Morgunblaðið - 05.06.2012, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 05.06.2012, Qupperneq 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚNÍ 2012 Fínt, en ekki frábært Ljósmynd/Listahátíð í Reykjavík. Ljósmyndari: Valgarður Gíslason. Gleðigos Hljómskálinn fuðraði upp um stund í gírugu gleðigosi þegar Prófessorinn steig á svið. urð Guðmundsson Memfismafíósa sér til fulltingis, og sannaði þar enn og aftur hvílíkur látúnsbarki hann er. Svakalega fínn söngvari. Í kjöl- farið kom Unnsteinn Manúel á svið og snaraði slagaranum „Gestir út um allt“ með annarri. Þar er annar flytjandi kominn sem eignar sér sviðið áreynslulaust, slíkur er stjör- nuljóminn sem stafar af honum. Við tók heldur brokkgengur strengur af lögum, sum hittu í mark og önn- ur ekki, en aldrei leiddist manni þó beinlínis. Til dæmis var frábært að sjá Ágústu Evu Erlendsdóttur mæta og syngja, ásamt Megasi, „Lengi skal manninn reyna“ – það er með ólíkindum að engum hafi tekist að fá hana til þess að henda í plötu því hún er frábær söngkona, vægast sagt. Það var óvænt gaman að sjá Egil Sæbjörnsson taka stór- smell sinn „I Love You So“ af önd- vegisverkinu Tonk Of The Lawn, en það vantaði eitthvert „úmmpff“ í flutninginn til að lagið næði viðeig- andi flugi. Þá var komið að þætti sjálfs Prófessorsins, sem dagsdaglega gengur um í gervi Óttars nokkurs Proppé. Þá kviknaði heldur betur líf í tuskunum og Hljómskálinn fuðraði upp um stund í gírugu gleðigosi. Ekki minnkaði nostalgíu- kastið þegar Magnús Þór Sig- mundsson steig á svið, ásamt Jón- asi Sigurðssyni, og flutti „Jörðin sem ég ann“. Það var vel til fundið og áhorfendur tóku vel við sér. Aukalögin voru jafnvel til fundin – Pálmi Gunn. söng „Hvers vegna varstu ekki kyrr?“ og Björn Jör- undur söng „Frelsið er yndislegt“ með fulltingi áðurnefnds Unnsteins Manúels. Allt í allt fín skemmtun þótt tilfinnanlega vantaði neistann – hinn títtnefnda herslumun – til að gera giggið geðveikt. Fínt, en ekki frábært. » Allt í allt fínskemmtun þótt til- finnanlega vantaði neistann – hinn títt- nefnda herslumun – til að gera giggið geðveikt. AF TÓNLIST Jón Agnar Ólason jonagnar@mbl.is Hljómskálaþrenningin – Sig-tryggur Baldursson ásamtgreiningardeildarmönn- unum Braga Valdimar og Kidda Hjálmi – hefur á leifturskömmum tíma komist í hóp ástsælustu heim- ilisvina gegnum hinn bráð- skemmtilega samnefnda sjónvarps- þátt sinn. Frumleg efnistök og fínasta rennsli af tónlistarmönnum gerði hvern þátt að ilmandi efni og maður beið spenntur næsta skammts. Hljómskálinn ákvað því að taka rökrétt framhald á vel- gengninni og færði herlegheitin í Hörpu um liðna helgi með öllu til- heyrandi. Meira að segja sviðs- myndin var eins og aðfluttir út- veggir sjálfs Hljómskálans. Annað var eftir því – sírennandi flaumur af stjörnum íslenskrar poppmenn- ingar inn á svið og út af aftur. Tvo hápunkta gat að heyra og sjá þegar á fyrstu metrunum. Valdimar söng „Ameríka“ með Sig- „Listahátíð í Reykjavík leggur með aðdáunarverðum hætti áherslu á listamannahópa og samfélagslist. Einstaklingshyggjan hefur liðið undir lok. Núna er samvinna mál- ið,“ skrifar Torben Sangild m.a. í þriggja síðna úttekt sinni á mynd- listarverkefni