Morgunblaðið - 05.06.2012, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 05.06.2012, Blaðsíða 14
FRÉTTASKÝRING Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Skoðanakannanir fyrir forsetakosn- ingarnar benda til þess að miklar sveiflur séu á fylgi forsetaframbjóð- enda. Athyglisvert er hve ólíkar nið- urstöður hafa komið frá þeim aðilum sem framkvæmt hafa skoðanakann- anirnar. Fjórir rannsóknaraðilar hafa framkvæmt þær fylgiskannanir sem birst hafa í fjölmiðlum að undan- förnu. Það eru Capacent Gallup, Fé- lagsvísindastofnun Háskóla Íslands, markaðsrannsóknafyrirtækið MMR og Stöð 2 og Fréttablaðið sem birta sameiginlega niðurstöður skoðana- kannana. Mikill fylgismunur Nokkuð mikill munur er á fylgi frambjóðenda til forsetakosinganna eftir því hvaða rannsóknaraðili birtir niðurstöður skoðanakönnunar. Hjá Stöð 2 og Fréttablaðinu mældist Ólafur Ragnar Grímsson, 1. júní, efstur forsetaframbjóðendanna með 56% fylgi en Þóra með um 34% fylgi. Munurinn á fylgi þeirra mæld- ist því um 22%. Hjá Capacent Gallup mældist Ólafur, 26. maí, með 45,3% fylgi, en Þóra með 36,7% fylgi. Munurinn þar er um 8,6%. Hjá MMR sem birti sína könnun 25. maí mældust Þóra og Ólafur jöfn með um 41,2% fylgi hvort. Hjá Félagsvísindastofnun Há- skóla Íslands mældist Þóra hinn 18. maí með 46,2% fylgi en Ólafur Ragnar með 37,8% fylgi. Munurinn á milli þeirra í þessari könnun er 8,4% Þóru í hag. Munur á hæsta og lægsta mælda fylgi Ólafs í þessum könnunum er um 18% hjá Stöð 2 og Fréttablaðinu annars vegar og Félagsvísindastofn- un hins vegar. Munur á hæsta og lægsta fylgi Þóru er rúm 12%. Hæst hjá Félagsvísindastofnun en lægst hjá Stöð 2 og Fréttablaðinu. Hér ber að taka það fram að 14 dagar liðu á milli birtingar könnunar Stöðvar 2 og Fréttablaðsins annars vegar og Félagsvísindastofnunar hins vegar. Einnig ber að hafa í huga að mun meira samræmi er í niðurstöðum einstakra rannsakenda á milli kann- ana en er á milli ólíkra rannsakenda. Ólík aðferðafræði Fyrir forsetakosningarnar árið 1996 mældust tveir efstu frambjóð- endurnir, Ólafur Ragnar Grímsson og Pétur Kr. Hafstein, reglulega með um 40% og 30% fylgi. Helstu fylgisbreytingarnar urðu í kjölfar brotthvarfs Guðrúnar Pétursdóttur sem var með um 10% fylgi þegar hún hætti við framboð. Það fylgi dreifðist nokkuð jafnt á þá fram- bjóðendur sem eftir stóðu. Ólafur Þ. Harðarson er prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla Ís- lands. Hann segir skoðanakannanir unnar með ólíkri aðferðafræði. „Hluti af sveiflum á milli þessara kannana þarf ekki að stafa af raun- verulegum fylgissveiflum, heldur mismunandi aðferðum við öflun upp- lýsinga,“ segir Ólafur. Ekki verður horft framhjá því að sérstaklega mikill munur er á könn- unum Stöðvar 2 og Fréttablaðsins og hinna rannsakendanna. Samkvæmt upplýsingum Ólafs Þórs Gylfasonar, framkvæmda- stjóra MMR, eru kannanir Fé- lagsstofnunar, MMR og Capacents Gallup unnar með sambærilegum hætti. Tekið er úrtak úr þjóðskrá. Hringt er í þá sem eru í því úrtaki og þeir spurðir hvort þeir séu til- búnir til þess að svara spurningalist- um rannsakenda. Listarnir eru svo sendir á viðkomandi einstaklinga á netinu. .„Gagnaöflunaraðferðin skiptir ekki öllu máli, heldur hvernig þú nærð í þá sem eru í úrtakinu,“ segir Ólafur. Hjá Stöð 2 og Fréttablaðinu er hringt heim til fólks og það spurt þriggja spurninga sem taka um hálfa mínútu í svörun að sögn Sverr- is Agnarssonar sem sér um kann- anirnar. Notast er við lagskipt úr- tak. „Við ákveðum fyrir fram hversu marga við viljum ná í eftir kyni, bú- setu og 10 ára aldursbilum og höfum hliðsjón af lýðfræðilegri samsetn- ingu þjóðarinnar samkvæmt þessum breytum,“ segir Sverrir. Í síðustu könnun var hringt í 2.214 manns, þar af náðist í 1503 einstaklinga. Ólíkar aðferðir útskýra mun á fylgi frambjóðenda  Þurfa ekki að tákna fylgissveiflu  Fjórir aðilar hafa framkvæmt fylgiskannanir Ólík aðferðafræði Mikill munur á fylgi frambjóðenda eftir skoðanakönn- unum. Þeir sem framkvæma kannanirnar notast við ólíkar aðferðir. 