Morgunblaðið - 24.04.2012, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 24.04.2012, Qupperneq 22
22 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 24. APRÍL 2012 Mörg mikilvæg verkefni standa fyrir dyrum hjá íslenskri þjóð nú á næstunni en það er m.a. að kjósa biskup og forseta og ljúka við gerð nýrrar stjórnarskrár fyrir lýðveldið Ísland. Þetta síðastnefnda er mikið verkefni sem búið er að undirbúa á margan hátt enda þarf að vanda til verksins. Kosningarnar til embættanna munu ganga vel fyrir sig því mikið af góðu fólki hefur boð- ið sig fram til starfa. Í biskupskjör- inu má ætla að úrslitin verði tvísýn. Mér fannst niðrandi fyrir þjóð- kirkjuna þegar einn af prestum hennar heimtaði afsögn núverandi biskups strax og upplýst var um brot fyrrverandi biskups. Mér fannst núverandi biskup taka vel á mjög erfiðu máli og það var lítil kristileg hugsun á bak við þann gjörning að ráðast þannig á sinn yfimann sem var að reyna að leysa erfitt mál. Að leita sátta voru hans fyrstu viðbrögð og þau voru eðlileg hjá manni í hans stöðu. Í stjórnarskránni stendur að hin evang- elíska lútherska kirkja skuli vera þjóðkirkja á Íslandi og sé hinu op- inbera að því leyti skylt að styðja hana og vernda. Greinin er tek- in orðrétt úr dönsku stjórnarskránni frá 1849. Það er að mínu áliti mjög mikilvægt að í hinni nýju stjórn- arskrá sé afdráttarlaus yfirlýsing um stöðu kirkjunnar í íslensku þjóðfélagi eins og er nú. Ef menn sætta sig ekki við danskt orðalag má breyta því en ekki innihaldinu. Ég er mjög hissa á því hve fáir starfsmenn kirkjunnar, bæði prestar og aðrir, hafa rætt lítið um þetta mál sér- staklega og stutt sjónarmið kirkj- unnar. Enginn prestur hefur t.d. minnst á þetta mál í stólræðu sem ég hef heyrt. Mikil og góð umræða um málið er að mínu áliti nauðsynleg. Séra Agnes M. Sigurðardóttir, einn af umsækjendum um biskups- embættið, skrifar grein í Morgun- blaðið nýlega þar sem hún segir: „Þjóðkirkjan er öllum opin og innan hennar rúmast allir“. Þannig yfirlýs- ing hefur oft verið birt af hendi þjóð- kirkjunnar en hvernig hefur verið unnið að útbreiðslumálum hennar? Mér dettur t.d. í hug fríkirkju- söfnuðirnir sem stofnaðir hafa verið vegna ágreinings um prestkosn- ingar, sá fyrsti á Eskifirði í lok nítjándu aldar. Hvað hefur þjóð- kirkjan gert til að sameina þessa söfnuði aftur innan þjóðkirkjunnar? Mér finnst að það sé eitt af mikil- vægum verkefnum þjóðkirkjunnar. Jöfnunarsjóður þjóðkirkunnar sem styrkir kirkjubyggingar þarf líka að ná til allra fríkirkjusafnaða. Sú að- gerð gæti verið upphaf að nánara samstarfi innan lúthersku kirkj- unnar á Íslandi. Þjóðkirkja verður aðeins réttnefni með því að innan hennar séu allir söfnuðir lútherskrar kirkju. Þjóðkirkjan og stjórnarskráin Eftir Gunnar Sveinsson Gunnar Sveinsson » Það er að mínu áliti mjög mikilvægt að í hinni nýju stjórnarskrá sé afdráttarlaus yfirlýs- ing um stöðu kirkjunnar í íslensku þjóðfélagi eins og er nú. Höfundur er fv. kirkjuþingsmaður. Það kemur oft upp í hugann þegar litið er til þeirra sem stjórna landinu og málefnum aldraðra. Alveg hefur gleymst hverjir það voru sem byggðu upp það vel- ferðarsamfélag sem við lifum í. Fólkið sem nú er ellilífeyrisþegar og lagði samfélaginu til starfskrafta sína án kröfugerðar um ofurlaun. Mundi margt vera hér með öðrum hætti ef unnið væri enn með sama hugarfari. Launum stillt meira í hóf og bitlingum fækkað. Má vera að einhvers staðar fynd- ist leið til að halda eftirlaunum í þeirri upphæð sem þarf til eðlilegrar framfærslu og sú stefna að skatt- leggja allt, sem menn