiginkona Geirs. Nær fullnaðarsigur fyrir Geir  Formaður Sjálfstæðisflokksins telur furðu sæta að meirihluti Landsdóms sakfelli vegna formsatriðis  Formaður VG telur málið hafa átt erindi í dóm  Össur viðurkennir mistök við atkvæðagreiðsluna Bjarni Benediktsson Steingrímur J. Sigfússon Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Össur Skarphéðinsson Skannaðu kóðann til að sjá viðtal við Bjarna Benediktsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.