Morgunblaðið - 05.06.2012, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.06.2012, Blaðsíða 18
FRÉTTASKÝRING Ómar Friðriksson omfr@mbl.is M ikill skortur á fag- menntuðu fólki í málm- og véltækni veldur verulegum áhyggjum. Hefur þurft að flytja inn menntaða málm- iðnaðarmenn frá öðrum löndum mörg undangengin ár. Þetta er ekki síst aðkallandi við álversframkvæmdir þar sem t.a.m. hefur reynst nánast ókleift að fá innlenda málmsuðumenn til starfa en eins og fram kom í Morgun- blaðinu í vetur er allt útlit fyrir að flytja þurfi inn sérhæfða álsuðu- menn við stækkunarframkvæmd- irnar í Straumsvík. Sjónir hafa beinst að hvernig á því stendur að ekki tekst að laða fólk í nám í þessum greinum. Starfsmenn Félags vélstjóra og málmtæknimanna (VM) hafa safnað upplýsingum um fjölda nemenda í málmtækninámi og greina frá niður- stöðunum í tímariti félagsins. Á ár- unum 2000 til 2100 voru 5.500 nem- endur skráðir á þessar námsbrautir skv. gögnum Hagstofunnar. Á sama tíma voru rúmlega 800 námssamn- ingar skráðir hjá IÐUNNI fræðslu- setri og af þeim hafa einungis um 630 lokið sveinsprófi. „Hér er ekki um skilvirkt kerfi að ræða þegar einungis um 12% ljúka námi,“ segja Guðni Gunnarsson og Halldór Arn- ar Guðmundsson, starfsmenn Kjara- og menntasviðs VM. Benda þeir á að í samtölum við kennara í málmiðnaðargreinum hafi smátt og smátt komið fram sú mynd að aðhald í rekstri skóla komi niður á þessum greinum. Skólarnir ná að reka grunndeildir þar sem þeir geta safnað saman nemendum í mismun- andi greinum í eitt undirbúnings- nám. Þegar kemur að framhalds- námi minnka hóparnir, oft undir þau lágmarksviðmið sem skólum eru sett. Engar umsóknir um sveinspróf í málmsuðu á seinustu árum IÐAN fræðslusetur annast mót- töku gagna og skráningu náms- samninga og sveinsprófa fyrir málmiðngreinar o.fl. Í fyrra bárust alls 125 umsóknir um sveinspróf í málmiðngreinum og netagerð. Þar var þó engin umsókn um málmsuðu á árunum 2009, 2010 og 2011 og engir námssamningar voru stað- festir á þessum árum. Einn náms- samningur var staðfestur í fyrra í blikksmíði og þrír í rennismíði. „Það vantar allar gerðir málmiðn- aðarmanna. Áliðnaðurinn hefur kvartað mest yfir skorti á vél- virkjum, suðumönnum og rafvirkj- um, sem virðist vera mikill skortur á hér á landi. Í málmiðnaðinum vantar verulega upp á að nægilega margir sæki sér menntun í þessum greinum á hverju ári,“ segir Þorsteinn Víg- lundsson, framkvæmdastjóri Samál, Samtaka álframleiðenda. Raunar segist hann þó sjá lítils- háttar teikn á lofti um að ástandið gæti aðeins verið að færast til betri vegar því ásókn í grunndeildir málmiðnaðarins hafi aukist á sein- ustu tveimur árum. ,,Vonandi er þetta að sækja á að nýju. Atvinnu- tækifærin eru mjög góð í þessum greinum og verða það á næstu ár- um,“ segir Þorsteinn. Hann segir að þessi skortur á málmiðnaðarmönnum hafi verið lengi til staðar og viðvarandi í grein- inni allri. ,,Benda má þeim sem eru að velta fyrir sér námi á sviði iðn- menntunar á að þetta er mjög ákjós- anleg grein til að velja sér, góð laun, stöðugt vinnuumhverfi og góðar at- vinnuhorfur vel fram á veginn,“ seg- ir Þorsteinn um áliðnaðinn og þær fjölmörgu atvinnugreinar sem selja álverunum þjónustu sína. Aðeins 12% ljúka málmtæknináminu Morgunblaðið/Golli Málmsuða Skortur á fagmenntuðu fólki í málmiðnaði er orðinn viðvarandi vandamál en fáir útskrifast úr málmtækninámi. 