Morgunblaðið - 05.06.2012, Blaðsíða 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2012
✝ Ólöf Karvel-sdóttir fæddist í
Hnífsdal við Ísa-
fjarðardjúp 15. nóv-
ember 1916. Hún
lést á Hrafnistu,
Hafnarfirði, 27. maí
2012.
Foreldrar hennar
voru Ólafía Guð-
finna Sigurð-
ardóttir, f. 4. októ-
ber 1886, d. 15.
febrúar 1924 og Karvel Halldór
Jónsson, f. 13. nóvember 1884, d.
26. mars 1943. Systkini Ólafar
voru Sigríður Viktoría, f. 27. júní
1920, d. 10. febrúar 2002 og Ólaf-
ur Guðfinnur Sigurður, f. 10. febr-
úar 1924, d. 15. janúar 2002. Við
lát móður systkinanna tóku móð-
ursystir þeirra og eiginmaður
hennar, Helga Sigurðardóttir, f.
18. nóvember 1895, d. 19. janúar
1981 og Alfons Gíslason, f. 4. febr-
úar 1893, d. 19. maí 1975, í Hnífs-
dal, þau í fóstur. Börn þeirra og
fóstursystkini Ólafar eru: Ólafía
Guðfinna, f. 17. maí 1924, Helga,
f. 19. ágúst 1927 og Þorvarður, f.
23. júní 1931. Ólöf var mjög ná-
komin móðurömmu sinni, Hall-
dóru Sveinsdóttur, og sótti mikið
til hennar á sínum uppvaxt-
arárum.
Ólöf giftist 1. janúar 1942 Páli
Pálssyni frá Hnífsdal, f. 1. apríl
1914, d. 19. desember 1994. For-
eldrar hans voru Guðrún Guð-
ríður Guðleifsdóttir, f. 4.7. 1895,
d. 3.3. 1923 og Páll Pálsson, f.
10.7. 1883, d. 26.3. 1975. Börn
þeirra Ólafar og Páls eru: 1)
Kristján, f. 1. desember 1944.
Börn hans og Aðalheiðar Jóhann-
esdóttur: a) Arndís, f. 14.4. 1969.
arsdóttur. Dætur þeirra eru Arna
Björg, Ástrós Erla, Sunna Sól og
Eva Rún Gústafsdóttir (fóst-
urdóttir), dóttir hennar er Gabrí-
ela Rós Hafliðadóttir. b) Gunnar
Örn, f. 3.4. 1975. Sonur hans og El-
ísabetar S. Arndal er Breki.
Kvæntur Elísabetu Haraldsdóttur,
dóttir þeirra er Natalie Lea. c)
Karvel Þór, f. 4.3. 1977. 5) Guðlaug
Björg, f. 2. febrúar 1955, d. 9. febr-
úar 1986.
Ólöf ólst upp í Hnífsdal og gekk
þar í barnaskóla í fjóra vetur. Eftir
það stundaði hún nám í versl-
unarfræðum 1933-36, m.a. við
Verslunarskóla Íslands, og lauk
verslunarprófi frá þeim skóla.
Næstu árin stundaði hún skrif-
stofu- og verslunarstörf í Reykja-
vík og á Siglufirði. Fyrstu hjúskap-
arár sín bjuggu hún og Páll,
eiginmaður hennar, í Reykjavík.
Árið 1952 flutti fjölskyldan til Ísa-
fjarðar þar sem Páll tók við skip-
stjórn á togaranum Sólborgu ÍS
260. Þar átti fjölskyldan sín bestu
ár „í faðmi fjalla blárra“. Árið 1963
flutti fjölskyldan til Reykjavíkur á
ný. Fyrstu áratugi hjúskaparins
var heimilishaldið í fyrirrúmi hjá
Ólöfu, enda eiginmaðurinn löngum
fjarri á sjó. Jafnframt tók hún
virkan þátt í ýmsu félags- og
stjórnmálastarfi, svo sem á vett-
vangi Slysavarnafélags Íslands og
Sjálfstæðisflokksins. Þá hafði hún
ánægju af hannyrðum og dag-
legum gönguferðum og var slyng
við briddsborðið. Ólöf var trúuð og
rækti trú sína til hinstu stundar.
Eftir að hún fluttist á ný til Reykja-
víkur starfaði hún fyrst við versl-
unarstörf en síðan um árabil á
skrifstofu borgarfógetans í
Reykjavík. Síðustu árin bjó Ólöf á
Hrafnistu í Hafnarfirði.
Útför Ólafar fer fram frá Lang-
holtskirkju í dag, 5. júní 2012 kl.
11.
