Morgunblaðið - 05.07.2012, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 5. JÚLÍ 2012
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Pétur Blöndal menning@mbl.is Íþróttir Víðir
Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Guðrún Sóley Gestsdóttir
gudrunsoley@mbl.is
Bergný Ösp Sigurðardóttir átti ekki
von á barni sínu fyrr en eftir níu
daga, svo henni brá heldur betur í
brún þegar litlu stúlkunni lá svo á
að komast í heiminn að hún fæddist
í bifreið á leið um Oddsskarð þar
sem leiðin lá á Fjórðungssjúkra-
húsið í Neskaupstað í fyrradag.
Bergný kann engar skýringar á því
af hverju fæðinguna bar svo brátt
að.
„Ég hafði fengið fyrirvaraverki
daginn áður, en ég var ekki sett fyrr
en 12. júlí svo ég átti alls ekki von á
þessu svona snemma,“ segir hún.
Faðirinn tók á móti barninu
Bergný vaknaði um sexleytið um
morguninn og hún og maður henn-
ar, Guðni Tómasson, voru nýlögð af
stað að heiman, rétt fyrir klukkan
hálfátta, þegar barnið fæddist.
„Fæðingin var í raun byrjuð áður en
við lögðum af stað, en við von-
uðumst til að ná á sjúkrahúsið í
tæka tíð,“ segir Bergný. Það varð
hins vegar ekki raunin og þegar
Bergnýju og manni hennar varð
ljóst að þau myndu ekki ná á spít-
alann hringdu þau eftir aðstoð.
„Sjúkrabíllinn kom svo þegar barnið
var komið í heiminn,“ segir hún en
þau voru aðeins búin að keyra í 5
mínútur þegar fæðingin fór af stað.
„Það gekk allt vel og hratt fyrir sig,
maðurinn minn tók á móti barninu
og þetta gekk í raun eins og í sögu,“
segir Bergný en að hennar sögn tók
fæðingin aðeins um 10 mínútur.
„Ég á erfitt með að setja mig í
spor þeirra mæðra sem þurfa að líða
kvalir í tvo eða þrjá sólarhringa áð-
ur en börn þeirra fæðast, ég er
ósköp fegin að þetta tók svona stutt-
an tíma hjá mér,“ segir hún.
Móður og barni heilsast vel en
sjúkrabíll flutti foreldrana og ný-
fætt barnið á sjúkrahúsið eftir fæð-
inguna en um fimmtán mínútna
akstur er frá fæðingarstað barnsins
að sjúkrahúsinu.
Engin vandamál sköpuðust bless-
unarlega við þessar óvenjulegu að-
stæður og stúlkan braggast vel.
„Það var líka gaman að upplifa að
standa að þessu tvö ein, það var
enginn þarna nema við foreldrarnir
og þetta var yndisleg stund,“ segir
Bergný en þetta er þriðja barn
þeirra hjóna. Fyrir eiga þau tvær
stúlkur, eins og þriggja ára gamlar.
Aðspurð hvort hún hafi ekki orðið
hrædd þegar ljóst varð að barnið
kæmi í heiminn áður en þau næðu á
sjúkrahúsið segir hún ekki svo vera.
„Þetta eru auðvitað ekki kjör-
aðstæður en einhverra hluta vegna
var ég ekki smeyk, enda með stuðn-
ing frá manni mínum,“ segir
Bergný. Frammistaða föðurins
verður líka að teljast hetjuleg, en
hann vílaði ekki fyrir sér að taka á
móti barninu. „Hann hélt líka ró
sinni og stóð sig alveg ótrúlega vel,
enda ýmsu vanur,“ segir hún. Litla
stúlkan, sem hefur ekki fengið nafn,
er hin rólegasta þrátt fyrir að hafa
komið í heiminn með látum. „Hún
dafnar vel og er róleg og vær, hún
hefur viljað þennan afmælisdag og
hann fékk hún,“ segir Bergný. Að
sögn kunnugra er þetta ekki í fyrsta
sinn sem barn fæðist í bíl á leiðinni
um Oddsskarð en það gerðist síðast
fyrir um 4 eða 5 árum.
Sátt og sæl „Hún dafnar vel og er róleg og vær, hún hefur viljað þennan af-
mælisdag og hann fékk hún,“ segir Bergný Ösp um nýfædda dóttur sína.
