Morgunblaðið - 05.06.2012, Síða 17

Morgunblaðið - 05.06.2012, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2012 Undirréttur í Danmörku dæmdi í gær fjóra menn í tólf ára fangelsi fyrir að undirbúa hryðjuverk sem fremja átti í Kaupmannahöfn til að hefna fyrir birtingu skopmynda af Múhameð spámanni. Saksóknarar í málinu höfðu krafist þess að menn- irnir yrðu dæmdir í 14-16 ára fang- elsi. Saksóknararnir vildu að Mounir Dhahri, 46 ára Túnisi, búsettur í Sví- þjóð, yrði dæmdur í sextán ára fang- elsi. Hann er talinn hafa verið höf- uðpaurinn í samsærinu. Við réttar- höldin kom fram að Dhahri hvarf sporlaust í tvö ár og dvaldi um tíma í Pakistan áður en hann sneri aftur til Svíþjóðar í nóvember 2010. Hinir mennirnir þrír eru allir sænskir ríkisborgarar. Sahbi Za- louti, sem er 39 ára og fæddist í Tún- is, er talinn hafa átt stóran þátt í undirbúningi hryðjuverkanna og saksóknararnir kröfðust þess að hann yrði dæmdur í 14-16 ára fang- elsi. Munir Awad, sem er 31 árs og fæddist í Líbanon, og Omar Aboe- lazm, 32 ára Marokkómaður, eru taldir hafa gegnt minna hlutverki og saksóknarar vildu að þeir yrðu dæmdir í 14 ára fangelsi hvor. Í 12 ára fangelsi fyrir hryðjuverkasamsæri Í samræmi við hæstaréttardóma » Verjendur sakborninganna og saksóknararnir fá tveggja vikna frest til að ákveða hvort áfrýja eigi fangelsisdómnum. » Hæstiréttur Danmerkur hafði áður kveðið upp tólf ára fangelsisdóma í tveimur öðr- um málum sem snerust um hryðjuverkasamsæri.  Fjórir menn dæmdir fyrir að undirbúa tilræði í Danmörku Nær 4.200 eldar eða kyndlar voru kveiktir í gær í lönd- um sem tilheyrðu breska heimsveldinu í tilefni af því að 60 ár eru liðin síðan Elísabet II. varð drottning. Fyrsti eldurinn var kveiktur í Marlborough í Nýja-Sjálandi og síðan í hverju samveldislandinu á fætur öðru. Eldarnir mynduðu keðju leiðarljósa og Elísabet drottning tendr- aði síðasta eldinn við Buckingham-höll þegar tónleikar voru haldnir þar í gærkvöldi. Á meðal þeirra sem komu fram voru Paul McCartney, Tom Jones, Elton John, Stevie Wonder og Robbie Williams. AFP Eldar tendraðir á 60 ára valdaafmæli Þverganga Venusar, einn sjaldgæfasti viðburðurinn í sólkerfi okkar, hefst klukkan 22.04 í kvöld og honum lýkur kl. 4.54 í fyrramálið, samkvæmt upp- lýsingum úr Almanaki Háskóla Íslands. Reykjavík er eina borgin þar sem sólin sest og rís aftur á meðan þvergang- an stendur yfir og 235 ár líða þar til þessi atburður sést aftur frá upphafi til enda hér á landi, að því er fram kemur á stjörnufræðivefnum. Venus gengur næst fyrir sólina frá jörðu séð eftir rúm 105 ár. Sævar Helgi Bragason, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness, segir að þetta sé einn sjaldgæfasti stjarnfræðiviðburðurinn sem sést á jörðinni og enginn ætti að láta hann framhjá sér fara. „Í besta falli, ef maður er heppinn, sér maður hann tvisvar á ævi en enginn núlifandi maður mun sjá hann aftur. Þetta er kannski ekki sama sjónarspil og sól- eða tunglmyrkvar en það er eitthvað heillandi við að sjá ástarstjörnuna setja fegurðarblett á sólina.“ Fjallað er ítarlega um þvergöngu Venusar á stjörnufræðivefnum: stjornufraedi.is. Ástarstjarnan setur fegurðarblett á sólina Venus Jörð Sól Heimild: NASA 20041639 1761 1769 1874 1882 2117 2125 N W S E Sól Hefst kl. 22.10 * Lýkur 04.50* Venus gengur fyrir sólina í kvöld og á morgun Þverganga Venusar Það sem gerist er að Venus verður í beinni línu milli sólar og jarðar Venus sést sem lítill svartur blettur sem hylur 3% sólskífunnar og færist mjög hægt yfir hana Einn af sjaldgæfustu atburðunum í sólkerfinu Svæðin þar sem þvergangan sést Sést við sólsetur í kvöld Öll þvergangan sést Sést við sólarupprás á morgun Næsta þverganga Venusar verður eftir 105 ár *Skeikað getur allt að 7 mínútum, eftir staðsetningu þeirra sem fylgjast með þvergöngunni Sést ekki Þýska lögreglan staðfesti í gær að 29 ára Kanadamaður, sem er grun- aður um mjög óhugnanlegt morð, hefði verið handtekinn í Berlín. Talið er að maðurinn hafi farið þangað með rútu eftir að hafa dval- ið í einu úthverfa Parísar. Interpol lýsti eftir Luka Rocco Magnotta, fyrrverandi klámmynda- leikara, vegna gruns um að hann hefði myrt fyrrverandi kærasta sinn, 33 ára kínverskan háskóla- nema, og sent afskorna útlimi hans í pósti á skrifstofur stjórnmála- flokka í Ottawa. Grunur leikur á að Magnotta hafi tekið morðið upp á myndband og dreift upptökunni á netinu. Talið er að Magnotta hafi flúið til Parísar frá Montreal í Kan- ada fyrir rúmri viku. ÞÝSKALAND Kanadískur morð- ingi handtekinn eftir víðtæka leit AFP Náðist Kanadamaðurinn Luka Rocco Magnotta er grunaður um morð. Tóbaksfyrirtækið Philip Morris hóf í gær málshöfðun gegn stjórnvöld- um í Noregi til að knýja þau til að afnema lög sem banna að tóbak sé sýnilegt í verslunum. Norðmenn fóru að dæmi nokkurra þjóða, þ.á m. Íslendinga, og bönnuðu að tóbak væri sýnilegt viðskiptavinum í verslunum frá og með 1. janúar 2010. Philip Morris heldur því fram að bannið sé brot á reglum EES- samningsins um frjálsa samkeppni, en norsk stjórnvöld neita því. NOREGUR Philip Morris höfðar mál vegna banns Bók hefur verið skilað í sýslu- bókasafn í bænum Navan á Írlandi 80 árum eftir skiladag. Óþekktur maður laumaði bókinni inn um bréfalúgu bókasafnsins um helgina. Bókaverðirnir áætla að vanskila- sektin sé komin upp í sem svarar 670.000 krónum en segjast vilja fella hana niður ef sá sem skilaði henni gefur sig fram. Ekki er vitað um lántakandann því tölvuskrár bókasafnsins ná aðeins aftur til árs- ins 1994. ÍRLAND Bók skilað í safnið 80 árum of seint Lyftur og lyftarar PIPA R \ TBW A  SÍA  111896 Fjölbreytt úrv al Frábær þjón usta Brautarholt 26-28 | 105 Reykjavík Sími 511 1100 | www.rymi.is | www.riverslun.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.