Morgunblaðið - 05.06.2012, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 05.06.2012, Blaðsíða 32
32 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2012 Listahátíð í Reykjavík lauk form- lega í fyrradag en þó munu mynd- listarsýningar hennar standa áfram fram eftir sumri og tónleikar spænsku söngkonunnar Buiku verða haldnir 9. júní. Þeir áttu að fara fram 3. júní en var frestað vegna veikinda hennar. Í frétta- tilkynningu frá skipuleggjendum hátíðarinnar segir að áhorfenda- hópurinn sem sótt hafi hátíðina hafi verið breiðari en nokkru sinni og sætanýting einstaklega góð. Af fjórtán tónleikum hátíðarinnar í Hörpu hafi sjö farið fram í Eldborg og flestir fyrir fullu húsi. Þá hafi fjöldi tónleika hlotið mikið lof gagnrýnenda og þá m.a. tónleikar rússneska píanóleikarans Arcadi Volodos, Bryans Ferry og hljóm- sveitar og Bachveisla Kammer- sveitar Reykjavíkur undir stjórn Richards Egarrs. Þá hafi franski tónlistarmaðurinn Yann Tiersen einnig leikið fyrir fullu húsi í Norð- urljósum og ný og framsækin tón- verk íslenskra tónskálda verið flutt á tónleikaröð í Kaldalóni. Er þá fátt eitt nefnt. Listahátíð og RÚV gerðu í ár með sér stærsta samstarfssamning sinn frá upphafi og hátt á þriðja tug viðburða var og verður útvarpað og sjónvarpað frá viðburðum hátíðar- innar, að því er fram kemur í til- kynningunni. Myndlistarverkefnið (I)ndependent People, „Sjálfstætt fólk“ mun hafa vakið athygli er- lendis, hópur erlendra blaðamanna dvaldi í Reykjavík yfir opnunar- helgi hátíðarinnar og fjöldi blaða- greina hefur verið birtur í erlend- um fjölmiðlum og má þar nefna Politiken og Kunstkritik. Upplýs- ingar um myndlistarsýningarnar má finna á www.independent- people.is. Listahátíð 2013 verður haldin 17. maí til 2. júní. Sjónarspil Úr verki Íslenska dansflokksins og GusGus, Á vit… sem sýnt var á Listahátíð í Reykjavík en það þótti einkar vel heppnað og forvitnilegt. Nær uppselt á alla tónleika  Listahátíð í Reykjavík vel sótt Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Margrét Kristín Blöndal, jafnan kölluð Magga Stína, hefur lokið BA- námi í tónsmíðum við Listaháskóla Íslands og á morgun verður útskrift- arverk hennar, Depilhögg, flutt á tónleikum í Þjóðmenningarhúsinu kl. 20. Verkið vann hún út frá þrem- ur ljóðum eftir Guðberg Bergsson, úr ljóðabókinni Stígar, ljóðunum „Stígar“, „Í haustsólinni“ og „Í framhaldi af þessu er Guð“. Margrét er sjóuð mjög í tónlist- arbransanum, hóf barnung fiðlunám og var ein stofnenda og liðsmanna Risaeðlunnar, svo fátt eitt sé nefnt. Hin síðustu ár hefur hún m.a. samið tónlist og hljóðmyndir við leikverk og sungið og leikið inn á fjölda breið- skífna. Það er því forvitnilegt að vita hvaða stefnu jafnreyndur tónlist- armaður tekur í tónsmíðanámi. Margrét segist vissulega hafa ver- ið orðin vön ákveðnum vinnubrögð- um við tónsmíðar en námið hafi bæði gefið henni meiri tíma til að semja og möguleika á því að fara inn um aðrar dyr í sköpuninni. „Ég vissi ekkert hvernig það myndi verða því það er auðvitað gefið ákveðið frelsi í þessum skóla, þú ferð inn um þær dyr sem þér sýnist,“ segir Margrét um námið. „Ég fór bara að skrifa nótur og það hentaði mér allt í einu best að skrifa þannig,“ segir hún og hlær. Hún hafi ekki stundað slík vinnubrögð áður en hún hóf námið, samið tónlist með öðrum hætti, ann- aðhvort sem liðsmaður í rokk- hljómsveit eða sjálfstætt starfandi hljóðáhugakona. „Ég hef haft mik- inn áhuga á hljóðum í gegnum tíðina, það er nokkuð sem ég hugsa mikið um, hljóð sem mann langar að búa til eða lýsa fyrir öðrum svo þeir geti búið þau til. Þegar ég fer í skólann fer ég að tala með nótunum aftur.