„Yndisleg stund“ er
barn fæddist í bíl
Faðirinn tók óvænt á móti dóttur sinni í Oddsskarði
Þrautalítið ævintýri
» „Fæðingin var í raun byrjuð
áður en við lögðum af stað, en
við vonuðumst til að ná á
sjúkrahúsið í tæka tíð“
» „Það gekk allt vel og hratt
fyrir sig, maðurinn minn tók á
móti barninu og þetta gekk í
raun eins og í sögu“
» „Stúlkan dafnar vel og er ró-
leg og vær“
ESA, eftirlitsstofnun EFTA, ákvað í
gær að fara fram á við íslenska ríkið
að það endurheimti ríkisaðstoð að
andvirði 220 milljóna króna frá
Verne gagnaveri sem er að Ásbrú í
Reykjanesbæ. Ríkisaðstoðin var
veitt árið 2008 þegar ríkið seldi
Verne fimm byggingar á gamla
varnarliðssvæðinu við Keflavíkur-
flugvöll undir markaðsvirði. Auk
þess mun Reykjanesbær hafa veitt
Verne undanþágu frá fasteigna- og
gatnagerðargjöldum frá árinu 2009
sem samræmist ekki EES-samn-
ingnum, að mati ESA.
Ekki liggur fyrir hvort Verne og/
eða íslenska ríkið muni láta reyna á
mat ESA fyrir EFTA-dómstólnum.
Upphaflega var ætlunin að gera
fjárfestingarsamning á milli ríkisins
og Verne. Sam-
hliða gerði fyrir-
tækið samning
um kaup á eign-
um á svæðinu og
raforkusamning.
Í þessu ferli var
svo horfið frá
fjárfestingar-
samningnum og
tilkynning um hann til ESA dregin
til baka. Þess í stað var gerður samn-
ingur við Verne á grundvelli laga um
ívilnanir vegna nýfjárfestinga.
Eftirlitsstofnun EFTA komst að
þeirri niðurstöðu að söluvirði bygg-
inga á svæðinu hefði verið undir
markaðsverði. Muninn á þeim og
ógreidd gjöld til Reykjanesbæjar
þarf því að innheimta nú. ipg@mbl.is
Sala ríkiseigna til
Verne á undirverði
Þurfa að greiða 220 milljónir til baka
Ekki í samræmi við EES-samninginn
Flestir golfklúbbar halda meistaramót sín í vik-
unni. Mótin hjá stærri klúbbunum byrjuðu á
sunnudag með leik yngri flokka, meistara-
flokkar hófu leik í gær og ljúka á laugardaginn.
Gera má ráð fyrir því að á þriðja þúsund kylf-
ingar taki þátt í mótunum. Kylfingurinn hér að
ofan tekur þátt í meistaramóti Kjalar í Mos-
fellsbæ en þar eru þátttakendur 210. Hjá stærstu
klúbbunum taka hundruð þátt. Í meistaramóti
GR taka 570 manns þátt, hjá Keili í Hafnarfirði
eru 370 keppendur og hjá Golfklúbbi Kópavogs
og Garðabæjar eru 382 keppendur.
Fjöldi golfara keppir um þessar mundir á meistaramótum golfklúbbanna víðsvegar um landið
Morgunblaðið/Kristinn
Á þriðja þúsund eltast við hvíta kúlu í von um fugl
eftir
Þorstein Mar
„Manni leiddist aldrei á
meðan lestrinum stóð.“
JKG, Nörd Norðursins
„Hin fínasta lesning,
frjó hugmyndagleði
einkennir hana.“
BHÓ, Skorningar
Í Reykjadal ofan Hveragerðis má sjá
hvernig göngustígar hafa breitt úr
sér og umhverfi í kringum þá hefur
látið verulega á sjá vegna skemmda
af völdum hrossa og göngufólks. Þeg-
ar einn stígurinn verður að svaði
byrjar fólk að ganga við hliðina á
honum og svo koll af kolli með áð-
urgreindum afleiðingum.
Talið er að allt að 1.000 manns fari
um dalinn daglega á sumrin, auk
þeirra sem fara þar á vegum hesta-
leigna og sjálfir á hestum. Algengt er
að fólk sæki í dalinn til þess að baða
sig í heitum læk sem þar rennur og
má víða við lækinn sjá slæm um-
merki eftir fólk sem þar hefur komið
við. Úrbóta er þörf ef ekki á að fara
verr. »17
Morgunblaðið/Rúnar Pálmason
Slóðar Víða eru illa farnir slóðar í
dalnum og nýir að myndast.
Göngustígar
eru illa farnir
af ágangi