Morgunblaðið - 05.06.2012, Page 1
Þ R I Ð J U D A G U R 5. J Ú N Í 2 0 1 2
Stofnað 1913 129. tölublað 100. árgangur
ENDURÓMUR VIÐ
GÁLGAKLETT
KJARVALS
GÖNGULEIÐIR
Á REYKJANESSKAGA
MAGGA STÍNA
MEÐ ÚTSKRIFTAR-
TÓNLEIKA
NÝ BÓK 10 INN UM AÐRAR DYR 32MYNDLISTARSÝNING 30
Á árunum
2000-2010 voru
5.500 nemendur
skráðir í málm-
tækninám hér á
landi. Á sama
tíma voru skráð-
ir rúmlega 800
námssamningar
og hafa einungis
um 630 þeirra
endað með sveinsprófi. Um árabil
hefur því þurft að flytja inn
menntaða málmiðnaðarmenn frá
öðrum löndum sökum mikils
skorts á fagmenntuðu fólki í
greininni. »17
Sárvantar fólk í
málmiðnaðinn
Nýrri reglu-
gerð velferðar-
ráðuneytisins um
færni- og heilsu-
matsnefndir er
ætlað að einfalda
umsóknir um
dvöl á elliheimil-
um. Með reglu-
gerðinni voru
vistunarmatsnefndir dvalar- og
hjúkrunarrýma sameinaðar og í
þeirra stað ein skipuð í hverju heil-
brigðisumdæmi. »6
Vonast til að ein-
falda umsóknarferli
fyrir aldraða
„Það hefur enginn
frá stjórnvöldum
haft samband við
mig í dag og ég met
það þannig að ekki
hafi komið nein
skilaboð frá stjórn-
völdum um það,“
sagði Adolf Guð-
mundsson, formað-
ur LÍÚ, þegar hann
var spurður að því í
gærkvöldi hvort einhverjar viðræður
væru í bígerð á milli forystu útvegs-
manna og stjórnvalda. Hann kvaðst
gera ráð fyrir að heyra frá stjórnvöld-
um en tók fram að hann hefði enga vissu
fyrir því.
Sú aðgerð útvegsmanna að senda
skip sín ekki til veiða að loknu sjó-
mannadagsfríi var gerð í þeim tilgangi
að ná eyrum ráðamanna um áhrif fisk-
veiðifrumvarpanna sem eru til af-
greiðslu á Alþingi. Stjórnendur fyrir-
tækjanna eru þessa dagana að ræða
stöðuna við starfsfólk sitt og aðra hags-
munaaðila.
Rýrir kjörin
„Frumvörpin um sjávarútveginn sem
liggja nú fyrir Alþingi eru klárlega að-
för að kjörum sjómanna og landverka-
fólks. Auðlindagjald muni rýra kjör sjó-
manna og landverkafólks,“ segir meðal
annars í ályktun sem samþykkt var á
fjölmennum fundi landverkafólks og
sjómanna í Vestmannaeyjum í gær. Þá
tekur fundurinn heilshugar undir þá
skoðun að auðlindagjald í sjávarútvegi
sé í raun landsbyggðarskattur.
Adolf segir að staðan verði endur-
metin í lok vikunnar.
MASÍ fylgist með »6
Engin
samtöl við
stjórnvöld
Aðför að launa-
fólki, segja Eyjamenn
Adolf
Guðmundsson
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Tannlæknaskortur gæti orðið á Íslandi á næstu
árum, sérstaklega á landsbyggðinni, ef kjör
tannlækna og vinnuaðstæður verða ekki bætt.
Er það mat Sigurðar Benediktssonar, formanns
Tannlæknafélags Íslands. Sigurður segir tann-
lækna sækja orðið mikið í störf erlendis og nú
sé svo komið að í ákveðnum sérgreinum sé þeg-
ar orðinn skortur á tannlæknum.
„Sérfræðingarnir, til dæmis í rótfyllingum,
hafa flutt til útlanda eða koma ekki heim eftir
nám. Það er einn sem er að fara út, hann fékk
stöðu í Bandaríkjunum og ég veit um annan
sem lærði rótfyllingar erlendis og kemur ekki
heim,“ segir Sigurður. „Ef einn fer út fækkar
kannski um 20% í sérfræðingastéttinni, þeir eru
eftir fjórir og þá er orðið erfitt að vísa fólki sem
er með flókið rótfyllingarvandamál til þeirra,
biðtíminn er orðinn töluverður. Aldraðir og ör-
yrkjar eru hópur sem er oft með flóknari mál
og það getur verið erfitt fyrir fólk að fá þessa
sérhæfðu heilbrigðisþjónustu,“ segir Sigurður.
