Morgunblaðið - 05.06.2012, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 05.06.2012, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2012 Vatnaleikur Unga fólkið er duglegt við að nota góða veðrið til að skemmta sér og í gær voru nokkrir krakkar að leika sér á hjólum við Hvaleyrarvatn og sumir létu vaða á hjólunum út í vatn. Ómar Sum lög eldast hraðar en önnur. Ár- ið 2003 setti Alþingi ný barnalög en að- eins fimm árum síðar hófst endurskoðun laganna sem nú sér fyrir endann á. Tím- arnir hafa kallað á breytingar. Réttindi barna hafa verið sett í forgrunn, a.m.k. í umræðu, en ekki endilega alltaf í framkvæmd. Ein stærsta áskorun sem lög- gjafi, framkvæmdavald og dóms- vald standa frammi fyrir í þessum efnum er staða barna við skilnað eða sambúðarslit foreldra, þegar foreldrar deila. Blessunarlega er það undantekning fremur en regla. Langflestir foreldrar ná samkomulagi um forsjá, um- gengni og lögheimilisskráningu, stundum með aðstoð sérfræði- ráðgjafar á vegum sýslumanna eða annarra, stundum án slíkrar ráðgjafar. Með því frumvarpi sem nú ligg- ur fyrir Alþingi og bíður þriðju umræðu og afgreiðslu er gert ráð fyrir að stórauka sáttameðferð á vegum hins opinbera fyrir for- eldra sem deila um forsjá og um- gengni og gera hana að beinni skyldu áður en ráðist er í málaferli eða úrskurða krafist. Með þessum hætti geta fagaðilar aðstoðað for- eldra við að ná sátt, enda er sátt foreldra barni ávallt fyrir bestu. Með breytingum sem frum- varpið kveður á um er einnig lögð ríkari skylda á herðar hins opin- bera að líta til þess við ákvarðanir hvort barn eða einhver á heimili barns hafi orðið eða kunni að verða fyrir ofbeldi. Þetta er ekki úr lausu lofti gripið. Í framkvæmd hefur börnum stundum verið komið fyrir hjá ofbeldisfullu for- eldri án nokkurs eftirlits, á þeirri forsendu að foreldrið hafi ekki að því er vitað er beitt barnið ofbeldi, þótt vitað sé um ofbeldi gagnvart öðru fjölskyldufólki! Þessi breyt- ing leiðir vonandi til farsælli og skjótvirkari ákvarðana í erfiðum forsjárdeilum sem má rekja til heimilisofbeldis. Lögregla geti náð í börn Alþingi hefur að frumkvæði vel- ferðarnefndar gert veigamiklar breytingar á frumvarpinu frá því sem var þegar ég lagði það fram. Þannig hefur Alþingi ákveðið að heimila eigi dómurum að dæma sameiginlega forsjá og að ekki sé ástæða til að fella heimild til aðfarar úr barnalögum, þ.e. að hægt sé að senda lögreglu inn á heimili barns til að koma á ákvarðaðri um- gengni við foreldri sem ekki hefur notið hennar. Sjálfum hef- ur mér alla tíð fund- ist óréttlætanleg með öllu að taka barn út af heimili með lög- regluvaldi af þessu tilefni. En meginástæða þess að ég gerði að tillögu minni að taka þessa heim- ild úr lögum var sú að mannrétt- indasamtök og samtök um réttindi barna höfðu gert alvarlega at- hugasemd við þessa heimild og framkvæmd hennar. Íslensk stjórnvöld þurftu að svara fyrir þetta á vettvangi barnarétt- arnefndar Sameinuðu þjóðanna í fyrirtöku á barnasáttmálanum og áréttað var að gæta ætti í hvívetna að hagsmunum barna. Þá vaknar sú spurning: Getur það einhvern tímann verið barni fyrir bestu að það sé tekið út af heimili sínu með lögregluvaldi? Svar Alþingis er já. Svar mitt er nei. Ég tel að þvingunarráðstöf- unum sé hægt að beina gegn for- eldrum en aldrei gegn barni. Í barnaverndarlögum eru þó eftir sem áður heimildir til aðgerða til verndar börnum, verði þau fyrir