Morgunblaðið - 24.04.2012, Side 17

Morgunblaðið - 24.04.2012, Side 17
17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2012 Steinþór Guðbjartsson Una Sighvatsdóttir „Mér finnst þetta grafalvarlegt mál,“ segir Brynjar Níelsson, hæstarétt- arlögmaður og formaður Lögmanna- félags Íslands, um þá staðreynd að hátt hafi verið reitt til höggs en eftir standi lítið annað en mikill kostnaður ríkisins. „Sá þingmeirihluti sem stóð að þessu setur niður,“ segir hann og leggur áherslu á að málið hafi ekki snúist um ríkisstjórnarfundi heldur um allt önnur atriði sem hafi verið hent út í hafsauga. „Það er geysilegt áfall fyrir ákæruvald að reiða hátt til höggs og vera síðan rassskellt.“ Brynjar Níelsson segir að finna megi atriði eins og Geir var ákærður fyrir hjá öllum ríkisstjórnum og snautlegt sé að hafa hnýtt umrædd- um lið um ríkisstjórnarfundi inn í ákærurnar. „Mér finnst það lummu- legt af ákæruvaldinu, Alþingi, að hnýta þessu svona inn í,“ segir hann. Brynjar bendir á að reglulega megi sjá með beinum hætti ákvarðanir ráð- herra sem samrýmist ekki stjórn- arskrá. Hann spyr hvort flokka eigi þær sem vanrækslubrot. „Hvar end- ar þá þessi vitleysa?“ spyr hann. Varðandi þá ákvörðun Landsdóms að láta ríkið bera málskostnað af mál- inu segir Brynjar að dómurinn hafi metið það svo að ákæruatriðið sem Geir var sakfelldur fyrir vægi svo lítið í heildarkostnaði. Það sé ekki óal- gengt að kostnaður falli allur á ríkið í stað þess að honum sé skipt upp þeg- ar menn sem séu ákærðir í mörgum liðum séu sýknaðir af þeim flestum. Brynjar veltir upp spurningunni hvað verði gert eftir að skipt verði um ríkisstjórn, atvinnuleysið hugsanlega orðið 10% og farið verði að skoða ým- is verk núverandi ríkisstjórnar. Hann áréttar hvað það sé mikil þvæla að hægt sé að nota ákæruvaldið í póli- tískri baráttu. Breyta verði lögum um ráðherraábyrgð og Landsdóm, taka ákæruvaldið af Alþingi. Verði það ekki gert geti það leitt til mikils ófarnaðar. „Raunverulega upplifði maður það þannig að þessi ákvörðun um að ákæra hafi verið liður í póli- tísku uppgjöri.“ Brynjar segir að þeg- ar menn blandi saman slíku uppgjöri, ákæruvaldi og sakamálameðferð séu þeir á algjörum villigötum. „Það er augljóst að dómurinn er mikið áfall fyrir Alþingi,“ segir hann. Tilefni til endurskoðunar „Ég held að þetta mál gefi tilefni til þess að við veltum fyrir okkur hvern- ig til hefur tekist heildstætt, og það er algjörlega óháð dómsniðurstöðunni sem slíkri,“ segir Róbert Spanó, pró- fessor í lögum og forseti lagadeildar Háskóla Íslands. Hann bendir á að þetta sé í fyrsta skipti sem látið er reyna á ráðherraábyrgð fyrir dóm- stólum á Íslandi. Ferlið sé tvíþætt, annars vegar ákæruvald þingsins og sú meðferð sem málið fær á þingi, en hinsvegar ferlið fyrir Landsdómi sjálfum. „Og ég held að við verðum að spyrja þeirrar spurningar núna hvernig við teljum að til hafi tekist, með tilliti til umræðunnar og þess trausts sem málsmeðferð af þessu tagi verður að njóta,“ segir Róbert. Hvað varðar ferlið í heild segir Ró- bert hinsvegar að fullt tilefni sé til að endurskoða það. Spurningin