Hann sér ekki fram á að ástandið batni á
næstu árum. „Það er hark að vera tannlæknir
hér heima. Tannlæknar þurfa að vinna langa
vinnudaga með stuttum matarhléum til að fá
þokkaleg laun miðað við menntun og vinnuá-
lag.“
Tannlæknaskortur er farinn að gera vart við
sig á landsbyggðinni og segir Sigurður að það
hafi reynst erfitt að manna sumar stöður, sér-
staklega í smærri byggðarlögum.
„Þróunin er að verða sú að það verða fleiri
tannlæknar í stærri byggðum og verri þjónusta
í minni byggðarlögum sem gæti bitnað á tann-
heilsunni.“ Sigurður segir að flestir íslensku
tannlæknanna fari til hinna norrænu ríkjanna
til að vinna. Hann segir ekki vera skort á tann-
læknum í Evrópu en íslenskir tannlæknar hafi
gott orð á sér og fái vinnu þar sem þeir vilja.
Töluvert er um það að atvinnutilboð að utan
komi hingað.
Til að laga ástandið og halda tannlæknum á
landinu þarf að bæta almenn kjör þeirra og
vinnuaðstæður, að sögn Sigurðar. „Þetta er
ekki stór stétt svo hver og einn skiptir máli. Ef
almenn kjör tannlækna væru betri væru þeir
ekki að flýja land.“
Stefnir í skort á tannlæknum
Þegar orðinn skortur á tannlæknum í ákveðnum sérgreinum Erfitt að manna
lausar stöður á landsbyggðinni Gæti bitnað á tannheilsunni til lengri tíma litið
„Ef almenn kjör tannlækna
væru betri væru þeir ekki að
flýja land.“
Sigurður Benediktsson Sigurður segir að það sé einsdæmi
hversu mikið stjórnvöld hafa komist
upp með að skera niður í heilbrigð-
isþjónustunni. „Útgjöld ríkisins til
tannlækninga barna, aldraðra og ör-
yrkja hafa hækkað um 2% á 19 ár-
um, samkvæmt krónutölu. Svo
maður sér hvað sparnaðurinn er
gríðarlegur. Það tókst að minnka
tannskemmdatíðni um 80% á 10 ár-
um þegar tannlækningar barna voru
greiddar 100%, en nú borgar fólk
60% sjálft og tannheilsunni hrakar.
Samhengið er algjört.“
Tannheils-
unni hrakar
SPARNAÐUR
Þegar lesið var af hitamælum í
Reykjavík klukkan 18 í gær mæld-
ist hámarkshitinn 18,4 stig og er
það mesti hiti í höfuðborginni það
sem af er sumri. Á veðurbloggi Sig-
urðar Þórs Guðjónssonar veður-
áhugamanns kemur m.a. fram að á
Þingvöllum mældist hitinn mestur á
landinu eða 21,6 stig og því næst
20,9 stig í Árnesi í Hreppum. Á
Korpu náði hitinn 20,5 stigum. »2
Mesti hiti sumars-
ins í borginni í gær
Þeir voru svolítið brothættir hnoðrarnir þrír sem
voru nýbúnir að brjótast út úr eggjunum í Litla
hólma í Reykjavíkurtjörn í gær. Þessir stokkandar-
ungar eiga vonandi bjart og gjöfult sumar fram-
undan en endur hafa átt í vök að verjast á tjörn-
inni þar sem slegist er um tilverurétt og búsetu.
Stóru og frekustu fuglarnir vaða gjarnan yfir þá
minni og varnarlausari. Ungviðið laðar sannarlega
marga að tjörninni, ekki síst smáfólkið sem kann
alltaf vel að meta að heimsækja fuglana og gefa
þeim jafnvel eitthvað gott í gogginn. Fullorðna
fólkið hefur líka gaman af því að rölta kringum
tjörnina, njóta þess sem fyrir augu ber og hitta
annað fólk.
Morgunblaðið/Ómar
Bjart er yfir fyrstu dögum lífsins