Sonur hennar og
Stefáns Hrafns
Hagalín er Bjartur
Steinn. Gift Ingólfi
Ásgeirssyni, sonur
þeirra er Kristján
Árni. b) Ólöf, f.
17.10. 1970. Dóttir
hennar og Guð-
mundar Óttars-
sonar er Bára. Gift
Davide James
Meadowes, dóttir
þeirra er Una Margrét. Kvæntur
Sóleyju Höllu Þórhallsdóttur, f.
11.7. 1953. Börn þeirra: c) Hall-
gerður Lind, f. 25.10. 1978, sam-
býlismaður Magnús Þórarinsson.
Dóttir þeirra er Sóley Karen. d)
Sigrún, f. 8.4. 1980, sambýlis-
maður Guðmundur Arnar Sig-
mundsson. Synir þeirra eru Rún-
ar Atli og Sigmundur Ingi. 2)
Ólafur Karvel, f. 29. janúar 1946,
kvæntur Svandísi Bjarnadóttur,
f. 18. apríl 1946. Börn þeirra: a)
Berglind Rán, f. 19.12. 1972.
Dóttir hennar og Guðna Gunn-
arssonar er Andrea Lóa. b) Mar-
grét Ólöf, f. 13.3. 1975. Synir
hennar og Gunnars Atla Gunn-
arssonar eru Kári og Kolbeinn
Óli. Sambýlismaður Daði Hann-
esson. Dóttir þeirra er Heiðdís
Ninna. 3) Guðrún Helga, f. 5.
ágúst 1949. Sonur hennar og
Kristjáns Más Kárasonar: a) Páll
Rúnar, f. 28.8. 1976, kvæntur
Láru Rún Sigurvinsdóttur. Börn
þeirra eru Dagmar Guðrún, Rún-
ar Logi og Kristján Orri. 4)
Ólafía Guðfinna, f. 24. júní 1951,
gift Arnari Hákoni Guðjónssyni,
f. 19. nóvember 1949. Börn
þeirra: a) Páll, f. 31.8. 1970,
kvæntur Gullveigu Unni Ein-
Í dag kveðjum við elskulega
tengdamóður mína, Ólöfu Karvel-
sdóttur.
Ég hitti Lóu, eins og hún var
kölluð af sínum nánustu, fyrst fyr-
ir 37 árum þegar ég fór að venja
komur mínar í Bræðratunguna
með Kristjáni syni hennar. Elsku-
legt viðmót hennar lét mig finna
að ég var velkomin í fjölskylduna.
Síðan eru liðin mörg ár og margar
ógleymanlegar samverustundir.
Lóa var sérstök kona. Hún var
einstaklega vingjarnleg og
hjartahlý og öllum leið vel í návist
hennar. Hún bjó yfir rólyndi og
æðruleysi sem einkennir marga af
hennar kynslóð. Kynslóð sem
gerði sér grein fyrir að það er
ekkert sjálfgefið í þessum heimi.
Í huga Lóu var ekki til kyn-
slóðabil og það sést best á því
hvað hún var mikill vinur barna-
barnanna og hvað þau leituðu
mikið til hennar. Lóa var mjög fé-
lagslynd og vildi helst alltaf hafa
fullt hús af gestum. Hún notaði
hvert tækifæri til að fá fjölskyld-
una í mat eða kaffi og alltaf var
hún svo kát og elskuleg. Við fjöl-
skyldan höfum svo sannarlega
notið samvistanna og barnabörnin
minnast allra stundanna með
miklu þakklæti.
Lóu var mjög umhugað um ís-
lenskt mál og ræddi oft um mik-
ilvægi þess að við varðveittum vel
tungu okkar. Hún kunni mjög
mikið af ljóðum og fór oft með vís-
ur og heilu ljóðabálkana fyrir okk-
ur. Við deildum áhuga á ljóðum
Jónasar Hallgrímssonar og fórum
oft saman með ljóð eftir hann. Það
er gott nú að minnast þeirra
stunda.
Hún var bókelsk kona og las
alla tíð mikið. Í bókaskáp hennar
var að finna marga dýrgripi, m.a.
mjög gamlar bækur sem hún
hafði forðað frá skemmdum þegar
hún var ung kona. Fyrir nokkrum
árum gaf hún mér frumútgáfu af
Lýðmennt eftir Guðmund Finn-
bogason sem kom út árið 1903 og
hafði þá orð á því að við sem störf-
uðum nú í grunnskólunum mætt-
um líta meira til hans hugmynda
en nú væri gert. Hún hafði þann
skilning að menntun ætti að gera
okkur að betri manneskjum. Hún
batt einnig inn gamlar bækur og
gerði það glæsilega. Hún bar virð-
ingu fyrir gömlum munum og
hvatti þá sem yngri voru til að
gera það einnig.