ofbeldi eða vanrækslu á heimilum sínum. Slíkar aðgerðir tel ég rétt- lætanlegar. Varnaðarorð um dómaraheimild Ástæða þess að ég lagði ekki til að farin yrði sú leið að heimila dómurum að dæma sameiginlega forsjá er sú að ég taldi rétt að láta reyna á hina stórauknu sátta- meðferð sem boðuð er í frumvarp- inu. Hvers vegna? Jú, vegna þess að sátt er betri en þvingun. Staðreyndin er sú að afar fá forsjárdeilumál enda fyrir dómi. Í flestum þeirra næst sátt á ein- hverju stigi. Sameiginleg forsjá á að sjálfsögðu að vera megin- reglan. Barn á að geta notið beggja foreldra sinna og bæði for- eldri eiga að geta notið barna sinna. En sameiginleg forsjá krefst ríkrar samvinnu, sem má spyrja hvort geti yfirleitt átt sér stað ef deilur foreldra eru svo hat- rammar að á endanum þurfi dóm- ari að taka ákvörðun um forsjá barns. Hættan er sú að dómstólar hér á landi falli í sömu gryfju og dæmi sýna annars staðar frá og dæmi sameiginlega forsjá í málum þar sem góð samvinna er ólíkleg. Við þessu hef ég varað og vona sannarlega að þau varnaðarorð nái eyrum sem flestra nú þegar Alþingi er í þann mun að heimila dómurum að dæma sameiginlega forsjá. Hann er góður pabbi Samkvæmt rannsókn sem gerð var í Danmörku í kjölfar setningar laga, sem heimila dómara að dæma sameiginlega forsjá, hafa um 28% foreldra, sem hafa verið dæmd til að fara saman með forsjá barns síns, alls ekkert sam- band sín á milli og 43% þeirra ræða ekki saman um málefni sem tengjast daglegum foreldra- skyldum – sem hlýtur að vekja spurningar um líðan barns í slíkri stöðu. Sú sáttmeðferð sem teflt hefur verið fram sem valkosti við dóm- stólaleiðina er hins vegar að mín- um dómi, raunverulegt úrræði til bóta. Það á að forðast það sem heitan eldinn að barn verði sett í þá stöðu að lögmenn hvors for- eldris um sig keppist við að finna veika bletti á hinu. Sátta- meðferðin byggir á því gagn- stæða, að finna jákvæðan grunn til að byggja á. Einhvern tímann var mér sagt frá foreldrum í öðru landi sem deildu um forsjá yfir barni sínu og höfðu fundið hvort öðru allt til for- áttu frammi fyrir dómara. Síðan voru þau spurð hvort í sínu lagi hvort þau gætu sagt eitthvað já- kvætt um hitt. Faðirinn sagði eftir nokkra umhugsun að hann gæti sagt það jákvætt um barnsmóður sína að hún væri góð móðir. Og þegar móðirin var spurð svaraði hún: „Jú, hann er góður pabbi.“ Eftir Ögmund Jónasson »… mannréttinda- samtök og samtök um réttindi barna höfðu gert alvarlega athugasemd við þessa heimild og fram- kvæmd hennar. Ögmundur Jónasson Höfundur er innanríkisráðherra. Sátt er betri en þvingun Margt er fróðlegt í nýju frumvarpi mennta- og menningarmálaráð- herra um fornleifar sem komið er hálfa leið í gegn- um þingið. Sem dæmi má nefna kvaðir um tilkynn- ingaskyldu vísinda- manna. Ekki dugar að fornleifafræðingar sæki sí og æ um rannsókn- arleyfi vegna uppgraftar á minjum, afhendi rann- sóknargögn sín og sæti eftirliti á meðan á uppgrefti stendur. Nú skal þeim gert að tilkynna yfirvöldum um allar sínar rannsóknir hvaða nafni sem þær nefn- ast. Er þessi harka ríkisvaldsins rétt- lætt með þeim rökum að eftirlit sem þetta auðveldi stjórnvöldum að öðlast yfirsýn á vettvangi fornleifafræði. Yf- irsýnin sé jafnframt forsenda þess að stuðla megi að varðveislu menningar- arfsins. Yfirsýn eða yfirsjón Það er ánægjuleg stefnubreyting að stjórnvöld minjamála vilji öðlast heild- arsýn yfir störf fornleifafræðinga. Þó