Morgunblaðið - 05.06.2012, Blaðsíða 36
Rúnar Kárason, landsliðsmaður í
handknattleik, hefur ákveðið að
ganga til liðs við þýska 1. deildar liðið
Grosswallstadt eftir að Bergischer
HC féll niður í 2. deild. „Það var mjög
svekkjandi að falla. Takmarkið var að
vera áfram í efstu deild með Berg-
ischer en úr því sem komið er þá er
ég bara mjög spenntur fyrir Gross-
wallstadt,“ segir Rúnar. »1
Rúnar til liðs við
Grosswallstadt
ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 157. DAGUR ÁRSINS 2012
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 399 ÁSKRIFT 4390 HELGARÁSKRIFT 2750 PDF Á MBL.IS 2550
1. Stöð 2 læst stöð
2. Ég ældi bara á móti
3. Hvað mun Stöð 2 gera?
4. Nú skiptir um veðurlag
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Tónleikar söngkonunnar Buiku,
sem eru hluti af dagskrá Listahátíðar
í Reykjavík, verða haldnir 9. júní í Eld-
borg í Hörpu kl. 21.30. Halda átti tón-
leikana 3. júní sl. en þeim var frestað
vegna veikinda Buiku.
Tónleikar Buiku
haldnir 9. júní
Dagana 17.-19.
júní verður haldin
tónlistarhátíð í
Hörpu, Reykjavík
Midsummer Mus-
ic. Listrænn
stjórnandi hátíð-
arinnar er píanó-
leikarinn Víkingur
Heiðar Ólafsson.
Meðal verka sem flutt verða eru
Songs with Piano eftir Megas og Plus
sonat quam valet eftir Þorkel Sigur-
björnsson.
Víkingur stýrir tón-
listarhátíð í Hörpu
Skopmyndateiknarinn Hugleikur
Dagsson er meðal sýnenda á sjöttu
Caricatura-skopmyndasýningunni
sem stendur nú yfir í
Galerie im Kultur-
Bahnhof í Kassel í
Þýskalandi. Á sýn-
ingunni eru sýnd
ný verk evróp-
skra skopmynda-
teiknara frá átta
löndum og stendur
hún fram í sept-
ember.
Hugleikur sýnir á
Caricatura í Kassel
Á miðvikudag og fimmtudag Norðaustan 5-10 m/s og rigning á
N- og A-landi, en stöku skúrir annars staðar, einkum síðdegis. Hiti
3 til 13 stig, hlýjast sunnanlands.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Norðan og norðaustan, rigning með köflum
og slydda eða snjókoma til fjalla norðaustan og austanlands.
VEÐUR
FH-ingurinn Bjarki Gunnlaugsson
hafði ekki unnið jafnstóran sigur frá
því í yngri flokkunum þar til hann tók
þátt í 8:0-burstinu gegn Fylki. Bjarki
er leikmaður 6. umferðar hjá Morgun-
blaðinu og segir að
gott undirbúnings-
tímabil sé lykillinn
að góðri
frammistöðu
það sem af er
sumri. Hann
ætlar að flytja
til Hollands í
haust. »2-3
Stærsti sigur Bjarka
sem flytur til Hollands
ÍÞRÓTTIR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
„Þarna er öll saga Hauka frá 1969,“
segir Hermann Þórðarson og vísar á
úrklippusafn sitt í heiðursherbergi
Hauka að Ásvöllum, en í safninu er
allt sem skrifað hefur verið í dagblöð
og tímarit um Knattspyrnufélagið
Hauka í Hafnarfirði á umræddu
tímabili, um það bil ein stór bók á ári
í um 43 ár.
