Morgunblaðið - 05.06.2012, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2012
Fáðu
garðsláttinn
í áskrift
og slakaðu á í sumar
Sími 571 2000 | hreinirgardar.is
Styrmir Gunnarsson bendir áþað í leiðara á Evrópuvakt-
inni að aðild að ESB þýði að
formleg yfirráð yfir fiskimið-
unum við Ísland
hverfi til Brussel,
hvað sem kunni að
líða hugsanlegum
tímabundnum
undanþágum.
Þetta hafi alltaf
legið fyrir og þess
vegna sé svo erfitt
að skilja aðildar-
sinna.
Nú stefni í nýtt afsal fullveldisevruríkjanna því að fréttir
bendi til þess að forystusveit
evruríkjanna telji að ríkis-
fjármálasamningurinn dugi ekki,
heldur þurfi til að koma ríkisfjár-
málabandalag. Þetta feli í sér að
ákvarðanir um fjárlög einstakra
aðildarríkja séu teknar úr hönd-
um þjóðþinga og færðar til mynt-
bandalagsins.
Og Styrmir heldur áfram:„Mariano Rajoy, forsætisráð-
herra Spánar, setti þessar hug-
myndir fram fyrir helgi en á evr-
ópskum blöðum í morgun má sjá,
að stjórnvöld í Berlín hafa verið
að vinna að framgangi þessarar
hugmyndar að undanförnu á bak
við tjöldin. Í raun og veru má
segja, að slíkt ríkisfjármála-
bandalag sé skilyrði Þjóðverja
fyrir því að þeir láti meira fé af
hendi rakna til evruríkja í vanda.
Nú er gert ráð fyrir að leiðtoga-
fundur ESB, sem haldinn verður
seinna í júní, samþykki vegvísi að
ríkisfjármálabandalagi.“
Með þessu myndi fjár-lagavaldið færast frá Al-
þingi til Brussel.
Og ef fjárlagavaldið er í Bruss-el, hverju ræður Ísland þá
um eigin mál?
Styrmir
Gunnarsson
Fjárlagavaldið
til Brussel?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 4.6., kl. 18.00
Reykjavík 18 léttskýjað
Bolungarvík 10 léttskýjað
Akureyri 8 léttskýjað
Kirkjubæjarkl. 8 alskýjað
Vestmannaeyjar 9 heiðskírt
Nuuk 11 heiðskírt
Þórshöfn 8 skýjað
Ósló 12 skýjað
Kaupmannahöfn 12 skýjað
Stokkhólmur 12 léttskýjað
Helsinki 12 léttskýjað
Lúxemborg 12 skúrir
Brussel 8 léttskýjað
Dublin 12 léttskýjað
Glasgow 15 léttskýjað
London 12 léttskýjað
París 12 skýjað
Amsterdam 10 léttskýjað
Hamborg 12 skúrir
Berlín 13 skýjað
Vín 15 skúrir
Moskva 15 heiðskírt
Algarve 25 heiðskírt
Madríd 30 heiðskírt
Barcelona 22 léttskýjað
Mallorca 25 léttskýjað
Róm 21 léttskýjað
Aþena 27 heiðskírt
Winnipeg 22 heiðskírt
Montreal 12 alskýjað
New York 13 skúrir
Chicago 21 léttskýjað
Orlando 31 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
5. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:12 23:42
ÍSAFJÖRÐUR 2:19 24:45
SIGLUFJÖRÐUR 1:58 24:31
DJÚPIVOGUR 2:30 23:23
Ólafur Bernódusson
Skagaströnd
Þrír menn voru sæmdir heiðurs-
merki sjómannadagsins á Skaga-
strönd við hátíðahöld í tilefni dags-
ins. Allir voru þeir heiðraðir fyrir
björgunarafrek sem þeir unnu sem
ungir menn.
Sigurður Árnason var heiðrað-
ur fyrir að bjarga manni sem fallið
hafði útbyrðis í línuróðri af Vísi Hu
10 þann 7. nóvember 1961. Á sínum
tíma þótti ganga kraftaverki næst
að Sigurður, sem var skipstjóri á
Vísi, skyldi finna manninn aftur í
sjónum í kolamyrkri án nokkurra
hjálpartækja utan áttavita og dýpt-
armælis.
Birgir Þórbjörnsson og Sigurð-
ur Björnsson fengu sín heiðurs-
merki fyrir að bjarga konu og
tveimur barnungum frænkum henn-
ar frá drukknun eftir að bíll sem
þær voru í fór fram af hafnargarði
og í sjóinn. Það var 8. september
1962 að það slys varð á Skaga-
strönd að ung barnshafandi kona ók
fram af hafnargarði þegar hún var
að taka á móti manni sínum sem
var að koma heima af síldveiðum
eftir langt úthald. Sigurði Björns-
syni, sem var að vinna á bryggju
skammt frá, tókst með snarræði að
bjarga tveimur ungum stúlkum frá
drukknun með því að stinga sér í
sjóinn og halda þeim á floti þar til
frekari hjálp barst.
Birgir Þórbjörnsson var háseti
á bátnum sem var að koma heim.
Stakk hann sér til sunds er slysið
varð og tókst honum að bjarga syst-
ur ökukonunnar, sem var farþegi í
bílnum. Ökukonan festist í bílnum
og þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
tókst ekki að kafa niður að honum
þar sem hann lá á rúmlega sex
metra dýpi. Konan var látin þegar
bíllinn náðist upp um einum og hálf-
um tíma síðar.
Bæði Sigurður og Birgir eru
fæddir og uppaldir á Skagaströnd
og hafa unnið stærstan hluta starfs-
ævi sinnar hér.
Þrír sjómenn heiðraðir fyrir björgunarafrek
Þrír menn heiðraðir Á myndinni eru Reynir Lýðsson formaður björgunar-
sveitarinnar Strandar, Birgir Þórbjörnsson fyrrverandi togaraskipstjóri,
Auður Hjördís Sigurðardóttir, sem tók við heiðursmerkinu fyrir hönd Sig-
urðar Árnasonar föður síns og lengst til vinstri er Sigurður Björnsson húsa-
og bátasmiður.