er skrýtið að gera ráð fyrir að yfirsýn verði ekki fengin nema með lagaboðum. Að því leyti er frumvarpið merkileg heimild um skilning embættismanna á eðli þekk- ingarleitar. Hingað til hafa þeir sem leit- ast við að öðlast yfirsýn yfir tiltekin mál- efni getað bjargað sér, t.d. með því að mæta á ráðstefnur, lesa fagrit og jafnvel skrifast á í vinsemd við sérfróða ein- staklinga. Samkvæmt nýja frumvarpinu ber mér m.a. að tilkynna ef ég skrepp upp í sveit og slæ málbandi á þúst sem gæti mögulega verið dys eða tóft, eða sit heima og geri bókfræðilega rannsókn á áhrifum stalinisma á norræna forn- leifafræði. Ef ég tek sýni, ber mér að skila því, jafnvel eftir að það hefur verið lagt í sýrubað, skotið með innrauðum leysigeislum, leyst upp í frumeindir og varnalega eytt. Þetta er löggjöf sem býr til nýjan og spennandi tilvistarspekilegan vanda. Enn sem stendur hefur ekki komið fram að ráðuneytið hafi áform um að auka miðstýringu á öðrum vís- indasviðum. Ef heldur sem horfir mega fleiri stéttir eiga von á samsvarandi að- gerðum. Þarf ráðuneytið ekki yfirsýn yf- ir fornsagnarannsóknir? Í þeim fræðum ganga margir lausir og stunda allskonar rannsóknir, en fornritin eru jú mik- ilvægur hluti menningararfsins. Hvað um þá vísindamenn er stunda rann- sóknir sem varða enn alvarlegri málefni, t.d. öryggi og heilsu almennings? Er ekki rétt að skikka jarðeðl- isfræðinga með lögum til að gera grein fyrir sér þegar þeir eru að rannsaka jök- ulhlaup og aðrar hamfarir? Þarf ekki að herða eftirlit með rannsóknarstarfi sjálfseignarstofnunarinnar Hjartavernd? Nú svo eru stjórnmálafræðingar, eftir- litslaust og sjálfstætt starf- andi við Reykjavík- urakademíuna, að rannsaka hegðun þeirra sem stjórna efnahags- og velferð- armálum þjóðarinnar. Hver hefur yfirsýn yfir störf guðfræðinganna eða þeirra sem leita að lífi á öðrum hnöttum? Lög til gagns Í frumvarpi ráðherra eru um 20 atriði sem sérfræðingar hafa lengi reynt að fá ráðuneytið til að breyta eða bara sleppa. Það er óþarfi að semja lög sem draga kraftinn úr kortlagningu fornleifa um landið, eða veikja faglega stöðu forn- leifasjóðs. Tregðulögmál innan ráðu- neyta er verðugt rannsóknarefni, ekki síst í þessu tilfelli, þegar jafn sund- urleitur hópur og íslenskir fornleifa- fræðingar og allrahanda minjavinir hef- ur tekið höndum saman. Þessar einlægu ábendingar snerust um að fá ráðuneytið til að gera fyrst heiðarlega úttekt á málaflokknum og síðan setja saman nýja löggjöf. Þekking og yfirvegun myndi áreiðanlega draga úr tortryggni ráðuneytis gagnvart fólk- inu sem starfa á eftir lögunum. Þá sæju menn að lögin eiga jú að snúast um op- inbera minjastjórnun en ekki sífellt strangara eftirlit með ímynduðum óvin- um menningararfsins í hópi vísinda- manna. Lagasetning er vandasamt verk. Ef vel er að gáð, þá blasir við að ekki er nauðsynlegt að taka upp opinbera vís- indastefnu og umfangsmikið eftirlit með fámennum hópi fræðimanna, herða öll hugsanleg þvingunarúrræði, setja óraunhæf tímamörk um athafnir þeirra, beita þá háum dagsektum eða hafa af þeim öll gögn sem til verða og nýtast munu í þeirra starfi, landi og þjóð til heilla. Miðstýring og minjar Eftir Adolf Friðriksson Adolf Friðriksson » Lögin eiga jú að snúast um opinbera minja- stjórnun en ekki sífellt strangara eftirlit með ímynduðum óvinum menningararfsins. Höfundur er fornleifafræðingur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.