18 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2012 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Eitt meg-ineinkenniá stjórnmálaferli Jóhönnu Sigurðar- dóttur frá fyrstu tíð hafa verið hót- anir hennar. Allur hennar langi ferill er löðraður í hótunum. Þá sögu þekkja nú orðið flestir og sumir mjög vel. Hún hótaði samstarfs- mönnum sínum og flokkssystk- inum sínum reglubundið. Fengi hún ekki þessa eða hina sér- kröfu sína fram myndi hún fara. Henni kæmi ekkert við þótt aðr- ir hefðu náð samkomulagi um annað. Fengi hún ekki sitt fram, kröfu sem hún ein stóð að baki, færi hún úr ríkisstjórn, úr þing- flokki eða úr flokki, eftir því sem við átti í hvert sinn. Það var raunar með eindæm- um hversu lengi var látið undan hótunum af þessu tagi. Marg- föld reynsla er fyrir því að slíkt sé skammgóður vermir. Sagt hefur verið að sumir trúi því að kasti þeir sífellt fitumeiri kóte- lettum í kjaftinn á kröfuharðri kjötætu sé ekki hægt að útiloka að hún breytist óvænt í græn- metisætu. Þó munu ekki til þekkt dæmi um slíkan umsnún- ing. Og síst í tilviki Jóhönnu. Hún þakkaði aldrei þótt kom- ið væri til móts við óbilgjarnar kröfur hennar. Hún þakkaði sínum eigin hótunum þann ár- angur. Sérhver eftirgjöf vegna hótana kallaði fljótlega á nýjar kröfur og nýjar hótanir. Að lok- um fór það iðulega svo að mæl- irinn fylltist og Jóhanna fór úr ríkisstjórn, hún fór úr þing- flokki, hún fór úr flokki og stofnaði nýjan flokk til að skaða sinn flokk sem mest. Og nýja flokknum stjórnaði hún með hótunum. Frá fyrsta degi hinnar illa þokkuðu ríkisstjórnar sinnar hefur hún haft í hótunum. Hót- unum við embættismenn, hót- unum við stjórnarandstöðu, hótunum við þingið og hótunum við almenning. Hún hótaði efna- hagslegu öngþveiti ef Icesave yrði ekki samþykkt í þjóðar- atkvæðagreiðslu. Fólkið í landinu blés á þá hótun með eftir- minnilegum hætti. Hún hefur hótað þjóðaratkvæði um „kvótann“ en brást örg við þegar forsetinn kom með sína eigin hótun um sama efni undir aðeins öðrum formerkjum. Hún hefur hvert einasta ár hótað þingheimi með sumarþingi, ef hann afgreiddi ekki þingmál sem ríkisstjórn hennar lagði allt of seint fram og að auki í bullandi ágreiningi við allt og alla. Lengi vel brást stjórnarandstaðan of auðmjúk við hávaða og hótunum. Þegar forráðamenn í sjávar- útvegi leggja þunga áherslu á óskir um að við þá sé talað og á þá og aðra sé hlustað bregst Jó- hanna við með þeim eina hætti sem hún kann. Hún viðhefur stóryrði og hefur í hótunum. Stjórnarandstaðan á að grípa hótanir hennar um sumarþing fegins hendi. Fólkið í landinu er búið að fá sig fullsatt af hót- unum Jóhönnu Sigurðardóttur. Þær virka algjörlega öfugt. Þær eru þegar komnar langt með að murka lífið úr frama- vonum hennar eigin forseta- frambjóðanda. Þær styrkja stöðu stjórnarandstöðunnar dag frá degi. Þingflokkur Jó- hönnu hefur setið hræddur undir hótunum hennar í rúm þrjú ár. Þaðan berast þær frétt- ir að líka þar séu hótanir farnar að virka öfugt. Þar fari hiti vax- andi og bulli undir og spurs- málið sé aðeins hvenær sjóði upp úr. Tími Jóhönnu kom í rauninni aldrei. Hún stendur yfir svið- inni jörð sinnar pólitísku þröngsýni og þvermóðsku. Hún þvælist með hótunum fyrir end- urreisn landsins. Hótanir henn- ar eru innantómar og aumk- unarverðar. Þær virka ekki hætis hót, nema öfugt. Nú orðið eru hótanir Jóhönnu Sigurðar- dóttur eins og hver annar happdrættis- vinningur fyrir and- stæðingana} Hóti hún sem mest Almennar um-ræður vegna forsetakjörs fóru ekki vel af stað. Á meðan þær laga- reglur gilda um framboð og kosningu til þessa embættis eins og nú er verða miðlar að leitast við að gera ekki upp á milli frambjóðenda. Fjölmiðill getur tjáð sig í rit- stjórnargreinum sínum eins og hann kýs um álitaefni sem tengjast forsetakosningum og áherslum einstakra forseta- efna og hvað honum þyki mestu varða í kosingunum. En ætli fjölmiðill að öðru leyti beinlínis að vinna að kjöri tiltekins frambjóð- anda væri honum rétt að tilkynna það fyrirfram með skýrum hætti. Undanfarna áratugi hafa fjölmiðlar á Íslandi ekki kosið að fara þá leið við forsetakosn- ingar. Þar með hafa þeir und- irgengist skilyrði eins og það að leitast verði við að gefa frambjóðendum áþekkan kost á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Ýmsar óskráðar reglur gilda í for- setakosningum} Forsetakosningar fara af stað