eiga, og ganga svo langt að þurfi menn að leggjast inn á elliheimili er lífeyrir þeirra lagður inn á viðkomandi stofnun og þeir fá úthlutað vasapeningum. Lífeyrissparnaður sem ákveðinn var með lögum og átti að tryggja áhyggjulaust ævikvöld er bæði skattlagður og notaður til að lækka bótagreiðslur trygginganna. En margt hefur breyst og menn- irnir með. Þegar ég var að alast upp fengum við börnin að taka þátt í verkum full- orðna fólksins, sem var ómetanlegt veganesti. Það var áður en sú upp- götvun var gerð að það væri barna- þrælkun ef börn væru látin vinna áður en þau væru komin yfir ferm- ingu. Með því eru teknir frá þeim dýr- mætir möguleikar á að kynnast því á hverju þjóðin byggir sína tilveru. Þessa orku þarf að nýta í þágu þjóð- arinnar. Á kreppuárunum fyrir seinni heimsstyrjöldina þegar fátækt var mikil hjá almenningi gátu þeir sem fengust við verslun á landsbyggð- inni pantað sína vöru beint frá út- löndum og fengið hana í viðkomandi byggðarlag beint frá seljanda án millilendingar hjá heildsölum í Reykjavík. Seinna þegar komin voru ný og fullkomin atvinnutæki og vel- megun var almennt orðin meiri, var þessum málum kippt í það horf að öll peningamál færð í hendur stjórn- málamannanna, sem settu þau í hendur ríkisbankanna til afgreiðslu og úthlutunar. Þeir skipuðu síðan stjórnir bankanna og bankastjóra eftir atkvæðamagni hvers og eins. Þegar menn þurftu á fyrirgreiðslu að halda fóru þeir fyrst í sinn þing- mann til að koma sín- um málum á framfæri. Á árum seinni heimstyrjaldarinnar sigldu íslensk fiskiskip með fisk til Englands og varð þar til gjald- eyrir sem nýttist til uppbyggingar nýrra atvinnutækja. Það kostaði miklar fórnir, bæði í skipum og mannslífum; verða þær fórnir seint metnar sem skyldi. Með nýjum atvinnu- tækjum og bættum skipakosti breyttist mjög afkoma fólks. Nýir togarar og vertíðabátar hleyptu lífi í byggðir landsins og afkoman lagað- ist. Og þegar svo blessuð síldin fór að veiðast lifnaði heldur betur yfir sjávarplássunum á Norður- og Aust- urlandi. Gaman væri að sjá hvernig þær byggðir litu út í dag hefðu þeir pen- ingar verið nýttir þar, en ekki verið sendir til Reykjavíkur til pólitískrar meðhöndlunar (?). Þegar svo hagstætt þótti voru bankarnir einkavæddir og settir í hendur vildarvina, og útkomuna af því erum við að uppskera núna. Er ekki kominn tími til að við landsbyggðarfólk tökum til okkar ráða og sameinumst um að ráða bót á þeim málum sem að okkur snúa, leggjum okkar mat á hvaða verk séu mikilvægust og hættum að láta stjórnvöld etja okkur saman með loforðum sem aldrei virðist hafa ver- ið ætlunin að standa við. Við erum vissulega færust um að meta þörfina sjálf. Gott dæmi um dómgreindarleysi stjórnvalda er hvaða verkefni væri brýnast að leysa, þá vildi svo að nokkrir banka- og bjartsýnismenn höfðu byrjað að reisa sér minn- isvarða í stíl eiganda MÆRSK í Danmörku, en þegar hrunið varð kom í ljós að fjárhagsgrunnurinn var enginn. Það varð því úr að reynt yrði að ljúka við bygginguna, í stað þess að koma atvinnumálunum í gang. Sjálfsagt hefur það verið mein- ingin að öll þjóðin gæti notið þess sem fram fer í Hörpu, en það gleymdist hvað það kostar að kom- ast á sýningu. Annað verkið sem nauðsynlegt var að setja á oddinn var bygging nýs hátæknisjúkrahúss; á sama tíma var ekki hægt að reka þær sjúkra- stofnanir sem fyrir voru í landinu vegna peningaleysis. Og fyrirskip- aður stórfelldur samdráttur í rekstri í nafni hagræðingar. Hræddur er ég um að lítið sparist þegar allur kostn- aður sem af því hlýst er kominn fram. Það skal tekið fram að