Listahátíðar í Reykjavík, þ.e. [I]ndependent people eða Sjálfstæðu fólki, í danska dagblaðinu Politiken. Í umfjöllin sinni tekur Sangild sérstaklega fyrir þrjár myndlistar- sýningar á Listahátíð sem fjalla um jörðina með einum eða öðrum hætti. Hann gefur vídeóinnsetningu IC-98 í Listasafni Íslands fullt hús stiga eða sex hjörtu. „Einstaka sinnum rekst maður á verk sem ekki aðeins heilla mann heldur beinlínis hreyfa við manni,“ skrifar hann. Verk A Kassen í Kling & Bang fær fjögur hjörtu og þá umsögn að það hafi verið allt í senn fallegt, frumlegt og absúrd. Að lokum gefur hann Rúrí og Gunnlaugi M. Einars- syni þrjú hjörtu fyrir verk þeirra í Listasafni ASÍ. Sangild tekur fram að hann geti ekki annað en hrifist af þeirri stefnu Íslendinga að veðja á menninguna í kjölfar hrunsins. Ljósmynd/Pétur Thomsen Sýn „Ég sat alls í 70 mínútur í myrkrinu með þessa fallegu vídeóinnsetn- ingu og vildi hvergi annars staðar vera,“ skrifar Sangild um verk IC-98. Samstarfsverkefni og samfélagslist  Fjallað um Sjálfstætt fólk í Politiken - nýr auglýsingamiðill  569-1100finnur@mbl.is www.lifandimarkadur.is Borgartúni 24 | Reykjavík Hæðasmára 6 | Kópavogi Sími: 585 8700 Kókoslínan frá DR. GOERG er framleidd á einstakan hátt úr fyrsta flokks lífrænum kókos- hnetum í gegnum sérstakt „fair trade“ verkefni. Þessi miklu gæði koma fram í einstökum bragðgæðum og næringargildi. Spennandi hráfæði kókosvörur Hráfæði kókoshveiti - frábært í baksturinn Kókosmjólk úr 3 lífrænum kókoshnetum Nýtt Unaðsleg kókosolía - góð í þeytinginn Les Misérables - Vesalingarnir (Stóra sviðið) Fös 8/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30 Fös 22/6 kl. 19:30 Lau 9/6 kl. 19:30 Lau 16/6 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30 Fim 21/6 kl. 19:30 Níu Grímutilnefningar! Allra síðasta sýning 22. júní. Dagleiðin langa (Kassinn) Lau 16/6 kl. 19:30 Allra síð.sýn. Eitt magnaðasta fjölskyldudrama 20. aldarinnar. Allra síðasta sýning 16. júní. Afmælisveislan (Kassinn) Lau 1/9 kl. 19:30 Sun 2/9 kl. 19:30 Eitt vinsælasta verk Pinters. Sýningar í september komnar í sölu. Kristján Eldjárn - minningartónleikar (Stóra sviðið) Fim 7/6 kl. 20:00 Allur ágóði rennur í minningarsjóð Kristjáns Eldjárn Gamli maðurinn og hafið (Kúlan) Fös 8/6 kl. 19:30 Sun 10/6 kl. 19:30 Fös 15/6 kl. 19:30 Lau 9/6 kl. 19:30 Fim 14/6 kl. 19:30 Brúðusýning fyrir fullorðna eftir Bernd Ogrodnik. Listahátíð 2012 Hringurinn - athyglisverðasta áhugaleiksýning ársins (Kassinn) Fös 22/6 kl. 19:30 Aeðins þessi eina sýning! 568 8000 | borgarleikhus.is Tengdó – HHHHH–JVJ. DV Svar við bréfi Helgu (Nýja sviðið) Þri 5/6 kl. 20:00 aukas Fös 8/6 kl. 20:00 aukas Sun 10/6 kl. 20:00 lokas Mið 6/6 kl. 20:00 19.k Lau 9/6 kl. 20:00 20.k Byggt á metsölubók Bergsveins Birgissonar. Hrífandi saga um þrá og eftirsjá Rómeó og Júlía (Stóra svið ) Fös 8/6 kl. 20:00 Sun 10/6 kl. 20:00 aukas Ógleymanleg uppfærsla Vesturports. Síðustu sýningar! Tengdó (Litla sviðið) Fös 8/6 kl. 20:00 lokas Sönn saga. Í samstarfi við CommonNonsense. Síðustu sýningar! Beðið eftir Godot (Litla sviðið) Lau 9/6 kl. 20:00 lokas Tímamótaverk í flutningi pörupilta

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.