sé sú hvort það sé heppilegt fyrirkomulag við íslenskar aðstæður og það litla samfélag sem hér er, að atvinnu- stjórnmálamenn taki ákvarðanir sem lúti að málefnum lögfræðinnar og ákæruvald sé bundið við þingið þegar kemur að lagalegri ábyrgð ráðherra. Mjög mikið áfall fyrir Alþingi Brynjar Níelsson Róbert Spanó  Brynjar Níelsson: Ákæruvaldið reiddi hátt til höggs og var rassskellt Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is „Auðvitað verður að líta þannig á að hann sé að meginstefnu til sýknaður af þessum atriðum sem á hann voru borin og þar með eru allir þessir fimm ákæruliðir, í fyrsta hluta ákær- unnar, sem voru hryggjastykkið í þessum málatil- búnaði öllum. Það er þá í raun og veru, að því leyti sem þessu var ekki vísað frá dómi, búið að sýkna hann af öll- um efnisatriðum og stærstur hluti málsins fór auðvitað í þessa þætti,“ sagði Andri Árnason, verjandi Geirs H. Haarde um niðurstöður Lands- dóms í gær. „Hinsvegar verður ekki fallist á að það hefði verið eðlilegt að dæma hann fyrir þetta meinta brot gagn- vart 17. grein stjórnarskrárinnar. Kannski í fyrsta lagi vegna þess að þetta er mjög óljóst um refsiheimild, óljós athafnaskylda sem tengist þessu og þá hitt að það er líka óljóst með hvaða hætti hann átti að bera þetta upp við ríkisstjórnina vegna þess að það hefur ekki legið fyrir að hann hefði getað gert ákveðnar til- lögur inn í ríkisstjórn og það er í raun heldur ekki bent á það í dómnum, að því er virðist, hvaða tillögur hann átti að fara með inn í ríkisstjórnina. Það að refsa honum bara fyrir það að þetta hafi ekki verið tekið til um- ræðu án þess að þetta hafi þurft að fara í einhverja sérstaka afgreiðslu er náttúrlega mjög langsótt vegna þess að hugmyndin er auðvitað sú að inn í ríkisstjórnina fari mál til af- greiðslu. En það að líta þannig á að í þessu felist líka skýr skylda bara til þess að ræða mál almennt án þess að þau séu sérstaklega til afgreiðslu, það er ekki ljóst á hverju það byggist. Allavega verður að segja að vafa um þetta atriði hefði átt að túlka ákærða í hag. Það að honum skuli ekki gerð refsing bendir þá til þess að menn hafi litið á þetta sem léttvægt atriði, sem er þá ekki í samræmi við tilefni þess að líta á þetta sem brot vegna þess að það að líta á þetta sem brot er þá það að þetta hafi verið stórfelld vanræksla og þá er órökrétt að gera honum ekki refsingu fyrir það, þann- ig að það er eins og þetta hafi ekki verið alveg hugsað til enda,“ sagði Andri. Sakfellingin byggð á óljósum brotum  Geir sýknaður af öllum efnisatriðum Andri Árnason Ylfa K. Árnadóttir Hjörtur J. Guðmundsson „Ég minni á að Geir H. Haarde er sakfelldur fyrir að brjóta gegn stjórnarskránni með stórkostlegu gáleysi og það er ekki formsatriði heldur alvarleg ákæra sem þó er erfitt út frá lögum okkar að finna leiðir til að refsa fyrir,“ segir Birg- itta Jónsdóttir, þingmaður Hreyf- ingarinnar. Birgitta var meðal þeirra sem sátu í þingmannanefnd sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Al- þingis. Meirihluti hennar ákvað í framhaldinu að leggja til að fjórir fyrrverandi ráðherrar yrðu ákærðir