langflestar heilbrigðisstofnanir á landinu eru vel reknar og tækjum búnar; hafa hin ýmsu líknarfélög séð um það þegar sýnt þótti að ríkið mundi ekk- ert ætla að gera, hvorki til viðhalds lækningatækja né bygginga. En til var önnur leið, að spara svo til rekstrarins að ekki væri hægt að greiða heilbrigðisstarfsfólki þau laun sem því ber, með þeim árangri að við erum nú á góðri leið með að missa stóran hluta þessa mikilhæfa fólks úr landi. En þeir sem eftir eru bíða enn í von um að stjórnvöld hljóti að fara að átta sig á í hvaða óefni stefnir. Stóra spurningin er: Ætlar þessi ríkisstjórn að halda landinu í byggð? Spyr sá sem ekki veit. Sjaldnast launa kálfarnir ofeldið Eftir Aðalstein Valdimarsson » Stóra spurningin er! Ætlar þessi ríkis- stjórn að halda landinu í byggð? Spyr sá sem ekki veit. Aðalsteinn Valdimarsson Höfundur er ellilífeyrisþegi, fv. skip- stjóri, útgerðarmaður og forseti bæjarstjórnar Eskifjarðar í 8 ár. Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Á þessu vori eru liðin 15 ár síðan fyrst voru haldin námskeið fyrir pör og sambúðarfólk undir heitinu „Já- kvætt námskeið um hjónaband og sambúð“. Fyrsta námskeiðið var haldið árið 1996 í Hafnarfjarðar- kirkju. Þá var ætlunin að bjóða upp á tvö nám- skeið, eitt um haust og eitt að vori, og láta það duga. Viðbrögðin voru aftur á móti strax í upphafi mjög sterk og áhuginn á slíkum námskeiðum mik- ill. Þetta var tilboð sem greinilega vantaði inn í íslenskt samfélag á þessum tíma. Síðan eru sem sagt liðin 15 ár í einni sjónhending og námskeiðin eru orðin óteljandi. Þau hafa verið með ýmsu sniði. Í gegnum árin hefur ver- ið boðið upp á þau reglulega í Hafn- arfjarðarkirkju. En auk þess hafa námskeiðin verið haldin um allt land og margoft á sumum stöðum, eins og til dæmis á Akureyri, Egilsstöðum, Ísafirði og í Reykjavík. Þá hafa þau verið haldin í samvinnu við heima- menn á hverjum stað, foreldrafélög skóla, hin ýmsu félagasamtök, starfsmannafélög og þannig mætti lengi telja. Námskeiðin hafa einnig verið haldin í Ósló, Stokkhólmi og Gautaborg. Fjöldinn sem hefur sótt þessi námskeið frá upphafi er í kringum 6000 pör. Ef leitað er skýringa á vinsældum námskeiðanna er helst til að taka að þau eru byggð þannig upp að hvert og eitt par getur á námskeiðunum mótað efnið og umfjöllunina að sínu höfði. Allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi – en verða um leið að horf- ast í augu við sjálfa sig og sitt líf. Námskeiðin eru umfram allt lausn- armiðuð og mörg pör sækja nám- skeiðin til að efla og styrkja það sem gott er. Og heimaverkefnin hafa nýst mörgum vel til framtíðar. Þó liðin séu 15 ár frá því að námskeiðin hófust og þó samfélagið hafi tekið al- gerum stakkaskiptum á þessum ár- um, þá er þörfin enn mikil fyrir nám- skeið af þessu tagi. Eftir 2008 hafa bæst við hjóna- námskeiðin sérstök námskeið sem er ætlað að hjálpa einstaklingum sérstaklega að byggja sig upp á erf- iðum tímum. Hafa þessi námskeið einnig verið haldin í flestum sveita- félögum landsins og aðsókn verið mikil. Til að halda upp á 15 ára starfs- afmælið verður nú boðið upp á hjóna- og sambúðarkvöld í Hörpu hinn 30. apríl næstkomandi. Þar verður reynsla áranna dregin saman og bent á nýjar leiðir fyrir pör til að styrkja samband sitt. En nám- skeiðin eru í stöðugri endurskoðun til að geta mætt nýjum þörfum og nýjum tímum. ÞÓRHALLUR HEIMISSON, sóknarprestur og leiðbeinandi. Einstök saga hjóna- og sambúðarnámskeiða í 15 ár Frá Þórhalli Heimissyni Þórhallur Heimisson Bréf til blaðsins

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.