Félagið var stofnað 12. apríl 1931,
um hálfum mánuði eftir að Hermann
fæddist. Hann varð samt Hauka-
maður fyrir tilviljun. „Ég var beðinn
um að koma til liðs við Hauka 1969,
varð strax ritari í stjórn handknatt-
leiksdeildar, og byrjaði þá að safna
úrklippum um Hauka,“ rifjar Her-
mann upp. Hann lék áður handbolta
með Ármanni og fótbolta með Val en
flutti í Hafnarfjörð 1961. „Við vorum
nokkrir flugumferðarstjórar sem
vorum nýbyrjaðir að vinna og viss-
um ekki hvað við ættum að gera við
allan frítímann. Okkur datt í hug að
byggja hús, fengum ekki lóð í
Reykjavík en í Hafnarfirði og
byggðum þar sex íbúða blokk.
Magnús Guðjónsson prentari, þá-
verandi formaður handknattleiks-
deildar Hauka, leigði kjallarann fyr-
ir prentsmiðjuna, fékk nasasjón af
því að ég hafði komið nálægt hand-
bolta og fékk mig til starfa.“
Haukaherbergi heima
Hermann er með sérstakt vinnu-
herbergi heima hjá sér og það
er sannkallað Hauka-
herbergi. Liðsmyndir af Ís-
lands- og bikarmeisturum
félagsins prýða veggina
ásamt veifum og auglýs-
ingaspjöldum vegna Evr-
ópuleikja. Við skrifborðið
eru kassar og öskjur
sem hann flokkar
efnið í áður en
hann límir úrklippurnar inn í sér-
stakar bækur sem Guðlaugur Atla-
son, bókbandsmeistari í Vogum, út-
býr fyrir hann. „Ég kaupi öll blöð
eða hef aðgang að þeim og safna öllu
prentuðu máli sem viðkemur Hauk-
um,“ segir Hermann, sem á ættir að
rekja til Vestfjarða.
„Ég hef líka tekið frá greinar sem
Haukamenn hafa skrifað, auglýs-
ingar frá fyrirtækjum sem styrkja
Hauka og svo er ég með dúllur til
uppfyllingar.“
Hermann fer samviskusamlega
yfir öll blöð, klippir út Haukaefni og
raðar úrklippunum upp eftir dag-
setningum.
„Svo sest ég niður, byrja að klippa
og raða efninu inn á síðurnar. Það
getur tekið heilan dag að ganga frá
einni síðu.“
Blaðaúrklippur í rúm 40 ár
Safnar sögu
Hauka um leið
og blöð segja frá
Morgunblaðið/RAX
Sagnfræði Hermann Þórðarson safnar öllu sem skrifað er um Hauka og setur í sérstakar úrklippubækur.
„Nú er ég bara gamli karlinn og sit úti í horni,“ segir Hermann Þórðar-
son, heiðursfélagi Hauka, um afskipti sín af íþróttunum.
Hann segist reyna að fara á sem flesta heimaleiki Hauka í handbolt-
anum og er á því að tvöfalda meistaraliðið 2001 hafi
verið besta karlalið Haukanna til þessa. Hrifnastur
er hann af leikmönnunum Halldóri Ingólfssyni og
Petr Baumruk. „Ég stóð að því að fá Petr hingað
heim,“ segir hann hróðugur.
Hermann var ritari handknattleiksdeildar Hauka
1969 og síðan formaður 1970-1974 og 1987-1989.
Hann var varaformaður aðalstjórnar Hauka 1974-
1977 og formaður 1978-1981. Hann var formaður
félagsráðs 1976-1978 og í stjórn HSÍ um tíma.
Halldór og Petr bestir
HERMANN ÞÓRÐARSON HEIÐURSFÉLAGI HAUKA
Lið Þórs/KA situr eitt í
efsta sæti úrvalsdeildar
kvenna, Pepsi-deildar-
innar, eftir að 5. umferð
lauk í gærkvöldi. Þór/KA
hafði betur gegn Breiða-
bliki í uppgjöri efstu lið-
anna, 2:0. Íslandsmeist-
arar Stjörnunnar skutust
upp í annað sæti, Valur
marði sigur á KR og nýlið-
ar Selfoss fögnuðu sínum
öðrum sigri í deildinni. Þá
vann ÍBV Fylki. »2
Þór/KA eitt á
toppnum