fyrir Landsdómi vegna banka- hrunsins og þar á meðal Geir H. Haarde sem þá gegndi embætti forsætisráðherra. Niðurstaða Al- þingis var síðan að Geir einn skyldi ákærður. „Mér hefði fundist, út af því að hann var sakfelldur, rétt að hann hefði verið látinn bera kostnað af þessu réttarhaldi,“ bætir Birgitta við en samkvæmt dómnum er allur sakarkostnaður greiddur úr ríkis- sjóði, þ.m.t. málsvarnarlaun verj- anda Geirs. Fyrstu viðbrögð vonbrigði „Fyrstu viðbrögð mín eru að lýsa yfir vonbrigðum með þetta ákæruatriði sem fyrrverandi for- sætisráðherra er sakfelldur fyrir. Mér þykir það vera mjög lítilvægt miðað við allt annað sem gefið var út í ákærunni í upphafi af hálfu meirihluta þingmannanefnd- arinnar,“ segir Ragnheiður Rík- harðsdóttir, þingmaður Sjálfstæð- isflokksins, en hún sat einnig í nefndinni. Niðurstaða Landsdóms var sú að sýkna Geir af öllum ákæruliðum ákærunnar fyrir utan einn sem sneri að því að halda ekki með formlegum hætti fundi í ríkisstjórn um stöðu efnahagsmála í aðdrag- anda bankahrunsins. „Niðurstaðan kemur mér ann- ars persónulega ekki á óvart. Bara alls ekki, enda stóðum við [þing- menn Sjálfstæðisflokksins] ekki að því að ákæra í upphafi og töldum ekki ástæðu til þess,“ segir Ragn- heiður, aðspurð hvort hún hafi átt von á þessari niðurstöðu Lands- dóms. Hún segist hafa vonast eftir fullri sýknun en engu að síður gert sér grein fyrir því að hugsanlega yrði ákært fyrir þetta eina atriði. „Mér finnst bara að í því felist ákveðin friðþæging,“ segir Ragn- heiður. „Og það veldur manni auð- vitað vonbrigðum að það skuli vera hæstaréttardómarar sem standa að slíku.“ Hún segir að niðurstaða Landsdóms hljóti að vera umhugs- unarefni fyrir þá sem stóðu að ákærunni á hendur Geir. „En það er í þessu máli eins og öllum öðr- um að hver og einn verður að eiga það við sig hvað hann gerir,“ segir Ragnheiður, aðspurð hvort hún telji að ríkisstjórnin og aðrir sem stóðu að málinu ættu að segja af sér vegna þess. Eygló Harðardóttir, þingmað- ur Framsóknarflokksins, segir að það fyrsta sem þingmenn geri þeg- ar þeir taki sæti á Alþingi sé að sverja eið að stjórnarskránni, hún sé undirstaða stjórnskipunar lands- ins. „Því var það ætíð mitt mat að þessi liður væri skýrasti og jafn- framt alvarlegasti hluti ákærunnar. Stjórnarskránni var ekki fylgt og afleiðingin var að mikilvægum upp- lýsingum var haldið frá ríkisstjórn- inni sem ógnun við efnahaginn, stjórnskipunina og lýðræðið í land- inu og undir það tekur Lands- dómur.“ Lilja Rafney Magnúsdóttir, þingmaður Vinstri grænna, segir gott að niðurstaða sé komin í málið en hún ætli að öðru leyti ekki að leggja mat á dóminn. „Þetta sýnir að það var ástæða til að láta þenn- an erfiða leiðangur ganga alla leið.“ Eygló og Lilja Rafney voru meðal þeirra sem sátu í þing- mannanefndinni. Morgunblaðið/Ernir Nefndarfundur Þingmannanefndin fjallaði um málið á mörgum fundum og ræddi m.a. við rannsóknarnefnd Alþingis á fundi 14. apríl 2010. Alvarleg ákæra sem erfitt er að refsa fyrir  Ákveðin friðþæging, segir Ragnheiður Ríkharðsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.