“ Aðdáandi skáldsins Hvað ljóð Guðbergs varðar segir Margrét að skáldið hafi mjög sjálf- stæðan talanda og ákveðinn ryþma. Það sé mikil áskorun að semja lag við ljóð eftir hann. Hún sé mikill aðdáandi Guðbergs, bæði sem ljóð- skálds og rithöfundar, og hafi því þótt afar gaman að vinna tónlist út frá verkum hans. „Grunnurinn að öllum tónlistaráhuga mínum er slag- verk, ryþmi, eitthvað sem hefur óendanlega möguleika og er upphaf- ið og endirinn á lífinu,“ segir Mar- grét að lokum. Útskriftarverk Mar- grétar verður flutt af kór og slagverkssveit og á harmonikku, hörpu, horn og hljómborð. Inn um aðrar dyr  Magga Stína heldur útskriftartónleika í Þjóðmenningar- húsinu  Tónverk við þrjú ljóða Guðbergs Bergssonar Morgunblaðið/Sverrir Nótur „Ég fór bara að skrifa nótur og það hentaði mér allt í einu best að skrifa þannig,“ segir Margrét um BA-námið í tónsmíðum. Kvikmyndaverðlaun MTV-sjón- varpsstöðvarinnar voru veitt í fyrradag og hlaut kvikmyndin The Hunger Games, eða Hungurleik- arnir, flest verðlaun en verðlaunin eru veitt skv. atkvæðagreiðslu not- enda vefjar MTV. Hlaut myndin verðlaun fyrir besta átakaatriði og bestu hamskipti leikara en þau síð- arnefndu hlaut leikkonan Elizabeth Banks. Þá hlutu aðalleikarar mynd- arinnar, Jennifer Lawrence og Josh Hutcherson, verðlaun sem besta aðalleikkona og -leikari. Best kvikmynd ársins er hins vegar The Twilight Saga: Breaking Dawn – Part 1, að mati netverja. Hungurleikar hlutu fern MTV-verðlaun Kátur Josh Hutcherson á MTV-hátíðinni. AFP LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar SNOWWHITEANDTHEHUNTSMAN Sýnd kl. 4 - 7 - 10 (Power) MEN IN BLACK 3 3D Sýnd kl. 5:45 - 8 - 10:15 THE FIVE YEAR ENGAGEMENT Sýnd kl. 5 - 8 - 10:25 LORAX 3D ÍSL TAL Sýnd kl. 4 AFTUR TIL FORTÍÐAR... TIL AÐ BJARGA FRAMTÍÐINNI BRÁÐSKEMMTILEG MYND FRÁ FRAMLEIÐENDA BRIDESMAIDS -bara lúxus sími 553 2075Miðasala og nánari upplýsingar www.laugarasbio.is POWE RSÝN ING KL. 10 ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð Þriðjudagstilboð TILBOÐSDAGUR TRYGGÐU ÞÉR MIÐA Á ÞRIÐJUDAGUR ER TILBOÐSDAGUR TILBOÐ Á ALLAR MYNDIR ATH GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR MYNDIR –BARA LÚXUS www.laugarasbio.is ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ EFTIR WES ANDERSON MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTABLAÐIÐ SMÁRABÍÓ HÁSKÓLABÍÓ 5%NÁNAR Á MIÐI.IS GLERAUGU SELD SÉR 5% BORGARBÍÓ NÁNAR Á MIÐI.IS SNOW WHITE AND THE... KL. 5.20 - 8 - 10.40 12 SNOW WHITE AND THE... LÚXUS KL. 5.20 - 8 - 10.4012 MIB 3 3D KL. 3.30 - 5.30 - 8 - 10.30 10 MIB 3 2D KL. 5.30 - 8 - 10.30 10 THE DICTATOR KL. 3.30 - 6 - 8 - 10 12 LORAX - ÍSLENSKT TAL 2D KL. 3.30 L SNOW WHITE AND THE... KL. 5.45 - 8 - 10.15 12 MIB 3 3D KL. 8 - 10 10 THE DICTATOR KL. 6 12 MOONRISE KINGDOM ÓTEXTUÐ KL. 5.50 - 8 - 10.10 L SNOW WHITE AND THE HUNTSMAN KL. 6 - 9 12 MIB 3 3D KL. 6 - 9 10 SALMON FISHING IN THE YEMEN KL. 8 10 GRIMMD:SÖGUR AF EINELTI KL. 5.45 10 SVARTUR Á LEIK KL. 10.30 16 ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ GILDA EKKI Í BORGARBÍÓI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.