Í sland er eyja, umlukin hafi. Okkar lifi- brauð í gegnum aldirnar hefur verið það sem sjórinn og landið gefur okkur. Ísland byggist upp vegna hafsins. Það má sjá á þeim byggðarkjörnum sem hafa raðast upp hringinn í kringum landið. Allir hófu þeir sína tilveru vegna hafsins. Sjómannadagurinn var haldinn hátíðlegur víða um land á sunnudaginn. Hátíð tileinkuð hafinu fór fram í Reykjavík og höfuðborgar- búar flykktust niður á höfn til að sjá bátana, skoða fiskana og sýna sjómönnum stuðning á degi þeirra. Fæstir þeirra sem þarna voru hafa nokkru sinni migið í saltan sjó en það skiptir engu máli. Fólk kom þarna til að sýna einum grunnatvinnuveginum stuðning, til að sýna að það veit vel að það er hluti af sjávarútvegsþjóð. Árið 2011 voru lögskráðir 7.269 sjómenn hér á landi á 1.443 skipum, segir á vef Siglingastofnunar. Sjó- mannadagurinn er haldinn hátíðlegur ár hvert fyrir þessa menn (kvenmenn og karlmenn) en líka fyrir okkur hin sem sjávarútvegurinn skapar störf fyrir, okkur sem erum komin út af fólki sem sjórinn skapaði lífsviðurværið og fyrir okkur sem búum á þessari eyju með hið gjöfula haf allt í kring. Í þessu landi byggist okkar hagsæld að miklum hluta á sjónum. Sjávarútvegurinn skapar um 25.000 til 35.000 störf í hagkerfinu, beint eða óbeint. Um 20% af störfum í landinu eru tengd sjávarútveginum, segir í skýrslunni Þýðing sjávarklasans í íslensku efnahagslífi sem kom út í febrúar og var unnin af Íslandsbanka í sam- starfi við Íslenska sjávarklasann. Framlag sjávarútvegsins til þjóðarbúskapsins nemur um 26% af vergri landsframleiðslu. Það getur enginn haldið því fram að við hefðum það jafn gott hér ef ekki væri sjósóknin. Önnur grunnstoð Íslands er landbúnaður- inn. Innlend búvöruframleiðsla skapar um 10.000 störf. Eins og sjávarútvegurinn er land- búnaðurinn meginstoð undir fjölmörg byggðarlög, hann er stundaður í dreifbýli en skapar fjölmörg störf í þéttbýli. Samkvæmt tölum Bændasamtakanna tengist 5% til 6% af heildarvinnuafla landsins landbúnaði, þar af 15% af vinnumarkaði landsbyggðar. Þegar það er skoðað hvað þessir tveir grunnatvinnuvegir gefa okkur og hvernig saga þeirra er saga Íslands er undarlegt til þess að hugsa hvað ríkisstjórnin finnur þeim allt til foráttu. Landbúnaðurinn er atvinnuvegur sem forsætisráðherrann vill helst ekki vita af, enda nær hennar Ísland ekki út fyrir höfuðborgar- svæðið. Sjávarútveginn sjá þau aðeins sem tækifæri til að afla frekari tekna fyrir ríkiskassann, skítt með hvað verð- ur um hann í framtíðinni og það sem hann gefur á meðan þau fá meiri pening, skyndigróða, til að eyða í utanríkis- málin. Svo virðist sem stjórnin vilji lítið af grunnstoðum Íslands vita. Matvælaframleiðslan heldur í okkur lífinu á svo margan hátt og við eigum að standa vörð um það sem Ísland er byggt á. ingveldur@mbl.is Ingveldur Geirsdóttir Pistill Ísland er eyja, umlukin hafi STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon „Þessar greinar hafa ekki verið í tísku,“ segir Guðni Gunnarsson hjá VM um þá staðreynd að ekki hefur tekist að vekja áhuga á námi í málmtæknigreinum. Námið hefur verið skipulagt um eina grunndeild fyrir nokkr- ar greinar en þegar nemendur ætla að halda áfram og velja sér sérgrein minnka hóparnir og eru jafnvel orðnir of fámennir til að skólarnir geti haldið náminu áfram. Þetta leiðir svo til þess að nemendur jafnvel flosna upp úr náminu eða þurfa að bíða eft- ir að næstu árgangar hafa lokið sínu grunnnámi. Þetta áhugaleysi er líka um- hugsunarvert í ljósi þess hve margt fólk á vinnumarkaði er ófaglært. E.t.v.væri rétt að mati Guðna að bjóða upp á stighækk- andi réttindi eftir því sem líður á iðnnámið, líkt og gert er í vél- stjórnarnáminu, sem er mun vinsælla. Guðni segir að ekki skorti á áhuga skóla á að bjóða upp á þetta nám. „Hafa ekki verið í tísku“ MÁLMIÐNAÐURINN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.