14 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2012 Á sjómannadaginn hlaut áhöfn Bylgju VE 75 viðurkenningu frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg fyrir að hafa sýnt öðrum fremur góða öryggisvitund á námskeiðum Slysavarnaskóla sjómanna. Skipstjóri er Óskar Matthíasson og tók hann á móti viðurkenning- unni fyrir hönd áhafnarinnar frá Herði Má Harðarsyni, formanni Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Viðurkenningin sem veitt er ár- lega er farandbikar sem afhentur er til varðveislu um borð í viðkom- andi skipi í eitt ár ásamt veggskildi til eignar. Áhöfnin á Bylgju VE hlaut viðurkenninguna einnig árið 2007 og er henni óskað farsældar með þennan góða árangur, segir í frétt frá Landsbjörg. Landsbjörg heiðrar sjómenn á Bylgju VE Hugarafl heldur upp á 9 ára afmæli sitt þriðjudaginn 5. júní. Haldið verður upp á daginn með svoköll- uðu rúmruski. Sjúkrarúmi með ,,sjúklingi“ verður ýtt frá bráða- móttöku geðsviðs LSH við Hring- braut, um Skólavörðustíg og alla leið niður á Lækjartorg. Þar verður sungið og farið í leiki. Síðan liggur leiðin í húsnæði Hugarafls, að Borgartúni 22, 2.hæð, þar sem boð- ið er til afmæliskaffis. Haldið verð- ur af stað í rúmruskið kl. 16:00. „Með þessu viljum við vekja athygli á að geðraskanir eru langt frá því að vera leyst vandamál. Þessi vandi verður ekki leystur með því að fela hann inni á geðdeildum,“ segir í frétt frá Hugarafli. Nánari upplýs- ingar eru á www. hugarafl.is. Rúmrusk verður á afmæli Hugarafls Þriðjudaginn 5. júní kl. 19:30 mun Agnar Jónsson, safnvörður í Sjó- minjasafninu Víkinni í Reykjavík, leiða göngu um Viðey. Agnar hefur um árabil kynnt sér sögu útgerðar í Reykjavík og aflað sér mikillar þekkingar á því sviði. Að þessu sinni mun hann fjalla um skipskaða við Viðey. Margar sagnir eru til af skipsköðum á sundunum í Kolla- firði en þeirra þekktastar eru um Ingvarsslysið 7. apríl 1906 og strand tundurspillisins Skeena þann 24. október 1944. Á þriðju- dagskvöldum í sumar eru aukaferð- ir til Viðeyjar frá Skarfabakka kl. 18:15 og 19:15. Kaffihúsið í Viðeyj- arstofu er opið þessi kvöld. Gangan tekur eina og hálfa klukkustund. Viðeyjarganga Reykjavíkurborg hefur ákveðið að opna Höfða fyrir gestum og gang- andi á morgun, þriðjudaginn 5. júní, og verður húsið opið í allt sumar milli klukkan 11 og 16 virka daga. Húsið hefur verið notað sem vettvangur fyrir gesta- móttökur á vegum borgarinnar og aðeins verið opið fyrir gesti á menningarnótt Reykjavíkurborgar. En nú verður breyting á og allir áhugasamir eiga þess kost að skoða húsið frítt en tekið er við frjálsum framlögum á staðnum, segir í til- kynningu frá borginni. Höfði opnaður fyrir ferðamenn í sumar STUTT Stöð 2 hefur fengið nokkuð harða gagnrýni á framgöngu spyrla og lýðræðislegt hlutverk sitt sem fjölmiðils í aðdraganda forsetakosninganna eftir að þrír forsetaframbjóðendur gengu út úr kappræðum sem haldnar voru í Hörpu á sunnu- dag. Versta aðstaða sem hægt er að lenda í Freyr Einarsson, ritstjóri fréttstofu Stöðvar 2, segir að mikið álag hafi komið upp við þessa óvæntu atburðarás. „Við höfðum enga hugmynd um að þetta stæði til. Þetta er einhver versta að- staða sem hugsast getur í beinni útsendingu,“ segir Freyr. Andrea Ólafsdóttir forsetaframbjóðandi ritaði pistil með nánari útskýringum á útgöngu sinni úr þættinum. Þar segir hún meðal annars að hún hafi verið að mótmæla því að til hafi staðið að etja Ólafi Ragnari Gríms- syni og Þóru Arnórsdóttur saman í kappræður hvoru gegn öðru. Það sé venjan þar sem tveir frambjóðendur séu um embættið líkt og í Bandaríkj- unum og í Frakklandi. Á Ís- landi sé lýðræðisuppbygging ólík þar sem fleiri frambjóð- endur geti boðið sig fram. Freyr segir þetta eiga sér fordæmi. „Þetta er algengt í Skandinavíu og Bretlandi. Fólk á það til að rugla saman hlutverki RÚV sem ríkisfjölmiðils og okkar sem einkarekins fjölmiðils. Að auki er þetta ekki einsdæmi á Íslandi. Í Silfri Egils var því mótmælt að minni framboð fyrir alþingiskosn- ingar fengju ekki aðgang að umræðuþættinum,“ segir Freyr. Ætla að vinna með frambjóðendum áfram Hann segir þó fréttastofuna taka til sín gagn- rýnina og að hún muni gera sitt til þess að sættast við þá frambjóðendur sem gengu út. Enn stendur til að sýna fjóra þætti í aðdraganda kosninganna. „Við sem fjölmiðill förum að sjálfsögðu ekki í fýlu út í frambjóðendur. Við tökum til okkar gagn- rýnina og við reynum að finna flöt á því að vinna með þessu fólki áfram,“ segir Freyr. vidar@mbl.is Fara ekki í fýlu út í frambjóðendur Freyr Einarsson Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Fataskápar í miklu úrvali

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.