Lóa var vel að sér á svo mörg-
um sviðum hvort sem var í bók-
menntum, myndlist, sögu eða
landafræði. Hún hafði ótrúlega
gott minni sem alltaf var hægt að
treysta og var það ósjaldan að við
hin yngri leituðum til hennar þeg-
ar við vorum í vafa um eitthvað.
Margar ferðir fórum við vestur
til átthaganna og eru þær ferðir
ógleymanlegar en hún hélt mikilli
tryggð við æskuslóðirnar í Hnífs-
dal þar sem hún átti svo góðar
minningar.
Ég er innilega þakklát fyrir að
hafa átt samleið með Lóu þessi ár.
Þakklát fyrir allt sem hún gerði
fyrir mig og með mér. Þakklát
fyrir hvað hún hugsaði vel um
barnabörnin og barnabarnabörn-
in. Hennar verður minnst með
mikilli hlýju.
Blessuð sé minning minnar
kæru tengdamóður.
Sóley Halla Þórhallsdóttir.
Í dag kveðjum við ömmu okkar
Lóu sem hefur alla tíð verið stór
hluti af lífi okkar barnabarnanna.
Síðan amma Lóa kvaddi höfum
við yljað okkur við margar góðar
minningar tengdar henni, hvernig
hún hafði áhrif á okkur öll og
hvernig hún var okkur mikil fyr-
irmynd að svo mörgu leyti.
Það var oft mikið fjör í gamla
daga í Bræðratungunni þegar
stórfjölskyldan var þar saman-
komin. Í minningunni var veðrið
alltaf gott og húsið fullt af fólki.
Hjá ömmu voru allir velkomnir og
vildi hún hafa fólk hjá sér sem
lengst. Þegar sást fararsnið á fólki
spruttu nýjar sortir fram úr skáp-
unum; vanilluhringir, banana-
rúlluterta eða dísætar pönnukök-
ur. Bestar voru samt
samræðurnar og sá hlýleiki sem
hún umlukti okkur með.
Eitt helsta einkenni ömmu var
að hún var mikil félagsvera og
ræktaði vel sambandið við fólkið í
kringum sig. Hún var vel inni í lífi
okkar allra og tókst á sinn ein-
staka hátt að láta okkur öllum tíu
líða eins og hvert okkar væri al-
veg sérstakt.
Náttúran, íslensk tunga og sag-
an voru henni mjög hugleikin og
hún þreyttist ekki á að reyna að
smita okkur af þessum áhuga og
kenna okkur að njóta þess sem
náttúran hefur upp á að bjóða.
Sumum okkar kenndi hún að
leggjast á magann á jörðina og
draga að okkur andann til að finna
ilminn af moldinni og gróðrinum.
Margar voru þær stundirnar
sem við áttum með henni í berja-
mó og að tína blóðberg eða fjalla-
grös sem svo voru notuð til te-
gerðar. Teið drukkum við svo með
bestu lyst á meðan amma lýsti
hversu mikil meinabót íslensku
fjallagrösin eru.
Amma lifði lífinu til eftir-
breytni. Hún var vel menntuð
kona sem ferðaðist um heimsins
höf, víðlesin tungumálamann-
eskja sem elskaði tónlist. Hún
kunni fjöldann allan af vísum,
kvæðum og bænum og hafði yndi
af því að fara með þau þegar til-
efni gafst og kenna okkur krökk-
unum. Þessi vísa er ein af mörg-
um:
Gaman væri að gleðja hana ömmu
og gleðibros á vanga hennar sjá,
því amma hún er mamma hennar
mömmu
og mamma er það besta sem ég á.
Í rökkrinu hún segir mér oft sögur,
svæfir mig er dimma tekur nótt,
syngur við mig kvæði fögur,
þá sofna ég bæði sætt og vært og
rótt.
(Björgvin Jörgensson)
Trúin var ömmu dýrmæt og
veitti henni mikinn styrk á erfið-
um stundum í lífi hennar eins og
þegar afi og Gulla dóu. Það er því
huggun að hún amma okkar, sem
við söknum svo sárt, skuli vera
komin þangað sem hún óskaði sér,
sameinuð gengnum ástvinum.
Arndís, Páll, Ólöf,
Berglind, Margrét, Gunnar,
Páll Rúnar, Karvel, Hall-
gerður og Sigrún.
Ólöf Karvelsdóttir
Fleiri minningargreinar
um Ólöfu Karvelsdóttur bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Garðar
Tökum garðinn í gegn!
