Morgunblaðið - 05.07.2012, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 05.07.2012, Qupperneq 1
F I M M T U D A G U R 5. J Ú L Í 2 0 1 2  Stofnað 1913  155. tölublað  100. árgangur  –– Meira fyrir lesendur FYLGIR MEÐ MORGUNBLAÐINU Í DAG KENNIR LJÓS- MYNDUN Í NÁTT- ÚRU ÍSLANDS VIÐSKIPTI LEIKLISTAR- HÁTÍÐ Á SUÐUREYRI ACT ALONE Í NÍUNDA SINN 35LISTIN AÐ VINNA LJÓSMYNDIR 10 Stofnfé Kjölfestu er fjórir milljarðar króna Það var vaskur hópur Hvergerðinga sem kom saman í gær þar sem Hamarshöllin mun rísa á næstunni. Verkefnið var að breiða út dúk sem síðan verður blásinn upp á laugardaginn og úr verður fjölnota íþróttahús Hvergerðinga. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri, var meðal íbúa sem lögðu hönd á plóg og sagðist hún stolt af sínu fólki enda fátítt að svona stór verkefni hér á landi séu unnin af íbúum í sjálfboðaliðavinnu. Hvergerðingar vinna saman við að reisa Hamarshöllina Morgunblaðið/Styrmir Kári Baldur Arnarson baldura@mbl.is Íslensk fyrirtæki sem þróa tækni og hugbúnað fyrir sjávarútveg eru mörg að uppskera núna eftir langt markaðs- og þróunarstarf. Hermann Kristjánsson, fram- kvæmdastjóri Vaka, sem er eitt þessara fyrirtækja, segir að eft- irspurnin eftir vörum Vaka sé mest í Noregi, Skotlandi, Kanada og Síle. „Það er stígandi í fiskeldi víðast hvar í heiminum. Markaðurinn og mögu- leikarnir fara því vaxandi fyrir okk- ur. Heimamarkaðurinn er aðeins brotabrot af heimsmarkaðinum.“ „Við fengum risaverkefni í Fær- eyjum. Það hefur verið mikill vöxtur samfara þessu eina verkefni sem við erum að vinna í núna. Við höfum náð að tileinka okkur nýja tækni sem við höfum þróað fyrir vinnslu á uppsjáv- arfiski,“ segir Ingólfur Árnason, framkvæmdastjóri tæknifyrirtæk- isins Skagans. Veltan þrefaldaðist Valka er enn eitt fyrirtækið á þessu sviði sem sérhæfir sig í fisk- vinnslutækjum til flokkunar og pökkunar. „Við höfum einkum sótt fram í Noregi og þá með sölu tækja og hugbúnaðar í fiskvinnslu, einkum í laxinum,“ segir Helgi Hjálmarsson, framkvæmdastjóri Völku. Fyrir- tækið þrefaldaði veltu sína í fyrra úr 120 í 400 milljónir. Jón Ágúst Þor- steinsson, forstjóri Marorku, segir áhersluskort á raungreinamenntun í grunn-, framhalds- og háskólum helst hamla vexti þessara fyr- irtækja. Það sé alvarlegt vandamál til framtíðar. »12 Mikill vöxtur og tækifæri  Velta tæknifyrir- tækja stóreykst FINNUR.IS Hellurnar keppa við malbikið Lögreglan í Brasilíu hefur handtekið Íslending í borginni Rio de Janeiro í tengslum við stórfellt fíkniefnamál, en maðurinn er grunaður um aðild að innflutningi á 46 þúsund e-töflum. Samkvæmt brasilískum fjölmiðlum er þetta eitt stærsta e-töflumál sem komið hefur upp þar í landi. Utanríkisráðuneytið hefur staðfest að Íslendingur hafi verið handtekinn í Ríó og samkvæmt upplýsingum frá ráðuneytinu er ræðismaður Íslands í borginni að vinna í málinu. Greint hefur verið frá því í bras- ilískum fjölmiðlum að e-töflurnar hafi fundist í farangri 26 ára gamallar konu frá Brasilíu sem handtekin var á Tom Jobim-flugvellinum í Ríó sl. mánudag þegar hún kom til landsins frá Lissabon í Portúgal. Í yfir- heyrslum hjá lögreglu sagðist konan hafa ætlað að hitta brasilískan kær- asta sinn og Íslendinginn, sem sagður er vera á fimmtugsaldri, á kaffihúsi í Ipanema, en lögreglan fór þangað og handtók mennina tvo. Eitt stærsta e-töflumálið í Brasilíu  Íslendingur handtekinn í Rio de Janeiro Fíkniefni Einn hinna handteknu í fylgd lögreglu. Um er að ræða eitt mesta magn sem fundist hefur í einu lagi í Brasilíu. Þá fannst kannabis og LSD við húsleitir. Myndirnar eru úr f́rétt G1, fréttastöðvarinnar í Brasilíu. Ingvar P. Guðbjörnsson ipg@mbl.is Lögregla og Landhelgisgæsla leituðu að hvítabirni á Húnaflóa úti fyrir Vatnsnesi seinni partinn í gær og fram undir miðnætti án árangurs. Fregnir af birninum bárust eftir að ítalskir ferðamenn höfðu sýnt fólki á bænum Geitafelli á Vatnsnesi myndir af dýri syndandi í sjónum. Í kjölfarið var haft samband við lögregluyfirvöld á Blönduósi. „Ég hef rætt við lögreglu á staðn- um sem hefur tjáð mér að það séu þarna spor eftir hvítabjörn, en meira vitum við ekki,“ segir Ólafur Arnar Jónsson, sviðsstjóri hjá Umhverfis- stofnun, í samtali við blaðið. Lögreglan reyndi að hafa uppi á Ítölunum, en þeir voru farnir af svæð- inu og símanúmer sem þeir skildu eft- ir reyndist ekki rétt. Þyrla Landhelg- isgæslunnar fór í loftið kl. 16:12 í gærdag og hélt til leitar á Húnaflóa. Það var svo lögreglan á Blönduósi sem fann fótspor eftir hvítabjörn í gærkvöldi um 300 metrum frá þeim stað þar sem ítölsku hjónin höfðu tek- ið myndirnar. Lögreglan lokaði vegum að Vatns- nesinu báðum megin frá í gærkvöldi. Íbúum svæðisins var gert viðvart um ástandið og fólk hvatt til þess að fara ekki langt frá húsum. Að sögn lög- reglunnar hafði svæðið verið fín- kembt af þyrlunni og til stóð að gera hlé á leit um miðnætti en halda leit áfram í morgunsárið. Hvítabirnir eru stórhættulegir og sögðust íbúar á svæðinu ekki ætla út fyrir hússins dyr á meðan ástand væri ótryggt. Lög- regla hvetur fólk við Húnaflóa til að hafa varann á sér og láta lögreglu vita ef það verður vart við björninn. Mikil leit gerð að hvítabirni  Ferðamenn urðu hvítabjarnar varir  Þyrla Gæslunnar leitaði fram á kvöld víða á Húnaflóa  Lögreglan fann spor eftir björn  Vegurinn um Vatnsnes lokaður Ljósmynd/Róbert Jack Vopnaður Skotmaður á vegum lög- reglu var kallaður á vettvang í gær.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.