Klippingar, trjáfellingar, beða-
hreinsanir, úðanir og allt annað sem
við kemur garðinum þínum.
Áratuga reynsla, skilvirk vinnubrögð
og umfram allt hamingjusamir
viðskiptavinir.
20% afsláttur eldri borgara.
Garðaþjónustan: 772-0864.
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Þjónusta
Heimilisaðstoð óskast
Óska eftir aðstoð, aðallega við
eldamennsku.
Nánari upplýsingar í síma:
553 4449.
Byggingavörur
Harðviður til húsabygginga
Sjá nánar á www.vidur.is
Vatnsklæðning, panill, pallaefni,
parket, útihurðir o.fl. Gæði á góðu
verði. Nýkomnar Eurotec A2 harð-
viðarskrúfur. Penofin harðviðarolía.
Indus ehf., Óseyrarbraut 2, Hf.
Upplýsingar hjá Magnúsi í símum
6600230 og 5611122.
Bílaþjónusta
GÆÐABÓN
Ármúla 17a
Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310
Það besta fyrir bílinn þinn
Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon,
blettun, bryngljái, leðurhreinsun.
Ökukennsla
Kenni á BMW 116i
Snorri Bjarnason,
sími 892 1451.
Bilaskoli.is
Hjólhýsi
HJÓLHÝSA- OG BÍLALEIGA
Hjólhýsi með öllu tilheyrandi - helgar-
eða vikuleiga. Einnig heimagisting.
Upplýsingar: Gistiheimilið Njarðvík.
Sími 421 6053 / 898 7467/691 6407.
www.gistiheimilid.is
Húsviðhald
Hreinsa þakrennur, laga
ryðbletti, hreinsa garða o
tek að mér ýmis smærri
verkefni.
Sími 847 8704,
manninn@hotmail.com
Kaupi silfur
Vantar silfur til bræðslu og endur-
vinnslu.
Fannar verðlaunagripir.
Smiðjuvegi 6, rauð gata, Kópavogi
fannar@fannar.is - s. 551-6488
✝
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
SVEINBJÖRN ÓLAFSSON
rennismiður,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði miðvikudaginn
30. maí.
Útförin verður gerð frá Hafnarfjarðarkirkju
þriðjudaginn 5. júní kl. 15.00.
Borghildur Þorláksdóttir,
María Sveinbjörnsdóttir, Steen Jörgensen,
Trausti Sveinbjörnsson, Ingveldur Einarsdóttir,
Margrét Ólöf Sveinbjörnsdóttir, Þórir Steingrímsson,
Ásta Sveinbjörnsdóttir,
Ólöf Þóra Sveinbjörnsdóttir,
Erla Sveinbjörnsdóttir, Grétar Páll Stefánsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
BRANDUR FRANKLÍN KARLSSON,
Bröttuhlíð 16,
Hveragerði,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
miðvikudaginn 30. maí.
Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju
miðvikudaginn 6. júní kl. 13:00.
Björn J. Brandsson, Katrín Jónsdóttir,
Anna B. Brandsdóttir, Sigfús Gunnbjörnsson,
Katrín K. Brandsdóttir, Valdimar Aðalsteinsson,
Karl V. Brandsson, Inga Lára Ísleifsdóttir,
Halldóra Brandsdóttir, Guðlaugur Magnússon,
Hjördís G. Brandsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og
langalangamma,
KRISTÍN INGVARSDÓTTIR,
Hrafnistu í Reykjavík,
lést fimmtudaginn 31. maí.
Jarðsett verður í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Ingvar Sveinsson, Hanna Elíasdóttir,
Ólafía Sveinsdóttir, Agnar Ármannsson,
Guðbjörg Sveinsdóttir, Garðar Eyland Bárðarson,
Björn Sveinsson, Bergþóra María Bergþórsdóttir,
Kristín Sveinsdóttir, Stefán Ísfeld,
barnabörn, barnabarnabörn
og barnabarnabarnabarn.
✝
Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar,
dóttir, tengdamóðir, fósturmóðir og systir,
EYBJÖRG B. HANSDÓTTIR
heimilislæknir,
Sjávargötu 36,
Álftanesi,
lést á Líknardeild Landspítalans í Kópavogi
sunnudaginn 3. júní.
Útför verður auglýst síðar.
Einar Trausti Kristinsson,
Stefanía Sunna Ragnarsdóttir, Sverrir Örn Einarsson,
Sigrún Alda Ragnarsdóttir, Sindri Andrésson,
Kristján Ingi Ragnarsson,
Brynjar Freyr Ragnarsson,
Lilja Kristín Einarsdóttir,
Elínborg Þuríður Björnsdóttir,
fósturdætur og systkini.